Morgunblaðið - 30.11.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 39
í
J
J
I
i
|
l
]
!
I
I
I
I
Alnæmi og
aðrar sóttir
ÁRIÐ 1796 eða fyrir
200 árum hóf Edward
Jenner bólusetningar
gegn bólusótt í Eng-
landi. Jenner hafði tekið
eftir því að mjaltakonur
sem smituðust af kúa-
bólu á höndum virtust
verða ónæmar fyrir
bólusótt. Veiran, sem
veldur kúabólu og er
skyld bólusóttarveir-
unni, olli einungis vægri
staðbundinni og
skammvinnri sýkingu í
mönnum. Jenner taldi
sjálfur að hægt yrði að
útrýma bóiusótt í heim-
inum með bólusetning-
um. Það var þó ekki fyrr en rúmum
180 árum síðar sem það tókst með
alþjóðlegu átaki. Full ástæða er fyr-
ir okkur íslendinga að minnast þessa
200 ára afmælis bólusetningar gegn
bólusótt því engin sótt hefur valdið
þessari þjóð jafn miklum skaða í
aldanna rás. Nægir að minnast bólu-
sóttarfaraldursins sem gekk yfir
landið 1707-1709 og kenndur var
við stóru-bólu en sá faraldur felldi
um fjórðung þjóðarinnar og flestir
þeirra sem dóu voru undir 50 ára
aldri. Brugðist var skjótt við því hér
á landi því bólusetning var fyrirskip-
uð þegar árið 1802 og árið 1805
komu reglur um framkvæmd hennar
á íslensku.
Annar smitsjúkdómur, sem gekk
yfir landið og hafði umtalsverð áhrif
á þjóðina, voru berklar. Sá faraldur
hófst á seinnihluta síðustu aldar og
náði hámarki á fjórða tug þessarar
aldar. Margir núlifandi Islendingar
muna vel eftir berklafaraldrinum og
þeim tolli sem hann tók. Enda þótt
farið hafi að draga úr útbreiðslu
berklanna og dánartíðni vegna
þeirra á seinni hluta fjórða áratugar
aldarinnar, skipti lyfjameðferð, sem
fram kom seint á fimmta áratugn-
um, miklu máli því eftir að meðferð
hófst dró mjög úr dánartíðni vegna
berklanna. Skipuleg leit að smitber-
um og meðferð hinna sýktu vann
síðan endanlega bug á útbreiðslu
berkla í okkar samfélagi. Berklar
eru að því leyti óvenjuleg bakteríu-
sýking að hún er tiltölulega hæg-
geng. Berklar geta eins og aðrir
sýklar myndað ónæmi gegn sýkla-
lyQum. Það var fyrst þegar fleiri
sýklalyf en eitt voru gefin saman í
langan tíma að hægt var að upp-
ræta berkla og koma í veg fyrir
ónæmismyndun bakteríunnar gegn
sýklalyfjum.
Upp úr 1980 varð fyrst vart við
alnæmi, áður óþekktan hæggengan
smitsjúkdóm af völdum veiru. Þessi
sjúkdómur hefur síðan breiðst ört
út um heim allan. Er hann einstak-
lega alvarlegur sjúkdómur þar sem
hann hefur oftast leitt til dauða
hinna smituðu. Sjúkdómurinn er
ekki eins smitandi og hinar tvær
fyrrnefndu sóttir en engu að síður
er baráttan gegn honum illviðráð-
anleg þar sem hann smitast með
kynmökum, menguðu blóði við blóð-
gjafir og þegar lyf eru misnotuð
með sprautunálum. Þá geta mæður
einnig smitað börn sín í meðgöngu
eða fæðingu. Enda hefur sjúkdóm-
urinn nú náð til 190 landa. Talið er
að um 28 milljón manns hafi þegar
smitast af alnæmisveirunni, tæplega
6 milljón manns hafi látist af völdum
alnæmis og þar af rúmlega milljón
börn á síðustu árum.
Alnæmi greindist fyrst á íslandi
1985. Þó má ætla að smit af völdum
alnæmisveirunnar hafi hafist hér
upp úr 1980. Þegar horft er til baka
virðist alnæmisfaraldurinn hafa náð
hámarki á íslandi á árunum 1982-
1984. Sömuleiðis má ætla að flestir
smitaðir einstaklingar hér á landi
hafi fundist eftir að hægt varð að
greina sýkinguna 1985. Á undan-
förnum árum hefur dregið úr ný-
gengi alnæmis og hafa
um þrír á ári greinst
með sjúkdóminn sl. 3
ár. Alls hefur 41 ein-
staklingur greinst með
alnæmi hér á landi og
þar af hafa 30 látist,
flestir um aldur fram.
