Morgunblaðið - 27.10.1996, Page 29

Morgunblaðið - 27.10.1996, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ I --------------------------------------------- i þú ert kominn til. Súsí og Einar - | Guð styrki ykkur nú og í framtíðinni. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðnað tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Axel Axelsson. Nú er okkar kæri vinur látinn. Við þökkum honum samfylgdina þessi ár sem hann var á meðal okk- ar. Þau ár sem við áttum saman munu alltaf vera okkur minnisstæð. Við vottum Súsönnu og Einari alla okkar dýpstu samúð. Allur lífs- og drifkraftur sem bjó í Orra lifir í minningunni og langar okkur til að kveðja hann með þessum r orðum. „Þú leitar að leyndardómi dauð- ans. En hvemig ættir þú að fínna hann, ef þú leitar hans ekki í æða- slögum lífsins? Uglan sem sér í myrkri, en blind- ast af dagsbirtunni, ræður ekki gátu ljóssins. Leitaðu að sál dauðans í líkama lífsins, því að líf og dauði er eitt eins og fljótið og særinn. f djúpi vona þinna og langana felst , hin þögla þekking á hinu yfirskilvit- lega, og eins og fræin, sem dreymir undir snjónum, dreymir hjarta þitt vorið. Trúðu á draum þinn því að hann er hlið eilífðarinnar. Óttinn við dauðann er aðeins ótti smaladrengsins við konung, sem vill slá hann til riddara. Er smalinn ekki glaður í hjarta sínu þrátt fyrir ótta sinn við að bera merki konungsins? Og finnur hann þó ekki mest til ótt- ans? Því að hvað er það að deyja annað | en að standa nakinn í blænum og ' hverfa inn í sólskinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldumi lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötr- aður leitað á fund Guðs síns? Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn vold- uga söng. Og þegar þú hefur náð ævitindin- j um, þá fyrst munt þú hefja fjall- . gönguna. < Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“ (Úr Spámanninum) Heimir Freyr, Guðmundur Már, Orri Einarsson og Lárus Arnór. Kom, huggari, mig hugga þú, | kom, hönd og bind um sárin, kom, dögg og svala sálu nú, kom, sól, og þeirra tárin I kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós og lýstu mér, kom, líf er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (V. Briem.) Fimmtudagskvöldið 17. október sl. þegar náttúran skartaði sínu feg- ursta, og sólin sendi rauðgullinn ' bjarma yfír hafflötinn, var lífsljós I vinar okkar Orra Einarssonar að j slokkna. í þrettán mánuði hafði hann barist hetjulega og sterkur við krabbamein- ið og ætlaði sér að sigra þá orrustu, en raunin varð önnur. Foreldrar eru sviptir einkabami sínu, ættingjar kærum frænda og vinirnir góðum félaga. Vanmáttug stöndum við hljóð og skiljum ekki tilgang almættisins með þessu þunga höggi. Eitt eigum 1 við þó öll, og það er ljúf minning um I hressan og góðan dreng, með mikla j persónutöfra, fallegt bros og þrosk- aða sál. Hana getur enginn frá okk- ur tekið. Við þökkum Orra vináttu hans og biðjum góðan Guð að umvefja hann birtunni gullnu og mjúku, sem sólin sendi frá sér úti við sjóndeildarhring- inn á dánardegi hans. Hér verður hans sárt saknað. Kæru vinir, Sússý, Einar og fjöl- I skyldan öll, við biðjum hinn hæsta i höfuðsmið að gefa ykkur styrk og ljós til að horfa fram á veginn. Fjölskyldan í Garðastræti. MINNINGAR Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Á kveðjustundu langar okkur að minnast góðs vinar okkar, Orra, sem lést 17.10. síðastliðinn eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Þegar við horfum til baka minnumst við gömlu, góðu stundanna sem við átt- um með honum. Leiðir okkar lágu saman í Félagsmiðstöðinni í Lundar- skóla, þar sem við störfuðum. Við urðum strax mjög góðir vinir og vorum saman næstum allan sólar- hringinn og þá ósjaldan heima hjá Orra, þar sem margir minnisstæðir atburðir gerðust. Orri vissi alltaf hvað hann vildi og var mikill stjórnandi í sér og naut sín ávallt best þegar hann fékk að ráðskast aðeins með okkur. Enda héldum við alltaf að hann yrði stór karl. Orra hefur greinilega verið ætlað eitthvað mikilvægt, fyrst hann var tekinn frá okkur svona snemma. Þó að samverustundunum hafi fækkað með árunum var alltaf jafn gaman að hittast og vinaböndin slitn- uðu aldrei. Það er erfitt að kveðja góðan vin og sorgin er stór. Elsku Súsý, Gala og aðrir ástvin- ir, megi ykkur hlotnast allur sá styrk- ur sem þið þurfið á að halda. Orri, við munum alltaf elska þig og vonum að þér líði vel, þar sem þú ert. Þínir vinir, Sigurður, Ingvar Björn, Hulda, Nína, Júlía og Björg. Mér finnst leiðinlegt að vera