Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sjómenn þurfa að sækja námskeið
Slysavarnaskóla sjómanna
Færri slys og
minni kostnaður
Ólafsfiördur. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristján
VIGNIR Þormóðsson í Kaffi Kverinu, Hreiðar Hreiðarsson í Vín,
Júlíus Guðmundsson í KEA-Nettó, Heimir Gunnarsson umdæmis-
stjóri Flugmálastjórnar og Halldóra Bjarnadóttir, fráfarandi for-
maður Tóbaksvarnanefndar .
Viðurkenningar fyrir
framlag til tóbaksvarna
UM NÆSTU áramót ganga í gildi
lög sem kveða á um að allir sjó-
menn eigi að hafa sótt námskeið
hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða
hafa hlotið sambærilega menntun
í öðrum skólum erlendis. Lögin ná
til sjómanna á öllum fiskiskipum
landsins 12 tonna og stærri, en til
að hljóta lögskráningu þarf að
hafa sótt námskeið.
Hilmar Snorrason skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna var á
dögunum að leiðbeina skipveijum
á frystitogaranum Hvannabergi
frá Ólafsfirði, en hann sagði þá
kröfu gerða að menn mættu einu
sinni á námskeið hjá skólanum,
það stæði í fjóra daga og væri
bæði bóklegt og verklegt.
„Stjórnvöld leggja til fjármagn
og er eðlilegt að þau geri kröfu
um að menn sæki námskeiðin. Með
þeim verða færri slys og þar af
leiðandi minni kostnaður fyrir rík-
ið. Ekki má heldur gleyma því að
einstaklingur sem lendir í slysi ber
meiri skaða en hann fær nokkurn
tíma bættan. Margar útgerðir
leggja mikla áherslu á að menn
sæki námskeið, þær eiga vinnu-
tækið og eiga að gera kröfu til
sjómanna. Þeir sem sækja nám-
skeið hjá okkur sýna metnað og
standa mun betur að vígi,“ sagði
Hilmar.
12 þúsund
nemendur
Skólinn var stofnaður árið 1985
og hafa um 12 þúsund nemendur
stundað nám við hann, sumir oftar
en einu sinni. Tölur sýna að slysum
til sjós hefur fækkað um 200 á
milli áranna 1990 til 1995, en það
er að mestu talið námskeiðunum
að þakka.
A alþjóðavettvangi er rætt um
að halda endurmenntunarnám-
skeið á 5 ára fresti og sagði Hilm-
ar það sína von að svo yrði einnig
hér á landi, ekki væri verið að
tala um nema einn dag að meðal-
tali á ári í endurmenntun fyrir
þann sem hefur sjómennsku að
atvinnu. Þörfin væri brýn því í
hverri viku slasast 10 sjómenn við
störf.
FIMM viðurkenningar fyrir
framlag til tóbaksvarna voru
veittar í Blómaskálanum Vín í
Eyjafjarðarsveit. Halldóra
Bjarnadóttir formaður fráfar-
andi tóbaksvarnarnefndar sem
veitti viðurkenningarnar,
sagði að það þeir sem hlytu
verðlaunin væru brautryðjendur
sem hefðu gengið lengra en
tóbaksvarnarlög krefðust.
I Blómaskálanum Vín hefur
ekki verið selt tóbak í 8 ár og frá
reyklausa deginum í fyrra hefur
hann verið reyklaus. í KEA-Nettó
hefur tóbak verið haft undir borði
frá upphafi en Halldóra segist
túlka það að stilla tóbaki upp eins
og víðast er gert sem auglýsingu.
Flugstöðin á Akureyri hefur verið
reyklaus frá því hún var byggð
og hlaut viðurkenningu en Hall-
dóra sagði að mikið væri kvartað
til nefndarinnar vegna ófremdar-
ástands vegna reykinga í flugstöð-
inni í Reykjavík.
Tvö ný veitingahús á Akureyri
hlutu einnig viðurkenningu
nefndarinnar, Subway við Kaup-
vangsstræti og Kaffi Kverið.
Engla-
sýning í
Deiglunni
ENGLASÝNING verður opnuð
í Deiglunni á Akureyri á morg-
un, laugardaginn 30. nóvember
kl. 14. Til sýnis verða rúmlega
30 leikfangaenglar frá Gulla-
smiðjunni Stubb, skreyttir af
jafnmörgum listamönnum, en
sumir þeirra eiga einnig önnur
verk á sýningunni.
Sýningin er tileinkuð börn-
um á öllum aldri og er ætlunin
að staldra við og hugsa um
engla og frið. Við opnunina les
Lárus Hinriksson Ijóð og Elma
Dröfn leikur á gítar.
Aðalsteinn Bergdal les Æv-
intýri á aðventu eftir Iðunni
Ágústsdóttur. Hannes Örn
Blandon, Michael Willocks og
sr. Svavar Jónsson flytja fyrir-
lestra um engla á miðvikudag
og á fimmtudag verður leikin
„engladjass“ en þar er á ferð-
inni hljómsveitin Nanúna.
