Morgunblaðið - 30.10.1996, Síða 1
7
72 SÍÐUR B/C/D/E
248. TBL. 84. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Áhyggjur af átökum í Hebron
Ótti við öfga-
fulla gyðinga
Jcrúsalem. Reuter.
MICHAEL Eitan, formaður þing-
flokks Likud-flokksins í ísrael,
hvatti til þess í gær að stjórnin
gripi til aðgerða gegn öfgamönnum
úr röðum gyðinga í Hebron á Vest-
urbakkanum til að afstýra blóðug-
um átökum í borginni. ísraelska
dagblaðið Haaretz sagði að Ami
Ayalon, yfirmaður leyniþjónustunn-
ar Shin Bet, hefði látið í ljós „mikl-
ar áhyggjur af möguleikanum á
átökum milli öfgasinnaðra land-
nema og Palestínumanna" ef ísra-
elska herliðið yrði flutt frá Hebron.
Samningamönnum ísraela og
Palestínumanna hefur ekki tekist
að ná samkomulagi um ráðstafanir
til að tryggja öryggi 400 gyðinga,
sem búa meðal 100.000 araba í
Hebron, og greiða þannig fyrir
brottflutningi herliðsins.
Mikil spenna er í Hebron og um
50 gyðingar gerðu í gær aðsúg að
palestínskum embættismönnum í
borginni.
Talsmaður Benjamins Netanya-
hus, forsætisráðherra ísraels, hefur
sagt að stjórnin hafi þegar búið sig
undir aðgerðir gegn herskáum gyð-
ingum ef samið verður um brott-
flutning herliðsins frá Hebron.
Haaretz sagði að leyniþjónustan
íhugaði að handtaka herskáa gyð-
inga og koma í veg fyrir að gyðing-
ar frá öðrum hernumdum svæðum
og ísrael gætu komið til liðs við þá.
Sérfræðingar segja að mest
hætta stafi af um 70 herskáum
gyðingum, sem hafi á bak við sig
nokkur hundruð stuðningsmenn.
Blóðhefndum hótað
ísraelskir hermenn beittu í gær
skotvopnum til að dreifa um 50
Palestínumönnum, sem köstuðu
gijóti í ísraelska bíla í bænum Hus-
an á Vesturbakkanum eftir útför
10 ára drengs, sem gyðingur er
talin hafa orðið að bana. Um 5.000
manns voru viðstaddir útförina og
hótuðu að hefna drápsins.
Sjónarvottar sögðu að gyðingur,
sem er í haldi lögreglu, hefði barið
drenginn eftir að hafa sakað hann
um að hafa grýtt ísraelska bíla.
Drengurinn lést á sjúkrahúsi á
mánudag og við krufningu kom í
ljós að hann lést af völdum innvort-
is blæðingar í heila eftir þungt högg
á hnakkann.
■ Arafat í Noregi/19
Reuter
PALESTÍNUMENN halda á Kóraninum við útför 10 ára pilts,
sem talið er að gyðingur hafi drepið eftir að hafa sakað hann
um að kasta steinum á ísraelska bíla.
Skuldir
keisarans
greiddar
Moskvu. Reuter.
SAMNINGAR eru að takast um, að
stjórnin í Moskvu leysi til sín nokkuð
af þeim ríkisskuldabréfum, sem
Rússakeisari gaf út um og fyrir síð-
ustu aldamót en þegar bolsévíkar
komust til valda í Rússlandi 1917
neituðu þeir að ábyrgjast þau.
Bréfin voru seld á Vesturlöndum
og aðallega í Frakklandi en þar lögðu
sumir allt sitt sparifé í þau. Voru
þau álitin mjög örugg fjárfesting og
urðu sumir gjaldþrota þegar ljóst
þótti, að þau væru einskis virði.
Mikið af bréfunum er þó enn til í
fórum afkomenda fjárfestanna enda
eru þau afar falleg og sóst hefur
verið eftir þeim sem safngripum.
Afdrifarík ákvörðun
Sú ákvörðun bolsévíka, að neita
að greiða andvirði bréfanna, sem
notað var til að byggja upp járn-
brautakerfið og fleira í Rússlandi,
kom þeim heldur betur í koll því að
vegna hennar tók það Sovétríkin sex
áratugi að öðlast lánstraust á Vest-
urlöndum. Eftir hrun kommúnism-
ans neituðu ný stjórnvöld í Rúss-
landi líka að greiða bréfin en hafa
nú snúið við blaðinu. Er ástæðan sú,
að greiði þau bréfin komast þau í
Parísarhópinn, sem eru lánardrottn-
ar ríkisstjórna, og eiga þá betur með
að innheimta útistandandi skuldir
frá tímum Sovétríkjanna.
Ekkert vitað um ferðir 600.000 flóttamanna í Zaire
Óttast um afdrif
milljónar manna
Brussel, Kigali, Genf. Reuter.
