Morgunblaðið - 30.10.1996, Side 14

Morgunblaðið - 30.10.1996, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1996 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristján Bremsumar læstust og strætó út í kant VAGNSTJÓRI Strætisvagna Akur- eyrar varð að grípa til þess ráðs í gærmorgun að aka vagninum út í kant til að missa hann ekki niður Drekagilið. Bremsur læstust þegar loftið fraus í bremsukerfinu. Annar vagn kom aðvífandi og tók farþeg- ana upp í en þeir voru langflestir nemendur í framhaldsskólunum á Akureyri og komu of seint í skólann fyrir vikið. Strætó þversum í Gilinu Stefán Baldursson forstöðumað- ur Strætisvagna Akureyrar sagði að vagnarnir væru yfirleitt fullir snemma á morgnana, þegar nem- endum er ekið í skóla en þetta væri mesti álagstími dagsins. „Við þurftum að bæta við okkur öðrum vagni í þessar ferðir." Um hádegisbil missti vagnstjóri bíl þversum í Grófargili, hann var á leið upp gilið og hugðist beygja inn Þingvallastræti þegar bíllinn rann í mikilli hálku. Stefán sagði að gilið væri oft erfitt í hálku og þurfi að bera mik- inn sand á götuna svo umferð geti gengið greiðlega fyrir sig. „Mestu vandamálin skapast þarna í gilinu, að mínu mati gerir lögreglan of lít- ið af því að loka götunni fyrir um- ferð niður. Það lenda margir öku- menn í vandræðum á leið sinni upp gilið, þeir sem ætla að beygja inn á Eyrarlandsveginn og þurfa að stoppa fyrir umferð að ofan lenda iðulega í mikilli klemmu. Þegar hálka er komast þeir ekki af stað aftur og umferðaröngþveiti skap- ast,“ sagði Stefán. Endurmenntunar- stofnun Háskólans Fjög’ur námskeið haldin nyrðra ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla Islands efnir til fjögurra námskeiða í samstarfi við Háskólann á Akureyri í nóvembermánuði. Þetta eru námskeiðin Stjórnun markaðs- mála, Gæðakerfi ISO 9000, Innri gæðaúttektir fyrir stofnanir og fyrir- tæki og Einelti; orsakir, einkenni og viðbrögð. Jón Gunnar Aðils rekstrarhagfræð- ingur og ráðgjafi hjá Forskoti ehf. sér um námskeiðið Stjómun markaðs- mála sem fram fer 16. nóvember frá kl. 9-17, en m.a. verða kynnt hagnýt verkfæri sem auðvelda þátttakendum að ná utan um stýringu markaðsmála í sínum fyrirtækjum. Pétur K. Maack prófessor og Kjartan J. Kárason framkvæmda- stjóri Vottunar sjá um námskeiðið Gæðakerfi ISO 9000, en þátttakend- ur æfa sig m.a. í að túlka kröfur staðalsins og meta stöðu eigin fyrir- tækis miðað við kröfur staðalsins og gera áætlun um það sem má lag- færa. Þetta námskeið hefst næsta laugardag, 2. nóvember, og verður einnig 8. nóvember. Dagana 9. og 10. nóvember verður námskeiðið Innri gæðaúttektir fyrir stofnanir og fyrirtæki, en umsjónar- menn eru þeir Kjartan J. Kárason hjá Vottun og Einar Ragnar Sigurðs- son rekstrarráðgjafi hjá Ráðgarði. Námskeiðið er ætlað þeim sem ann- ast innri gæðaúttektir í eigin fyrir- tæki. Einelti; orsakir, einkenni og við- brögð er námskeið sem haldið verður 16. nóvember og er ætlað kennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og skóla- og heilsugæsluhjúkrunarfræð- ingum. Brynjólfur G. Brynjólfsson sálfræðingur hefur umsjón með nám- skeiðinu. -■ ♦ ♦ «---- Vélsleðamenn funda í Vín FÉLAG vélsleðamanna í Eyjafirði heldur aðalfund sinn í Blómaskálan- um Vín nk. fimmtudagskvöld, 31. október. Fundurinn hefst stundvís- lega kl. 20.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfund- arstörf, kosning tveggja stjórnar- manna, slidesmyndasýning, sýnd verður mynd um akstur vélsleða og umboðin kynna nýja sleða. Veiting- ar verða í boði félagsins. Félags- menn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér nýja félaga. Akureyrarbær greiðir ekki húsaleigubætur á næsta ári Hlynnt greiðslu bótanna en lögin meingölluð Akraberg undir fær- eyskan fána TOGARINN Akraberg kom til Akureyrar á mánudag með um 80 tonn af frosnum fiski. Akraberg, sem er í eigu Framlierja ltd., dótt- urfyrirtækis Samheija hf. í Fær- eyjum, hefur síðustu mánuði verið í Ieigu hjá Deutsche Fishfang Union, dótturfyrirtæki Samheija í Þýskalandi og siglt undir þýskum fána. Leigutímanum er lokið og verður færeyski fáninn því dreg- inn upp aftur í næsta túr. Eftir löndun í gær var t.ogarinn tekinn upp í flotkvína hjá Slipp- stöðinni hf., þar sem hann fer í hefðbundið viðhald. Eftir helgi fer Akrabergið til þorskveiða í Barentshafi á vegum Framheija. BÆJARRÁÐ Akureyrar telur sér ekki fært að taka upp greiðslu húsa- leigubóta að óbreyttum lögum. Ráð- ið er hlynnt greiðslu slíkra bóta en telur lögin um húsaleigubætur frá 1994 meingölluð. Á fundi bæjarráðs í gær var fjall- að um bréf félagsmálaráðuneytis þar sem minnt er á að sveitarfélög