„Himnesk tónlist á blásturs-
hljóðfæri" verður leikin á föstu-
dag en þá verða einnig tvær
stuttar skyggnimyndasýningar
eftir Jörgen og Evu Maríu
Max. Barnadagskrá verður
næstkomandi laugardag, 7.
desember og á sunnudag
óformleg fjölskyldudagskrá
með Tjarnarkvartettinum.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudaga-
skóli í kirkjunni kl. 11. Munið kirkjubíl-
ana. Guðsþjónusta kl. 14. Arna Ýrr
Sigurðardóttir guðfræðingur prédik-
ar. Kór Akureyrarkirkju syngur. Kven-
félag Akureyrarkirkju verður með
súkkulaði og kleinur í Safnaðarheim-
ili Akureyrarkirkju eftir messu. Jóla-
fundur Bræðrafélags Akureyrarkirkju
verður í Safnaðarheimilinu eftir
messu. Biblíulestur verður í Safnað-
arheimilinu á mánudag kl. 20.30.
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og
bænastund í kirkjunni kl. 11 í dag,
laugardag. Barnasamkoma kl. 11 á
morgun. Messa verður kl. 14.
Fræðslufulltrúi kirkjunnar á Norður-
landi, Jónína Elísabet Þorsteinsdóttir
guðfræðingur, prédikar. Fulltrúar
kvenfélagsins Baldursbrár lesa ritn-
ingarlestra. Kirkjukaffi á vegum kven-
félagsins í safnaðarheimili eftir
messu. Fundur æskulýðsfélagsins
verður kl. 17 á sunnudag. Opið hús
fyrir mæður og börn á þriðjudag frá
kl. 14 til 16. Kyrröarstund sama dag
kl. 18.10.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 10 á morgun, ath.
breyttan tíma. Unglingaklúbbur kl.
17. Bænastund kl. 19.30. og almenn
samkoma kl. 20. Heimilasambandið
kl. 16. Krakkaklúbbur kl. 17 á mið-
vikudag, biblíulestur kl. 20.30. Ellefu
plús á fimmtudag kl. 17, hjálparflokk-
ur kl. 20.30. Síðasti fundur fyrir jól.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Safnað-
arsamkoma kl. 11 á morgun, ræðu-
maður Jóhann Pálsson. Samkoma
kl. 14, stjórnandi G. Rúnar Guðna-
son, samskot tekin til kirkjunnar.
Krakkaklúbbur fyrir 10 til 13 ára á
þriðjudag kl. 17.30, bænasamkoma
og biblíulestur í umsjá Önnu Hösk-
uldsdóttur kl. 20 á miðvikudagskvöld,
krakkaklúbbur á föstudag kl. 17.15
og unglingasamkoma kl. 20.30. Von-
arlínan, sími 462-1210.
KAÞÓLSKA kirkjan, Eyrarlands-
vegi 26: Messa kl. 18 í dag, laugar-
dag, og kl. 11 á morgun.
KFUM og K: Baenasamvera kl.
20.30 á morgun. Allir velkomnir.
-----------♦---------
Sálusorgnn og jól
VALGERÐUR Valgarðsdóttir djákni
flytur hugvekju um sálusorgun og
jól á opnu húsi Krabbameinsfélags
Akureyrar og nágrennis næstkom-
andi mánudagskvöld, 2. desember,
frá kl. 20 til 22 í skrifstofu félagsins
á Glerárgötu 24, 2. hæð. Þetta er
jafnframt jólafundur félagsins og
verður boðið upp á jólakaffi. Allir
eru velkomnir.
Morgunblaðið/Krístján
STEFÁN Gunnarsson, Ólafur Ólafsson og Ragnar Gunnarsson
félagar í Hjálparsveit skáta á Akureyri hafa ásamt félögum
sínum unnið hörðum höndum síðustu daga við að lagfæra hús-
næði sveitarinnar í Lundi.
Sjálfsbjörg og Þroskahjálp
Viðurkenning á al-
þjóðadegi fatlaðra
SJÁLFSBJÖRG á Akureyri og
nágrenni ásamt Þroskahjálp á
Norðurlandi eystra verða með dag-
skrá í Kjarnalundi á alþjóðadegi
fatlaðra næstkomandi þriðjudag,
3. desember.
Þar fer fram afhending viður-
kenningar í framhaldi af úttekt á
aðgengi fyrir fatlaða á þjónustu-
húsnæði á Akureyri. Arnar Jóns-
son leikari les ljóð og þá verður
boðið upp á veitingar.
Kjörorð dagsins er „Gott að-
gengi fyrir fatlaða bætir samskipti
allra.“ í kvöld, laugardaginn 30.
nóvember verður haldið diskótek í
félagsmiðstöðinni í Lundarskóla og
hefst það kl. 19.
Félögin vona að alþjóðadagur
fatlaðra veki fólk til umhugsunar
og framkvæmda til að búa öllum
þegnum bestu skilyrði til jafns
aðgengis í samfélaginu, segir í
fréttatilkynningu.
