Morgunblaðið - 03.11.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1996 15
Heimur
Guðríðar
LEIKRITIÐ Heimur Guðríðar
- síðasta heimsókn Guðríðar
Símonardóttur í kirkju Hall-
gríms - verður sýnt í Vídalíns-
kirkju í Garðabæ í dag kl 17.
Leikritið Heimur Guðríðar
eftir Stéinunni Jóhannesdóttur
var frumsýnt á Kirkjulistahátíð
í Reykjavík í júní 1995. Með
helstu hlutverk í sýningunni
fara Margrét Guðmundsdóttir
og Helga Elínborg Jónsdóttir
og Þröstur Leó Gunnarsson.
Fyrirlestur
um breska
fræðikonu
FELAG íslenskra háskóla-
kvenna og Kvenstúdentafélag
Islands halda félagsfund í sam-
vinnu við Heimspekideild Há-
skóla íslands mánudagskvöldið
4. nóvember kl. 20 í stofu 101
í Odda.
Dr. Terry Gunnell mun tala
um bresku fræðikonuna Berthu
Philpotts - náin tengsl hennar
viðJísland og leit hennar að
fornskandinaviskri leiklist í
Eddukvæðunum.
Terry Gunnell mun segja frá
ferðum Philpotts til Islands
(1903-1914) og frá tengslum
hennar við íslenska fræðimann-
inn Eirík Magnússon í Cam-
bridge.
Til heiðurs Berthu Philpotts
mun Hárbarðsljóð verða leik-
lesið undir stjórn Sveins Ein-
arssonar leikstjóra.
Kósakkar
íMÍR
í NÓVEMBER og desember
verða sýndar í bíósal MIR,
Vatnsstíg 10, nokkrar kvik-
myndir, sem annaðhvort byggj-
ast á verkum nokkurra fræg-
ustu rithöfunda Rússa eða
fjalla um ævi og störf ýmissa
fremstu listamanna Rússlands.
Fyrsta kvikmyndin í þessari
myndaröð verður sýnd í dag,
kl. 16 og hún er „Kósakkar",
gerð eftir samnefndri skáld-
sögu Lévs Tolstoj. Sú saga kom
fyrst út í Rússlandi árið 1861
og íslensk þýðing hennar réttri
öld síðar.
Mánudagskvöldið 4. nóvem-
ber kl. 20 verður svo sýnd í
bíósalnum, Vatnsstíg 10, kvik-
myndin „Rimskíj-Korsakov"
sem byggð er á ævi hins fræga
rússneska tónskálds (1844-
1908).
Síðasta sýning
við Hamarinn
SÍÐUSTU myndlistarsýning-
unni í sýningarsalnum við
Hamarinn á Strandgötu 50 í
Hafnarfirði iýkur í dag, sunnu-
dag, en salurinn hefur verið
starfræktur í tæp tvö ár af fjór-
um myndlistarmönnum. Hafn-
arfjarðarbær hefur ljáð rekstr-
inum húsnæði en þar sem hús-
næðinu hefur verið ráðstafað í
annað þá er rekstrinum sjálf-
hætt. Það er samsýning lista-
mannanna Helga Hjaltalín og
Gunnars Straumland sem bind-
ur endahnútinn á sýningarhald
við Hamarinn.
Sýningu Egg-
erts að ljúka
NU um helgina iýkur sýningu
Eggerts Péturssonar í Ingólfs-
stræti 8 þar sem hann sýnir
ný blómaverk.
Sýningin er 15. einkasýning
Eggerts, en hann er búsettur á
Englandi.
LISTIR
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
ALLAR einstaklingshugsanirnar sameinast í einni stórri og úr verður sinfónía sem gleður áheyrendur.
Og allir hugsa upphátt
Hátt í tvö hundruð börn
og unglingar og tónlist-
arkennarar þeirra víðs
vegar að af landinu tóku
þátt í strengjamóti Tón-
listarskólans í Keflavík
um síðustu helgi. Anna
Ingólfsdóttir,foreldri
og fréttaritari Morgun-
blaðsins á Egilsstöðum,
mætti á mótið, hlustaði
og tók þáttakendur tali.
STRENGJAMÓT í Keflavík. Það
er æfing að hefjast. Salurinn fyll-
ist af börnum sem koma inn hvert
með sitt hljóðfæri. Þau eiga öll sitt
sæti í skipulagðri uppröðun stóla.
