Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Eiginfjárstaða LÍN stöðug til langs tíma STEINGRÍMUR Ari Arason, að- stoðarmaður flármálaráðherra og stjórnarmaður hjá Lánasjóði ís- lenskra námsmanna, segir að eig- inflárstaða sjóðsins hafi til iangs tíma ekki rýmað og gagnrýnir full- yrðingar námsmannahreyfínganna um hið gangstæða. „Frá árinu 1991 hefur verið reynt að tryggja að framlög til sjóðsins standi undir kostnaði svo að eiginfjárstaða sjóðsins rýmaði ekki. Við útreikninga á framlögun- um, sem gerðir hafa verið í fullu samráði við Ríkisendurskoðun, hefur verið miðað við stöðu Lána- sjóðsins til langs tíma, og miðað við 6% vexti að jafnaði. Núverandi lán sjóðsins em til tiltölulega skamms tíma og vextir á þeim em hærri en það en gert er ráð fyrir að þeir muni lækka S framtíðinni og fara niður fyrir 6%. Um þessar mundir er ríkið að taka lán með vöxtum sem em nær 5%. Lánasjóðurinn mun njóta góðs af því þannig að til langs tíma má gera ráð fyrir að vextimir verði að jafnaði 6% og eiginfjárstaðan því stöðug. í útreikningum Ríkis- endurskoðunar á núvirði Lána- sjóðsins, sem námsmenn vitna í, er aðeins gert ráð fyrir núgildandi vöxtum." Eiginfjárstaða LÍN í ríkisreikningi 16,6 milljiirðar Steingrímur bendir á að í ríkis- reikningi 1995 sé LÍN með bestu eiginíjárstöðu allra ríkisstofnana, rúma 16,6 milljarða króna. Þar er staðan ekki núvirt. „Við höfum gagnrýnt þessar færslur. Fyrir skömmu fengum við fulltrúa Rflcis- endurskoðunar á fund og neituðum í raun að skrifa undir reikningana því við vildum fá þá núvirta. Okkur var sagt að það stangaðist á við hefðir og reglur en við viljum fá þeim breytt. Engum er greiði gerð- ur með því að sýna misvfsandi töl- ur.“ I skýrslu námsmanna vom láns- kjör Lánasjóðsins hjá ríkissjóði gagnrýnd. Steingrímur segir það meginreglu að stofnanir fái lán á sambærilegum kjömm og ríkið er að taka á hveijum tíma. „Ef ríkið tekur tvö lán á sama tíma, til dæm- is annað á sex prósent vöxtum og hitt á fimm, getur það ráðið hvort lánanna er endurlánað og þannig haft áhrif á vaxtakjör stofhunar. Sjálfsagt er ríkið eigingjarnt í þeim skilningi að það endurlánár frekar dýrara lánið. En ef þetta gerist i tilviki Lánasjóðsins endurspeglast það í forsendum reikninganna og framlag ríkisins eykst, þannig að staða sjóðsins veikist ekki.“ Viðskilnaðurinn 1991 slæmur Steingrímur gagnrýnir að í skýrslu námsmanna sé ekki tekið nægilegt tillit til viðskilnaðar flármála sjóðs- ins 1991. „Ef ekki hefði verið grip- ið til aðgerða 1991 hefði safhast upp skuldbinding umfram eignir upp á að minnsta kosti sjö milljarða ef ekki tíu milljarða. Þegar ný stjóm kom að sjóðnum var búið að stór- auka lánin og gera aðgengið greið- ara. Lánin stefndu að óbreyttu í fjóra og hálfan milljarð. Framlag ríkisins hefði þurft að vera þrír milljarðar af því en var 1.700 millj- ónir. Við þessu var brugðist með því að skerða lánin, herða útlánsreglur og auka endurgreiðsluhlutfallið. Námsmenn Iáta eins og viðskilnað- urinn 1991 sé týndur og hafi aldrei verið tfl.“ Auknar lántökur eftir lög frá 1992 Menntamála- ráðherra Vandi frá árinu 1991 BJÖRN Bjamason menntamála- ráðherra rekur vanda Lánasjóðs íslenskra námsmanna til áranna 1989-91. Hann segir að sjóðurinn hafi stefnt í gjaldþrot en verið bjargað með lagabreytingum. „Utlán sjóðsins 1991 stefndu í fimm milljarða á núverandi verð- lagi en hafa síðustu þijú ár verið um 2,7 milljarðar króna á ári. Fjár- þörf sjóðsins í framlögum úr ríkis- sjóði hefur minnkað úr 66% af útlánum í 52%. Lánþegum hefur fækkað talsvert, en námsmönnum í lánshæfu námi hér á landi hefur Qölgað um nálægt níu hundrað manns frá skólaárinu 1991-2 til yfírstandandi skólaárs. Á sama