Morgunblaðið - 30.11.1996, Page 2
2 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samrekstur Jón Ingvarsson endurkjörinn formaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
stofnana Einróma niðurstaða um
MEIRIHLUTI Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn
Húsavíkur mun láta kanna hag-
kvæmni samreksturs Sjúkrahúss
Þingeyinga, heilsugæslustöðvarinn-
ar og dvalarheimilis aldraðra á
staðnum. Jafnframt verður leitað
eftir samningum við n'kisvaldið um
sjálfstæðan rekstur þessara stofn-
ana.
Nýi meirihlutinn tók við völdum
á bæjarstjómarfundi í fyrradag.
Afturkallað var umboð nefnda og
kosið í þær að nýju. Þá var lagður
fram málefnagrundvöllur nýja meiri-
hlutans sem mun starfa það sem
eftir liflr kjörtímabilsins, í eitt og
hálft ár.
■ Vill sameina/10
■ ■ ♦ ♦ ♦.
Gæsluvarðhald
framlengt
GÆSLUVARÐHALD yfír manni á
sextugsaldri á Akureyri var fram-
lengt um 45 daga, til 13. janúar
næstkomandi, en hann hefur verið
í varðhaldi frá því í síðustu viku
vegna gruns um kynferðisbrot
gagnvart stúlkubörnum.
Rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri fer með rannsókn málsins.
Morgunblaðið/Ásdts
MÁLIN rædd í upphafi félagsfundar SH. Jón Ingvarsson, for-
maður stjórnar SH hf., Friðrik Pálsson, forstjóri og Ólafur
Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands.
FÉLAGSFUNDUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna samþykkti ein-
róma í gær að breyta félaginu í
hlutafélag frá og með næstu ára-
mótum. Með breytingunni verður
skilaskylda afurða afnumin, inn-
lausnarskylda á eignarhluta við út-
göngu félagsmanna afnumin og
félagið fær aukið svigrúm til að
afla sér fjár til framkvæmda. Regl-
ur um sköttun breytast og fækkað
er í stjórn úr 15 í 9. Jón Ingvarsson
var kjörinn formaður stjómar án
mótframboðs með meira en 90%
atkvæða.
Átti sér aðdraganda
Breyting þessi á sér nokkum
aðdraganda en Vilhjálmur Árnason,
blaðafulltrúi SH, segir að miðað við
þróun viðskipta á Islandi og þær
breytingar, sem gerðar hafí verið á
félagsforminu, sem allar hafí miðað
að því að færa félagið nær hlutafé-
lagaforminu, sé um eðlilega breyt-
ingu að ræða.
Umfang SH hafi aukizt það mik-
ið á síðustu ámm með tilliti til fram-
leiðslu og erlendra umsvifa að segja
megi að fyrirtækið hafí sprengt sig
út úr gamla félagsforminu. Þá sé
það einn af kostunum fyrir eigendur
fyrirtækisins að nú fái þeir markaðs-
verð fyrir hlut sinn í því en að SH
standi mörg öflugustu hlutafélög
íslands í sjávarútvegi. Þetta sé mikil-
vægur áfangi í farsælli sögu félags-
ins og ánægjulegt hve mikil sam-
staða hafi náðst um breytinguna.
100.000 atkvæði
Reglur um stjórnarkjör eru með
þeim hætti að atkvæði eru 100.000
og skiptast á eigendur eftir vægi
þeirra innan félagsins. Jón Ingvars-
son er formaður stjórnar SH hf.,
en hann hlaut yfir 91.000 atkvæði.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hlutu eftirtaldir flest at-
kvæði við stjórnarkjör: Finnbogi
Jónsson, Neskaupstað, 93.000 at-
kvæði, Ólafur B. Ólafsson, Sand-
gerði, 91.000, Brynjólfur Bjamason,
Reykjavík, 86.000, Sigurður Einars-
son, Vestmannaeyjum, 86.000, Guð-
brandur Sigurðsson, Akureyri,
83.000, Kristján Jóakimsson, Hnífs-
dal, 77.000, Magnús Bjamason,
Eskifírði, 72.000 Róbert Guðfínns-
son, Siglufírði, 53.000. Þá herma
heimildir Morgunblaðsins að næst
því að ná kjöri í stjóm hafí verið
Rakel Olsen, Stykkishólmi, með yfir
50.000 atkvæði en nokkur áhugi var
á að hún næði kjöri þótt hún sé ekki
í hópi stærstu hluthafa SH.
Morgunblaðfl
Almannavarnaæfing á Egilsstöðum
Misskildu útkall
hjá Neyðarlímmni
Vaðbrekku, Jökuklal. Morgunblaðið.
STÓRT slys var sett á svið á Egils-
stöðum í gærkvöldi og var æfingin
í því fólgin að láta sem flugvélar
hefðu rekist á í flugi og brotlent á
tveimur mismunandi stöðum. Haft
var samband við Neyðarlfnuna og
misskildu viðtakendur kall á slys-
stað. Liðu sjö mínútur milli tilkynn-
inga og töldu viðtakendur að um eina
brotlendingu væri að ræða.
Sviðsetningin var með þeim hætti
að önnur vélin hefði lent á verkstæð-
ishúsi á Egilsstöðum og hin á sams-
konar húsnæði í Fellabæ. Slysið var
tilkynnt til Neyðarlínunnar og allt
tiltækt lið kallað út, það er almanna-
vamanefnd Fljótsdalshéraðs, svæðis-
stjóm, slysavarnasveitir á Egilsstöð-
um og Jökuldal, skátar á Egilsstöð-
um og Fjöllum og læknar og hjúkmn-
arlið á heilsugæslustöðinni og Rauði
krossinn, sem sá um hjálparstöð í
Egilsstaðaskóla.
