Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýr meirihluti kominn til valda á Húsavík
Vilja samrekstur sjúkrahúss,
heilsugæslu og dvalarheimilis
NÝR meirihluti Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks tók við völdum
á Húsavík á fundi bæjarstjórnar í
fyrradag. Kosið var í trúnaðarstöður
og málefnasamningur lagður fram.
Fyrir fundinn höfðu fulltrúar
meirihlutans aflað sér úrskurðar fé-
lagsmálaráðuneytisins þar sem fram
kemur að bæjarstjórn getur aftur-
kallað umboð nefnda á sama hátt
og hún kýs þær. Þar með var ljóst
að nýr meirihluti þyrfti ekki að búa
við það að vera í minnihluta í mikil-
vægum nefndum út kjörtímabil
þeirra. Á bæjarstjórnarfundinum í
fyrradag var umboð nefndanna aft-
urkallað og kosið á nýjan leik.
í bæjarráð voru kosnir Stefán
Haraldsson frá Framsóknarflokki og
verður hann formaður, Siguijón
Benediktsson frá Sjálfstæðisflokki
og Kristján Ásgeirsson frá Alþýðu-
bandalagi og óháðum. Einar Njálsson
verður áfram bæjarstjóri.
Valgerður Gunnarsdóttir, fulltrúi
G-listans, sagði af sér sem forseti
bæjarstjórnar ásamt báðum varafor-
setum. Katrín Eymundsdóttir, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var
kosin forseti, Siguijón Benediktssom
1. varaforseti og Sveinbjörn Lund,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, 2.
varaforseti.
Áður en gengið var til kosninga
lagði Jón Ásberg Salómonsson, bæj-
arfulltrúi Alþýðuflokksins, fram til-
lögu um frestun nefndakosninga þar
sem ekki hefði tekist samkomulag
milli minnihlutaflokkanna, Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags og
óháðra, um kosningar í nefndir. Var
það fellt og kaus G-listinn sína menn
í þær nefndir sem hann átti kost á
en A-listinn komst nánast hvergi að.
Skuldir lækkaðar
Katrín Eymundsdóttir, forseti
'bæjarstjórnar, segir að fyrsta verk-
efni nýja meirihlutans verði að gera
fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og þar
verði gert ráð fyrir að greiða skuldir
niður um 40 milljónir kr. og svo 20
milljónir til viðbótar árið eftir. Einnig
ætli bæjarstjórnin að leggja sig fram
um að veija Sjúkrahús Þingeyinga
og Framhaldsskólann en að þeim sé
sótt af hálfu ríkisins. I málefnasamn-
ingi meirihlutans er ákvæði um að
kanna vel hagkvæmni samreksturs
sjúkrahússins, heilsugæslu og öldr-
unarþjónustu og að leitað verði eftir
samningum við ríkisvaldið um sjálf-
stæðan rekstur nýrrar stofnunar.
Þessar þijár stofnanir eru í sam-
tengdum húsum.
Meðal annarra atriða má nefna
að meirihlutinn vill vinna að því að
fá skólaþjónustuna til Húsavíkur og
endurskoða aðild Húsvíkinga að
landshlutasamtökunum Eyþingi. Þá
er kveðið á um að bærinn auki ekki
hlut sinn í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.
Rætt um rétt
sjúklinga
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla ís-
lands og Siðaráð landlæknis efna til
opins málþings í Lögbergi, stofu
101, um réttindi sjúklinga þriðjudag-
inn 3. desember frá kl. 17-19.
Frummælendur verða fimm og
hefur hver þeirra tíu mínútur til
umráða; Ástríður Stefánsdóttir,
læknir og M.A. í heimspeki nefnir
erindi sitt „Réttindi sjúklinga - sið-
ferðilegar forsendur“, Guðrún Þor-
steinsdóttir, skrifstofustjóri í heil-
brigðisráðuneyti nefnir erindi sitt
„Frumvarp til laga um réttindi sjúkl-
inga“. Erindi Valgeirs Pálssonar,
lögfræðings, ber heitið „Réttindi
sjúklinga frá sjónarhóli lögfræðinn-
ar“. Þá flytur Tómas Zoéga, læknir,
erindið: „Réttindi sjúklinga frá sjón-
arhóli læknis". Að lokum talar Helgi
Seljan, félagsmálafulltrúi, og nefnist
erindi hans „Eitt lítið leikmanns-
spjall". Að framsögum loknum verða
umræður. Fundarstjóri verður Sig-
urður Guðmundsson, læknir og for-
maður Siðaráðs landlæknis.
Ný verslunar- og þjónustu-
miðstöð opnuð í Rimahverfi
NÝ verslunar- og þjónustumið-
stöð, um 2.200 fermetrar að
stærð, verður opnuð við Langa-
rima í Rimahverfi á morgun,
sunnudaginn 1. desember.
Framkvæmdir hófust í lok mars
eða fyrir átta mánuðum.
Trésmiðja Snorra Hjaltason-
ar byggði húsið og er hver ein-
ing afhent kaupendum fullfrá-
gengin að utan en tilbúin undir
tréverk að innan. Áætlaður
kostnaður i upphafi var 157
milljónir en fullfrágengið kost-
ar húsið um 220-240 milljónir.
