Morgunblaðið - 03.11.1996, Qupperneq 52
<Q>
AS/400
Mikid úrval
viðskiptahugbúnadar
CCD NYHF.RJI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆH I
SUNNUDAGUR 3. NOVEMBER 1996
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Stofnlánadeild verði
sjálfstæður lánasjóður
STOFNLANADEILD Iandbúnaðar-
ins verður skilin frá Búnaðarbankan-
um og gerð að sjálfstæðum lána-
sjóði í eigu ríkisins, samkvæmt drög-
um að frumvarpi sem Guðmundur
Bjarnason landbúnaðarráðherra hef-
ur lagt fram í ríkisstjórninni. Gert
er ráð fyrir að sjóðagjöld bænda
verði lækkuð og vextir deildarinnar
hækkaðir en áfram verði niður-
greiðsla vaxta á stofnlánum til
bænda. Ríkisstjórnin hefur ekki af-
greitt frumvarpið frá sér enda eru
sjálfstæðismenn með efasemdir um
áframhaldandi vaxtaniðurgreiðslu
og rekstrarform.
Guðmundur Bjarnason segir að
nauðsynlegt hafi verið að endur-
skoða lögin um Stofnlánadeild land-
búnaðarins vegna áförma um að
breyta Búnaðarbankanum í hlutafé-
iag. Skipaði hann nefnd til þessa
verks og að skilja rekstur Stofnlána-
Afram gert ráð fyrir innheimtu sjóða-
gjalda og niðurgreiðslu vaxta
deildarinnar frá bankanum. Nefndin
skilaði nýlega áliti sínu. í henni var
fulltrúi Bændasamtaka íslands og
segir Guðmundur Bjarnason að sam-
komulag sé um málið við Bænda-
samtökin enda sé álit nefndarinanr
í samræmi við ályktun síðasta Bún-
aðarþings. Staðfestir Ari Teitsson,
formaður Bændasamtakanna, það.
Lagt er til að Stofnlánadeildin verði
gerð að sjálfstæðum lánasjóði í eigu
ríkisins. Bændur og neytendur hafa
greitt í sjóðinn en landbúnaðarráð-
herra segir að samkomulag sé við
forystu bænda um eignarhald ríkis-
ins enda verði hugsanlegum arði af
starfseminni ráðstafað til vaxtanið-
urgreiðslu eða til að byggja upp eig-
ið fé sjóðsins en fari ekki sem arð-
greiðslur í ríkissjóð. Gert er ráð fyr-
ir því að sjóðurinn njóti ríkisábyrgð-
ar, eins og verið hefur á meðan
Stofnlánadeildin hefur verið hluti af
Búnaðarbankanum.
Vextir meginlána
hækka úr 2 í 3%
Aðrir ráðherrar hafa unnið að
breytingu á öðrum helstu fjárfest-
ingarlánasjóðum ríkisins, Fisk-
veiðasjóði, Iðnlánasjóði og Iðnþró-
unarsjóði, og hefur m.a. verið rætt
um að sameina þá í nýjum fjárfest-
ingarbanka. Guðmundur Bjarnason
segist hafa unnið að undirbúningi
breytinga á Stofnlánadeildinni með
vitund ríkisstjómarinnar. Það hafi
verið viðurkennt að staða landbún-
aðarins væri með þeim hætti að
réttlætanlegt væri að halda áfram
innheimtu sjóðagjalda og niður-
greiðslu vaxta af stofnlánum til
bænda. í fyrirliggjandi frumvarps-
drögum er gert ráð fyrir því að
dregið verði verulega úr innheimtu
sjóðagjaldanna með því að fella nið-
ur liðlega helming neytenda- og
jöfnunargjalds, og að vextir megin-
lána verði hækkaðir úr 2 í 3%. Land-
búnaðarráðherra vonast til að ríkis-
stjórninn afgreiði málið frá sér í
þessari viku. Samkvæmt heimildum
Morgunbiaðsins telja ráðherrar úr
röðum sjálfstæðismanna að þó
frumvarpsdrögin gangi í rétta átt
þá þurfi að ganga lengra í að af-
nema sjóðagjöld og láta vexti ráð-
ast af markaðsaðstæðum, eins og
hjá öðrum fjárfestingarlánasjóðum.