Heildarfjöldi þeirra sem
greinst hafa með smit
af völdum alnæmisveir-
unnar hér á landi er
103. Hins vegar hefur
dregið úr fjölda þeirra
sem greinast með al-
næmissmit og síðustu
árin hefur u.þ.b. einn
smitaður greinst á
tveggja mánaða fresti.
Það er því líklegt að mesta út-
breiðslan á alnæmissmiti hafi verið
gengin yfir þegar upplýsingaherferð
gegn þessum sjúkdómi hófst upp úr
miðjum síðasta áratug. Upplýsinga-
herferðin, sem farin var hér á landi,
kann að hafa haldið útbreiðslu sjúk-
dómsins í skefjum. Hitt skiptir þó
áreiðanlega ekki minna máli að það
náðist til flestra þeirra sem smitaðir
voru og ábyrg hegðan þeirra hefur
stuðlað að því að hindra útbreiðslu
sjúkdómsins. Þá fer ekki á milli
mála að meðferð sýktra einstaklinga
hefur einnig skipt miklu máli. Hún
Alls hefur 41 einstakl-
ingur greinst með al-
næmi hér á landi, segir
Haraldur Briem, og
þar af hafa 30 látist,
flestir um aldur fram.
hefur bætt líðan hinna sýktu og
dregið úr líkum á því að sjúkdómur-
inn þróist í alnæmi. íslensk heil-
brigðisyfirvöld brugðust skjótt við
og heimiluðu notkun nýrra öflugra
lyfja gegn alnæmisveirunni þegar
fyrstu vísbendingar lágu fyrir um
að þau kæmu að góðum notum við
að hefta framþróun sjúkdómsins hjá
hinum smituðu. Lyfjameðferð við
alnæmissmiti er núorðið um margt
lík þeirri lyfjameðferð sem er beitt
við berklum. Vitað er að nota þarf
fleiri lyf en eitt gegn veirunni og
ef það tekst að halda henni í skefjum
minnka stórlega líkurnar á því að
hún myndi ónæmi gegn lyfjunum.
Enda þótt lyfjameðferð sé dýr má
segja að sá árangur, sem hefur náðst
við að hindra útbreiðslu sjúkdómsins
hér á landi, hafi sparað þjóðinni
mikil fjárútlát.
Því miður hefur enn ekki tekist
að búa til bóluefni gegn alnæmisveir-
unni og horfurnar eru ekki góðar á
því að það takist á næstunni. Því
gildir eftir sem áður að forvarnir eru
öflugasta vörnin gegn sjúkdómnum
en hitt skiptir líka miklu máli að ná
til allra þeirra sem eru smitaðir og
hefja meðferð sem fýrst því það
dregur úr líkum á smiti ef veirunni
er haldið í skefjum með meðferð.
Enda þótt ekki hafi verið sýnt fram
á lækningu sjúkdómsins eru horf-
urnar þó mun betri nú en nokkru
sinni fyrr á þeim tíma sem alnæmi
hefur geisað í okkar heimshluta.
Víða um heim er þó erfitt að koma
upplýsingum til fólks um smitleiðir
og margar þjóðir hafa ekki efni á
að meðhöndla hina smituðu. Þannig
munu fæstir jarðarbúar njóta góðs
af meðferð og á meðan sjúkdómurinn
geisar annars staðar í heiminum er
hann stöðug ógnun við okkur. Barátt-
an gegn alnæmi verður að halda
áfram hér á landi ef viðhalda á þeim
góða árangri, sem náðst hefur.
Höfundur er settur
aðstoðarlandlæknir.
Haraldur Briem
Hin gullnu fyrirheit og efndir
FORYSTUMENN á
ýmsum sviðum í þjóð-
félaginu tala fagur-
lega um aldraða fólkið,
það hafi skilað góðu
verki og byggt upp
fyrir nútíð og framtíð
og eigi að fá að njóta
friðsamra og góðra ell-
iára. En eitthvað hefur
geigað í framkvæmd-
inni. Ljóst er að fólk
lifir við mjög misjöfn
kjör á starfsárum sín-
um en mismunun verð-
ur miklu stórfelldari
þegar eftirlaunaaldur-
inn tekur við. T.d. fá
heimavinnandi húsmæður aðeins
12 þúsund krónur í fastan lífeyri
á mánuði. Sú var tíðin að það lenti
á húsmæðrum að sinna börnum,
öldruðum og öryrkjum í fjölskyld-
unni því önnur úrræði voru ekki
fyrir hendi.
