Morgunblaðið - 10.11.1996, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Talið að þrír mflúensustofnar geti borist hingað til lands á þessum vetri
INFLÚENSAN sem gert hefur
vart við sig víða um heim undan-
farna mánuði er ekki komin til
landsins, að sögn Helga Guð-
bergssonar yfirlæknis á Heilsu-
verndarstöðinni í Reykjavík.
Búið er að bólusetja flesta aldr-
aða og sjúklinga með langvinna
hjarta- og lungnasjúkdóma og
er þeim sem ekki hafa verið
bólusettir bent á að snúa sér til
heimilislæknis síns eða heilsu-
gæslustöðvar.
Helgi sagði að ekki hefðu
borist fréttir af inflúensu frá
nágrannalöndum okkar í Evr-
ópu en að hún hefði eitthvað
stungið sér niður í Kanada. Því
væri ekki ómögulegt að hún
bærist þaðan og hingað til lands.
Sagði hann að bólusetningu
aldraðra og sjúklinga með lang-
vinna hjarta- og lungnasjúk-
Lægri
gjöld af
sumar-
húsum
FASTEIGNAGJÖLD af sum-
arbústöðum lækka verulega á
næsta ári samkvæmt laga-
frumvarpi sem félagsmálaráð-
herra kynnti í ríkisstjórn á
föstudag.
Um er að ræða breytingu á
lögum um tekjustofna sveitar-
félaga. Nú eru sumarbústaðir
flokkaðir með íbúðarhúsnæði
við álagningu fasteignagjalda
en verða samkvæmt frum-
varpinu flokkaðir með útihús-
um í sveitum. Að sögn Páls
Péturssonar félagsmálaráð-
herra yrði fasteignagjald af
sumarbústöðum að óbreyttu
1,22% af álagningarstofni á
næsta ári, en verður 0,5% sam-
kvæmt frumvarpinu. Eftir sem
áður verður sveitarstjórnum
heimilt að leggja 25% álag á
fasteignagjöldin.
„Rökin fyrir þessu eru að
sumarbústaðir eru ekki lög-
heimili manna og íbúar þar
þurfa ekki að njóta félagsþjón-
ustu í viðkomandi sveitarfé-
lagi. Þetta hefur í för með sér
talsvert tekjutap fyrir þau
sveitarfélög þar sem mikið er
af sumarhúsum en Samband
íslenskra sveitarfélaga hefur
lagt blessun sína yfir málið,“
sagði Páll Pétursson.
Yinnuslys
við Dalveg
MAÐUR féll nokkra metra þar
sem hann var ásamt öðrum
að rífa gamalt áhaldahús við
Dalveg í Kópavogi um ellefu-
leytið í gærmorgun.
Mennimir voru að kasta nið-
ur timbri og ekki vildi betur
til en svo að nagli kræktist í
föt mannsins og hann féll.
Hann var fluttur á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur en að
sögn vakthafandi læknis þar
eru meiðsl hans ekki talin al-
varleg. Talið er að hjálmur sem
maðurinn hafði á höfði hafi
bjargað miklu.
Bílvelta á
Garðvegi
BÍLVELTA varð á Garðvegi
milli Keflavíkur og Garðs á átt-
unda tímanum í gærmorgun.
Engin meiðsl urðu á fólki
en bíllinn er töluvert skemmd-
ur, að sögn lögreglu í Keflavík.
Ökumaðurinn er grunaður um
ölvun við akstur.
Bólusetningu er
að mestu lokið
dóma væri að mestu lokið á
heilsugæslustöðvum en bólu-
setningar í fyrirtækjum væru í
fullum gangi.
„Mælt er með að allir, sem
eru yfir sextugt eða eru með
langvinna hjarta- og lungna-
sjúkdóma eða aðra hættulega
sjúkdóma fái bólusetningu gegn
inflúensu," sagði hann. „Inflú-
ensan sem hefur verið á ferðinni
síðustu mánuði í heiminum er
aðeins breytt frá þeirri, sem
hefur verið hér undanfarin ár.
Það má því búast við að talsvert
af fólki fái hana þegar hún
gengur og þá aðallega börn og
ungt fólk, eða þeir sem minnst
hafa ónæmið en ég á ekki von
á að veikindin verði verri en
með venjulegri inflúensu."