Sett var svið brotlending með 40
manns á Egilsstöðum og tíu í
Fellabæ. Aðstoð barst um hálftíma
síðar í Fellabæ en bið varð á því á
Egilsstöðum vegna misskilnings hjá
Neyðarlínu. Var hjálparlið komið til
Egilsstaða um 55 mínútum eftir að
útkall barst.
Slökkvilið og lögregla komu til
Egilsstaða 15 mínútum eftir að út-
kall barst, slökkti elda sem loguðu
og fór þaðan yfír í Fellabæ. En lækn-
ar og hjúkrunarlið um klukkustund
síðar sem fyrr er getið.
Æfíngin þótti takast nokkuð vel
þegar aðstoð barst og gekk greiðlega
að rýma svæðin, eða um þijá tíma.
Ung hjón á ísafirði fengu 32,5 milljónir í happdrættisvining
„ Akveðin í að láta þetta
ekki sljórna lífi okkar“
Síðasta
augnað-
gerðin
FRIÐBERT Jónasson, yfirlæknir
augndeildar Landakotsspítala,
framkvæmdi þar í gær síðustu
augnskurðaðgerðina en starfsemi
augndeildarinnar verður innan
tíðar flutt á Landspítala. Skurðað-
gerðin fólst í að setja gerviauga-
stein í sjúkling sem misst hafði
augastein í slysi. Um 600 slíkar
aðgerðir voru gerðar þar í fyrra
en til að gera starfsfólki auðveld-
ara að fylgjast með aðgerðinni
er stækkuð mynd af augasteinin-
um á skjá inni á skurðstofunni.
Augnlæknar hafa starfað óslit-
ið á Landakoti frá árinu 1902 en
augndeildin var stofnuð árið 1969
og var fyrst um sinn lítið annað
en nafnið eitt því skurðverkfæri
voru í eigu einstakra lækna og
deildin átti engin rannsóknar-
tæki. Við deildina starfa nú níu
læknar og í fyrra voru fram-
kvæmdar þar um 2.000 skurðað-
gerðir.
UNG þjón á ísafirði urðu um það
bil 32,5 miHjónum króna ríkari á
þriðjudagskvöld þegar dregið var úr
Heita potti Happdrættis Háskólans.
Þau eiga tvö böm á gmnnskóla-
aldri. Þau vilja njóta nafnleyndar,
en féllust á að skýra frá nokkrum
atriðum, þar eð þau vita að mörgum
leikur forvitni á því hvernig fólki
verður við þegar það fær skyndilega
slíka fjármuni upp í hendurnar.
Konan sagði að faðir sinn hefði
lengi átt vinningsnúmerið, 20483.
„Hann varð sjúklingur og ég annaðist
hann mikið undir það síðasta. Ég fór
þá að borga helminginn í miðanum á
móti honum. Þegar hann lést tók ég
við öllum miðanum. Ég vildi eiga
miða í happdrættinu og ég vildi eiga
númerið hans.“
Hún sagðist varla geta lýst því
hvemig henni varð við þegar hún frétti
af vinningnum. „Fyrst starði maður
bara út í loftið. Daginn eftir fór ég í
vinnuna og þar fékk ég hálfgert
taugaáfall. En maður jafnar sig á
þessu. Við erum ákveðin í því þjónin
að láta þetta ekki stjóma lífi okkar.
Við höldum bæði áfram okkar störfum
sem við erum ánægð með og förum
ekki á neitt „flipp“ eins og menn segja.
Við erum þegar búin að fá okkur
ráðgjafa sem verður okkur innan
handar við meðhöndlun fjárins."
Hét á Sophiu Hansen
— Eitthvað hljótið þið að leyfa
ykkur?
„Sjálfsagt gerum við það, en það
er bara tvennt sem við emm búin
að gera. Borga skuldir okkar og
greiða áheit.“
— Eru skuldirnar miklar?
„Fyrir þriðjudagskvöldið hefði ég
sjálfsagt svarað þessu játandi, en
nú er svarið eðlilega afstæðara. Við
keyptum gamalt hús sem ég hefí
miklar mætur á og er tengd óijúf-
andi tilfínningaböndum. Við skuld-
uðum í því og það þarfnast mikillar
viðgerðar. Nú getum við gert það
upp eins og okkur langar. Annað
er ekki ákveðið. Við ætlum að ávaxta
peningana sem best, svo þeir nýtist
bömunum okkar til menntunar, eða
hvers þess sem þau kjósa þegar þau
vaxa úr grasi, og við viljum ekki að
þessi skyndilegu umskipti hafí of
mikil áhrif á þau.
— En hvern héstu á?
„Ég hét á Sophiu Hansen og þið
getið reitt ykkur á að hún fær það
áheit greitt."
Fipaðist
og lenti á
ljósastaur
Vogum. Morgunblaðið.
ÖKUMAÐUR keyrði utan í
bifreið við framúrakstur á
Reykjanesbraut í gærkvöldi
með þeim afleiðingum að sú
sem ekið var utan í lenti á
ljósastaur sem nýbúið var að
setja upp. Ökumaður bifreiðar-
innar sem ætlaði framúr stakk
af.
Bílstjóri bifreiðarinnar sem
lenti á staumum var fluttur á
sjúkrahús en er ekki alvarlega
slasaður. Bifreiðin er mikið
skemmd og varð að fjarlægja
hana með dráttarbíl.
Að sögn lögreglu er þetta
fyrsti ljósastaurinn sem ekið
er á á Reykjanesbraut frá því
byijað var að setja þá upp.
Staurinn brotnaði ekki, eins
og ráð hafði verið fyrir gert
við ákeyrslu, og brotnaði kúp-
ullinn af í staðinn.