Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 72
Wkidows
NT4.0
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENrRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Interpol varar við breytingum á smyglleiðum
Heróín gæti náð
fótfestu hérlendis
ÍSLAND gæti orðið viðkomustað-
ur fíkniefnasmyglara á leið frá
Bandaríkjunum til meginlands
Evróþu, að sögn Christers Brann-
eruds, lögregluforingja hjá al-
þjóðalögreglunni Interpol. Hann
segir reynsluna sýna að alltaf verði
hluti fíkniefna eftir í viðkomulönd-
um smyglara og því gæti heróín
náð hér fótfestu og framboð kóka-
íns aukist.
Christer Brannerud er hér á
landi til að skýra íslenskum lög-
reglu-, toll- og dómsmálayfirvöld-
um frá stöðu mála í fíkniefnaheim-
inum. Hann segir að sú breyting
hafi orðið hin síðari ár að kólumb-
ískir heróínframleiðendur hafi náð
stórum hluta fíkniefnamarkaðar á
austurströnd Bandaríkjanna af as-
ískum framleiðendum.
Þrír teknir við komu
frá íslandi
„Við spáum því að þegar kól-
umbískir eiturlyfj aframleiðendur
fara að líta í auknum mæli til Evr-
ópu til að koma framleiðslunni í lóg
treysti þeir ekki lengur á venjuleg-
ar smyglleiðir sem yfirvöld fylgjast
vel með. Þar á ég til dæmis við
flugsamgöngur milli Brasilíu og
Evrópu. Því gæti sú staða komið
upp að þeir nýttu sér flugferðir til
íslands og þaðan áfram til megin-
lands Evrópu.“
Á þessu ári hafa þijú tilfelli kom-
ið upp þar sem fíkniefnasmyglarar
hafa verið teknir í Noregi, Svíþjóð
og Þýskalandi. Þeir komu allir frá
Bandaríkjunum, með viðkomu á
íslandi, og voru allir með miklu
meira magn en svo að það hafi
verið til eigin neyslu. „Þeir voru
greinilega svokölluð „burðardýr" í
skipulögðum innflutningi. í tveimur
þessara tilvika voru smyglararnir
með kókaín en i einu tilviki heró-
ín,“ segir Christer Brannerud.
■ ísland gæti/12
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
BÁTARNIR bíða í Hafnarfirði eftir að komast
í ný verkefni erlendis.
Þróunarsj óður
hefur keypt
36 krókabáta
ÞRÓUNARSJÓÐUR sjávarútvegs-
ins hefur á nokkrum mánuðum keypt
36 krókabáta til úreldingar. Bátun-
um hefur verið komið fyrir niður við
Hafnarfjarðarhöfn, en fyrirhugað er
að selja þá úr landi. Hinrik Greips-
son, framkvæmdastjóri Þróunar-
sjóðs, segir að aðilar víða um heim
hafi lýst áhuga á að kaupa bátana.
Samkvæmt lögum um Þróunar-
sjóð hefur sjóðurinn heimild til að
kaupa krókabáta til úreldingar. Hin-
rik sagði að margir trillusjómenn
hefðu haft samband við sjóðinn og
óskað eftir úreldingu. Sjóðurinn
væri þegar búinn að kaupa 36 króka-
báta og 10-15 bátar til viðbótar
væru til skoðunar. Hann sagði að
þetta væru 3-6 tonna bátar. Meiri-
hluti bátanna væri innan við 10 ára
gamall; sá yngsti ársgamali.
Hinrik sagði Þróunarsjóð greiða
20-30% af verðmæti bátanna í úr-
eldingarstyrki. Samtals hefði sjóður-
inn greitt u.þ.b. 45-50 milljónir
króna fyrir þessa báta.
Hinrik sagðist ekki eiga von á að
Þróunarsjóður ætti í erfiðleikum með
að selja bátana. Fyrirspurnir hefðu
komið frá Mexíkó, Sao Tomé, Sierra
Leone, Oman, Pakistan, Indónesíu,
Úganda og Tanzaníu. Hann sagði
að ákvörðun yrði tekin eftir áramót
um hvert bátarnir yrðu seldir.
