Morgunblaðið - 03.11.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.11.1996, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON + Guðmundur Magnússon kennari var fæddur í Reykjavík 10. sept- ember 1950. Hann lést á sjúkrahúsi á Peorto Vallarta í Mexikó 2. október. Foreldrar hans eru Guðríður Jónasdótt- ir, fv. póstfulltrúi, f. 26. febr. 1922 á ísafirði Jónasar Jens Guðnasonar, vélstjóra á ísafírði og Hólmfríðar Petr- ínu Jóhannsdóttur frá Dynjanda í Arnarfirði, og Magnús Guðmundsson hús- gagnasmiðameistari, f. 22. okt. 1918 í Bolungarvík Guðmundar Péturssonar f. í Hafnardal, Nauteyrarhr. N-ís. fv. bæjar- gjaldkera á ísafirði, síðar kaupm. í Reykjavík og Þorgerð- ar Bogadóttur, f. á Uppsölum í Seyðis- firði. Bræður Guð- mundar eru Reynir Magnússon, prent-- ari, nú starfsm. hjá Ó. Johnson og Kaab- er, Bogi tvíbura- bróðir Reynis lést stuttu eftir fæðingu og Bogi Magnússon útibússtjóri í Lands- bankanum, en hann var tvíburabróðir Guðmundar. Guðmundur var tvíkvæntur og með seinni konu sinni Hallfríði Hrólfsdóttur eignaðist hann soninn Hrólf Erling, f. 14. júlí 1983. Útför Guðmundar verður gerð frá Fossvogskapellu, mánudaginn 4. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 15. Þau sorgartíðindi bárust okkur að Guðmundur mágur hefði látist snögglega. Hann hafði verið á ferða- lagi um Mexíkó þegar hann veiktist. Það er erfitt að skilja og sætta sig við svo ótímabæra brottför manns á besta aldri, þó getum við huggað okkur við minningar um góðan dreng. Guðmundur var kennari að mennt og hafði hann stundað kennslu sl. 20 ár, lengst af í Heiðar- skóla. Hann hafði orð á sér að vera ákveðinn og hafði gott lag á að vinna með nemendum og oftar en ekki voru það nemendurnir sem unnu með honum og þeir kunnu að meta störf Guðmundar sem og meðkenn- arar hans. Eitt sinn fékk hann hug- mynd að fræðsluefni fyrir yngri nemendahóp og lét ekki standa við orðin tóm og fékk til liðs við sig teiknara og úr varð sögu-litabók sem var gefin út þar sem efnið var land- nám íslands með texta og teikning- um. Á síðustu árum vann Guðmundur að ýmsum hugðarefnum sínum með kennslunni. Hann átti mjög gott með að skrifa og tjá tilfinningar sínar á blað, hafði t.d. skrifað nokkrar smá- sögur og einnig má geta þess að Guðmundur var höfundur að Sögu- Atlas spilinu sem Iðunn gaf út fýrir tæpum tveimur árum og var það spil bæði hugsað til skemmtunar og til nota við kennslu og hafði hann verið að þróa það spil sem enn meira kennslugagn þegar kallið kom. Guð- mundur hafði lengi talað um að fara í ferð til Suður-Ameríku sem virtist heilla hann fremur öðrum stöðum, hann hafði þó skoðað sig um víða. Hann undirbjó sig vel fyrir þessa ferð, leitaði sér upplýsinga um Mex- íkó og las heilmikið um land og þjóð og forna menningararfleifð þess. Hann var hvattur til fararinnar og var tilhlökkunin hjá honum mikil, en hann átti ekki afturkvæmt. Leiðir okkar Guðmundar lágu saman fyrir liðlega 25 árum þegar örlögin höguðu því þannig að ég varð mágkona hans. Öll þau kynni sem ég átti með Guðmundi eru mér mjög minnisstæð. Hann var frekar hlédrægur að eðlisfari og var lítið MINNINGAR fyrir að tala um sjálfan sig, hafði næmt skopskyn, var vel lesinn og sagði betur frá en flestir aðrir þegar hann vildi það við hafa, en naut sín samt betur í fámenni en fjölmenni. Þótt lífshlaup Guðmundar hafi ekki verið áfallalaust, þá veit ég að hann trúði alltaf á ljósið og vonina. Ég minnist atviks, þegar ég sjálf átti við erfið veikindi að stríða og hann kom í heimsókn til mín á spítal- ann, tók í hönd mína og hvatti mig til dáða, kyssti mig létt á kinn og sagði með tárin í augunum: „Þú verður að láta þér batna,“ og bað mig að trúa á ljósið og halda í vonina. Fyrir u.