Morgunblaðið - 30.11.1996, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍJjjafir ^
fyrir myndlistarfólk
í miklu úrvali
Sendum í póstkröfu.
Skólavörðustíg 14 og 16
sími 552 1412
C/WJoftfWPtíK
Gæða húsgögn
á góðu verði
Valhúsgögn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 581 2275, 568 5375
Reiki- heilunar og
sj álfsty r kingar námskeið
Hvaðfáþátttakendur út úr slíkum námskeiðum?
• Læra að nýta sér orku til að lækna sig (meðfæddur eiginleiki
hjá öllum) og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt
jafnvægi.
• Læra að breyta hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggjandi
hátt, í staðinn fyrir að breyta henni til niðurrifs.
• Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Námskeið í Reykjavík
7.-8. des. 2. stig helgamámskeið
9.-11. des. 1. stig kvöldnámskeið
Sáttmálinn minn,
hugræktar- og hamingjunásmkeið
Þú kemst ekki hjá því að verða jákvæðari, umburðarlyndari
og sterkari í daglegri tilveru þinni.
14.-15. des. Helgamámskeið
16.-18. des. Kvöldnámskeið
Upplýsingar og skráning í síma 553 3934 kl. 10-12 virka
daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari
Euro raðgfr. (ii allí að 36 mánaða. Visa raðjjr. 61 a 111 að 36 mánaða.
Stórglæsilegir hornsófar
2ja+hom+3ja sæta með leðri á slitfleti
Litir: Svart - brúnt - grænt - rautt - vínrautt.
Verð aðeins kr. 139.000 stgr.
Líttu á verðið! (1
I DAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
heimsmeistaramóti ungl-
inga 20 ára og yngri sem
lauk nýlega í Medellin í
Kólumbíu. Kínverjinn
Zhang Zhong (2.425)
hafði hvítt og átti leik, en
Kacheishvili (2.515), Ge-
orgíu, var með svart.
27. Hxb7! - Kxb7
ingar ekki fulltrúa á mót-
inu, en þegar við sendum
síðast mann árið 1994, sigr-
aði Helgi Áss Grétarsson.
Atskákmót Reykjavík-
ur 1996 fer fram um helg-
ina í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi í Breiðholti.
Tefldar verða 7 umferðir
eftir Monrad kerfi og tíma-
mörkin eru 25 mínútur á
keppanda. Mótið er öllum
opið. Keppni hefst báða
dagana kl. 14. Verðlaun:
15 þús., 9 þús. og 6 þús.
28. Ba5! og svart-
ur gafst upp. Eftir
28. - Hcc8 29.
Hbl+ - Ka7 30.
Bb6+ - Ka8 31.
Dxc6+! — Hxc6
32. Bxc6+ vinnur
hvítur drottning-
una til baka og
verður þá að
minnsta kosti
manni yfir.
Emil Sútovskí
frá Israel varð
heimsmeistari
unglinga. Eins og
í fyrra áttu íslend-
b c d • t a h
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
COSPER
ÞETTA kalla ég svindl og svínarí. í auglýsingunni
lá ung stúlka í rúminu.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Tapað/fundið
Skjalataska
tapaðist
SVÖRT gamaldags
leðurskjalataska með
gylltum lási tapaðist sl.
þriðjudag, líklega í
kringum Skipholt. Ef
einhver hefur orðið var
við hana liggjandi ein-
hvers staðar er hann vin-
samlega beðinn að
hringja í síma 562-2439
eða í vinnusíma
563-3890 á milli kl. 9 og
17.
Pakki tapaðist
KASSI merktur Pósti og
síma tapaðist í pósti.
Heimilisfangið á kassan-
um, sem var sendur frá
Árbæjarpósthúsi til Dal-
víkurpósthúss, var
Hofsárkot í Svarfaðar-
dal. Sá sem átti að koma
pakkanum til viðtak-
anda hefur líklega skilið
hann eftir við póstkassa
sem er nokkuð frá bæn-
um og hann gæti því
hafa fokið burtu. Viti
einhver um kassann er
hann vinsamlega beðinn
að hringja í Póst og síma
á Dalvík.