„Ég sagði í apríl að við myndum
opna 1. desember klukkan hálf
fjögur og það stendur," sagði
Snorri Hjaltason bygginga-
meistari. „Það er ekki hægt
annað en að flýta framkvæmd-
um þegar byggt er í grónu
hverfi og á jafn viðkvæmum
stað. Reyndar ekki forsvaran-
legt að bjóða nágrönnunum upp
á annað.“ Byggingin er fullfrá-
gengin að utan og Ióðin snyrt
með malbikuðum bílastæðun en
tré verða gróðursett þegar vor-
ar.
Verslunar- og þjónustumið-
stöðin er hönnuð af Gísla Sæ-
mundssyni arkitekt og Ragnari
Ólafssyni arkitekt hjá Arkitekt-
um TT3, Túngötu 3, og Smára
Þorvaldssyni verkfræðingi.
Miðstöðin er á tveimur hæðum
í tveimur byggingum með
gangi, sem tengir byggingarn-
ar saman á annarri hæð en
göngustígur er milli bygging-
anna á fyrstu hæð.
Jólatré ogflugeldar
Meðal þeirra fyrirtækja sem
þarna eru með útibú er Máttur,
með líkamsræktarsal og sjúkra-
þjálfun, verslunin Rimaval, sem
flytur yfir götuna, hárgreiðslu-
stofan Englahár, Sandholt bak-
arí, myndbandaleigan Heima-
myndir og pizzastaðurinn Hrói
Höttur. Þá er Ljósmyndastofa
Grafarvogs þar til húsa, sól-
baðs- og nuddstofa, blómabúð,
söluturn og biðskýli SVR og
loks Rima-Apótek en apótekið
verður opnað síðar.
í tilefni opnunarinnar verður
flugeldasýning á vegum skát-
anna, kveikt verður á jólatré,
félagar í Ungmennafélaginu
Fjölni munu sérstaklega opna
Hróa Hött og gestum og gang-
andi verður boðið upp á kaffi
í tilefni dagsins.
Þá hefur verið ákveðið að
efna til hugmyndasamkeppni í
janúar meðal íbúa hverfisins
um nafn á verslunar- og þjón-
ustumiðstöðina.
V
NÝLEGT EINBYLISHUS
í GRENND VIÐ
BORGARSPÍTALANN
Til sölu mjög vandaö hús, um 250 fm, meö bílskúr.
Þeir, sem vilja skoöa málið, eru vinsamlegast
beönir um aö leggja inn nafn og símanúmer á
afgreiðslu Mbl., merkt: „H — 1440“.
5521150-5521370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
JDHANN ÞÓRBARSON, HRL. LÖGGILTUR TASTEIGNASALI.
2. HÆÐ
Sólbaðs-
og nudd-
stofa
Englahár Ljósm.stofa
Grafarvogs
Máttur,
sjúkraþjálfun
JARÐHÆÐ
Reykjavíkurborg íhugar þetta L
húsnæði sem hverfaskrifstofu
og fyrir Félagsmálastofnum
\ s Lyfja- \ \ verslun \\\ : l I •o CQ •S 'g-Sí Hrói höttur, Pizza ✓
\ V —^
KJALLARI
RE'YKJAVÍK
Kópavogur
Hafnarf|or8ur
Söluturn,
biðskýli SVR
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
LANGARIMA 21-23
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Glæsíleg eign - stór bílskúr - skipti
Vel byggt og vel með farið steinhús um 160 fm. Góður bílsk. rúmir 40
fm. Stór, ræktuð lóð. Húsið stendur á einum besta útsýnisstað í
Norðurbænum í Hafn.
Suðuríbúð - lækkað verð
Mjög góð 2ja herb. íb. á 3. hæð um 60 fm skammt frá Múlahverfi. Stór
stofa. Sólsvalir. Sérhiti. Parket. Ágæt sameign. Mikið útsýni. Laus
fljótl. Vinsamlega leitið nánari uppl.
Á vinsælum stað í Vesturborginni
Sólrík 3ja herb. íb. á 2. hæð 82 fm v. Kaplaskjólsveg. Stór og góð
geymsla í kj. Nýendurbætt sameign. Tilboð óskast.
Ódýr íbúð í Vogunum
Stór, sólrík 2ja herb. kjíb. m. sérinng. í reisul. þríbhúsi. Laus fljótl.
Hlíðar - Þingholt - nágrenni
Rúmg. húseign óskast fyrir traustan kaupanda þar sem koma má fyrir
tveimur íb. og annarri m. vinnuaðstöðu. Má þarfnast endurbóta.
Gott verð fyrir rétta eign.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
Fjöldi kaupenda á skrá.
Sérstaklega að eignum í
gamla bænum og nágrenni.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 -5521370
Morgunblaðið/Ásdís
SÍÐASTA hönd lögð á frágang utandyra við nýju verslunar- og þjónustumiðstöðina
í Rimahverfi í Grafarvogi.