Morgunblaðið - 30.11.1996, Qupperneq 37
36 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30.NÓVEMBER1996 37
JMtogmiÞIafrií
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FJARAR UNDAN
MILOSEVIC
FJÖLDAMÓTMÆLIN á götum Belgrad og annarra borga
í Júgóslavíu undanfarna daga eru enn ein birtingar-
mynd breytts stjórnmálaástands í mörgum fyrrverandi
kommúnistaríkjum Austur-Evrópu, þar sem almenningur
hefur fengið sig fullsaddan á stjórn misvel endurhæfðra
kommúnista. í Júgóslavíu, sem nú samanstendur aðeins
af lýðveldunum Serbíu og Svartfjallalandi, hafa kommúnist-
ar raunar aldrei látið af völdum — Slobodan Milosevic for-
seti, sem var áður leiðtogi Kommúnistaflokks Serbíu, gerði
ekki annað en skipta um nafn á flokki sínum og kalla hann
Sósíalistaflokk.
Milosevic hefur nú látið ógilda úrslit sveitarstjórnakosn-
inga, sem flokkur hans tapaði fyrr í mánuðinum, þrátt
fyrir að sósíalistar ráði yfir flestum fjölmiðlum landsins.
Það er ekki nýtt að forsetinn sé sakaður um að hagræða
kosningaúrslitum. Mótmælendur, sem í fyrstu kröfðust
þess að kosningaúrslitin yrðu virt, heimta nú hins vegar
afsögn Milosevics.
Forsetinn gæti gripið til sömu örþrifaráða og 1991, er
hann sigaði skriðdrekasveitum á mótmælendur á götum
úti. Hins vegar heyrast nú í fyrsta sinn óánægjuraddir í
hans eigin flokki. Milosevic hefur sætt mikilli gagnrýni á
alþjóðlegum vettvangi. Hann komst upphaflega til valda
sem forseti Serbíu vegna þess að hann hét því að berja
niður sjálfstæðishreyfingu albanska meirihlutans í Kosovo-
héraði. Það hefur hann gert með harðýðgi. Hann hefur
einnig kúgað ungverska minnihlutann í Vojvodinu og síauk-
innar óánægju gætir með valdníðslu forsetans og samstarfs-
manna hans í Svartfjallalandi.
Þrátt fyrir að Milosevic beri að stórum hluta ábyrgð á
stríðinu, sem geisaði á Balkanskaga árum saman eftir að
gamla Júgóslavía leystist upp, telja ýmsir á Vesturlöndum
að hann sé sá eini, sem geti haldið stríðsmönnum Bosníu-
Serba í skefjum og fengið’þá til að halda Dayton-friðarsam-
komulagið. Hvarf hans úr valdastóli kynni að valda titringi
á Balkanskaga, en ljóst er að smátt og smátt fjarar undan
einum síðasta kommúnistaleiðtoganum í Austur-Evrópu.
BÆTT STAÐA
LÍFEYRISSJÓÐA
STAÐA LÍFEYRISSJÓÐA á almennum vinnumarkaði
héfur batnað verulega síðustu árin og er nú svo kom-
ið, að langflestir þeirra eiga fyrir skuldbindingum sínum.
Það sama verður ekki sagt um stöðu opinberra lífeyris-
sjóða, en halli vegna skuldbindinga þeirra hefur hlaðizt upp.
Umskiptin á fjárhagsstöðu sameignarsjóðanna á almenn-
um vinnumarkaði má rekja til ýmissa aðgerða þeirra til
að treysta hana. Þar skiptir mestu máli, að nú eru greidd
iðgjöld af yfirvinnu en ekki aðeins dagvinnu eins og áður,
réttindi sjóðsfélaga hafa verið skert, t.d. með takmörkun
á makalífeyri og hækkun lífeyrisaldurs, dregið hefur verið
úr rekstrarkostnaði og loks hefur ávöxtun sjóðanna verið há.
