Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 56
56 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTI SUNNUDAGUR í AÐVENTU
Aðventukvöld
í Áskirkju
Á SUNNUDAGINN kemur, 1. des-
ember, verður aðventusamkoma í
Áskirkju kl. 20.30.
Gunnlaugur Á. Jónsson prófessor
flytur ræðu, Jón Þorsteinsson syng-
ur einsöng og Laufey Sigurðardótt-
ir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson
gítarleikari flytja Corelli sónötu í
E-moll. Einnig syngur kirkjukór
Áskirkju aðventu- og jólasöngva en
söngstjóri hans er Kristján Sig-
tryggsson. Ennfremur verður al-
mennur söngur og samkomunni
lýkur með ávarpi sóknarprests og
bæn.
Eftir samkomuna í kirkjunni mun
kirkjugestum boðið upp á súkkulaði
og smákökur í safnaðarheimili
kirkjunnar.
íbúum dvalarheimila og annarra
stærstu bygginga sóknarinnar gefst
kostur á akstri til og frá kirkju.
Komu aðventunnar mun og fagn-
að _í guðsþjónustum sunnudagsins
í Áskirkju, en barnaguðsþjónusta
er kl. 11 og guðsþjónusta kl. 14.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Forseti
borgarstjórnar í
Laugarneskirkj u
LAUGNESINGAR fagna í senn
fullveldisafmæli og upphafi nýs
kirkjuárs sunnudaginn 1. des.
Að venju verður guðsþjónusta
ásamt barnastarfi kl. 11 árdegis.
Auk hefðbundinna guðsþjónustu-
liða mun hópur nemenda úr Lauga-
lækjarskóla sýna frumsaminn þátt
um sköpunina. Atriðið var framlag
skólans í hæfileikakeppni grunn-
skóla sem fór fram nýlega og vakti
þar mikla athygli.
Kl. 20.30 að kvöldi 1. des. verður
aðventukvöld Laugarnessafnaðar.
Ræðumaður er frú Guðrún Ágústs-
dóttir, forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur.
Kór Laugarnesskóla syngur und-
ir stjóm Bjargar Ólínudóttur og
Kór Laugarneskirkju undir stjórn
organistans, Gunnars Gunnarsson-
ar.
Að lokinni samverustund í kirkj-
unni gefst þátttakendum kostur á
að gæða sér á heitu súkkulaði og
gómsætum kökum í safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Þennan dag em einnig síðustu
forvöð að skoða myndlistarsýningu
fimm ára barna úr hverfinu í safn-
aðarheimilinu.
Ólafur Jóhannsson.
Aðventutónleikar
í Skálholts-
dómkirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu ber
að þessu sinni upp á sjálfan fullveld-
isdag íslensku þjóðarinnar, 1. des-
ember.
Þá verða samkvæmt venju haldn-
ir aðventutónleikar í Skálholtsdóm-
kirkju. Er óhætt að fullyrða að aldr-
ei fyrr hafa þeir verið jafnfjölbreytt-
ir og veglegir og nú stendur til.
Nokkrir af hæfustu og efnileg-
ustu tónlistarmönnum landsins
munu koma saman og flytja mörg
af hinum hugþekku aðventulögum
og sálmum, en einnig tónlist sem
sjaldnar heyrist, en sem tengist þó
þeirri ljóssins- og kærleikshátíð sem
nú fer í hönd.
Flytjendur á aðventutónleikunum
í Skálholti em eftirtaldir. Barnakór
Biskupstungna sem hvarvetna hef-
ur getið sér framúrskarandi gott
orð fyrir hugljúfan og innilegan
flutning. Þá er að geta kórs
Menntaskólans að Laugarvatni, en
kórinn fagnar nú 5 ára starfsaf-
mæli sínu sem haldið var upp á
með eftirminnilegum afmælistón-
leikum í Langholtskirkju fyrir
skemmstu. Kór Menntaskólans að
Laugarvatni mun frumflytja á þess-
um aðventutónleikum nýjan sálm,
Barnið í Betlehem, eftir Hafliða
Vilhelmsson skáld og rithöfund,
sem saminn er við hið þekkta enska
lag, Greensleeves. Þá leikur Monika
Abendroth á hörpu. Eyþór Jónsson,
einn úr hópi hinna ungu orgelleik-
ara landsins og meðal þeirra allra
efnilegustu, mun leika á orgel.