fjar- stödd þegar Orri verður kvaddur því að mér þótti svo vænt um hann. Við vorum búin að þekkjast lengi og margar mínar minningar tengjast honum á einn eða annan hátt. Allt sem við gerðum saman, krakkarnir, þegar við vorum yngri, partíin heima hjá Orra, opið hús, skólaferðalagið f 10. bekk og allt annað sem við brölluðum og maður segir ekki frá í blöðum. Þetta eru minningar sem gleymast aldrei og ég gleymi Orra aldrei. Elsku Orri! Þetta er mín kveðja til þín. Takk fyrir öll árin sem við þekktumst. Þín vinkona, Þrúður. Orri, minn besti vinur, nú hefur þú farið í ferðalagið mikla. Á komu- stað er örugglega tekið vel á móti þér þannig að þú verður ekki ein- mana í skýjaborgum. Þú ert líka í fullu starfi við að fylgjast með okkur hinum. Þú varst mikill leiðtogi og upp- rennandi athafnamaður. Þegar við vorum saman var andrúmsloftið afs- lappað. Samt fékkstu að stjóma mér eins og mörgum öðrum en það var þægileg og afslöppuð stjómun. Ég minnist þeirra stunda sem við áttum saman, bæði erfiðar og góðar en þó langflestar góðar. Þú varst virkilega sannur vinur og við gátum treyst hvor á annan. Vinabönd okkar eru margra ára gömul og sterk. Ná þau alla leið til þín þar sem þú ert núna. Við ætluðum okkur marga hluti í framtíðinni en það bíður þess tíma þegar þú tekur á móti mér. Ég kveð þig augliti til auglitis og held eftir blessuðum minningunum um sérstaka vináttu. Ég mun sakna þín mjög og ég mun halda áfram að fara í Hrísalundinn til þess að hitta Súsí og minnast þín með henni. Nú ert þú í faðmi Guðs, Orri minn, og líður áreiðanlega vel, við munum hugsa til hvors annars þar til við hittumst aftur. Þinn besti vinur, Sigurður Árnason. Orri var yndislegur strákur. Hann var góður vinur Hákonar, bróður míns. Þeir, Hákon og Orri, kynntust á Akureyri, þegar Hákon var þar eina önn í skóla, og urðu mjög góðir vinir. Ég held meira að segja aðbróð- ir minn hafi verið hálf fluttur heim til Orra, og mamma átti ekki orð yfir hvað Orri og mamma hans voru elskuleg við Hákon. Ég leit gjarnan á vinahóp Hákonar eins og eldri bræður og þess vegna var það að þegar ég hitti svo Orra fyrst, þá tók ég honum bara eins og einum af „bræðrunum“, hann passaði inn í hópinn. Eins og eldri bræður eru þekktir fyrir, þá stríddu þeir mér oft og vildu sjaldan leyfa mér að fara neitt með sér (sem er náttúrulega skiljanlegt, hver vill draga litlu syst- ur sína með sér á djamminu?), en Orri tók mér alltaf sem jafningja. Hann var alltaf svo indæll og hjálp- samur. Ég þekkti hann ekki lengi og ekki nærri eins vel og ég hefði viljað, en af þvi litla sem ég þekkti hann, þá fannst mer hann vera frá- bær strákur sem hefði átt að fá allt gott sem heimurinn hefði að bjóða. Eg sendi Súsönnu mömmu Orra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Crfisdrykkjur SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 29 H Veitingohú/ið GBFi-inn Sími 555-4477 Staðgreiðsluverð: 9.800 kr. húsgögn i Ármúla 44 • sími 553 2035 Blað allra landsmanna! - kjarni málsins! teygjubuxur á góöu verði kr.1.225,- Bleikar, kremaðar og svartar Systir mín, MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR HAAEK, lést í Danmörku 13. október. Páll Þórðarson. Ólöf Embla Eyjólfsdóttir. 0 Fleiri minningargreinar um Orrn Möller Einarsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík * Sími 5531099 Opið ött kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. t Vinur minn, FRANCISCO GARCIA JIMENEZ (PACÓ) Calle Casa Blanca 5, Torremolinos, Spáni, varð bráðkvaddur á heimili sínu 17. október. Guðmundur Jónsson (Gussi). t Eiginkona mín, ÓLÍNA SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 29. október kl. 14.00. Hólmsteinn Þórarinsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma GUÐRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR, Hringbraut 70, Keflavik, áðurtil heimilis Hafnargötu 77, lést föstudaginn 25. október á Sjúkra- húsi Suðurnesja. Jarðaförin fer fram föstudaginn 1. nóvemberfrá Keflavíkur- kirkju kl. 14.00. Björn Jóhannsson, Hrönn Sigmundsdóttir, Sigriður jóhannsdóttir, Roy Ólafsson, barnabörn og langömmubörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GEIR GÍSLASON, Bauganesi 42, Skerjafirði, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. október kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Kristin Geirsdóttir, Steindór Gunnarsson, Guörún Dóra Steindórsdóttir, Geir Steindórsson, Þorleifur Geirsson, Þóra Geirsdóttir, Haraldur Harvey, Magnús Haraldsson, Karitas Haraldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.