Morgunblaðið - 03.11.1996, Síða 1
104 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
252. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
>, Morgunblaðið/RAX
_____________„KALT BORГ ITUNGUNUM____________
Allir starfsmenn hjálpar-
stofnana flúnir frá Groma
Clinton sig-
urviss en
vonir Dole
hafa glæðst
Las Cruces, Brighton. Reuter.
MIKILL mannfjöldi fagnaði Bill Clinton
Bandaríkjaforseta á kosningafundi í Las
Cruces, annarri stærstu borg Nýju-Mexíkó,
í fyrrakvöld en þá var Bob Dole, Maraþon-
maðurinn eins og hann kallar sjálfan sig, á
ferð og flugi um Michigan. Hefur skoðana-
könnun Heuters-fréttastofunnar frá á föstu-
dag hleypt aukinni spennu í kosningabarátt-
una en aðrar kannanir sama dag sýna, að
forskot Clintons er frá 11% og upp í 18%.
Fundir Clintons eru miklu betur sóttir en
Doles en ráðgjafar hans telja samt, að kjör-
sókn verði ekki mikil, hugsanlega undir 51%.
Hún var 55% í kosningunum 1992 þegar
Clinton sigraði George Bush.
„Lítil kjörsókn getur skaðað okkur en hún
mun ekki breyta neinu um úrslitin," sagði
einn ráðgjafa Clintons en þeir eru ekki í nein-
um vafa um að þau séu þegar ráðin.
Samkvæmt skoðanakönnun hefur Clinton
14 prósentustig umfram Dole í Kaliforníu en
þar eru kjörnir 54 kjörmenn, fimmtungur
þess fjölda, sem þarf til að hreppa forseta-
embættið.
„Sigurinn liggur í loftinu“
Segja má, að Dole hafi staðið við þá yfirlýs-
ingu að unna sér hvorki svefns né hvíldar
undir lokin en í gær var hann í New Jersey
og Pennsylvaniu og ætlaði að fara um 14
ríki á þremur síðustu dögunum.
Kannanir, sem sýna, að dregið hafí saman
með þeim Ciinton hafa hleypt nýju lífí í kosn-
ingabaráttu hans og á fundi í Grand Rapids
með þeim fyrrverandi forsetum, George Bush
og Gerald Ford, sagði hann, að vindáttin hefði
breyst. „Eg fínn, að sigurinn liggur í loftinu.“
Reuter
CLINTON með „forsetastigvél", sem
hann fékk við komuna til Nýju-Mexíkó.
STARFSMENN alþjóðlegra hjálparstofnana
flýðu í gær frá borginni Goma í Austur-Zaire
yfir til landamærabæjarins Gisenyi í Rúanda
að sögn Reuters-fréttastofunnar. Er þá ekki
lengur um að ræða neina skipulega aðstoð
við meira en milljón flóttamanna frá Rúanda
og Búrundí. Stjórnvöld í Zaire, sem eiga í
stríði við uppreisnarmenn tútsa í Zaire og
tútsa frá Rúanda, sögðu í gær, að koma yrði
flóttafólkinu úr landi með góðu eða illu og
tilkynntu jafnframt Flóttamannastofnun
Sameinuðu þjóðanna, að hún skyldi stunda
hjálparstarfið í Rúanda og Búrundí, ekki í
Zaire.
Garðar Guðjónsson, kynningarfulltrúi
Rauða kross íslands, staðfesti í gær við
Morgunblaðið, að hjálparstarfsmennirnir og
þar á meðal Jón Valfells, starfsmaður Al-
þjóða Rauða krossins, hefðu flúið frá Goma
yfir til Rúanda. Sagði hann, að farið yrði
með þá til Kigali, höfuðborgar Rúanda, og
þaðan til Nairobi í Kenýa.
Fréttamenn segja, að heyra hafi mátt skot-
Zairestjórn vill
flóttafólkið burt með
góðu eða illu
hríð í úthverfum Gomaborgar í gær en þeir
urðu ekki varir við neina stjórnarhermenn,
aðeins tútsa af Banyamulenge-ættbálknum-í
Zaire og hermenn frá Rúanda. Virðist borgin
vera fallin þeim í hendur en annars er vígstað-
an mjög ruglingsleg.
Falla úr hungri
Alls voru 106 hjálparstarfsmenn fluttir frá
Goma auk presta og nunna en að sögn fólks-
ins eru flóttamenn þegar farnir að falla úr
hungri. „Sumir hafa hvorki fengið mat né
dtykk í fimm daga og bíða þess bara að
deyja. Þar er aðallega um að ræða aldrað
fólk og sjúkt og ung börn,“ sagði Mark Rich-
ardson, sem starfar á vegum hjálparstofn-
unarinnar CARE.
Bogue Makeli, talsmaður Zairestjórnar,
sagði í gær, að hún hefði ákveðið að koma
flóttafólkinu burt frá landinu og með valdi
ef þörf krefði. í framhaldi af því hefði Sam-
einuðu þjóðunum verið skýrt frá því, að hér
eftir skyldu þær hætta hjálparstarfi í Zaire
og beina því heldur til Rúanda og Búrundí
þar sem flóttafólkið ætti heima.
Óttast hefndir
Meira en milljón manna af ættbálki hútúa
flýði til Zaire frá Rúanda og Búrundí 1994
en þá náðu tútsar völdum í Rúanda. Áður
höfðu hútúar myrt allt að einni milljón tútsa
og þora ekki að snúa aftur af ótta við hefndir.
Makeli lagði einnig áherslu á, að ekki kæmi
til greina að setjast að samningaborði með
tútsum fyrr en rúandískir stjórnarhermenn
væru á brottu úr landinu. Aldo Ajello, sérleg-
ur sendimaður Evrópusambandsins, sagði í
gær, að tilraunir hans til að koma á viðræðum
um vopnahlé og frið hefðu engan árangur
borið.
VÖLLUR Á VÍS
Við viljum virkja
vinnustaðina
„Litla gula hænan
reið baggamuninn‘(
Hvert er ég
eigmlega
aðfara?