Þrír stofnar
Sagði Helgi að þrír stofnar
væru aðallega að ganga. A-stofn
er kenndur við borg eina í Kína.
Er búist við að hann valdi ein-
hverjum usla. Annar stofn er
kenndur við Singapore og enn
annar við Benjin. „Einkenni
flensunnar eru alltaf þau sömu,“
sagði Helgi. „Hún byrjar með
hálsbólgu og hita, höfuðverk og
síðan kvefeinkennum. Fram-
haldið er misjafnlega slæmt.
Gjarnan fer þetta eitthvað ofan
í berkjur og jafnvel lungu og í
einstaka tilvikum leiðir það til
lungnabólgu. Aftur á móti eru
að gangá ýmsar kvefpestir og
öndunarfærasýkingar, sem ekki
má rugla saman við inflúensu
en þessar pestir geta valdið
lungnabólgu.“
I bóluefninu sem notað er,
er vörn gegn stofnunum þrem-
ur og dugar bólusetningin í
vetur. „Sé fólk ekki bólusett
getur það átt von á að fá inflú-
ensu á fimm til tíu ára fresti,“
sagði hann.
Samstarf jafnaðarmanna rætt á flokksþingi Alþýðufiokks
Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ pallborðsumræðum á flokksþingi Alþýðuflokksins í gær. Jón Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Einar Karl Haraldsson, framkvæmdastjóri þing-
flokks jafnaðarmanna; <5estur ií: Géstsson, formaður SUJ, Guðmundur Gunnarsson, formaður
Rafiðnaðarsambands Islands, Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Alþýðubandalags, og Ágúst
Einarsson, þingmaður Þjóðvaka, ræddu samstarf jafnaðarmanna.
Borgarstj óri vill
kosningabandalag
HUGMYNDIR um samstarf eða
sameiningu jafnaðarmanna hafa
verið ofarlega á baugi í umræðum
það sem af er á flokksþingi Alþýðu-
flokksins. í gær fóru fram sérstak-
ar pallborðsumræður um samstarf
jafnaðarmanna á þinginu.
Þar sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri óraunhæft
að ætla sér að búa til einn stóran
jafnaðarmannaflokk fyrir næstu
alþingiskosningar en hún mælti
með myndun kosningabandalags
vinstri manna. Hún sagði að
Reykjavíkurlistinn ætlaði að halda
forystu í Reykjavík í næstu borgar-
stjórnarkosningum og það gæti
skipt sköpum fyrir þessa þróun.
I pallborðsumræðunum sagði
Bryndís Hlöðversdóttir alþingis-
maður að ávarp Grétars Þorsteins-
sonar, forseta Alþýðusambands
íslands, á flokksþinginu sl. föstu-
dag þar sem hann hvatti til samein-
ingar jafnaðarmanna hefði verið
stórpólitísk tíðindi þar sem forystu-
maður verkalýðshreyfíngarinnar
hefði hvatt verkalýðshreyfinguna
til að vinna saman gegn ríkis-
stjórninni.
Þá gagnrýndi Jón Baldvin
Hannibalsson, fráfarandi formað-
ur Alþýðuflokksins, Sjálfstæðis-
flokkinn harkalega og sagði að
þar réði þéttriðin valdaklíka lög-
um og lofum.
Þátttakendur í pallborðsumræð-
unum voru, auk Jóns Baldvins,
Ingibjargar Sólrúnar og Bryndísar
Hlöðversdóttur þau Guðmundur
Gunnarsson, formaður Rafiðn-
aðarsambands íslands, Ágúst Ein-
arsson, þingmaður Þjóðvaka, og
Gestur G. Gestsson, formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna.
Umræðustjóri var Einar Karl Har-
aldsson.
Stjórnmálaályktun
í drögum að stjórnmálaályktun
sem afgreiða á á þinginu í dag er
eingöngu fjallað um áherslur á
samstarf jafnaðarmanna fyrir
næstu þingkosningar og sett fram
hörð gagnrýni á Sjálfstæðisflokk-
inn. Þar segir m.a. að þróun síð-
ustu missera hafi leitt til þeirrar
niðurstöðu að höfuðandstæður ís-
lenskra stjórnmála í dag séu ann-
ars vegar jafnaðarmenn og hins
vegar Sjálfstæðisflokkurinn, þar
sem frjálslynd viðhorf nútíma jafn-
aðarstefnu glími við vaxandi ein-
angrunarhyggju Sjálfstæðisflokks-
ins. „Þessar nýju aðstæður gera
samstarf jafnaðarmanna enn tíma-
bærara og líklegra til árangurs en
áður,“ segir í drögunum.
