Morgunblaðið - 10.11.1996, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D/E
258. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR10. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
^ Morgunblaðið/RAX
ÆVINTYRAHEIMUR
HLAUPIÐ í Skeiðará sprengdi jökulsporðinn og fleytti gríðar- skreytt göng hafa myndast milli tveggja jaka. Jakarnir voru er einnig hægt að skoða á alnetssíðu Morgunblaðsins
stórum jökum bókstaflega upp úr jöklinum. Myndin er tekin á að giska 10-15 mannhæðir hvor. Morgunblaðinu í dag fylg- (http://www.strengur.is/mbl/) og eru þær opnar öllum net-
úr einni gjánni þar sem hlaupvatnið spratt fram. Grýlukertum ir sérblað með myndum úr Skeiðarárhlaupi. Þessar myndir skoðurum. ■ Spretthlaup/El-4
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir hörmungarnar í Zaire
Ákvörðun um fjölþjóð-
legar hersveitir frestað
Deng í hinstu
langferðina
FORYSTUMENN konimúnistaflokks
Kína hafa ákveðið að flytja Deng Xiaop-
ing, byltingarheljuna öidnu, til suður-
hluta landsins „í áföng-
um“ á mörgum mánuð-
um til að hann geti far-
ið til Hong Kong 1. júlí
nk. þegar breska ný-
lendan verður undir
stjórn Kínveija.
Deng er orðinn 92
ára gamall og stjórn-
völd í Peking óttast að
þessi hinsta langferð öldungsins geti
riðið honum að fullu. Þau hafa því
ákveðið að flytja hann suður á bóginn
á mörgum mánuðum og fyrsti viðkomu-
staðurinn verður Shanghai. Deng verð-
ur þar í tvo mánuði til að venjast lofts-
laginu og heldur síðan til borgarinnar
Shenzhen. Þar verður hann í nokkra
mánuði til að venjast röku loftinu áður
en hann fer til Hong Kong 1. júlí.
Sameinuðu þjóðunum, Goma. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti í gær ályktun þar sem aðildarríki sam-
takanna eru hvött til að undirbúa stofnun
fjölþjóðlegs herliðs til að koma í veg fyrir
frekari hörmungar í austurhluta Zaire. Ráðið
frestaði því hins vegar að taka lokaákvörðun
um að senda þangað hersveitir.
Ályktunin var samþykkt samhljóða og að-
ildarríki Sameinuðu þjóðanna voru beðin um
að svara því sem allra fyrst hvernig þau
gætu orðið að liði til að öryggisráðið gæti
tekið Iokaákvörðun um aðgerðir í Zaire.
Ýmis aðildarríki ráðsins höfðu vonast til
þess að samþykkt yrði þegar í stað að senda
hersveitir til Afríkuríkisins í því skyni að
vernda starfsmenn hjálparstofnana og gera
þeim kleift að dreifa matvælum. Það var þó
ekki mögulegt vegna þess að Bandaríkja-
menn, sem vilja ekki endurtaka mistökin í
Sómalíu, sögðust enn vera að kanna hvort
þeir gætu tekið þátt í slíkum aðgerðum og
með hvaða hætti.
Þúsundir flóttamanna deyja
Emma Bonino, sem fer með mál sem varða
neyðaraðstoð innan framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, kvaðst „hneyksluð" á
samþykkt öryggisráðsins og sagði að Samein-
uðu þjóðirnar gætu ekki haldið að sér höndum
meðan þúsundir manna yrðu hungurmorða á
degi hveijum í Zaire.
Engar líkur eru taldar á því að hægt verði
að koma rúmri milljón flóttamanna frá Rú-
anda og Búrúndí til hjálpar í austurhluta
Zaire á næstu dögum. Auk þeirra hafa hundr-
uð þúsunda Zaire-búa lagt á flótta vegna
átaka á svæðinu.
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna (WFP)
varaði við því að hætta væri á alvarlegri
hungursneyð á næstu þremur vikum. „Fólk
hefur þegar soltið í hel og við áætlum að
fyrir lok mánaðarins deyi rúmlega 80.000
börn yngri en þriggja ára.“
Bernard Pecoul, yfirmaður samtakanna
Læknar án landamæra, sagði að talið væri
að 13.600 flóttamenn hefðu þegar dáið á síð-
ustu þremur vikum vegna skorts á matvælum,
vatni og lyfjum.
Kaupratturirin
skiptir rrestu
SÍÞREYTA
10
MUNUM NYTA
MEÐBYRINN