Morgunblaðið - 11.12.1996, Side 1
104 SIÐUR B/C/D/E/F
wgiiaiilritaMfr
STOFNAÐ 1913
284. TBL. 84. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Utanríkisráðherrar NATO ákveða stað og stund fyrir stækkun í austur
Kjarnorkuvopn ekki flutt
til nýrra aðildarríkja
Brussel. Reuter. The Daily Telegraph.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
ákváðu í gær stað og stund fyrir
leiðtogafund þess á næsta ári, þar
sem fyrstu Mið- og Austur-Evrópu-
ríkjunum verður boðin aðild. Ráð-
herrarnir lýstu ennfremur yfir að
ekki yrði komið fyrir kjarnorkuvopn-
um í nýjum aðildarríkjum en þeirri
yfirlýsingu var ætlað að koma til
móts við Rússa, sem eru andsnúnir
stækkun NATO.
Fundur utanríkisráðherrana er
haldinn í Brussel og stendur í tvo
daga. Jevgení Prímakov, utanríkis-
ráðherra Rússa, ræðir við utanríkis-
ráðherrana í dag. Sögðust ráðherr-
arnir vonast til þess að Rússar væru
reiðubúnir að hefja viðræður um
sáttmála sinn og NATO sem yrði
undirritaður á leiðtogafundinum.
Rússar gáfu í skyn í gærkvöldi að
þeir væru reiðubúnir til þess.
Fundað í Madríd
í gær var ákveðið að leiðtogafundur
NATO yrði haldinn í Madríd á Spáni
8.-9. júlí nk. Þar verður einni eða
fleiri þjóðum boðið að hefja aðildar-
viðræður, en á fundinum í Brussel
ræddu utanríkisráðherrarnir hvernig
ætti að koma til móts við þær þjóðir
sem ekki fengju slíkt boð. Er .búist
við að þar sé átt við Rúmena, Slóvena
og Eystrasaltsþjóðirnar en að
Pólveijum, Tékkum og Ungveijum
verði boðin aðild.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að enn sé ekki ljóst hvern-
ig staðið verði að stækkunarferlinu.
„Við Isiendingar höfum lagt áherzlu
á að öllum rikjum, sem vilji raunveru-
lega ganga inn, verði boðið til við-
ræðna samtímis. Síðan verði það við-
ræðuferlið, sem ákvarði hvaða ríki
fari inn fyrst og hver síðast. En þetta
liggur enn ekki ljóst fyrir og enn eru
mismunandi skoðanir á málinu. Þessi
atriði verður að ræða betur fram að
fundinum í sumar,“ segir Halldór.
Rússar og sextán aðrar þjóðir
hafa fallist á að taka þátt í friðar-
gæslu í Bosníu ásamt NATO. Munu
gæslusveitirnar kallast SFOR, sem
táknar „Stöðugleikasveitir". Verða
25.000 - 30.000 hermenn frá
NATO-ríkjum sendir til Bosníu en
SFOR tekur við af IFOR-sveitunum
20. desember. Yfírmaður herráðs
SFOR verður þýskur undirhershöfð-
ingi, en fyi'ir tveimur árum hefði slíkt
verið talið óhugsandi.
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, gaf í gær til
kynna að víkka mætti umboð SFOR
til friðargæslu, svo að það fæli í sér
að stríðsglæpamanna yrði leitað og
þeir handteknir.
• •
Oryggisráð SÞ
Mest fylgi
við Annan
New York. Reuter.
KOFI Annan, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna
(SÞ), og Ámara Essy, utanríkisráð-
herra Fílabeinsstrandarinnar, fengu
flest atkvæði í tveimur óformlegum
atkvæðagreiðslum Öryggisráðs SÞ
um framkvæmdastjóra SÞ í gær.
Er það talin sterk vísbending um
hvernig atkvæði munu falla í kjör-
inu.
í annarri umferð hlaut Annan tíu
atkvæði með og eitt á móti en Essy
sjö með og tvö á móti. Hver fulltrúi
í Öryggisráðinu má greiða fleiri en
einum atkvæði og fastafulltrúarnir
fimm hafa neitunarrétt. Frakkar
greiddu atkvæði gegn Annan.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
formleg atkvæðagreiðsla fer fram.