Utigalli fannst
RAUÐUR útigalli fannst
á miðjum Álfhólsvegi sl.
fimmtudag. Eigandinn
má vitja hans í síma
588-9989.
Gæludýr
Köttur á
flækingi
STEINGRÁ einlit smá-
vaxin læða (líklega) með
óljóst eymamark var hirt
upp í bíl nálægt Ármúla
þar sem hún átti fótum
sínum fjör að launa á
veginum. Kannist ein-
hver við þennan kött er
hann beðinn að hafa
samband í síma
562-9246.
Farsi
(feora tóhst aJclre/oi lesa a/Ca m 'mnis-
rnTocmcL s/'na. d. -fostudag/nn..
Víkverji skrifar...
SEINT verður sagt að íbúar
Þingholtanna njóti sérstaks
velvilja borgaryfirvalda í bíla-
stæðamálum. A virkum dögum
fyllast bílastæði við íbúðarhús í
Þingholtunum af bifreiðum fólks,
sem starfar eða verzlar í Miðbæn-
um og íbúarnir komast hvergi að,
jafnvel ekki þegar þeir skreppa
heim í hádeginu. Víkveiji dagsins,
sem býr í Þingholtunum, hugðist
fyrir stuttu flytja þungt húsgagn
úr bfl sínum og inn í hús sitt um
miðjan dag. Lögleg bílastæði við
götuna voru öll full, þannig að
Víkveiji leyfði sér að stöðva bílinn
hálfan uppi á gangstétt framan
við útidyrnar og halda á húsgagn-
inu inn. Þegar Víkveiji svo kom
út á stéttina aftur, var virðulegur
stöðuvörður rétt búinn að stinga
sektarmiða undir rúðuþurrkuna.
xxx
VÍKVERJI hélt sig geta út-
skýrt kringumstæðurnar fyrir
stöðuverðinum, en fékk þau svör
að það væri ekki hluti af starfi
hans að athuga hvort einhveijar
sérstakar ástæður væru fyrir því
að bílum væri lagt ólöglega og
þótt slíkar ástæður kæmu fram
hálfri mínútu eftir að sektarmiðar
væru skrifaðir, skipti það heldur
ekki máli, stöðuvörðum væri ekki
heimilt að taka mark á slíkum
upplýsingum. Víkveiji var ekki
alls kostar sáttur við þessi svör
og hringdi í Bílastæðasjóð. Þar
fékk hann enn kostulegri svör, til
dæmis var honum ráðlagt að
leggja bílnum bara í næstu götu
ef hann þyrfti að halda á þungum
húsgögnum heim til sín! Fyrir nú
utan það að þennan dag var fljúg-
andi hálka í borginni og menn leika
sér hvort sem er ekki að því að
halda á þungum hlutum á milli
gatna í bænum, er það nú oft svo
að í næstu götu eru heldur engin
bílastæði um miðjan dag.
NÚ ER Víkveiji búinn að
skrifa Bílastæðasjóði og von-
ar að yfirvaldið taki mið af út-
skýringum hans. Jafnvel í mann-
drápsmálum taka dómarar tillit
til kringumstæðna sem geta kom-
ið hinum seka til góða. Getur
verið að árvökulir stöðuverðir og
yfirmenn þeirra hjá Bílastæða-
sjóði geti ekki skilið að stundum
þurfa menn að stelast til að leggja
uppi á gangstétt í fimm mínútur?
Hins vegar myndi Víkveiji gjarn-
an vilja heyra einhver svör frá
æðri borgaryfirvöldum um það,
hvað á að gera í bílastæðamálum
gömlu hverfanna. Hvernig er
hægt að tryggja íbúum þar stæði
við hús sín allan daginn? Er
kannski kominn tími til að fara
að merkja ákveðnum húsum stæði
við göturnar, til þess að menn
losni við ofsóknir Bílastæða-
sjóðs?