Síðustu árin hefur verið unnið að sameiningu lífeyris-
sjóða til að styrkja stöðu þeirra og draga úr rekstrarkostn-
aði. Samkvæmt skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans fækk-
aði þeim úr 56 í 44 á árunum 1991-1995. Fyrirsjáanlegt
er, að þeim muni fækka um níu á þessu ári og því næsta
og verða lífeyrissjóðirnir á almennum markaði þá 35 tals-
ins. Enn ein ástæðan fyrir sameiningu sjóðanna er, að fjöl-
breyttari ávöxtunartækifæri heima og erlendis hafa kallað
á sérfræðiþekkingu í fjárfestingum, en stóru sjóðirnir geta
fremur borið kostnað af því en litlir.
Við mat á stöðu lífeyrissjóðanna hefur verið miðað við
3,5% ávöxtun, en ljóst er við endurmat á verðbréfaeign þeirra,
að heildareignir á móti skuldbindingum eru meiri, því flest-
ir sjóðirnir fá mun hærri ávöxtun næstu árin og áratugina.
Sem dæmi má nefna, að Lífeyrissjóður verzlunarmanna á
samkvæmt tryggingamati, sem gert var á síðasta ári, rúma
3,7 milljarða króna umfram áfallnar skuldbindingar og hef-
ur verðbréfaeign þá ekki verið endurmetin. Nokkrir sjóðir,
sem eiga ekki að fullu fyrir áföllnum skuldbindingum miðað
við 3,5% ávöxtun, eiga það við endurmat á verðbréfaeign.
Að því bezt verður séð geta sumir sjóðirnir aukið rétt-
indi sjóðsfélaga og er það ánægjuleg breyting. Samkomu-
lag ASÍ og VSÍ um lífeyrismál gerir ráð fyrir, að það skuli
gert eigi lífeyrissjóðirnir eignir umfram skuldbindingar og
skal það metið árlega.
ísfélag Vestmannaeyja, elsta hlutafélag landsins, verður 95 ára á morgun
STJÓRN og varastjórn ísfélags Vestmannaeyja ásamt framkvæmdastjóra, fjármála-
stjóra og endurskoðanda. Siljandi eru Auður Einarsdóttir, Baldur Guðlaugsson, Sigurð-
ur Einarsson framkvæmdasljóri og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson. Fyrir aftan þau
standa Eyjólfur Martinsson, Ágúst Bergsson, Þórarinn Sigurðsson, Birkir Leósson
endurskoðandi og Hörður Óskarsson fjármálasljóri.
H
J_______ tr.
ÞRÍR af forystumönnum ísfélagsins um langt árabil leggja á ráðin um reksturinn
árið 1982, f.v. Björn Guðmundsson stjórnarformaður, Einar Siguijónsson fram-
kvæmdastjóri og Kristinn Pálsson, stjórnarmaður. Björn Guðmundsson var stjórnar-
formaður í aldarfjórðung á miklum uppbyggingar- og umbrotatíma í sögu Isfélags
Vestmannaeyja. Kristinn Pálsson tók við formennsku þegar Bjöm hætti í stjórninni.
Þurftu betri aðstöðu
til að geyma beituna
Á morgun verður þess minnst í Vestmannaeyjum
að 95 ár eru liðin frá stofnun ísfélags Vestmanna-
eyja, elsta starfandi hlutafélags landsins. ísfélagið
varð fyrst íslenskra fyrirtækja til að setja á stofn
vélbúið frystihús. Helgi Bjarnason rifjar upp sögu
félagsins og segir frá starfseminni í dag.
ÞEGAR línuútgerð hófst í
Vestmannaeyjum rétt fyrir
aldamót voru sífelldir erfið-
leikar með að geyma beitu,
sérstaklega síld, þegar hún fékkst.
Skipshafnir byggðu sér litla ískofa
víða um Heimaey. Mönnum varð það
æ ljósara með ári hveiju að þessi ís-
hróf og beitugeymslur Eyjasjómanna
voru ekki til frambúðar. Hina full-
komnustu tækni, er þeir þá vissu deili
á í þessum efnum, urðu Eyjamenn
að taka í þjónustu sína. Þeir skyldu
eignast íshús. Þannig lýsir Þorsteinn
Þ. Víglundsson aðdragandanum að
stofnun ísfélags Vestmannaeyja í rit-
gerð sem m.a. birtist í 90 ára afmælis-
riti ísfélagsins.