Hvert um sig tekur sitt hljóðfæri
og strýkur með boganum yfir
strengina, hlustar hvort instrú-
mentið gefi frá sér réttan tón.
Kennarar eru til staðar og stilla
strengi ef með þarf og aðstoða við
að koma hlutunum fyrir eins og
þeir best verða. Allir prufa, allir
fara yfir nóturnar sínar, hver á
sinni byijun, hver á sínum kafla.
Strengjahljóð hljóðfæranna ryðja
sér braut, kljúfa íoftið og úr verður
söngur ósamræmis. Ég sit þarna
innan um börnin með hljóðfærin
og ímynda mér að hljóðin sem ég
heyri séu hugsanir. Og allir hugsa
upphátt. Hver um sitt. Loftið verð-
ur fullt af háværum hugsunum sem
rekast hver á aðra. Ófriðarástand.
Nú tekur stjórnandinn völdin og
hljóðin hætta. Hann gefur merki
og allir senda tóninn á flug. Nú
er eins og allar einstaklingshugs-
anirnar sameinist í einni stórri og
úr verður sinfónía sem myndar eina
heild. Ennþá hugsar hver sitt en
tónverkið skapast af aðalspili, und-
irleik og bakröddum. Hver hugsun
sameinast annarri. Þetta minnir
mig á fuglahóp sem flögrar um,
hver fugl á sínum hraða. Þeir eru
margir og óreiðan liggur í loftinu.
Allt í einu, eins og upp úr þurru,
sameinast þeir og taka allir sömu
stefnu og fljúga sem einn í sömu
átt á sama hraða. Hver skipar sitt
sæti í stórri heild. Ég finn að hér
eru sömu lögmálin að verki.
Hvetjandi að spila í hljómsveit
Sverrir Teitsson er 15 ára nem-
andi í Hagaskóla og einn örfárra
stráka sem voru á strengjamótinu
í Keflavík. Hann stundar nám á
selló í Tónmenntaskóla Reykjavíkur
og hefur gert síðan hann var sjö
ára, en þá byijaði hann að læra á
blokkflautu. Hann valdi sellóið þeg-
NANNA Karen tekur 4. stig
á víóluna sína í vetur.
ar hann var 8 ára og varð það fyr-
ir valinu vegna þess að mágur
móður hans spilaði á selló. Sverrir
telur að ef það hefði ekki verið
hefði píanóið orðið ofan á og að
öllum líkindum myndi hann ekki
þekkja sellóið í dag. Sverrir hefur
spilað með strengjasveit Tón-
menntaskóla Reykjavíkur í nokkur
ár.
Sverrir segir það vera mjög hvetj-
andi fyrir nemendur í tónlistarnámi
að æfa með hljómsveitum. Hvatn-
ingin felist í því að vekja áhuga á
því að halda áfram í náminu. Það
er félagsskapur í kringum sveitirnar
og skemmtilegt að sýna afrakstur-
inn eftir vetrarlangar æfingar eins
og skólinn hans gerir með árlegum
vortónleikum. Þrátt fyrir töluverðan
tíma sem fer í æfingar og námið
telur Sverrir að fyrir utan reynsluna
sem unglingar fá sem eru mikið í
íþróttum eða tónlist, skipuleggi þeir
tíma sinn betur og nái oftar en
ekki betri námsárangri en hinir sem
eiga ekkert áhugamál.
Ekki allir atvinnumenn
Hvað tónlistarkennsluna varðar
telur Sverrir að ekki sé hægt að
gera þær kröfur til nemenda að
allir eigi að fara út í atvinnu-
mennsku. Slíkt gangi aldrei og
verður því að haga kennslunni eftir
því. „Sumir læra á hljóðfæri til
þess að gera sér atvinnu úr en aðr-
ir til þess að hafa gaman af og er
ég í síðari hópnum," segir Sverrir.
Margir læra á hljóðfæri
en kynskipt eftir
hljóðfærategundum
Tónlistaráhugi virðist vera mikill
hjá íslendingum og er Sverrir hissa
á því hvað það eru í raun margir
sem eru að íæra á hljóðfæri miðað
við framboð á afþreyingu. „Það
afsannar þá kenningu að allir séu
hangandi yfir sjónvarpi og tölvum
alla daga,“ segir hann. „Það er
samt athyglisvert að sjá hvernig
þetta skiptist, því þeir sem velja sér
strengjahljóðfæri eru oftar en ekki
stúlkur en drengir hafa meiri áhuga
á málmblásturshljóðfærum. Ég
hefði viljað sjá fleiri stráka hér á
SVERRIR Teitsson spilar
af áhuga.