þ.b. tveimur árum veiktist faðir þeirra bræðra alvarlega af heilablóðfalli og urðu þau veikindi til þess að hann lamaðist og missti málið. Á þessum erfiða tíma fjöl- skyldunnar fluttist Guðmundur til móður sinnar og reyndist henni mik- ill styrkur og föður sínum einstak- lega umhyggjusamur, kom nær dag- lega í heimsókn og fór þá oft með hann í gönguferðir í hjólastólnum um næsta nágrenni spítalans. Það er því mikill harmur kveðinn að for- eldrum hans, en þó sérstaklega ung- um syni Hrólfi Erling, því Guðmund- ur lagði mikla rækt við son sinn og voru þeir saman þegar þeir gátu því við komið og nutu samvista hvor annars, því þeir voru líkir í mörgu og Guðmundur óspar á fróðleik og það sem syninum gæti orðið vega- nesti á lífsleiðinni. Þinn andi dkir innst í mér og ekkert lifir nema af þér; þú fyllir heiminn hátt og lágt það hjartað finnur ðsjálfrátt. Af þeirri hugsjón helgar allt, í hugsjón þeirri skilst mér allt, sú vitund kallast von og trú, en vissan, hún er sjálfur þú. Elsku Guðmundur, Guð veri með þér á þeirri ferð er þú nú hefur tek- ið þér fyrir hendur. Ég bið algóðan Guð um að styrkja Hrólf Erling, foreldra hans, bræður og fjölskyldur. Sigrún Pétursdóttir Eyfeld. Pabbi minn, mér þykir svo vont að hafa ekki getað kvatt þig betur þegar þú fórst út. Ég hefði viljað tala meira við þig um lífið og tilver- una. Ég vildi að ég hefði getað sent þér bréf þegar þú varst farinn til Mexíkó, en þá hafði ég ekki heimil- isfangið þitt. Ég man þegar við fórum í göngu- túra, golf og ýmislegt fleira. Eg man svo lítið þegar þú kvaddir mig þvi ég hélt að ekkert þessu líkt myndi gerast. Ég vona að guð geymi þig, pabbi minn, og hugsi vel um þig. Þinn sonur, Hrólfur. Ég minnist Guðmundar sem okkk- ur öllum þótti vænt um. Hann var frændi og leikfélagi sonar míns, Erlings Más heitins og voru þeir nánir vinir og góðir félagar alla tíð. Ég trúi því að nú hittist þeir aftur á æðri leiðum. Við sem höldum ferð- inni áfram minnumst góðs drengs. Ég sendi Gurru, Madda, syni hans og bræðrum og öðrum aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur og bið þess að minning hans verði þeim ævinlega blessuð. Ég kveð hann með þessum sálmi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristján Ágústsson. Nú er Guðmundur frændi farinn frá okkur svo fyrirvaralaust. Hann veiktist, fór á sjúkrahús, er dáinn. Aðeins á örfáum klukkustundum gerist þetta allt. Af hveiju? spyijum við. Ég man þegar hann kom í heim- sóknirnar til afa og ömmu í Hvera- gerði. Hann og Bogi tvíburabróðir + Valtýr Hólm- geirsson var fæddur að Heiði á Langanesi 31. júlí 1921. Hann lést í Sjúkrahúsi Húsa- víkur 25. október síðastliðinn eftir stutta sjúkralegu. Foreldrar Valtýs voru Hólmgeir Vil- hjálmsson bóndi á Heiði og Ragnheið- ur Pétursdóttir húsfreyja. Einn bróður átti Valtýr, Vilhjálm, og býr hann á Raufarhöfn. Valtýr kvæntist 7. júní 1952 eftirlifandi eiginkonu sinni Steingerði Theodórsdóttur, f. 1. febrúar 1922, frá Akureyri. Þau eignuðust 4 börn. 1) Sól- veig, f. 6. júní 1954, gift Herði Rúnari Einarssyni og eiga þau 2 dætur, Hrönn og Helgu. 