Söfnuðu ís og snjó
Á almennum fundi í kauptúninu
um miðjan nóvember 1901 var ákveð-
ið að stofna til hlutafélags til að hrinda
íshúshugmyndinni í framkvæmd.
Stofníundur félagsins sem hlut nafnið
ísfélag Vestmannaeyja var síðan hald-
inn 1. desember og var teinn Jónsson
héraðslæknir kosinn fyrsti formaður
stjórnar. Fyrsta frosthús félagsins var
reist árið eftir og kostaði 3.200 kr.
Bijað var að safna í það ís og snjó
þá um veturinn. Högni Sigurðsson var
ráðinn íshúsvörður. í fyrstu gekk á
ýmsu með reksturinn, erfitt var með
rekstrarfé og að afla íss og beitu og
geyma hana óskemmda. Víða kemur
fram að leitað var til Jóhannesar Nor-
dals, íshúsvarðar í Reykjavík, um ráð
við undirbúning félagsins og
byggingu frosthússins.
Sigurður Einarsson, nú-
. verandi framkvæmdastjóri
Ísfélagsins, segir skrítið að
lesa sögu félagsins. Það hafi
verið stofnað áður en vélbátaöldin
hófst og uppbyggingin hafi gengið
ótrúlega hratt. Þá segir hann að þó
félagið sé elsta starfandi hlutafélag
landsins sé greinilegt að stofnendurnir
hafi kunnað til verka við stofnun hluta-
félags. Fundargerðabækur ísfélagsins
eru til frá upphafi og ljósrit af fundar-
gerð stofnfundarins og hlutabréfum
hanga uppi á skrifstofu félagsins.
Mikill vöxtur var í vélbátaútgerð í
Vestmannaeyjum á fyrsta tug 20. ald-
ar og sjómenn þurftu meiri og betri
beitu. Undir forystu Gísla J. Johnsens,
sem lengi var stjórnarformaður ísfé-
lagsins, var ráðist í að byggja nýtt
íshús og búa það frystivélum. Þetta
fyrsta vélknúna frystihús á íslandi tók
síðan til starfa í árslok 1908, á Nýja-
bæjarhellu en á þeim stað hefur félag-
ið verið með starfsemi frá þeim tíma.
Breytt í útflutningsfyrirtæki
Húsakynni félagsins voru endurbætt
og stækkuð nokkrum sinnum á næstu
árum og það var í kjötviðskiptum um
tíma. Á árinu 1937 voru lögð drög að
breytingum íshússins í hraðfrystihús
og nýbyggingu. Með þeirri fram-
kvæmd hófst nýr kafli í sögu ísfélags
Vestmannaeyja, eins og atvinnusögu
landsins. Heilfrysting fisks hófst 1940
og með lagabreytingum árið 1949 er
félagið gert að útflutningsfyrirtæki og
opnaðir möguleikar til útgerðar. Á
þessum árum var Tómas Guðjónsson
stjórnarfomiaður, alls í sautján ár.
Á árinu 1956 gengu nokkrir útgerð-
armenn til liðs við félagið, gerðust hlut-
hafar, og bátar þeirra lögðu upp afla
hjá því. Styrkti þetta félagið mjög eft-
ir nokkra erfiðleika. Nýir menn voru
kosnir í stjórn. Einn þeirra var Bjöm
Guðmundsson sem varð stjómarform-
aður tveimur árum síðar og gegndi
því embætti í 25 ár.
~ ~ Frystihús á
Raku frystl- Kirkjusandi
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
MEGINSTARFSEMI ísfélagsins var í þessu húsi í áratugi. Það
setur enn mikinn svip á umhverfi sitt í Vestmannaeyjum.
ÖLL fiskvinnsla ísfélagsins fer nú fram í húsakynnum sem til-
heyrðu Hraðfrystistöð Vestmannaeyja fyrir sameiningu. Er nú
verið að byggja við húsið.
hús í Reykja-
vík í gosinu
Starfsemi fyrirtækisins
stóð í blóma þegar Vest-
mannaeyjagosið hófst í
janúar 1973. Nýbyggt saltfiskverkun-
arhús eyðilagðist í gosinu en hraunið
stöðvaðist við vegg.vélasalar fyrirtæk-
isins. Stjórnendur ísfélagsins tóku þá
sögulegu ákvörðun að kaupa frystihús
á Kirkjusandi í Reykjavík en það var
þá í eigu Tryggva Ofeigssonar. Starfs-
fólk félagsins, sem var búsett víða á
höfuðborgarsvæðinu, hóf nú vinnu á
Kirkjusandi. Strax og gosinu lauk var
hafist handa við uppbyggingu að nýju
í Eyjum og hófst starfsemi þar réttu
ári eftir að gosið hófst. Frystihúsið á
Kirkjusandi var þó rekið í tvö ár eða
þar til það var selt Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga. ísfélagið
byggði einnig hús í Þorlákshöfn til
að taka á móti fiski í gosinu.