Þróunarsjóði er óheimilt að selja
bátana innanlands.
Byggt yfir tvö ráðu-
neyti við Lindargötu?
FRAMKVÆMDASÝSLA ríkisins
hefur lagt til að gamla dómhús
Hæstaréttar við Lindargötu verði
rifið og í framtíðinní verði byggt þar
hús fyrir stjórnarráðið.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra lagði á ríkisstjórnarfundi í gær
fram minnisblað frá Framkvæmda-
sýslunni, þar sem gerð er úttekt á
kostnaði við niðurrif og álitsgerð um
gamla dómhúsið við Lindargötu.
Engar ákvarðanir voru teknar á
fundinum um framtíð hússins.
I álitsgerð framkvæmdasýslunnar
er kostnaður við að rífa húsið áætl-
aður 6-7 m.kr. en ef húsið yrði rifið
í beinum tengslum við nýbyggingu
yrði kostnaður lægri.
Leggur Framkvæmdasýslan til
að byggt verði í framtíðinni skrif-
stofuhúsnæði fyrir stjórnarráðið þar
sem dómhúsið er nú sem næði út
að Lindargötu 7. Er talið að þar
mætti koma fyrir bæði umhverfis-
og samgöngumálaráðuneytinu, auk
þess sem meira rými fengist fyrir
þau ráðuneyti sem fyrir eru í Arnar-
hvoli.
Mögulegar álversframkvæmdir Columbia Ventures Corp. á Grundartanga
Viðbúnaður
hafinn vegna
þensluáhrifa
Kveikt
ájóla-
ljósunum
BÖRN á Grænuborg í Reykja-
vík sungu með Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur borgarstjóra,
þeg£ir hún kveikti á jólaljósun-
um í miðborginni í gær. Kveikt
var samtímis á öllum útiskreyt-
ingum verslana, veitingahúsa,
fyrirtælqa og hjá Reykjavíkur-
borg. Lúðrasveit verkalýðsins
lék á Hlemmi og á Skólavörðu-
holti og gekk fylktu liði niður
Laugaveg, Skólavörðustíg að
Ingólfstorgi um Austurstræti
og Hafnarstræti.
Á VEGUM ríkisstjórnarinnar er
verið að meta til hvaða aðgerða
gæti þurft að grípa til að draga
úr þensluáhrifum sem framkvæmd-
ir við nýtt álver Columbia Ventures
Corporation á Grundartanga gætu
valdið á næstu misserum.
Líkleg tímasetning
skoðuð
Að sögn Ólafs Davíðssonar,
ráðuneytisstjóra í forsætisráðu-
neyti, hefur undanfarið verið skoð-
að hver væri líkleg tímasetning
hugsanlegra álversframkvæmda á
Grundartanga og hve miklar við-
bótarframkvæmdir yrði um að
ræða á næstu árum.
Að því hafa unnið, auk Ólafs,
Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytis, Jón Birgir
Jónsson, ráðuneytisstjóri sam-
gönguráðuneytis, Halldór Krist-
jánsson, ráðuneytisstjóri iðnaðar-
ráðuneytis, og Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
Fjallað var um málið á ríkis-
stjórnarfundi í gær og sagði Ólaf-
ur að ákveðið hefði verið að hefja
undirbúning að viðbúnaði ef af
álversframkvæmdnunum yrði. í
því sambandi yrði skoðað ná-
kvæmlega hvaða aðrar fram-
kvæmdir á vegum hins opinbera
væru fyrirhugaðar á næstu árum
og hve mikil viðbót álversfram-
kvæmdirnar yrðu og hvernig þær
skiptist á næstu ár.
Færa til
framkvæmdir
Fram kom hjá forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar fyrir skömmu að
það opinbera yrði að gera ráðstaf-
anir til að koma í veg fyrir þenslu
ef af álversframkvæmdunum yrði.
í því skyni væri skynsamlegast
að færa til opinberar framkvæmd-
ir eftir því sem við yrði komið,
draga úr þeim á árunum 1997 og
1998 en auka þær í staðinn árin
1999 og 2000.