2) Bragi Davíð, f. 11. júlí 1956. Hann elsku afí okkar er dáinn. Það var skrítið að fá þessar fregnir, þó svo að við vissum að það myndi fljótlega koma að þessu þar sem hann var búinn að vera svo mikið veikur. Afí var stöðvarstjóri Pósts og síma og veðurathugunarmaður á Raufar- höfn og það var alltaf mikið tilhlökk- unarefni að komast norður til ömmu og afa jafnvel þó að það kostaði margra klukkustunda keyrslu frá 3) Ragnheiður, f. 11. desember 1959, gift Sæmundi Ein- arssyni og eiga þau 2 dætur, Valgerði og Ólöfu. 4) Rósa, f. 16. janúar 1961. Valtýr vann við bústörf Iijá foreldr- um sínum fram til 1950, en fór þá að vinna við af- greiðslustörf hjá Pósti og síma á Raufarhöfn. 1. jan- úar 1953 tók hann við starfi stöðvar- stjóra Pósts og síma á Raufar- höfn og gegndi því starfi til 1991 er hann lét af störfum vegna aldurs. Einnig var hann veðurathugunarmaður fyrir Veðurstofu íslands á Raufar- höfn í rúm 43 ár. Útför Valtýs fór fram 2. nóvember frá Raufarhafnar- kirkju. Reykjavík. Það var alltaf tekið vel og innilega á móti manni og eigum við margar góðar minningar frá þeim heimsóknum. Sterkastar eru minningarnar um það þegar afi leyfði okkur að vera hjá sér á póst- húsinu og' skjótast með sér út að lesa af veðurmælunum. Oft leyfði hann okkur líka að koma með inn í herbergið með ölium tækjunum og tökkunum sem fýlgdu veðurathug- uninni og útskýrði fyrir okkur hvern- ig hvert tæki virkaði. Ekki má gleyma þegar afí var að segja okkur til um skýin, hvað það þýddi þegar þau litu svona út og hinsegin. Oft gáfu afi og amma okkur pening þegar við hittumst og kvöddu okkur alltaf með því að segja „kaupið ykk- ur nú eitthvað fallegt í Reykjavík". Svo þegar hann kom suður til „borg- arinnar" gisti hann oftast hjá okkur og ekki fannst okkur það síður spennandi. Þá spilaði hann við okkur og sagði okkur margar skondnar og skemmtilegar sögur. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að hitta afa aftur í þessu lífi, en minningin um hann lifír í hjörtum okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma, megi góður Guð gefa þér styrk á þessum erfiðu stundum sem nú eru. Við þökkum afa fyrir allar samverustundirnar sem við fengum að eiga með honum. Hrönn og Helga. Elsku afi, nú ertu dáinn. 25. októ- ber var hringt í okkur frá Sjúkra- húsinu á Húsavík og sagt að Valtý afa hefði versnað. Við vissum það að hann var mikið veikur. Svo nokkrum tímum siðar var hringt og okkur var sagt að þú værir dáinn. Og okkur brá, þú sem varst alltaf svo hress og glaður. Þú leyfðir okk- ur alltaf að leika okkur með ritvél og vera á pósthúsinu hjá þér. Alltaf þegar við komum í heimsókn til þín áttir þú nammi og ís handa okkur. Og alltaf nenntir þú að sitja tímun- um saman með okkur og spila við okkur. Alltaf þegar við fórum frá þér kvaddirðu okkur með smápening og sagðir okkur að kaupa eitthvað. Alltaf passaðir þú upp á að taka veðrið og varst alltaf að sýna okkur hvernig þú gerðir það. En svo veiktist þú og fórst á spítala á Húsavík. Við vonuðum að þér myndi batna, en við vissum að þú varst mjög veikur. En svo lést þú. En minningarnar um þig og allt sem þú nenntir að gera fyrir okkur og snúast í kringum okkur munu alltaf lifa. Oft keyrðir þú á Þórshöfn til að heimsækja okkur. En nú ertu farinn til Guðs og líður örugglega vel. Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, þær voru margar en hefðu getað verið fleiri. Enn vér skulum skilja skaparans að vilja, hver fer heim til sín. Lát oss aftur langa, iífsins Herra, að ganga hingað heim til þín. Og þótt vér ei hittumst hér, gef oss fund á gleðistundu, Guð í riki þínu. (V. Briem) Ömmu og öllum aðstandendum sendum við bestu samúðarkveðjur og gangi ykkur vel í framtíðinni og geymum fallegu og góðu minning- amar um 'Valtý afa vel. Valgerður og Ólöf. VALTYR HÓLMGEIRSSON hans, ásamt Helga bróður mínum, spiluðu fótbolta á grasflötinni. Auð- vitað þvældist ég fyrir þeim, en aldr- ei var ég skömmuð. Hann sendi mér bara fallegt bros. Ég man þegar ég byijaði í Kenna- raskólanum. Hann var á lokaári sínu þar. Ég var hálffeimin við hann, en alltaf var hann góður og elskulegur og þegar við mættumst, á göngum skólans, sendi hann mér fallegt bros. Síðan fórum við að kenna. Við kenndum við sama skóla í nokkur ár, Fellaskóla í Reykjavík, og spjöll- uðum mikið saman. Hann sagði mörg hlýleg orð við mig, sem ég geymi fyrir sjálfa sig. Ég hefði viljað segja svo margt við Guðmund frænda. Ég vildi gefa mikið fyrir þó ekki væri nema eitt faðmlag í viðbót, því mér þótti svo vænt um hann. Ég veit að honum líður vel, mig dreymdi hann eftir að hann kvaddi þessa jarðvist. Khalil Gibran sagði: „Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Elsku Gurra, besta og fallegasta frænkan mín, Guð gefí þér og Madda mínum allan þann styrk sem þið þurfið á að halda. Hrólfur minn, þú átt góðan pabba, sem vakir yfír velferð þinni. Guð veri með þér og móður þinni. Bogi, Reynir og fjölskyldur, Guð styðji ykkur öll og varðveiti í sorg- inni. Með söknuði og virðingu kveð ég nú Guðmund frænda minn. Guð veri með honum á nýjum slóðum. Minn- ing hans mun ailtaf lifa með okkur. Soffía. Þegar komið er að kveðjustund kemur í huga minn grein sem ég las nýlega. Hún fjallaði um reynslu, styrk og vonir, upphafssetningin var: „Gakktu hljóður í glaumi og asa, mundu hvað þögnin er friðsæl." Það minnti mig á yfírvegun og hljóð- láta framkomu þína, þú lést ekki hávaðasamt fólk hafa áhrif á trú þína og gerðir. í 15 ár höfum við þekkst, þú varst um tíma tengdur okkar litlu fjölskyldu, tókst þátt í gleði hennar og sorgum. Áður fyrr sátum við og spjölluðum um sameig- inleg fagleg áhugamál, við „kolleg- amir“. Mér þótti áhugi þinn á sögu, landafræði og heimspeki athyglis- verður og spennandi. Ljóst var að ferðalög og fjarlægar slóðir áttu hug þinn og nú hefur þú lagt upp í ferð þar sem hamingjan er árviss eins og vorið. Þú átt yndislegan strák, hann frænda minn, hljóðlátur eins og pabbi hans. Samband ykkar var ljúft og gott, í gönguferðum, golfí, veiði, keilu, snóker og öðrum „strá- kaleikjum“ að ógleymdum sögu- stundum, kom það best fram. Nú bið ég góðan guð að gefa frænda mínum styrk og trú svo hann megi öðlast huggun í sorginni. „Öllu er afmörkuð stund og sér- hver hlutur undir himnum hefir sinn tíma.“ (Prédikarinn). Guðmundur, ég bið þér guðs blessunar og þakka þér fyrir sam- fylgdina. Elsku Halla, Hrólfur, Magnús og Guðríður, ég sendi ykkur og öðrum ættingjum og vinum sem eiga um sárt að binda, mínar dýpstu samúðarkveðjur. Auður. Með fáum orðum kveð ég nú góð- an vin sem var mér afar kær. Hann hvarf svo brátt til annarra verka, öllum að óvörum. Okkur er gefinn ákveðinn tími, en aldrei erum við viðbúin dauðanum, allra síst í blóma lífsins. í ókunnu landi langt frá sín- um nánustu veiktist Guðmundur og lést úr hjartasjúkdómi. Okkur þykir öllum sárt að geta ekki staðið við hlið hans og haldið í hönd hans á erfiðri stundu. Æðri máttur kennir okkur að meta betur þetta skamm- vinna, brothætta líf og gildi mann- legra samskipta. Við ræddum oft um hamingjuna og sorgina, hve mik- ils virði það er að öðlast aukinn þroska gegnum reynslu í lífínu, reynslu sem gerir okkur sterkari en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.