Á þessum tíma var einnig farið að
huga að eigin útgerð. Fyrsta skrefið
í þá átt var togarinn Klakkur sem kom
nýr frá Póllandi 1977 en ísfélagið og
tvö önnur fyrirtæki stóðu að smíði
skipsins. Á næstu árum fór útgerð
félagsins vaxandi og varð það einþ
stærsti rekstraraðiii skuttogara í Eyj-
um.
Útgerðarmennirnir Kristinn Páls-
son og Magnús Kristinsson,
sonur hans, og fyrirtæki
þeirra eignuðust meirihluta
í ísfélaginu um 1988. Krist-
inn varð stjórnarformaður
þegar Björn lét af störfum
og Magnús tók síðan við af honum.
Sameiningin hjálpaði
í kjölfar mikilla erfiðleika útgerðar-
og fiskvinnslu sameinuðust stærstu
fyrirtækin í Vestmannaeyjum í tvö
stór útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki
1. janúar 1992. Hraðfrystistöð Vest-
mannaeyja hf. og útgerðarfélagið
Bergur-Huginn hf. sameinuðust Isfé-
Iaginu undir nafni þess. Níu mánuðum
síðar var fyrirtækinu reyndar skipt
aftur upp og Magnús Kristinsson, sem
verið hafði framkvæmdastjóri Bergs-
Hugins, fór út úr félaginu með skip,
kvóta og aðrar eignir sem námu eign-
arhluta íjölskyldunnar. Eigendur
Hraðfrystistöðvarinnar, Sigurður Ein-
arsson framkvæmdastjóri og fleiri
afkomendur Einars Sigurðssonar út-
gerðarmanns, áttu eftir þessi skipti
80% hlutafjár en gamlir hluthafar Is-
félagsins 20%. Síðan hefur eignarað-
ildin lítið breyst.
Mikið tap varð af rekstri ísfélagsins
fyrstu tvö árin eftir sameiningu en
síðustu þijú starfsár þess hefur verið
hagnaður sem vegið hefur upp tapið
og gott betur. Nýlokið reikningsár er
eitt hið allra besta í 95 ára sögu ísfé-
lagsins, eins og komið hefur fram.
Fyrir sameiningu framleiddu fyr-
irtækin 4.000 tonn af frystum fiski í
tveimur frystihúsum. Nú eru fryst
10.000 tonn í einu húsi. Meginhluti
starfseminnar var strax fluttur í húsa-
kynni Hraðfrystistöðvarinnar og nú
er verið að byggja þar við. Gamla
ísfélagshúsið stendur lítið notað. Þar
eru þó skrifstofur félagsins og loðnu-
frysting að vetrinum. Þá fer fram
athyglisverð starfsemi á fyrstu hæð
hússins. ísfélagið innréttaði hana og
setti upp púttvöll og félagsaðstöðu
fyrir eldri borgara bæjarins. Félagið
lætur húsnæðið endurgjaldslaust í té
ásamt rafmagni og hita. Sigurður
segir að aðstaðan sé mikið notuð.
„Mér fannst sameiningin misráðin
í fyrstu en sé núna að hún hefur hjálp-
að okkur,“ segir Sigurður þegar hann
er spurður að því hvort hann teldi að
sameiningin hefði orðið til góðs. Seg-
ir hann að fjölmörg störf hafi verið í
hættu í Vestmannaeyjum og þeim
hafi verið bjargað með þessari varna-
raðgerð. Einnig telur hann að eigend-
ur fyrirtækjanna hafi notið góðs af.