þessu móti, við vorum örfáir úr 150
manna hóp.“
Mótið í Keflavík - gott
framtak
„Þetta mót er hvatning fyrir
nemendur og það er gaman að sjá
hvað aðrir eru að gera. Einnig að
kynnast fólki með sömu áhugamál.
Mér finnst betra að svona mót séu
haldin á landsbyggðinni en í
Reykjavík. Ef þau eru þar gistir
mikill hluti þátttakenda heima hjá
sér og slítur þannig mótið í sundur.
Hér gista allir á sama stað og skerp-
ir það tengslin milli þátttakenda,“
segir Sverrir.
Ætlar að halda áfram með
fiðluna
Ása Ninna Karlsdóttir er 11 ára
nemandi í Sandvíkurskóla á Sel-
fossi. Hún stundar nám á fiðlu í
Tónlistarskóla Árnesinga. Þar á
hún fjögur ár að baki og hefur tek-
ið eitt stigspróf. Ása Ninna var í
strengjasveit skólans sl. vetur og
gerir ráð fyrir að hún verði aftur í
vetur. Hún hefur farið á mót í
Garðabæ og á Selfossi en aldrei
verið á jafnstóru móti og hér í
Keflavík. Aðspurð segir hún að
námið sé stundum erfitt og stund-
um auðvelt. Hvað varðar heimaæf-
ingar sé það líka þannig að stundum
æfi hún mikið og stundum lítið.
Hún ætlar að halda áfram að læra
GUÐNY Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari og Delana Thomsen píanóleikari
munu halda tónleika i Borgarnes-
kirkju kl. 18 á mánudaginn, en tón-
leikarnir eru sameiginlegt verkefni
Tónlistarskólans og Tónlistarfélags
Borgaríjarðar, en félagið stóð fyrir
stofnun skólans á sínum tíma.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
er að hefja sitt þritugasta starfsár
og er þessi heimsókn liður i því
að halda upp á þau tímamót.
Aðsókn að skólanum er góð og
ÁSA Ninna frá Selfossi lær-
ir á fiðlu.
á fiðlu og langar til að taka fleiri
stigspróf. „Vinkonur mínar læra
líka á fiðlu og við hittumst stundum
og æfum saman,“ segir Ása Ninna.
Tónlistin gott áhugamál
Nanna Karen Alfreðsdóttir er 13
ára. Hún er nemandi í Álftamýrar-
skóla og stundar nám á lágfíðlu eða
víólu í Tónlistarskóla Kópavogs.
Hún er á sjötta ári og hefur tekið
3 stigspróf og tekur 4. stigið í vet-
ur. Lágfiðlan er ekki algengt hljóð-
færi, einungis voru 4 nemendur
með lágfiðlu úr 150 manna hópi
hér á mótinu í Keflavík. Lágfiðlan
er stærri og þykkari og er tónhæð-
in önnur en á venjulegri fiðlu.
Nanna Karen valdi víóluna vegna
þess að henni finnst hún vera
skemmtilegra hljóðfæri en venjuleg
fiðla og hljóma betur. Hún lærir
líka á píanó og spilar í strengja-
sveit skólans. Námið finnst henni
skemmtilegt en stundum erfitt eins
og gengur. Hún er ekki viss hvort
hún fer í frekara tónlistarnám í
framtíðinni, hana langar að leggja
stund á læknisfræði. Þetta mót í
Keflavík er fyrsta mótið sem hún
tekur þátt í og fannst henni gaman
og lærdómsríkt. Henni finnst tón-
listin vera gott áhugamál, hún á
fjölmargar vinkonur sem hún hefur
kynnst í gegnum námið. Aðspurð
út í kennslufýrirkomulag segist hún
vera ánægð með það eins og það er.
einkum hefur nemendum í fiðlu-
leik fjölgað.
Tónleikana munu þær Guðný
og Delana hefja með fiðlukonsert
eftir Benjamin Britten en síðan
gefst áheyrendum kostur á að
velja lög til flutnings af dag-
skránni.
Tónleikarnir eru öllum opnir,
aðgangur er frír fyrir nemendur
Tónlistarskóla Borgarfjarðar en
aðgangseyrir er 500 kr. fyrir
aðra.
Guðný og Delana leika
í Borgarneskirkju