Einnig leikur Miklos Dalmay á org-
el en hann hlaut í ár tónlistarverð-
laun Ríkisútvarpsins, Tónvakann,
fyrir píanóleik sinn. Þá er ógetið
hinnar ástsælu óperusöngkonu Sig-
rúnar Hjálmtýsdóttur, sem syngur
nokkur einsöngslög en kemur að
auki fram með kórunum tveimur.
Stjómandi Barnakórs Biskups-
tungna og Kórs Menntaskólans að
Laugarvatni er Hilmar Örn Agnars-
son, organisti í Skálholtsdómkirkju.
Eins og sjá má af nöfnum þátt-
takenda stefnir allt í einstæðan og
stórkostlegan tónlistarviðburð í
Skálholti og ætti það að gefa nær-
stöddum fyrirheit um fallega og
friðsæla aðventuhátið og gleðileg
jól.
Aðventutónleikarnir hefjast
klukkan 20.30 og verða eins og að
framan getur haldnir næstkomandi
sunnudag, 1. desember. Aðgangur
er ókeypis.
Hilmar Orn Agnarsson.
Aðventuhátíð í
Víðistaðakirkju
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra, verð-
ur ræðumaður á aðventukvöldi í
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði sunnu-
daginn 1. desember. Auk ræðu ráð-
herra verður fjölbreytt dagskrá á
samkomunni sem hefst kl. 20.30.
Þar mun Inga Backman sópran-
söngkona syngja auk Kórs Víði-
staðasóknar og Barnakórs Víði-
staðakirkju, sem koma fram undir
stjórn Úlriks Ólasonar og Guðrúnar
Ásbjörnsdóttur. Lúsía kemur í
heimsókn með þernum sínum og
aðventukaffi Systrafélagsins verður
að aðventukvöldinu loknu. Systra-
félagið verður einnig með aðventu-
kaffi fyrr um daginn að lokinni
hátíðarguðsþjónustu sem hefst kl.
14, og um morguninn verður að
venju barnaguðsþjónusta kl. 11.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
Tónlistar-
guðsþjónusta
í Hafnarfjarðar-
kirkju
SUNNUDAGINN 1. desember
verður haldin tónlistarguðsþjónusta
í Hafnarfjarðarkirkju kl. 18.00 í
samvinnu við Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar. í tónlistarguðsþjónustum
kirkjunnar er lögð sérstök áhersla
á söng, tónlist, bænir og þakkar-
gjörð, en stutt hugvekja leiðir
kirkjugesti inn í þögla íhugun. í
næstu tónlistarguðsþjónustu verða
sungnir aðventusöngvar og leikin
tónlist er tengist aðventunni. Hópur
11 nemenda frá Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar annast tónlistar-
flutning í guðsþjónustunni ásamt
Natalíu Chow organista. Prestur
er sr. Þórhallur Heimisson.
Þórhallur Heimisson.
Aðventukvöld
í Fella- og
Hólakirkju
AÐVENTAN hefst næstkomandi
sunnudag. Þá byijun við fyrir al-
vöru að búa okkur undir jólin. Við
búum okkur undir komu frelsarans.
Um þessar mundir eru margir dapr-
ir á Islandi. Myrkrið í kringum okk-
ur leggst á sveif með áhyggjunum.