EIN milljón manna gæti týnt lífi í Zaire ef ekki verður brugðist strax við
til hjálpar. Emma Bonino, sem fer með mannúðarmál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, ESB, lýsti þessu yfir í gær og skoraði jafn-
framt á Sameinuðu þjóðirnar að veija flóttamannabúðirnar. Talsmaður
Flóttamannastofnunar SÞ sagði í gær að ekkert væri vitað hvar um
600.000 flóttamenn af ættbálki hútúa væru niðurkomnir og hann spáði
nýrri holskeflu flóttafólks vegna bardaga við mjög fjölmennar búðir.
flokkar hútúa eigi meginsök á
ástandinu.
Marshall skoraði einnig á vest-
rænar ríkisstjórnir að láta SÞ í té
gervihnattamyndir til að auðveldara
væri að fylgjast með því, sem væri
að gerast í Zaire.
Sex bíða
bana í til-
ræði Kúrda
Diyarbakir. Reuter.
TVEIR félagar í Verkamanna-
flokki Kúrdistans (PKK)
sviptu sig lífi með sprengju í
gær og fjórir til viðbótar biðu
bana í sprengingunni.
Lögreglan sagði að kúrdísk
kona hefði falið sprengjuna
innanklæða og sprengt hana
þegar hún og félagi hennar
hefðu verið handtekin. Þrír
lögreglumenn og vegfarandi
létu einnig lífið.
Bonino sagði, að villimennskan
hefði tekið völdin í Austur-Zaire og
öllum mannréttindum verið vikið til
hliðar án þess að Sameinuðu þjóðirn-
ar eða ríki heimsins hreyfðu legg
eða lið. Sagði hún að hætta væri á
að milljón manna bæri beinin á þess-
um slóðum ef ekki yrði gripið í taum-
ana.
Vilja gervihnattamyndir
Ruth Marshall, talsmaður Flótta-
mannastofnunarinnar, sagði að ekk-
ert væri vitað um nærri 600.000
flóttamenn, hútúa, sem upphaflega
flýðu frá Rúanda en hafa nú hrakist
úr flóttamannabúðunum í Austur-
Zaire vegna átaka stjórnarhersins
og þjóðarbrots tútsa þar í landi.
Leikur grunur á að tútsar frá Rú-
anda og Búrúndi taki þátt í bardög-
unum en þeir segja aftur að her-
Zaire að leysast sundur
Talsmaður Mobutu Sese Seko,
forseta Zaire, sem nú er í krabba-
meinsmeðferð í Sviss, sagði í gær
að hann hefði lýst yfir neyðar-
ástandi í austurhluta landsins en
ekkert bendir til að stjórnarherinn
geti fylgt því eftir. Segja evrópskir
stjórnarerindrekar á þessum slóðum
að mikil hætta sé á að Zaire sé að
leysast upp sem ríki.
Fulltrúar ýmissa Evrópuríkja og
alþjóðlegra hjálparstofnana komu
saman á skyndifund, sem haldinn var
fyrir luktum dyrum, í Genf í gær þar
sem rætt var hvernig afstýra mætti
yfirvofandi hörmungum í Zaire.
Hjálparstarfsmenn í bænum Cy-
angugu í Rúanda sögðu í gær, að
stjórnarhermenn þar og í Zaire hefðu
haldið uppi mikilli skothríð hvorir á
aðra yfir landamærin.
Reuter
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, var í gær á fundaferða-
lagi um Ohio og kom þá meðal annars við í bænum Clintonville
þar sem hann heilsaði upp á ungt fólk.
Spennan er að-
eins um þingið
Wasliington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
hefur 12,6 prósentustig umfram
keppinaut sinn, Bob Dole, þegar tæp
vika er eftir af kosningabaráttunni.
Kemur það fram í skoðanakönnun
Jíeutere-fréttastofunnar, sem birt
var í gær. Baráttan um þingsætin
er hins vegar miklu jafnari og munar
þar ekki nema tæpum þremur pró-
sentustigum demókrötum í vil.
í Eeuters-könnuninni fékk Clinton
45,5% en Dole 32,9% og eru skekkju-
mörkin 3,2 prósentustig. Ross Perot,
frambjóðandi Umbótaflokksins, hef-
ur heldur þokast upp á við og fær
nú 8,3% en 10,7% höfðu ekki tekið
afstöðu til frambjóðendanna.
Skoðanakönnuðir spá því, að mun-
urinn á milli þeirra Clintons og Doles
muni minnka síðustu dagana fyrir
kosningar en segja jafnframt, að
mesta óvissan sé hvort líklegur sigur
Clintons færi demókrötum völdin í
þinginu.
I könnuninni kvaðst 39,1% ætla
að styðja frambjóðendur demókrata
til þings en 36,5% repúblikana. Kos-
ið verður um öll 435 þingsætin í
fulltrúadeild og 34 sæti eða þriðjung-
inn í öldungadeild.