Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
M
TIL SÖLU
Nissan Patrol GR 1993, 2,8 Turbo-diesel, ekinn abeins
47.500 km. Dökkblásanss. 5 gíra, 7 manna, læst aftur-
drif, rafmagn i rúbum og speglum, centrallás, þjófavörn,
aukamibstöb, framstubaragrind, þjónustubók. Vel meb
farinn og óslitinn bíll í toppstandi. Litur út sem nýr.
Upplýsingar í símum 567 8234 og 893 5363.
(ME4ÁE) x V* FE
frammistaða einstaklingsins
ÞÆOINMIVÆOI
(VELLÍÐUNARMÖRK)
hvernig það hindrar framfarir
LðGMÁUN7
sem eru alltaf virk (læra að nýta sér þau)
UNDIRMEOVITUND
frjósami jarðvegurinn sem lætur allt vaxa og
dafna, blóm jafnt sem illgresi
YFIRVITUND
lætur öll orð þín, athafnir og áhrif þeirra
fylgja mynstri sem er í samræmi við
sjálfsmynd þína og megin markmið
KÆRLEIRURINN
mikilvægasta orka lífsins
LEIÐARLJ^S ehf.
Sími: 567-3240
ERLEIUT
Stjórn Spánar sætir harkalegri gagnrýni þingsins á Kúbu
Ráðherrar sakaðir
um nýlendustefnu
Havana. Reuter.
RICARDO Alarcón de Quesada,
forseti þingsins á Kúbu, fór hörðum
orðum um spænsku stjórnina á
fimmtudag og sakaði hana um
íhlutun í innanríkismál landsins.
Hann sakaði nokkra af ráðherrum
hægristjórnar José María Aznars
um kynþáttafordóma og nýlendu-
stefnu.
„Mér virðist að í þessari nýju
stjórn séu nokkrir menn haldnir
kynþáttafordómum og að þeir að-
hyllist nýlendustefnu," sagði
Alarcón en bætti við að flestir Spán-
veijar, þeirra á meðal margir
hægrimenn, hefðu tekið skynsam-
lega afstöðu til Kúbu. „Það er óvið-
unandi að til séu stjórnmálamenn
sem vilja koma fram við Kúbveija
sem þrælaþjóð."
Alarcón lét þessi orð falla vegna
deilu ráðamanna í Havana og
spænsku stjómarinnar, sem hefur
haldið uppi látlausri gagnrýni á
Fidel Castro Kúbuforseta og alræði
kommúnistaflokksins frá því hún
komst til valda fyrir hálfu ári.
Gamla heimsveldið „fáránlegt"
„Hafi Kúbveijum tekist að stand-
ast árásir og hótanir öfiugasta ríkis
heims [Bandaríkjanna] er fáránlegt
að heimsveldið, sem Kúbveijar sigr-
uðu fyrir öld, skuli nú reyna að
þvinga þá gera sér undirgefna,"
sagði Alarcón. Kúba öðlaðist sjálf-
stæði frá Spáni árið 1898.
Þingforsetinn líkti spænsku stjóm-
inni við nemanda sem reynir að líkja
eftir kennaranum, Bandaríkjamönn-
um, er hafa lengi barist fyrir breyt-
ingum á Kúbu og settu viðskiptabann
á landið fyrir 34 árum.
Spennan milli stjórnvalda á Kúbu
og Spáni magnaðist á þriðjudag
þegar kúbverska utanríkisráðu-
neytið neitaði að samþykkja nýjan
sendiherra Spánar á Havana.
Norðmenn umsvifa-
miklir í ESB-
landinu Danmörku
*ic
Þýzka
fjárlagafrumvarpið
Waigel
bjartsýnn
á EMU-
aðild
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„DANMÖRK hefur alltaf verið
mikilvægt land fyrir norsku utanrík-
isþjónustuna og er það ekki síður
nú en áður,“ segir Káre Eltervág
blaðafulltrúi norska sendiráðsins.
Sendiráðið var opnað í gær í nýupp-
gerðri 1.500 fermetra byggingu rétt
við Amalienborg í miðborg Kaup-
mannahafnar. Eltervág undirstrik-
aði í samtali við Morgunblaðið að
Danmörk væri mikilvægur tengilið-
ur fyrir Noreg inn í Evrópusamband-
ið.