Það er eins og aldrei muni birta á
ný. En kirkjan boðar okkur lausn
og birtu. Konungur þinn kemur til
þín. Guð þinn kemur. Kirkjan vill
hjálpa okkur að búa jarðveginn
undir komu frelsarans. Við bíðum
eftir konungi lífsins, við væntum
Jesú. Það ætlum við einnig að gera
í Fella- og Hólakirkju.
Aðventukvöld verður haldið í
Fella- og Hólakirkju næstkomandi
sunnudagskvöld 1. desember kl.
20.30. Á dagskrá verður saga, Geir
Jón Þórisson aðalvarðstjóri lögregl-
unnar í Breiðholtshverfum mun
flytja hugvekju. Kirkjukórinn og
Barnakór kirkjunnar syngja og
einnig munum við sjálf syngja. Að
lokum munum við tendra kertaljós-
in.
Hreinn Hjartarson og
Guðmundur Karl Ágústsson.
Aðventubyijun
í Dómkirkjunni
í TILEFNI af 200 ára afmælinu fær
Dómkirkjan heimsókn vígslubisk-
ups og kórs úr Skálholti. Með þessu
er minnt á að biskupsstóll var flutt-
ur úr Skálholti til Reykjavíkur fyrir
tveimur öldum.
Á laugardag heldur Skálholts-
kórinn tónleika í kirkjunni kl. 17
og syngur undir stjórn Hilmars
Arnar Agnarssonar, dómorganista
í Skálholti.
Á sunnudag er hátíðleg messa
kl. 11 þar sem sr. Sigurður Sigurð-
arson, vígslubiskup, prédikar og
Skálholtskórinn syngur ásamt
Dómkórnum.
Á sunnudag kl. 20.30 er aðventu-
kvöld í kirkjunni í umsjá Kirkju-
nefndar kvenna. Anna Þrúður Þor-
kelsdóttir, forstöðukona, flytur þar
hugleiðingu. Kór Kárnesskólans og
Dómkórinn syngja undir stjóm
Kristínar Valsdóttur og Marteins
H. Friðrikssonar.
Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Aðventukvöld í
Keflavíkurkirkju
Á AÐVENTUNNI er hefð fyrir
samvemm á sunnudagskvöldum í
Keflavíkurkirkju.
Hin fyrsta í ár verður nú á fyrsta
sunnudegi í aðventu og hefst það
kl. 20.30. Kór Keflavíkurkirkju
syngur sígilda tónlist tengda að-
ventunni og nýju kirkjuári. Sóknar-
prestur sr. Ólafur Oddur Jónsson
mun flytja hugvekju, og í lokin verð-
ur sungið við kertaljós. Einsöngvar-
ar em Guðmundur Ólafsson, Guð-
mundur Sigurðsson, Einar Örn Ein-
arsson, Ingunn Sigurðardóttir og
Margrét Hreggviðsdóttir. Ragn-
heiður Skúladóttir leikur á píanó.
Stjórnandi er Einar Öm Einarsson
organisti og söngstjóri Keflavíkur-
kirkju.
Næstu kvöld verða með léttara
sniði og verða kynnt frekar í næstu
viku.
Aðventusamvera
í Kópavogskirkju
SUNNUDAGINN 1. desember
verður aðventusamvera Kársnes-
safnaðar í Kópavogskirkju og hefst
hún kl. 17. Eins og jafnan áður
verður efnisskráin fjölbreytt og til
hennar vandað. Aðventuræðu flytur
Ásgeir Jóhannesson, kirkjukór
Kópavogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng undir stjóm Amar
Falkner organista og Hulda Jóns-
dóttir syngur einsöng. Anna Sigríð-
ur Einarsdóttir bókasafnsfræðingur
flytur sjálfvalið efni og Guðrún
Birgisdóttir leikur á flautu. Börn,
11-13 ára, úr Kárnes- og Þinghóls-
skóla syngja undir stjórn Þómnnar
Bjömsdóttur kórstjóra. Aðventu-
samkomunni lýkur með ritningar-
lestri, bæn og almennum söng.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kirkjudagur
Árbæj arsafnaðar
HINN 1. desember næstkomandi,
1. sunnudag í aðventu, verður ár-
legur kirkjudagur Árbæjarsafnaðar
haldinn í Árbæjarkirkju. Kl. 11
verður barnaguðsþjónusta í kirkj-
unni. Foreldrar, afar og ömmur em
boðin velkomin með börnunum. Kl.