Áfram í fiskvinnslu í landi
Isfélagið rekur frystihús, loðnu-
verksmiðju, vélaverkstæði og neta-
gerð og gerir út sjö skip með samtals
6.500 þorskígilda kvóta miðað við
úthlutun aflaheimilda í haust. ísfélag-
ið á eignarhluti í nokkrum öðrum sjáv-
arútvegs- og þjónustufyrirtækjum,
meðal annars liðlega þriðjungs hlut í
Krossanesi hf. á Akureyri. Félagið er
aðili að Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna.
Félagið hefur lagt áherslu á land-
vinnslu og gerir ekki út frystitogara
og Sigurður segir að ekki standi til
að breyta því. Félagið er
öflugt í loðnu- og síldar-
frystingu og nú er unnið
að breytingum á bolfisk-
_________ vinnslunni með það að
" markmiði að snúa tapi af
henni í hagnað. Sigurður vonast til
að það takist enda um að ræða grund-
vallarþátt í starfsemi fyrirtækisins.
í tilefni af þessum tímamótum í
sögu ísfélags Vestmannaeyja býður
það núverandi og fyrrverandi starfs-
fólki til kaffisamsætis í Týsheimilinu
á morgun klukkan 15.
Sameining
fyrirtækjanna
varð til góðs
Samelningarviðræður á Vestfjörðum
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
BESSI frá Súðavík, rækjufrystiskip, og ísfisktogarinn Páll Pálsson frá Hnifsdal verða flaggskip hins
nýja félags, verði á annað borð af sameiningu fyrirtælqanna sex.
Nýr sjávarútvegs-
risi að verða til?
Á næstunni kunna sex sjávarútvegsfyrirtæki
á Vestfjörðum að hefja nána samvinnu og
jafnvel að ákveða sameiningu fyrirtækjanna.
Agnes Bragadóttir komst að því að slíkt
félag yrði í hópi allra stærstu sjávarútvegsfyr-
irtækja landsins. Aflaheimildir yrðu ívið minni
en hjá Granda og Útgerðarfélagi Akur-
eyringa, eða nálægt 16 þúsund þorskígildis-
tonnum. Einungis Samheiji hefur yfír meiri
aflaheimildum að ráða.
HELSTU eigendur og stjórn-
endur sex sjávarútvegs-
fyrirtækja á Vestfjörðum
voru daglangt á fundum,
sl. þriðjudag, þar sem rætt var um
víðtæka samvinnu fyrirtækjanna í
náinni framtíð, sem leiða myndi til
sameiningar fyrirtækjanna í félagi,
sem hefði yfir um 16 þúsund þorsk-
ígildistonnum að ráða. Verði af sam-
einingu fyrirtækjanna, munu þau fara
út í hlutafjáraukningu og skrá fyrir-
tækið á markaði.
Fyrirtækin sem hér um ræðir, eru
eins og kom fram á baksíðu Morgun-
blaðsins í gær, Frosti hf. í Súðavík,
Hraðfrystihúsið hf. og útgerðarfé-
lagið Miðfell hf. í Hnífsdal, Bakki
hf. Hnífsdal og Bakki Bolungarvík
hf. sem brátt munu sameinast í eitt
fyrirtæki og Kambur hf. Flateyri.
Áuk þess er loðnuverksmiðjan Gná
hf. á Bolungarvík með í þessum við-
ræðum.
Afstaða fyrir næsta fund
Hugmyndir að samstarfi eða sam-
einingu fyrirtækjanna urðu, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins,
til í spjalli forráðamanna fyrirtækj-
anna eftir misheppnaðar tilraunir til
sameiningar sjávarútvegsfyrirtækja á
Vestfjörðum sem sumir þeirra hafa
tekið þátt í, meðal annars fyrir ári.
Viðræðurnar hófust fyrir alvöru, fyrir
mánuði eða svo, en eftir fundinn sl.
þriðjudag, má segja að þær séu komn-
ar á fullan skrið og nýr fundur hefur
verið boðaður í næstu viku. „Við
ákváðum í upphafi að skoða fyrst
hvort þetta væri áhugavert og að
leysa síðan vandamálin jafnóðum og
þau kæmu upp,“ segir einn af eigend-
um eins fyrirtækisins.