þurfi að taka ákvörðun um greiðslu húsaleigubóta á árinu 1997 fyrir 1. nóvember næstkomandi. Þá var einnig lagt fyrir bæjarráð bréf sam- takanna „Þak yfir höfuðið“ þar sem skorað er á sveitarfélög sem ekki hafa greitt húsaleigubætur að taka upp greiðslu þeirra frá og með næstu áramótum. Ríkissjóður greiði kostnað af greiðslu bótanna „Bæjarráð átelur að lögin skuli ekki hafa verið endurskoðuð heldur gert ráð fyrir óbreyttu fyrirkomulagi næsta ár,“ segir í ályktun bæjar- ráðs, en ráðið mótmælir einnig þeirri stefnu að sveitarfélögin taki alfarið að sér húsaleigubótakerfið. „Bæjarráð er andvígt því formi fjármögnunar og afgreiðslu húsa- leigubóta, sem lögin kveða á um og tekur undir þá skoðun að Rfkissjóður eigi að öllu leyti að bera kostnað af greiðslu bótanna og þær eigi að greiða í gegnum skattakerfíð á sama hátt og vaxtabætur. Bæjarráð skor- ar á ríkisvaldið að taka við endur- skoðun láganna fullt tillit til þessara og annarra þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið frá sveitarfélögun- um varðandi þetta mál,“ segir í ályktun bæjarráðs. Kjördæmisþing framsóknarmanna Morgunblaðið/Kristján AXEL Yatnsdal og Margrét Baldvinsdóttir í Brauðgerð Axels við Tryggvabraut á Akureyri. Brauðgerð Axels tekur til starfa HJÓNIN Axel Vatnsdal og Mar- grét Baldvinsdóttir og faðir Mar- grétar, Baldvin Kr. Baldvinsson, bóndi í Torfunesi, hafa keypt rekstur og húsnæði Einarsbakar- ís við Tryggvagötu. Jafnframt var skipt um nafn á bakaríinu sem nú heitir Brauðgerð Axels. Axel er bakari, en hann lærði iðnina í Einarsbakaríi þar sem hann hefur unnið um 8 ára skeið. Margrét hefur einnig af og til unnið við afgreiðslu í bakaríinu þannig að þau eru ekki ókunnug rekstrinum. Síðustu vikur hafa þau unnið í brauðgerðinni frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld, en þau leigðu reksturinn í fyrstu, frá 1. septem- ber síðastliðnum, en gengu frá kaupum í lok þess mánaðar. „Þetta er geysilega mikil vinna, við höfum unnið hér lang- an vinnudag, þetta hefur nánast verið okkar annað heimili síðustu vikur,“ segja þau Margrét og Axel. Þau hafa fest kaup á nýjum tækjum og hyggja á nokkrar breytingar bæði í brauðgerðinni sjálfri og eins í þeim tveimur verslunum sem þau reka, við Tryggvabraut og Brekkugötu í miðbæ Akureyrar. Húsnæðið við Tryggvagötu er um 300 fermetr- ar. Þau leggja áherslu á að selja brauð í eigin verslunum auk þess sem þau baka brauð fyrir íbúa ýmissa staða á Norðurlandi sem og stofnana og fyrirtækja á Ak- ureyri. Alls vinna milli 12 og 15 manns hjá Brauðgerð Axels. Kaupmáttur auk- ist án verðbólgu „KJARASAMNINGAR eru fram- undan. Þar þarf það markmið að vera að leiðarljósi að kaupmáttur geti aukist, sérstaklega hjá þeim sem lægst hafa launin, án þess að það leiði til verðbólgu eða stefni stöðug- leika i hættu. Öll skilyrði ættu að vera fyrir því að svo geti orðið," segir í ályktun þings Kjördæmissam- bands framsóknarmanna í Norður- landskjördæmi eystra sem haldið var á Akureyri um liðna helgi. Telur þingið mikilvæga áfanga hafa náðst í samstarfi stjómarflokk- anna sem leggi grunn að sókn til betri lífskjara, en minnt er á að halda þurfi stefnu Framsóknar- flokksins í velferðarmálum á lofti í stjórnarsamstarfinu. Óánægju er lýst með að enn skuli launamunur milli karla og kvenna vera sláandi og beijast verði gegn því misrétti. Stuðningur við aflamarkskerfið Lýsti þingið yfir stuðningi við nýverandi aflamarkskerfi og telur það heppilegustu leiðina sem þekkt er til að stjórna fiskveiðum. Nauð- synlegt sé að endurskoða kerfið stöð- ugt þannig að tryggt sé að það sé hagkvæmt og réttlátt. Ánægju er lýst með að ákveðið er að setja á stofn Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi en þinginu þykir miður að skólinn hafi ekki verið vistaður hjá Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri. Loks má nefna að þingið telur matvælaframleiðslu mikilvæga at- vinnugrein í kjördæminu og eiga framtíð fyrir sér. Þingið mótmælti harðlega framkomnum fullyrðingum um að Eyjaíj'arðarsvæðið henti ekki til orkufreks iðnaðar eða stóriðju. Ný sursæt sósa FERSKVÖRUDEILD Kjötiðnaðar- stöðvar Kaupfélags Eyfirðinga hefur sett á markað nýja súrsæta sósu í 360 gramma dósum. Áður hefur framleiðsla hafist á hvítlauksgrill- sósu og kaldri piparsósu. Nýja súr- sæta sósan sem hentar einkar vel bæði með kjöti og fiski er kynnt í átakinu „íslenskt, já takk“ sem nú stendur yfír á Norðurlandi. Elís Árnason hjá Kjötiðnaðarstöð KEA hefur unnið við að þróa þessa sósu sem og aðrar sem framleiddar eru hjá fyrirtækinu. Morgunblaðið/Kristján

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.