Aukaþing haldið um
lagabreytingar
Ekki verða gerðar breytingar á
lögum og skipulagi Alþýðuflokks-
ins á flokksþinginu eins og tillögur
sem lágu fyrir þinginu gerðu ráð
fyrir, en flokksþingið samþykkti í
gærmorgun að hafa sérstakt auka-
þing um þær lagabreytingatillögur
og um önnur innri mál flokksins
eigi síðar en í júní á næsta ári.
Verður því ekki gerð breyting á
starfi formanns framkvæmda-
stjórnar á þessu þingi eins og að
var stefnt. Bryndís Kristjánsdóttir,
formaður starfshóps sem fjaliaði
um lagabreytingatillögur á flokks-
þinginu, sagði að ástæða frestunar
á afgreiðslu lagabreytinga hafi
ekki verið ágreiningur.
„Þarna er um margar lagabreyt-
ingatillögur að ræða og sumar eru
svo viðamiklar að það var talið að
mikill tími af þinginu færi í þetta
mál. Við vildum líka koma í veg
fyrir að menn færu að samþykkja
eða hafna einhveijum tillögum í
flýti. Þess vegna var ákveðið að
halda sérstakt aukaþing um þessar
breytingar," sagði hún.
Síþreyttur og síþreyta
erekki það sama
► Margir vísindamenn hallast að
því að síþreyta og vefjagigt sé eitt
og það sama. Hér á landi gætu á
hveijum tíma 600-1.500 manns
haft veruleg óþægindi vegna sjúk-
dómsins. /12
Við hvern er að
sakastí Rúanda?
►Um bakgrunn átakanna í Rú-
andaogZaire. /12
Kaupmátturinn
skiptir mestu
►Grétar Þoreteinsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, ræðir við-
horfm í komandi kjarasamningum
og um hugmyndir VSÍ um vinnu-
staðasamninga. /16
Munum nýta
meðbyrinn
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Guðrúnu
Högnadóttur, formann Gæða-
stjórnunarfélags íslands. /22
B
► l-32
Nýtt sjávarþorp
verðurtii
► Nýtt þorp hefur orðið til í Súða-
vík á rúmu ári og ekki eru liðin
tvö ár síðan snjóflóðin féllu. Er
þetta einstök framkvæmd hér á
landi því venjulega byggjast þorp
á áratugum eða öld. /1 og 2-4
Opin bók
►Fyrsta plata Emilíönu Torrini
seldist í 9000 eintökum og nú er
hún komin af stað aftur. /6
Mynd fyrir
hugsandifólk
► Bandaríski leikarinn Bruce Will-
is í viðtali við Morgunblaðið um
nýjustu mynd sína Last man stand-
ing. /13
C# FERÐALÖG
► 1-4
San Francisco
►Borgin þar sem brekkur og brýr
skapa sérstaka umgerð. /2
Söguslóðir sem
fanga hjartað
►Hópur íslendinga var nýlega á
ferð um ísrael og Jórdaníu. /4
13 BÍLAR________________
► 1-4
Rafbílar
►Gjöldum af slíkum farartækjum
verði aflétt. /2
Reynsluakstur
► Fjölnotabíllinn Vito frá Merce-
des Benz í sendibílaformi /4
E
► 1-4
Spretthlaup
►Skeiðarárhlaupið rakið í mynd-
um og máli. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari 26
Helgispjall 26
Reykjavikurbréf 26
Skoðun 28
Minningar 30
Myndasögur 38
Bréftil blaðsins 38
fdag 40
Brids 40
Stjömuspá 40
Skák
Fólk í fréttum
Bíó/dans
fþróttir
Utvarp/sjónvarp
Dagbók/veður
Gárur
Kvikmyndir
Mannlífsstr.
Dægurtónlist
40
4 2
44
48
49
51
lOb
12b
14b
16b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1&6