Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 19
Rugaas
tekur við
af Red-
Larsen
THORBJÖRN Jagland, for-
sætisráðherra Noregs, skip-
aði í gær þjóðskjalavörðinn
Bendik Rugaas eftirmann
Teije Rod-Larsens sem skipu-
lagsmálaráðherra. Kom það
öllum á óvart og hafði nafn
hans aldrei komið upp í
vangaveltum um eftirmann-
inn. „Skattaskýrslan hans
hefur verið mjög einföld árum
saman,“ sagði Jagland þegar
hann tilkynnti skipunina.
Rugaas er frá Kirkjunesi og
hefur getið sér gott orð fyrir
uppbyggingu þjóðskjala-
safnsins.
Afram
viðbúnaður í
Kúveit
ÁTTA torséðar F-117A-orr-
ustu- og sprengjuflugvélar
verða hafðar til taks í Kúveit
írökum og írönum til viðvör-
unar. William Perry, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
skýrði frá þessu í gær á
blaðamannafundi í Kúveit og
þar kom einnig fram, að
4.200 bandarískir hermenn
yrðu fluttir frá Kúveit til
Bandaríkjanna fyrir jól en
1.800 landgönguliðar verða
áfram um borð í skipum út
fyrir ströndinni.
Risastór
skemmti-
ferðaskip
TALSMAÐUR norsku skipa-
smiðjanna Kværner sagði í
gær, að þær hefðu fengið 66
milljarða ísl. kr. samning um
smíði tveggja skemmtiferða-
skipa, þeirra stærstu í heimi.
Verða þau 130.000 brúttó-
tonn og munu hvort taka
3.100 farþega. Þau verða
með öðrum orðum helmingi
stærri en Queen Elizabeth II,
flaggskip Cunard, farþega-
skipaútgerðar Kværners.
Skipin verða smíðuð í skipa-
smíðastöð Kværners í Finn-
landi, Masa-Yards í Turku,
en talsmaður fyrirtækisins
sagði, að finnsku niður-
greiðslurnar hefðu gert
gæfumuninn í samkeppninni
við skipasmíðastöðvar annars
staðar í Evrópu og í Japan.
Lögbann við
hjúskap
ÍTALSKUR dómari lagði í
gær lögbann við því, að 84
ára gamall ekkill, Franceseo
Brundu, gengi að eiga 19 ára
gamla stúlku, Luisu Carnegl-
ias að nafni. Gerði hann það
að ósk fjögurra barna gamla
mannsiris, sem raunar snerist
hugur’ til hjónábandsins þeg-
ar dómarinn upplýsti í gær,
að konuefnið unga hefði verið
dæmt fyrir þjófnað. Kvaðst
hann ætla að finna sér aðra
heiðvirðari konu og bað börn-
in sín að táta sig í friði, þau
hefðu hvort eð er ekki sinnt
sér neitt til þessa.
Auknar líkur á að kosningum verði flýtt í Danmörku eftir samþykkt fjárlaga
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANIR fá ekki kosningar í jólagjöf
úr því dönsku stjórninni tókst að
koma fjárlögunum í höfn. En vegna
þess að hún á aðeins kost á stuðn-
ingi vinstrivængsins, eru auknar lík-
ur á að stjórnin nái ekki að sitja út
kjörtímabilið, sem lýkur haustið
1998. íhaldsflokkurinn, sem studdi
fjárlögin í fyrra, hætti við í þetta
skipti og stendur því utan við líkt
og Venstre, flokkur Uffe Ellemann-
Jensens. Hvorki Poul Nyrup Rasm-
ussen forsætisráðherra né Mogens
Lykketoft fjármálaráðherra voru þó
með gleðisvip, en leiðtogar Sósíal-
íska íjóðarflokksins voru þeim mun
glaðbeittari.
Sósíalíski Þjóðarflokkurinn átti
hugmyndina að þjóðarsátt um und-
anþágur Dana frá Maastricht-sátt-
málanum 1993, sem gagnaðist jafn-
aðarmönnum vel. Þegar Poul Nyrup
Rasmussen formaður Jafnaðar-
mannaflokksins myndaði stjórn það
ár álitu leiðtogar Þjóðarflokksins sig
því sjálfskipaða til stjórnarsetu. Nyr-
up batt hins vegar trúss sitt við
miðjuflokkana, stuðningsflokka
hægristjórnar Poul Schlúters 1982-
1993, þar á meðal Miðdemókrata-
flokkinn, sem álítur helsta hlutverk
sitt í stjórn jafnaðarmanna vera að
hindra áhrif Þjóðarflokksins. Síðan
hefur Þjóðarflokkurinn keppst við
að ná sambandi við Nyrup til að fá
stjórnaráhrif í skiptum fyrir að hafa
snúist frá andstöðu við ESB til
stuðnings.
Þjóðarflokknum tókst nú að setja
mark sitt á fjárlögin, sem sést með-
al annars á aukn-
um framlögum til
háskóla og iðn-
menntunar og til
baráttu gegn
mengun. Til að
stemma stigu við
yfirvinnukostnaði
ráðuneyta þurfa
þau að greiða
gjald af henni og
þær 160 milljónir
danskrakróna (um 1,8 milljarðar ís-
lenskra króna), sem á að spara í
ráðuneytunum á að nýta til að skapa
störf hjá ríkinu. Peningum verður
veitt til að hjálpa börnum vegna
skilnaðar foreldra og til stofnana
fyrir böm og unglinga með sálræn
vandamál. A móti verða innheimtir
frekari skattar og það áttu hægri-
flokkarnir erfitt með að sætta sig
við.