Ellilífeyrir
Árum saman greiddi fólk, þar á
meðal heimavinnandi húsmæður,
gjald til almannatrygginganna sem
var sá eini lífeyrissjóður sem það
átti völ á. Þessi lífeyrissjóður hefur
verið skertur niður í um 12 þús.
kr. á mánuði. Þannig eru störf
húsmæðra fyrri ára, en þær voru
burðarstólparnir í uppeldis- og vel-
ferðarmálum, metin nær verðlaus
og þær lítilsvirtar svo að jafna má
við mannréttindabrot.
Nýir jaðarskattar
Og nú verða aldraðir fyrir áfalli.
Innleiddur hefur verið skattur á
eignatekjur á víðtækari hátt en
áður. Látum það gott heita ef fólk
mætti hafa í friði einhveija lág-
marksupphæð t.d. sem dygði fyrir
útförinni. Og hver króna í vöxtum
og verðhækkunum á að koma til
lækkunar á bótum. Auk þess á að
fella niður ýmsa frádráttarliði á
skattframtali. Skuldi aldrað fólk
t.d., þá á ekki að taka
tillit til greiddra
vaxta, þá má ekki
draga frá vaxtatekj-
um.
Velferðarkerfið
Velferðarkerfíð er
ekki heilagt, enda á
mörgum sviðum mjög
götótt. Sumir halda
að öllu sé borgið eftir
því sem fleira fæst
ókeypis. En slíkt kerfi
hefur innbyggða spill-
ingu og misnotkun.
Það er háð reglugerð-
um og rándýru eyðu-
blaða- og vottorðakerfi sem mis-
munar fólki mjög. En afturhald-
Stöðugt er hnoðað
utan á kerfið, segir
Páll V. Daníelsson,
og úr verður óskil-
virkur óskapnaður.
söflin vilja þar engu breyta. Þess
vegna er stöðugt hnoðað utan á
kerfið og úr verður óskilvirkur
óskapnaður.
Umbreyta þarf
lífeyriskerfinu
I stuttu máli sagt þarf að stofna
einn gegnumstreymislífeyrissjóð
þar sem allir eru jafnir og hafa
góðan lífeyri. Sjóðurinn greiði
einnig laun fyrir heimilisstörf í
sambandi við umönnun barna. Fólk
haldi áfram að greiða í lífeyrissjóð-
inn til æviloka. Aldrað fólk greiði
fyrir sig í þjóðfélaginu eins og
aðrir. Það þurfi ekki að vera að
sækja um eitt eða annað ókeypis
til að geta lifað. Núverandi lífeyris-
sjóðakerfí yrði gert upp og nýtt,
t.d. til að bæta fasteignalánakerf-
ið. Allar núverandi skuldbindingar
á framtíðina yrðu felldar niður og
komist út úr þeim vítahring í eitt
skipti fyrir öll. Viðbótarlífeyrissjóði
væri fijálst að mynda enda í þá
greitt að fullu af viðkomandi ein-
staklingum. Þetta mundi valda
byltingu í þjóðfélaginu og tryggja
öllum viðunandi lífeyri og koma í
veg fyrir það misrétti sem nú er.
Jafnrétti yrði meðal aldraðra og
þeir byggju við meira öryggi og
yrðu sjálfstæðari og fijálsari en nú
er.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
★ HSM Pæssen GmbH
• Öruggir vandaðir pappírstætarar
• Margar stærðir - þýsk tækni
• Vönduð vara - gott verð
Páll V. Daníelsson
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
I3arna gpariðkór
Tegund: 4363
Verð: 2.495,-
ötærðir: 22-33
Litir: Gull, svart og rautt lakk
Teqund: 4099
Verð: 2.495,-
Stasrðir: 20-33
Litur: Svart lakk
Teqund: 3159
Verð: 1.995,-
Stasrðir: 19-24
Litir: Hvítt, svart, rautt
og blátt lakk
Tegund: 4277
Verð: 2.995,-
Stasrðir: 2Ö-3&
Litur: Svart lakk
Teqund: 4114
Verð: 2.495,-
Stasrðir: 20-39
Litir: Svart, hvítt og blátt lakk
Tegund: 4383
Verð: 2.495,-
Stasrðir: 19-27
Litur: Svart lakk
Ath.: Alllr skórnir eru leðurfóðraðir
5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR • POSTSENDUM SAMDÆGURS
STEINAR WAAGE #
SKÓVERSLUN ^
SÍMI 568 9212 ^
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
SÍMI 551 8519
/
'S?'
•v'