. Tvívegis
útaf
FLUTNIN GABÍ LL fór út af veginum
sökum hálku og snjóa skammt frá
bænum Eyri í Fáskrúðsfirði síðdegis
í fyrradag og var um sex tíma verk
að koma honum aftur á réttan kjöl.
„Lygilega lítið“ tjón varð að sögn
lögreglu, og má m.a. geta þess að
hliðarspegillinn þeim megin sem bif-
reiðin lagðist á bognaði ekki einu
sinni.
Bíllinn var hlaðinn fiski, sem hafði
verið í aftanívagni flutningabifreiðar
sem fór út af þarna skammt frá
aðfaranótt föstudags og lagðist á
hliðina út í skurð. Eftir það óhapp
var fiskurinn fluttur á milli bíla, en
ekki hafði fiskurinn farið langt með
nýjum farkosti áður en hann var
aftur lentur utan vegar, eins og áður
sagði. Sambærileg óhöpp flutninga-
bifreiða hafa verið nokkuð tíð að
undanförnu.
Þórarinn V. Þórarinsson um samningsgerð í fyrirtækjum
Horfum aðallega á sveigj-
anlegan vinnutíma og frí
„ÞETTA er tilraun til að þróa
kjarasamninginn áfram, þannig að
á hverjum vinnustað megi aðlaga
ákvæði hans mismunandi þörfum
eftir því sem þar kann að semjast
um,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, í viðtali við
Morgunblaðið um hugmyndir sam-
bandsstjórnar VSÍ um að færa
samningsgerð inn í fyrirtækin í
næstu kjarasamningum með það að
markmiði að auka framleiðni og
'b'æta kaupmátt.
Aðspurður hvaða breytingar þess-
ar hugmyndir gætu falið í sér, sagði
Þórarinn m.a.: „Við verðum fyrst
að semja um það hvaða ákvæðum
kjarasamninga megi breyta, hvað
geti fallið inn í fyrirtækjaþátt samn-
ingsins. Um það verða að gilda ein-
hverjar reglur. Við horfum aðallega
a vinnutímann, upphaf og lok dag-
vinnu, uppgjörstíma yfirvinnu,
sveigjanlegan vinnutíma, fyrirkomu-
lag á neysluhléum, frítöku og ef til
vill greiðslur í forföllum. Við getum
vel séð fyrir okkur samkomulag á
vinnustað um að sama kaup greiðist
fyrir vinnu á tímabilinu 7 á morgn-
ana til 7 á kvöldin, þannig að ein-
stakir starfsmenn geti byrjað á mis-
munandi tíma. Hver og einn myndi
auðvitað ekki vinna meira en 40
stundir á viku án yfirvinnuálags, en
nýting framleiðslutækjanna yrði
mun meiri en nú. Það gæti staðið
undir hærra dagvinnukaupi í þessu
fyrirtæki,“ segir hann.
Verðum að geta sýnt fram á
ávinning af þátttöku
Þórarinn telur að ef þessar hug-
myndir verða að veruleika verði hlut-
verk samtaka vinnuveitenda og
verkalýðsfélaganna í auknum mæli
að veita ráðgjöf og þjónustu í tengsl-
um við kjaramál innan fyrirtækj-
anna. Hann segir að innan VSÍ hafi
ýmsir velt því upp, hvort vinnumark-
aðurinn sé nægilega þroskaður til
að taka við þessum hugmyndum,
hVort þetta fyrirkomulag geti ekki
leitt til átaka úti í fyrirtækjunum
sem telji sig ekki fá nauðsynlegt
skjól af samtökunum.
„VSÍ eru frjáls félagasamtök, fyr-
irtækin velja sjálf hvort þau ganga
í aðildarfélögin og þar með VSÍ eða
ekki. Þess vegna verðum. við og að-
ildarsamtökin stöðugt að geta sýnt
fram á ávinning af þátttöku. VSI
mun auðvitað áfram gegna stefnu-
mótunar- ogforystuhlutverki," sagði
hann.