tíma hefur þeim sem taka lán fækkað um 1500 manns. Skólaár- ið 1991-92 tóku rúmlega 58% þeirra sem vora í lánshæfu námi lán, en á síðasta ári var hlutfallið rúmlega 39%,“ segir menntamála- ráðherra. „Ég hef lagt til að íjárveitingar til Lánasjóðs íslenskra náms- manna verði auknar og sérstak- lega að dregið verði úr endur- greiðslubyrði lána. Ég legg höfuð- áherslu á að við ræðum framtíð Lánasjóðsins en tökum ekki upp mál sem þegar hafa verið af- greidd." „Mikils lánsfjárs var aflað á áranum 1989-91 á allt að níu pró- sent vöxtum. Það var nýtt til vaxtalausra útlána. Þessi lán vora yfírleitt til tiltölulega skamms tíma, eða 5-10 ára. Á gjalddögum þessara lána hafa verið tekin ný lán til greiðslu afborgana og flár- magnskostnaðar af þeim. Vextir og lántökukostnaður vegna þess- ara lána er nú meginvandinn í fjár- málum sjóðsins. Það er talið að öll lán sem tekin verða eftir 1997 verði eingöngu notuð til greiðslu vegna eldri lána.“ DAGUR B. Eggertsson, höfundur skýrslu námsmannahreyfinganna um stöðu Lánasjóðs íslenskra náms- manna, segir að lántökur sjóðsins á ári hafi verið hærri eftir laga- breytingar 1992 en nokkra sinni áður. Eiginfjárstaða sjóðsins hafi verið sterk árið 1992 og sé það enn þó að núvirt eigiðfé hafi lækkað um á annan milljarð. Hann gagnrýnir ummæli Gunn- ars Birgissonar, stjómarformanns sjóðsins, um þetta efhi í Morgun- blaðinu í gær. „Um þetta er í raun þarflaust að deila. Þama stangast á órökstuddar fullyrðingar stjómar- formanns Lánasjóðsins og gögn og staðfestar tölur Ríkisendurskoðun- ar. Lánasjóðurinn sjálfur sendi reyndar þessar sömu tölur til þing- nefnda nú í vikunni." „Það er rétt hjá Gunnari að fram- lag Svavars Gestssonar til sjóðsins var undir reiknuðum kostnaði við útlán árið 1991. Þetta var ábyrðar- ÞEIR sem eiga erindi í Grafarvog í Reykjavík verða að taka á sig krók um helgina og aka eftir Vesturlandsvegi að Víkurvegi við Keldnaholt til að komast á leiðar- enda. Gullinbrú verður lokuð allri umferð fram á sunnudagskvöld laust og er gagnrýnt í skýrslunni. Þetta stefiidi hins vegar sjóðnum ekki í hættu. Framlög til LíN árin 1982-1992 vora nefnilega að með- altali vel yfír reiknuðum kostnaði við sjóðinn. Þó að lán hafí verið tekin við lok ráðherratíðar Svavars á háum vöxtum vora lántökur sjóðs- ins árin 1993-95 í öllum tilfellum hærri. Það er auk þess rangt að lán ríkisins til LÍN hafi borið 9% vexti í tíð Svavars. Þau okurlán vora ekki veitt fyrr en í tíð Ólafs G. Einarssonar. Þetta liggur allt fyrir í opinberam gögnum." „Eftir stendur að LÍN er sterkur sjóður. Hann stóð hins vegar enn betur árin 1991 og 1992. Þróun eiginfjár vitnar um þetta. Gunnar verður að útskýra afdráttarlaust hvemig það má vera að rífels£fj$ður geti hafa sótt á annan millja'tð í eigiðfé sjóðsins á gildistíma nýju laganna ef hann var gjaldþrota þegar lögin tóku gildi.“ vegna viðgerðar á vatnsveitu. Lokunin raskar ferðum SVR á leiðum 8,14,15 og 115. Verður boðið upp á aukaferðir en minna má á að ekki verður hægt að treysta á samtengingar við aðrar leiðir. Morgunblaðið/Kristinn Gullinbrú lokuð Morgunblaðið/Kristinn FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti grafísku hönnuðunum Ólöfu Birnu Garðarsdóttur og Ingólfi Hjöríeifs- syni, aðalverðlaun í veggspjaldasamkeppni í gær. Lengst tfl hægri er Haraldur Sumarliðason, formaður Samtaka iðnaðarins. Verðlaun veitt í veggspjaldasam- keppni í tengslum við Islenskt, já takk! „Er þetta ekki þitt heimili og þín framtíð“ VERÐLAUN voru veitt í gær í veggspjaldasamkeppni I tengslum við átakið íslenskt, já takk! Fyrstu verðlaun hlutu Ólöf Birna Garð- arsdóttir, grafískur hönnuður, og Ingólfur Hjörleifsson textasmiður; peningaverðlaun að