Stjórnin er einnig háð stuðningi
Einingarlistans, sem er ESB-and-
stöðuflokkur til vinstri við Þjóðar-
flokkinn, en honum dugir að sitja
hjá. Um helgina
fundar hann um
fjárlögin, en þótt
fræðilegur
möguleiki sé á að
flokkurinn hafni
þeim er ósenni-
legt að hann taki
þá áhættu að
steypa stjórninni
og hleypa hægri-
flokkunum að.
I fyrra skildu leiðir Venstre og
íhaldsflokksins, þannig að Venstre
greiddi atkvæði gegn fjárlögunum,
sem íhaldsflokkurinn hafði unnið að
með stjórninni og studdi. Þá þótti
snjallt að Mogens Lykketoft fjár-
málaráðherra tókst að skilja að
þessa fyrrum stjórnarflokka og var
það talið draga verulega úr líkum á
að flokkamir tveir næðu saman í
bráð. En eins og Poul Schlúter fýrr-
um formaður Ihaldsflokksins sagði
á flokksþingi hans fyrir skömmu þá
er það með flokkana tvo eins og góð
hjón: þeir geta rifist eins og hundur
og köttur, en þegar á reynir þá eiga
þeir óumdeilanlega samleið. Þessum
orðum var tekið með öflugu lófataki.
Bætir stöðu Þjóðarflokks
Með áhrifum Þjóðarflokksins nú
gæti hann fært sig upp á skaptið
og krafist aukinna áhrifa. Það gæti
komið illa við miðdemókratana, sem
nú þegar eru tortryggnir á aðild
Þjóðarflokksins að fjárlagagerðinni.
Róttæki vinstriflokkurinn er annar
smáflokkur í stjórninni. Þó að hann
hafi löngum álitið stjórnarsetu með
jafnaðarmönnum vænsta kostinn þá
studdi flokkurinn stjórn Schlúters.
Þar sem stjórnin hefur aðeins setið
í þijú ár ætti þeim róttæku vart að
þykja verkefnaskráin tæmd, en sýnt
þykir að t.d. Niels Helveg Petersen
utanríkisráðherra sé efins um stjórn-
ina, þótt Marianne Jelved flokkssyst-
ir hans og efnahagsráðherra virðist
alsæl með hana og forystu Nyrups,
þrátt fyrir endurtekinn klaufaskap
hans, nú síðast vegna heimsóknar
rithöfundarins Salman Rushdies.
Það vantar ekki mikið á hægri-
meirihluta, jafnvel án smáflokkanna,
og jafnaðarmenn standa illa sam-
kvæmt skoðanakönnunum. Stuðn-
ingur Þjóðarflokksins nú er söguleg-
ur, því flokkurinn hefur ekki stutt
fjárlögin síðan 1981, þegar hann
studdi stjórn Jafnaðarmannaflokks-
ins til að koma fjárlögunum í gegn.
Árið eftir sprakk sú stjórn á fjárlög-
unum og borgaralegu flokkarnir
komust að. Spurningin er nú hvort
sú saga endurtaki sig að ári eða fyrr.
Stuðningur frá
vinstri talinn
veikja sljórnina
Rasmussen og Lykketoft.
Reuter
JIANG Zemin, forseti Kína, og H.D. Deve Gowda, forsætisráð-
herra Indlands, ræðast við í Nýju Delhi í gær.
Forseti Kína í heimsókn á Indlandi
Samið um að
draga úr spennu
Nýju Delhi. Reuter.
INDVERJAR og Kínveijar undir-
rituðu í gær samkomulag, sem
ætlað er að draga úr spennu á
landamærum ríkjanna í Himalaja-
fjöllum, en við þau brutust út átök
árið 1962.
Inder Kumar Gujral og Qian
Qichen, utanríkisráðherrar Ind-
lands og Kína, undirrituðu sam-
komulagið í Nýju Delhi, höfuðborg
Indlands. Áður höfðu Jiang Zemin,
forseti Kína, og H.D. Deve Gowda,
forsætisráðherra Indlands, ræðst
við í eina og hálfa klukkustund.
Jiang er fyrsti forseti Kína, sem
heimsækir Indland.
Samkomulagið miðar að því að
efla traust þar sem hernaðarvið-
búnaður er á landamærunum.
Fréttastofa Reuters hefur afrit af
samkomulaginu undir höndum og
greindi frá því að það gæti leitt
til þess að hermönnum verði fækk-
að og dregið verði úr vopnabúnaði
á landamærunum.
I sameiginlegri yfirlýsingu Ind-
veija og Kínveija sagði að vonast
væri til þess að þetta samkomulag
mundi greiða bættum samskiptum.
Landamærin milli ríkjanna eru
4.500 km löng og hafa oft valdið
vanda í samskiptum þeirra.
Tilboð á hreinlætistækjum
Verð frá
tBHgBBMa
I RADCREIDSLUfí
Versiið þar sem úrvalið er mest!
Stálvaskar
í eldhús yfir
30 gerðir
frá
WC með stút
í vegg eða gólf
með setu.
Verð frá
Verð frá
Blöndunartæki í
miklu úrvali
Baðkör upp í
190 cm
Verð frá
Handlaugar, 17 gerðir
á vegg og borð
Opið 10-16 í dag
VATNS VIRKINN HF.
Ármúla 21, sfmar 533 2020 og 533 2021
Grænt númer 800 4020
Hitastillitæki Verð frá
42
Mikið úrval af sturtukiefum,
sturtuhornum og hurðum.
Athugaðu verðið!