Morgunblaðið - 27.10.1996, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
IÞROTTAÞING ISI
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, lagði áherslu á samstöðu ístefnuræðunni
Vonandi næst góð sátt og
samstaða um sameininguna
jjllert B. Schram, forseti Iþrótta-
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
frá Akranesi
sambands Íslands, lagði mikla
áherslu á gildi íþróttahreyfingar-
innar og mikilvægi
þess að hún stæði
saman undir einu
merki, sameigin-
legri stjórn og for-
ystu um hugsjónir og hagsmuni, í
setningarræðu sinni á íþróttaþingi
ÍSÍ á Akranesi árla laugardags.
Hann sagði að breyting á skipu-
lagi íþróttahreyfingarinnar væri
stórmál sem þyldi enga bið og þar
væri sameining ÍSl og Ólympíu-
nefndar íslands efst á blaði. Ekki
væri aðeins um að ræða að ná fram
sparnaði og hagræðingu í rekstri
heldur hefði sameining ef_ til vill
mesta þýðingu í félagslegum og
skipulagslegum skilningi. „íþrótta-
hreyfmgin safnast saman undir eitt
merki, talar einni röddu, kemur
fram sem eitt og sameiginlega
sterkt afl. Vinstri höndin veit hvað
sú hægri gerir, togstreita um pen-
inga og valdaskiptingu hverfur,
ólympíuhreyfíngin í landinu eflist,
íþróttastarfið allt mun njóta góðs
af. Vonandi næst góð sátt og sam-
staða um sameiningu ÍSÍ og Óí á
þessu þingi.“
Forsetinn kom víða við í ræðu
sinni. Hann sagði að engin félags-
málahreyfing í landinu jafnaðist á
við íþróttahreyfinguna, sem höfðaði
til allra aldurshópa án manngrein-
arálits, án tillits til stéttar, búsetu,
kyns og getu. „Afrek okkar felast
í félagsstarfinu, uppeldinu, leikgleð-
inni og heilbrigðri líkamsástundun,
sem ég hef alltaf sagt að sé mesta
og besta lífsnautnin. Víma lífs og
leiks er öllum eiturvímum betri.“
Almenn íþróttaiðkun hefur stór-
aukist á undanförnum árum og
sagði Ellert að einstök íþróttafélög
vítt og breitt um landið hefðu lagt
grunninn að þeirri
sókn, sem hann
kallaði vakningu.
íþróttahreyfingin
væri í mikilli og
stöðugri sókn og án
grasrótarinnar væri
hreyfmgin lítils
megnug en blikur
væru á lofti. Úttekt
ÍSÍ á fjárhagsstöðu
íþróttafélaga hefði
leitt í ljós að fjöl-
mörg félög hefðu
reist sér hurðarás
um öxl og á þeim
vanda yrði að taka
með spamaði, starfi
sem takmarkaðist af sjálfsaflafé og
sjálfboðaliðsstarfi auk þess sem láta
yrði af óraunsæjum metnaði sem
væri ekki í samræmi við ijárhaginn.
Ellert sagði að afskiptaleysi
stjórnvalda um hag íþrótta í land-
inu ylli sér áhyggj-
um. íþróttahreyf-
ingin væri hluti af
samfélaginu og ef
og þegar gerðar
yrðu kröfur til
hennar ^ um nýjar
áherslur og þátt-
töku í almennu
varnarstarfi gegn
óreglu og upplausn,
yrði hún að fá
stuðning til þess.
„Til þess er íþrótta-
hreyfingin reiðubú-
in, hún býður fram
krafta sína.“
Þinghaldi lýkur í
dag, sunnudag, en verði tillaga um
sameiningu ISÍ og Óí samþykkt
verður þingi frestað til næsta
hausts og þá er stefnt að endan-
legri sameiningu samkvæmt tillög-
unni.
ELLERT B. Schram
Harford
yfirgaf
Blackburn
RAY Harford knattspyrnu-
sQ'óri Blackburn Rovers
sagði upp störfum lyá félag-
inu fyrir helgi og er ástæðan
slakur árangur liðsins í
ensku úrvalsdeildinni það
sem af er leiktíðinni en þegar
hann fór hafði félagið ekki
unnið leik og sat eitt og yfir-
gefið í neðsta sæti deildar-
innar með 4 stig úr 10 viður-
eignum. Harford hafði verið
undir vaxandi þrýstingi að
segja af sér og ekki varð það
til að bæta úr skák að í vik-
unni tapaði Balckbum fyrir
2. deildar liði Stockport 1:0
á heimavelli í deildarbikar-
keppninni.
Blackburn varð enskur
meistari árið 1995 undir
stjóra Kenny Dalglish. „Þessi
ákvörðun var erfíð, en
árangur liðsins undir minni
stjóra hefur verið slakur og
tapið fyrir Stockport var
kornið sem fyllti mælinn,“
sagði Harford í gær.