14 guðsþjónusta fyrir alla fjölskyld-
una. Jónas Þórisson framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar
flytur stólræðu, en prestar safnað-
arins þjóna fyrir altari. Kirkjukór
Árbæjarkirkju flytur stólvers. Sér-
staklega er vænst þátttöku ferm-
ingarbarna og foreldra þeirra í
guðsþjónustunni. Kl. 15 kaffisala
Kvenfélags Árbæjarsóknar í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Jafnframt
verður þar efnt til skyndihapp-
drættis til ágóða fyrir líknarsjóð
Kvenfélags Árbæjarsóknar. Allir
eru boðnir hjartanlega velkomnir.
Guðmundur Þorsteinsson.
Aðventu-
samkoma í
Breiðholtskirkju
HIN árlega aðventusamkoma
Breiðholtssafnaðar verður haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd á morgun,
fyrsta sunnudag í aðventu, kl.
20.30.
Að venju verður fjölbreytt dag-
skrá sem miðuð er við alla fjölskyld-
una. Kór Breiðholtskirkju flytur
aðventu- og jólasöngva ásamt eldri
deild Bamakórs Breiðholtskirkju
undir stjórn organistans, Daníels
Jónassonar, og Ámýjar Alberts-
dóttur stjórnanda barnakórsins.
Friðbjörn G. Jónsson syngur ein-
söng. Fermingarböm sjá um stutta
dagskrá, lesin verður lítil helgisaga
og sr. Guðný Hallgrímsdóttir flytur
aðventuhugleiðingu. Samkomunni
lýkur með helgistund við kertaljós.
Að samkomunni lokinni verður
kaffisala í safnaðarheimilinu á veg-
um Kvenfélags Breiðholts, en félag-
ið hefur alla tíð stutt safnaðarstarf-
ið og kirkjubygginguna af miklum
dugnaði og rausnarskap. Má í því
sambandi m.a. geta þess, að félagið
hefur nýlega ákveðið að gefa eina
milljón króna til kaupa á nýju org-
eli fyrir kirkjuna. Einnig munu
fermingarbörn selja friðarkerti til
ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkj-
unnar og Kristniboðsalmanakið til
styrktar starfi Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga.
Aðventusamkomurnar hafa löng-
um verið miklar hátíðarstundir í
safnaðarlífinu og mörgum til gleði
og uppbyggingar við upphaf undir-
búnings jóla. Vona ég að svo verði
einnig í ár. Vil ég því nota þetta
tækifæri til að hvetja sóknarbúa
og aðra þá sem áhuga hafa til að
fjölmenna við þessa athöfn og hefja
þannig jólaundirbúninginn með
góðri stund í húsi Drottins.
Sr. Gísli Jónasson.
Aðventu-
guðsþjónusta
á sænsku
SÆNSKA félagið á íslandi býður
til aðventuguðsþjónustu á sænsku
sunnudaginn 1. desember kl. 16 í
Dómkirkjunni. Prestur er sr. Karl
Sigurbjömsson. Organisti er Jón
Stefánsson. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Aðventuhátíð
allan daginn
í Neskirkju
FJÖLBREYTNI er í fyrirrúmi í
Neskirkju þegar aðventan gengur
í garð á morgun, sunnudag.
Kl. 11 um morguninn er fjöl-
skylduguðsþjónusta þar sem skát-
ar koma í heimsókn svo og ungt
tónlistarfólk frá Tónskólanum Do-
Re-Mí.