Eltervág sagði að í Noregi ríkti
skilningur bæði meðal þeirra sem
eru andvígir norskri aðild að ESB
og þeirra sem styðja hana að mikil-
vægt væri að fylgjast vel með gangi
mála innan ESB og reyna af fremsta
megni að hafa áhrif á þau mál, sem
snerta norska hagsmuni. Danmörk
væri eitt mikilvægasta hlið Noregs
að ESB, því að þó öll norsku sendi-
ráðin í aðildarlöndum ESB fylgdust
vel með á þessu sviði væri Norð-
mönnum stuðningur að gamalgrónu
sambandi Dana og Norðmanna.
Aukin áhersla á
hagsmunagæslu í ESB
Norska sendiráðið var áður til
húsa í gömlu íbúðarhúsi, nokkuð af-
síðis í sendiráðahverfínu á Austur-
brú. Nýja húsið er bæði bjart og
rúmgott og gefur starfseminni allan
annan svip en áður var. Þar starfa
30 manns, en norska útflutningsráð-
ið og ferðaráðið hafa einnig aðstöðu
í húsinu. Eftir að Norðmenn höfnuðu
ESB-aðild hefur norska utanríkis-
þjónustan lagt aukna áherslu á að
fylgja eftir öllum möguleikum sínum
til að fylgjast með og fylgja eftir
norskum hagsmunum í ESB. Nýja
norska sendiráðið í Kaupmannahöfn
er sýnilegur hluti þeirrar viðleitni.
Bonn. Reuter.
NEÐRI deild þýzka Sambands-
þingsins í Bonn samþykkti í gær
fjárlagafrumvarp Theos Waigel
fjármálaráð-
herra, sem
miðar að því
að gera Þýzka-
landi kleift að
uppfylla skil-
yrði Maastric-
ht-sáttmálans
fyrir þátttöku
í Efnahags- og
myntbanda-
lagi Evrópu
(EMU).
Fjáriaga-
frumvarpið hlaut stuðning 336
þingmanna en 313 greiddu at-
kvæði á móti. Með frumvarpinu á
að skera fjárlagahalla niður úr 75
milljörðum marka (3.262 milljörð-
um króna) niður í 53,3 milljarða
(2.318 milljarða króna) á næsta
ári.
Halli innan við EMU-skilyrði
Samanlagður halli á rekstri
sambandsríkisins, sambandslanda
og sveitarfélaga verður þá um
2,5% af landsframleiðslu, sam-
kvæmt áætlun þýzkra stjórnvalda.
Samkvæmt Maastricht-sáttmálan-
um verður hallinn að vera innan
3% af VLF.
„Tölurnar sýna að Þýzkaland
mun uppfylla skilyrði fyrir inn-
göngu í myntbandalagið," sagði
Waigel í lokaræðu sinni í fjárlaga-
umræðunni.
Evrópusamtök á Kýpur
Nikósíu. Reuter.
EVRÓPU SINNAÐIR Kýpur-
Grikkir hafa stofnað samtök til
að vinna aðild að Evrópusam-
bandinu fylgi bæði meðal grísku-
og tyrkneskumælandi íbúa Kýp-
ur. Samtökin kenna sig við Zen-
on, grískan heimspeking sem
fæddist á Kýpur á 4. öld f.Kr.
„Við viljum vinna Evrópuhug-
sjóninni fylgi í kýpversku samfé-
lagi, bæði meðal grísku- og tyrkn-
eskumælandi íbúa,“ segir Marios
Eliades, formaður samtakanna.
Hann segir Evrópusinna von-
ast til að friðargæzlulið Samein-
uðu þjóðanna geti veitt aðstoð við
að ná til Kýpur-Tyrkja á norður-
hluta eyjarinnar. „Framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins í
Brussel hefur lofað öllum þeim
stuðningi, sem hún getur veitt,
við að koma boðskap okkar á
framfæri við samfélag Kýpur-
Tyrlga, sérstaklega yngri kyn-
slóðina, sem getur vonandi búið
með okkur í Evrópusambandinu,"
segir Eiiades.
Hin alþjóðlega viðurkennda
stjórn Kýpur er í höndum hins
griskumælandi meirihluta. Hún
hefur sótt um aðild að ESB og
má búast við að aðildarviðræður
hefjist síðla á næsta ári eða
snemma á árinu 1998. Tyrkneski
minnihlutinn, sem hefur lýst yfir
stofnun lýðveldis á norðurhluta
eyjarinnar, leggst hins vegar
gegn ESB-aðild.
Theo Waigel