upphæð 300.000 krónur. í verkum þeirra er skírskotað tfl ungs fólks og það spurt meðal annars: „Er þetta ekki þitt heimili og þin framtíð?" Forseti íslands, Olafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við athöfn í Perlunni og þar verður jafnframt sýning á úrvali tillagna, laugardag og sunnudag frá 13-18. Samstarfsaðilar í átakinu ís- lenskt, já takk! gengust í haust fyrir samkeppni um hönnun vegg- spjaldanna í samvinnu við Félag íslenskra teiknara og var keppnin öUum opin. TU þess var mælst að spjöldin yrðu þijú og inntakið í samræmi við boðskap átaksins. I umsögn dómnefndar um verð- launaveggspjöldin segir að í þeim sé „gott, innUegt og Utríkt sam- spU texta og myndar ... Markhóp- urínn er ungt fólk“. Á þeim eru þrjár myndir af lífsglöðu ungu fólki, hver eins og stykki úr púslu- spfli, sem passar í mynd af íslandi neðar á spjaldinu. í texta með spjöldunum segir: „Þetta er hluti af þér, hefur þú áhríf? Er þetta ekki þitt heimfli? Er þetta ekki þín framtíð?" Sérstök verðlaun hlutu Dagur Hilmarsson og Björn Jónsson, báð- ir grafiskir hönnuðir, fyrir skýr skilaboð og sterkt og ögrandi myndmál. í dómnefnd sátu Guðmundur Oddur, deildarstjóri grafískrar hönnunar í MHÍ, Halla Helgadótt- ir og Björn Br. Björnsson, bæði grafískir hönnuðir, Lína G. Atla- dóttir hjá Samtökum iðnaðaríns og Þór Ottesen fyrir hönd Alþýðu- sambands íslands. GUÐMUNDUR Þórar- insson, fyrrverandi smíðakennari við Öskjuhlíðarskóla, sem á áratugalöngum ferli sem fijálsíþróttaþjálf- ari hjá ÍR þjálfáði margra af fremstu fijálsíþróttamönnum landsins, er látinn 72 ára að aldri. Guðmundui- var fæddur { Reylqavík 24. mars 1924, sonur hjón- anna Þórarins Magnús- sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1944 og íþróttakennaraprófi árið eftir. Hann stundaði framhaldsnám í íþróttakennslu í Sviþjóð árin 1946- 1947 og hlaut sænsk kennararéttindi í fijálsum íþróttum, sundi og hand- knattleik, en í þeirri grein varð hann íslandsmeistari með Ármanni 1944 og 1945. Þá stundaði hann nám við KHÍ 1973-1974 í kennslu þroska- heftra og í handavinnu og smíðum 1982-1983. Guðmundur stundaði kennslu í íþróttum við fjölmarga skóla, en starfaði við Öslq’uhlíðarskóla frá ár- inu 1968 þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 1994 — fyrst sem íþróttakennari og sem handavinnu- kennari frá 1974. Þá kenndi hann fijálsar íþróttir á námskeiðum íþróttakennaraskóla íslands frá 1969-1981 og á námskeiðum fyrir fijálsíþróttaþjálfara. Guðmundur Þórar- insson var þekktasti fijálsíþróttaþjálfari landsins um áratuga- skeið en sá ferill hans hófst hjá íþróttafélag- inu á Akranesi í árs- byijun árið 1948. Síðar var hann frjálsíþrótta- þjálfari hjá IR frá 1956 til 1960 og aftur frá 1967 þar til hann lét af störfum fyrir um 5 árum. Á árunum 1960- 1967 var Guðmundur aðalfijálsíþróttaþjálfari íþróttafélagsins Norr- köping í Svíþjóð og stundaði þá einnig kennslu þar. Guðmtindur Þórarinsson þjálfaði marga af fremstu fijálsíþrótta- mönnum landsins undanfama ára- tugi og var þjálfari íslenskra kepp- enda á Ólympíuleikunum 1976 og 1980. Guðmundur gegndi einnig ýmsum trúnaðarstörfum; var m.a. formaður íþróttakennarafélags íslands 1967-69 og 1974-75 og formaður Lyftinganefndar ÍSÍ 1970-1972 og Lyftingasambands íslands 1980- 1982rHann sat lengi í stjóm fijáls- íþróttadeildar ÍR og í stjómum Lyft- ingasambandsins og í Tækninefnd FRI. Hann var sæmdur ýmsum við- urkenningum fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar og var kosinn heiðursfélagi í ÍR á síðasta ári. Guðmundur Þórarinsson lætur eft- ir sig tvö uppkomin böm. Andlát GUÐMUNDUR ÞÓRARIN SSON > I I I í ► I i í I £ I 1 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.