Morgunblaðið - 27.10.1996, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Hvers vegna er Eigandinn tapaði of Hann sagðist vera sá eini sem æki á
skautasvellið lokað? miklum peningum ... svellslípara til fátækraheimilisins!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reyiyavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Opið bréf til Karls
Agústs Ipsens
Frá Kjartani Jónssyni:
KÆRI Karl Ágúst
Þakka þér fyrir kveðjuna þann
3. október sl. hér í Morgunblaðinu.
Sem einn af þeim sem starfað
hafa að Granna og skoðanabróðir
„æðstavaldsins", eins og þú kallar
hann, kemst ég ekki hjá því að
taka þetta til mín og finn hjá mér
hvöt til þess að svara þessu. Mér
þykir leitt að við skulum hafa
misboðið þér með því að hafa ekki
viljað birta grein þína sem fjallar
um lögreglusamsæri í máli Víðis
Valgeirssonar og hvarfi hans.
Greinar þínar um vændi á íslandi,
Þjóðarbókhlöðuna og pistillinn í
síðasta blaði hafa allar verið birtar
þótt persónulega fínnist mér pist-
illinn alveg á mörkunum þar sem
fram koma ýmsir fordómar gagn-
vart trúarhópum. Greinin um
Þjóðarbókhlöðuna var alveg prýði-
leg og „Vændi á íslandi" hafði
manneskjulega hlið sem ég taldi
eiga erindi í blaðið.
Ég verð að minna þig á að
Granni fór af stað sem hverfís-
verkefni húmanista í vesturbæ.
Það er liður í því að tengja fólk
saman, virkja það til að sinna
hagsmunamálum sínum og á að
vera farvegur fýrir áhugamál þess.
Að sjálfsögðu innan þess ramma
sem við setjum að þar sé t.d. ekki
hvatt til mismununar, ofbeldis og
annars sem ekki er hægt að sam-
ræma húmanisma. Sérstaklega
vilja húmanistar setja heilbrigðis-
og menntamál í forgang auk ann-
arra mannréttindamála. Það var
aldrei hugmyndin að þar yrðu ein-
hveijir sérstakir blaðamenn
„starfandi", hvorki þú, ég né aðr-
ir, heldur að efni bærist frá sem
breiðustum hópi vesturbæinga.
Það hefur e.t.v. ekki gengið sem
skyldi ennþá en það er þó byijað
að gerast og með tímanum mun
það verða meira.
Blaðið er rekið í sjálfboðavinnu,
ekki í ágóðaskyni, og er hugmynd
um að við getum aflað nægilegra
auglýsingatekna til þess að geta
rekið hverfísmiðstöð sem yrði mið-
stöð blaðsins og ýmissa verkefna
í hverfínu. Það er nokkur línudans
að vera með blað sem hefur ná-
kvæman tilgang en á samt að
vera sem opnast.
Ég tel að við höfum teygt okkur
talsvert í þína átt til dæmis með
birtingu pistilsins í síðasta ein-
taki. Það vald sem við tökum okk-
ur með því að birta ekki áður-
nefnda grein um Víði Valgeirsson
er vegna þess að við erum að vinna
í sjálfboðavinnu þá vinnu sem þarf
til þess að koma blaðinu út. Þér
er frjálst að gera hið sama, gefa
út blað og þá getur þú ráðið því
sem þú vilt.
Mér þykir leitt að þú skulir á
þennan hátt reyna að bregða fæti
fyrir þetta framtak sem er ein-
göngu komið til af góðum hvötum.
Ef þú hefur einhveijar aðrar hug-
myndir um hvernig á að koma
einhveiju jákvæðu til leiðar getur
þú vel gert það án þess að leggja
stein í veg annarra.
Með kveðju,
KJARTAN JÓNSSON,
Ásvallagötu 33, Reykjavík.
Hvað skal segja? 49
Væri rétt að segja: Hundruðir þúsunda fóru í súginn.
Svar: Tölunafnorðið hundrað er hvorugkyns og í fleirtölu hundr-
uð (mörg hundruð). Því væri rétt að segja: Hundruð þúsunda fóru
í súginn.
Hins vegar er þúsund ýmist hvorugkyns eða kvenkyns og því
í fleirtölu ýmist þúsund (mörg þúsund) eða þúsundir (margar
þúsundir).
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Gífurlegt úrval köflóttra
. . efna í barnakjóla,
akbútasaum, gardínur
og föndur.
IjgfV ...... Sendum f póstkröfu.
VIRKA
Sí' Mörkinni 3, s. 568 7477.
■m.íiTnf,
- sm ■■■ sra . s s ■. nn : ás ■• mm . sísS' r-am:- k-;í úm v
$9 st »• ÍSSÍ . K2E ■ á,3 -est sss. am ’.Í SIO ■’ «.:2 *