■ Viðviyum/18
Morgunblaðið/Kristinn
Brotajárn til
útflutnings
STARFSMENN Hringrásar voru
í gærmorgun að pressa brotajárn
til útflutnings á athafnasvæði fyr-
irtækisins við Sundahöfn. Gunn-
laugur Sigurðarson þurfti að tína
spýtur og aðra óæskilega hluti
út úr haugnum.
Kaup VÍS á Skandia
Sjö starfs-
menn fá
endanlega
uppsögn
SJÖ starfsmönnum Vátrygginga-
félagsins Skandia var endanlega
sagt upp störfum á föstudag í kjöl-
far kaupa VÍS á fyrirtækjum Skan-
dia. Af 31 starfsmanni félagsins var
26 formlega sagt upp störfum en
19 þeirra ýmist boðin endurráðning
tímabundið eða til frambúðar.
Þá verður um helgina unnið að
því að flytja aðstöðu Vátryggingafé-
lagsins Skandia í höfuðstöðvar VÍS,
en verðbréfafyrirtækið verður hins
vegar áfram í Heklu-húsinu við
Laugaveg. Hefur hið nýja verðbréfa-
fyrirtæki VÍS nú hlotið heitið Fjár-
vangur hf.
Samstarf við Skandia
I tengslum við kaupsamning VÍS
við Skandia var gert samkomulag
um samstarf fyrirtækjanna á sviði
lífeyrissparnaðar. „Skandia hefur
verið mjög framarlega á sviði ýmiss
konar sparnaðarforma, ekki aðeins
í Svíþjóð heldur í ýmsum öðrum lönd-
um,“ segir Axel Gíslason, forstjóri
VÍS.
Völlur/10-11
♦ ♦ ♦
RLR rekur
slóð stol-
inna síma
RANN SÓKNARLÖGREGLA ríkis-
ins hefur í samstarfi við Póst og
síma fundið aðferð til þess að hafa
upp á farsímum sem hefur verið stol-
ið og gera þá óvirka sem ekki
finnast. Þar með verða GSM-farsím-
ar verðlausir fyrir þá sem freistast
til þess að taka þá ófijálsri hendi.
Nú þegar stendur yfir leit á vegum
Pósts og síma að hátt á annað hundr-
að GSM-farsímum sem tilkynnt hef-
ur verið að hafi verið stolið. í næstu
viku ætlar Póstur og sími í samráði
við RLR að loka fyrir notkun 117
stolinna farsíma.
Frá upphafi GSM-farsímakerfís-
ins 1994 hefur RLR borist 185 kær-
ur vegna þjófnaða á GSM-farsímum.
Ragnar Benediktsson, yfirdeildar-
stjóri hjá Pósti og síma, segir að nú
standi yfir leit að 162 GSM-farsím-
um, þar af 117 farsímum sem tengj-
ast þjófnaðarkærum.
■ Stolnir GSM-símar/18
Gert að reyna búnað
BOEING-verksmiðjan sendi í
fyrrinótt frá sér tilmæli til flugfé-
laga víða um heim að hliðarstýri-
búnaður á 737-400 þotum fyrir-
tækisins skuli sæta prófunum, í
tengslum við rannsókn í Banda-
ríkjunum á tveimur flugslysum
þar í landi.
Flugleiðir hefur fjórar slíkar
vélar í þjónustu sinni, en ein
þeirra er ekki í rekstri sem stend-
ur því hún er í skoðun. Hliðarstýr-
isbúnaður vélanna var reyndur í
gærkvöldi.
Einar Sigurðsson, aðstoðar-
maður forstjóra, segir að ekki
hafi verið sýnd nein tengsl á milli
áðurnefndra slysa og þessa bún-
aðar í 737-400 þotunum, en
fræðilegur möguleiki sé hins veg-
ar fyrir hendi og öryggisins vegna
hafi verksmiðjurnar talið ástæðu
til að kanna búnaðinn.
Vélar af þessari gerð eru 2.700
talsins í heiminum og eiga að
baki 69 milljón flug, og eru engin
þekkt dæmi um slys í þessum
vélum vegna hliðarstýrisbúnaðar.