Kl. 14 er svokölluð Ljósahátíð
en þá ganga væntanleg fermingar-
börn inn í kirkjuna með tendruð
kertaljós. Athöfnin sjálf er svo að
mestu leyti í þeirra höndum. Að
auki syngur svo Gospelkór Nes-
kirkju en það er nýlegur kór ungl-
inga.
Kl. 17 er svo aðventusamkoma
þar sem m.a. verður boðið upp á
söng kórs Grandaskóla, söng
kirkjukórsins svo og hljóðfæraleik
barna úr tónlistarskóla íslenska
Suzukisambandsins. Þá syngja
Inga J. Backman einsöng en aðal-
ræðumaður er Njörður P. Njarðvík
prófessor.
Þá má geta þess að á aðvent-
unni verða kyrrðarstundir í Nes-
kirkju á fimmtudagskvöldum kl.
20.30. Þær verða byggðar þannig
upp að flutt verður róleg tónlist í
rökkvaðri kirkjunni, gefin þögul
stund til íhugunar og höfð stutt
bæn. Þá mun Reynir Jónasson org-
anisti Neskirkju og fleiri tónlistar-
menn leika á orgel kirkjunnar í
hádeginu kl. 12.15-12.45 alla
virka daga á jólaföstu.
Halldór Reynisson.
Aðventuhátíð
í Hjallakirkju
1. SUNNUDAG í aðventu, þann 1.
desember, ki. 17 bíður Safnaðarfé-
lag Hjallasóknar til sinnar árlegu
aðventuhátíðar í Hjallakirkju. Að-
ventan er sá tími, sem við notum
til undirbúnings undir jólahátíðina,
og því er vel við hæfi að mæta til
kirkju og lofa Drottin í söng.
Á aðventuhátíðinni mun Skóla-
hljómsveit Kópavogs leika nokkur
lög og eldri kór Hjallaskóla syngja.
Að auki munu krakkar úr tíu til
tólf ára starfi Hjallakirkju flytja
helgileik. Eftir stundina bíður safn-
aðarfélag Hjallasóknar gestum upp
á kakó og piparkökur í safnaðarsal
kirkjunnar. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Aðventuhátíð
í Seltjarnar-
neskirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu
verður haldinn hátíðlegur í
Seltjarnarneskirkju að venju. Há-
tíðin hefst með guðsþjónustu, sem
hefst kl. 11. Þá bera væntanleg
fermingarbörn inn kertaljós í ferm-
ingarkyrtlum og kveikja á fyrsta
kertinu á aðventukransinum. Þetta
er hátíðleg stund, sem enginn vill
missa af sem hefur upplifað hana
einu sinni.
Um kvöldið hefst hátíðin kl.
20.30. Þá verður mikil tónlistar-
dagskrá, sem organisti kirkjunnar
hefur undirbúið ásamt kórum
kirkjunnar og miklu tónlistarfólki.
Safnaðarkór og barnakór kirkjunn-
ar syngja jólatónlist. Einnig syngur
Kvartett Seltjarnarneskirkju, þau
Þuríður Sigurðardóttir, Svava
Kristín Ingólfsdóttir, Egill Gunn-
arsson og Gunnar Haraldsson jóla-
lög. Zbigniew Dubik og Simon
Kuran leika á fiðlur, Lovísa
Fjeldsted leikur á selló og Pavel
Manasek á orgel. Allri tónlistinni
og söngnum stjórnar organisti
kirkjunnar Viera Manasek. Ræðu-
maður kvöldsins verður Högni Ósk-
arsson. í lokin verður ritningarlest-
ur og bæn, sem sóknarpresturinn
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir
leiðir og tendruð verða kerti allra
kirkjugesta.
Að stundinni í kirkjunni lokinni
verður boðið uppá veislukaffi í
safnaðarheimilinu, sem selt verður
til ágóða fyrir orgelsjóð.