RALLAKSTUR
Vængjaðir
tvíburar
Bræður unnu síðasta rall ársins
á heimasmíðuðum keppnisbíl
settum risavaxinn væng aftan á
hann til að fá hann til að fljúga
betur á stökkpöllum og gefa aukið
veggrip á miklum hraða," sagði
Guðmundur, „Escort rallbílar vilja
lenda á nefínu í stökkum, en væng-
urinn þrýstir bílnum niður að aftan
sem varnar því að hann stingist nið-
ur að framan í lendingu. Við tókum
einu sinni 50 metra flug á hæð í
endamarki sérleiðar við Kleifarvatn
á 230 km hraða. Bíllinn sveif eins
og fugl yfír veginum og lenti vand-
ræðalaust. Ég ætla samt ekki að
prófa svona flug aftur!
Bíllinn okkar er dálítið erfiður í
akstri. Stýrir best þegar hemlað er
í bland við hreyfíngu á stýrinu. Þá
er forþjappa á vélinni þannig að það
þarf að halda snúningi hennar í toppi
til að allt virki og vélin togi bílinn
áfram. En þyngdardreifíngin í bíln-
um er góð, þannig að það er auð-
velt að snarsnúa bílnum ef með
þarf.“
Úr hestarækt í hestaflarækt
„Bíllinn kemst hratt yfir þegar
ég næ að hafa tök á honum, en
lætur oft kjánalega á vegi, hreyfist
mikið til hliðanna. Ég hef stundum
spáð í að setja fjórhjóladrif í bílinn
til að fá meira grip, en það kostar
nýtt á sjöunda hundrað þúsund krón-
ur. Er of dýr kostur. Við höfum
Kafar í frístundum
FEÐGAR urðu íslandsmeistarar
í rallakstri á dögunum, Rúnar
Jónsson og Jón Ragnarsson. En
i fjarveru þeirra tóku tvíburar
völdin og unnu síðasta rallmót
ársins sem fram fór á Suð-
urnesjum fyrir skömmu. Tvíbur-
arnir Guðmundur og Sæmundur
Jónssynir óku Ford Escort með
280 hestafla vél til sigurs.
Það virðist duga vel að hafa skyld-
menni um borð í rallbílum, því
öll mót ársins hafa unnist af rallöku-
mönnum sem eru tengdir fjölskyldu-
böndum. Tvíburarnir hafa verið við-
loðandi rallakstur síðustu ár og hafa
keppt annað veifið á keppnisbíl sem
þeir smíðuðu sjálfir frá grunni.
Smíðar reykofna og rallbíla
„Það er skömm frá því að segja,
en bíllinn er smíðaður úr afgöngum
víða að. Cosworth vélina keypti ég
ónýta frá Énglandi og gerði hana
upp. Það átti að vera ódýr kostur,
en kostaði að lokum 600.000 krónur
að raða henni saman,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Hann er handlaginn járnsmiður með
eigið verkstæði. Býr til og lagfærir
alls kyns matvinnsluvélar, reykofna
og vélar sem framleiða m.a. ham-
borgara. Það voru því hæg heima-
tökin fyrir hann að smíða eigin
keppnisbíl með Sæmundi bróður sín-
um, sem er byggingaverkfræðingur,
og nokkrum félögum þeirra.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Flugu 50 metra
HINN risavaxnl vængur aftan á Ford Escort tvíburanna Guðmundar og Sæmundar Jóns-
sona virkar vel í keppni. Bíllinn flýgur betur á stökkpöllum, en lengsta flug sem þelr
hafa teklð er 50 metrar. Þeir siuppu með skrekkinn sem fylgdl.
Til að róa sig niður milli rallmóta
hefur Guðmundur stokkið á kaf í
sjóinn, með köfunargræjur á bakinu.
„Þetta eru ólíkir heimar. Kappakstur
á rallbíl og köfun. Það er endalaust
líf í sjónum, nýr heimur í hvert skipti.
Kannski svipað og í rallinu. Það eru
kannski sömu keppnisleiðir, en alltaf
nýjar aðstæður og vandamál sem
koma upp og þarf að leysa. Það
gefur lífinu gildi,“ sagði Guðmundur.
TVÍBURABRÆÐURNIR voru ánægðir með sigurinn á keppnisbíl sem þeir hafa sjálfir smíðað.
Sæmundur er aðstoðarökumaður en Guðmundur stýrir bílnum af krafti.
Bíll þeirra er byggður úr stáli, en
vélarhlíf, skott og rúður eru úr plasti
til að létta hann. Þyngd bílsins er
970 kg. „Bíllinn var léttari, en við
keyrt til að hafa gaman af hlutunum
og það að slást við hestöflin og aftur-
drifið er skemmtilegt."
Slagur við hestöfl er ekkert nýtt
fyrir þá tvíbura. Á árum áður voru
þeir í sveit á Skarði og hrossarækt
er stunduð þarf af kappi. Kristinn
bóndi hefur alið margan gæðinginn
þar. „Ég var stundum að þjálfa hross
í sveitinni en tem nú annars konar
hestöfl. Ég hef samt mjög gaman
af því að komast í hestaferðir og
sleppti alþjóðarallinu vegna þess
áhuga. Enda kostar mikla vinnu að
keppa í því móti og ná árangri, lág-
mark 2-3 vikur. Við höfum frekar
ekið í styttri mótunum. í vetur taka
jeppaferðir á jökla við, en ég ek 8
strokka Ford Bronco á fjöll. I honum
er fjöldi hestafla, þannig að hestarn-
ir eru aldrei langt undan.“ sagði
Guðmundur.