Hjálparsveit skáta á Akureyri 25 ára
Ein öflugasta bj örgunars veit-
in utan höfuðborgarsvæðisins
HJALPARSVEIT skáta á Akureyri
er 25 ára um þessar mundir og
efnir af því tilefni til hófs í hús-
næði sveitarinnar í Lundi við Viðju-
lund í dag, laugardaginn 30. nóvem-
ber kl. 14.30.
Ingimar Eydal varasveitarforingi
segir stofnun sveitarinnar hafa átt
sér nokkurn aðdraganda, en nokkir
ungir menn úr Flugbjörgunarsveit-
inni á Akureyri hafi vilja hafa meiri
áhrif og breyta ýmsu en í fram-
haldi af því ráðist í að stofna sveit-
ina. Upphaflegt markmið var að
starfækja „léttvopnaða hraðleitar-
sveit sem lítið ætti að eiga af bún-
aði en félagar hennar ættu að eiga
fullkominn einstaklingsbúnað og
stunda harða þjálfun", en einnig
kom fram að sveitin ætti að vera
lyftistöng fyrir skátastarf á Akur-
eyri og það hefur gengið eftir.
Oflugur búnaður
Strax á upphafsárum sveitarinn-
ar eignaðist hún bíl og vélsleða og
með góðri aðstoð bæjarbúa hefur
hún byggt upp öflugan tækjakost,
þannig að það markmið að eiga lít-
inn búnað hefur fallið um sjálft sig.
Sveitin á tvo fullkomna fjalla-
björgunarbíla á stórum dekkjum til
aksturs í snjó, fjóra vélsleða, vöru-
bíl og þá átti sveitin snjóbíl en seldi
hann til ísafjarðar nú í haust þar
sem bíllinn vestra var lúinn orðinn
eftir stóráföll. Ekki hefur enn verið
ráðist í kaup á nýjum snjóbíl. Þá á
sveitin sjúkra-, fjarskipta- og fjalla-
búnað. Þá á hver og einn félagi
mikinn búnað sem dýrt er að koma
sér upp. „Búnaðinn kaupum við
fyrir heimilispeningana okkar,“ eins
og Ingimar kemst að orði.
Stuðningur bæjarbúa
Samhliða því að koma sér upp
öflugum búnaði hefur verið unnið
við húsnæði sveitarinnar, en frá
árinu 1984 hefur hún haft aðsetur
í Lundi við Viðjulund og hefur mik-
il vinna verið lögð í endurbætur, en
í vikulok var lokahönd lögð á endur-
bætur í fundarsal.
„Þetta kostar allt peninga, en
með stuðningi bæjarbúa um ára-
mótin með kaupum á flugeidum
hefur tekist að byggja sveitina
upp,“ segir Ingimar Eydal. Eftir
að íþróttafélögin hófu sölu flugelda
dugar innkoman rétt til að reka
sveitina, en endunýjun búnaðar
verður stöðugt erfiðari. „Rekstur-
inn kostar mikið fé og það er nú
þannig að þegar fólk þarf á aðstoð
okkar að halda er ekki spurt um
kostnað,“ segir Ingimar og væntir
þess að íþróttafélögin verði frum-
legri hvað varðar nýjar fjáröflunar-
leiðir. „Það vita allir að styrkur
sveitarinnar byggist á góðri flug-
eldasölu og því leggja margir hönd
á plóg við söluna," segir Ingimar.
Meginstyrk Hjálparsveitar skáta
á Akureyri segir Ingimar vera þann
mannskap sem í sveitinni er, sem
stöðugt þarf að mennta sig og þjálfa
til að geta veitt aðstoð þegar á
þarf að halda. Námskeið og æfing-
ar eru stór þáttur í starfinu og til
þess ætlast að félagar haldi sér í
líkamlegu formi. Miklar kröfur er
gerðar til þekkingar manna á ýms-
um hlutum, skyndihjálp, ferða-
mennsku, rötun, klifri, vetrarfjalla-
mennsku, leitartækni, snjóflóðaleit,
fjarskiptum, akstri og meðferð véla
og tækja, almannavarna, umgengni
við þyrlur, stjórnun, áfallahjálp og
hundaþjálfun svo eitthvað sé nefnt.
Tengjast
sérstökum böndum
Ingimar segir félagsskapinn góð-
an, oft séu menn saman við sérstak-
ar aðstæður í kolvitlausu veðri eða
í sól og blíðu við leit. „Menn tengj-
ast sérstökum böndum við erfiðar
aðstæður og þá skiptir miklu að
menn séu vel þjálfaðir og hafi þekk-
ingu eigi þeir að geta komið öðrum
að liði,“ segir Ingimar og bendir í
lokin á að þörf fyrir hjálparsveitir
sé til staðar. „Hjálparsveit skáta á
Akureyri mun áfram leitast við að
vera ein stærsta og öflugasta björg-
unarsveit utan höfuðborgarsvæðis-
ins.“