Upphaflega var ætlunin að Gunn-
vör hf. á ísafirði og íshúsfélag ísfirð-
inga hf. væru einnig með í þessum
viðræðum, en af því varð ekki.
Niðurstaða fundarins á þriðjudag
varð sú, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, að hvert fyrirtæki
fyrir sig, undirbyggi svör við ákveðn-
um spurningum, að því er varðaði
mat eigna, mat innra virðis fyrirtækj-
anna og skuldastöðu fyrir næsta fund.
Jafnframt er rætt um að hvert fyrir-
tæki verði tilbúið með eindregna af-
stöðu til náinnar samvinnu og/eða
sameiningar á næsta fundi.
Fjölþættur rekstur
Hið sameinaða stórfyrirtæki yrði
með þrennskonar vinnslu. Félögin
sem að því standa eiga mjölverk-
smiðju í Bolungarvík, tæknivæddar
rækjuvinnslur í Súðavík, Hnífsdal og
Bolungarvík og bolfisk-
vinnslu á Flateyri, Hnífsdal
og Bolungarvík. Þau eiga
mikinn rækjukvóta og tölu-
verðan bolfiskkvóta. Nýja
félagið yrði í hópi allra
stærstu sjávarútvegsfyrirtækja
landsins, með aflaheimildir á borð við
Granda og Útgerðarfélag Akur-
eyringa með nálægt 16 þúsund
þorskígildistonnum. Einungis Sam-
herji hefur yfir meiri aflaheimildum
að ráða.
Fyrirtækin eiga tvö rækjufrysti-
skip, m.a. Bessa frá Súðavík, nokkra
ísrækjutogara, m.a. Dagrúnu og
Heiðrúnu í Bolungarvík, og báta. Þá
gera félögin út ísfisktogarann Pál
Pálsson frá Hnífsdal, sem eigendurn-
ir eiga skuldlausan, og nokkra línu-
báta frá Flateyri auk báta frá Bolung-
arvik.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna sjá
fyrir sér mikla hagræðingarmögu-
leika, með samvinnu og/eða samein-
ingu fyrirtækjanna. Hægt verður að
sameina aflaheimildir í stórum stíl og
fækka skipum og sérhæfa vinnslu á
hveijum stað. Með tilkomu Vest-
fjarðaganganna líta menn þannig á,
að hér sé um raunhæfan möguleika
að ræða. Fiskflutningar í gegnum
göngin séu augljós kostur og frum-
skilyrði fyrir aukinni sérhæfingu á.(
hveijum stað.
Sameiginlegir hagsmunir
yfirgnæfandi
Þótt endanleg ákvörðun hafi ekki
verið tekin um sameiningu fyrirtækj-
anna , gætir nokkurrar bjartsýni hjá
viðmælendum Morgunblaðsins um
jákvæða niðurstöðu. Þeir telja að
sameiginlegir hagsmunir fyrirtækj-
anna með slikum samruna séu yfir-
gnæfandi í samanburði við hagsmuni
fyrirtækjanna af óbreyttu rekstrar-
formi. Benda þeir samt sem áður á,
að auðvitað séu ákveðnar hindranir
sem þurfi að yfirstíga.
Menn eru ekki sannfærðir um vilja
meirihluta eigenda Hraðfrystihúss-
ins í Hnífsdal og útgerðarfélagsins
Miðfells sem gerir út Pál Pálsson til
þátttöku í samruna af því tagi sem
nú er rætt um, þar sem þessi fyrir-
tæki hafa verið rekin með góðum
hagnaði undanfarin ár. Ákveðnir eig-
endur í hópi þeirra munu telja að.
hér geti verið á ferðinni mun áhætt-
usamari rekstur, en sá sem þeir nú
eiga hlut í.
Skip seld
Líkur eru á því að at-
vinnusamsetningin á hverj-
um stað muni eitthvað
breytast við slíka sam-
vinnu, en meginbreytingin myndi þó
felast í breyttum útgerðarháttum frá
þessum stöðum. Hægt væri að selja
mörg skip, sameina veiðiheimildir og
breyta útgerðarmynstri hvers staðar
og stórauka sérhæfingu í vinnslunni,
sem myndi fela í sér umtalsverðan
virðisauka.
Geta seit skip
og sameinað
veiðiheimildir