^.Reuter
MÖRG hundruð stuðningsmenn friðarverðlaunaþega Nóbels, Jose Ramos Horta og Carlos Belo,
komu saman við Grand Hotel í Ósló í gærkvöldi og fögnuðu er þeir birtust á svölum þess.
Reuter
Olíusalan hafin
SADDAM Hussein, leiðtogi íraks,
opnaði í gær olíuframleiðslu Ir-
aka á heimsmarkað en sl. sex ár
hefur verið í gildi viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna. Saddam
þrýsti á framleiðsluhnapp í oliu-
dælustöðinni i Kirkuk í gær-
morgun en undir kvöld sögðu
Tyrkir að enn hefði engin olía
borist til þeirra eftir olíuleiðslum
frá írak. Irakar hafa gert að
minnsta kosti einn oliusölusamn-
ingur, að sögn SÞ, en ekki er
vitað við hverja.
Friðarverðlauna-
þegar hylltir
NÓBELSVERÐLAUNIN voru af-
hent í gær við hátíðlega athöfn í
Ósló og Stokkhólmi. Karl Gústaf
Svíakonungur XVI afhenti fimm
verðlaun af sex í tónleikahöllinni í
Stokkhólmi. í Ósló voru friðarverð-
laun Nóbels afhent Carlos Belo
biskupi og Jose Ramos Horta
stjórnarandstöðuleiðtoga fyrir bar-
áttu þeirra fyrir sjálfstæði Austur-
Tímor.
Indónesar
með hótanir
Kristin Ástgeirsdóttir, þingmað-
ur Kvennalista, var viðstödd af-
hendingu friðarverðlaunanna í boði
Ramos Hortas ásamt Kristínu Ein-
arsdóttur og Önnu Ólafsdóttur
Björnsson og sagði hún að ríkt hefði
spenna í Ósló frá því að verðlauna-
þegarnir komu þangað á sunnudag.
„Indónesarnir hafa verið með
andlegar ógnanir," sagði Kristín.
„Þeir tóku á móti Austur-Tímorun-
um í fylgdarliði biskupsins úti á
flugvelli, skipuðu þeim að koma
með sér í sendiráð Indónesíu og
enginn veit hvað þar gerðist. Það
hefur verið vakt frá sendiráðinu
allan tímann fyrir utan hótelið, þar
■sem Austur-Tímorarnir búa.“
Það varpaði skugga á afhending-
una að William Vickery, sem fékk
Nóbelsverðlaunin í hagfræði ásamt
C. Lowell Harris, lést af hjarta-
áfalli þremur dögum eftir að til-
kynnt var að hann fengi þau. Vick-
erys var minnst meðan á athöfninni
í Stokkhólmi stóð.
■ Hvöttu til/21
Reuter
CYRIL Ramaphosa, forseti
suður-afríska stjórnlaga-
þingsins, fylgist með er Nel-
son Mandela, forseti landsins,
undirritar nýja sljórnarskrá.
Ný stjóm-
arskrá
tekur gildi
Höfðaborg. Reuter.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, undirritaði í gær nýja
stjórnarskrá landsins, sem bindur
formlega enda á aðskilnaðar-
stefnuna og á að tryggja jafnrétti
kynþáttanna. Stjórnarskráin var
undirrituð í Sharpeville, þar sem
lögreglan drap 69 blökkumenn á
mótmælafundi árið 1960. Voru
þúsundir manna viðstaddar und-
irritunina og fögnuðu henni ák-
aft.
Þá ákvað Sannleiksnefndin svo-
kallaða í Suður-Afríku að náða
Brian Mitchell, einn af illræmd-
ustu lögreglumönnum landsins á
tímum aðskilnaðarstefnunnar, og
talið er að ákvörðunin muni valda
miklu uppnámi meðal blökku-
manna.
Mitchell afplánar 30 ára fang-
elsisdóm, sem hann fékk fyrir að
skipuleggja dráp á ellefu blökku-
mönnum árið 1988. Búist er við
að hann verði leystur úr haldi í
dag. „Þetta er í fyrsta sinn sem
nefndin gefur liðsmanni öryggis-
sveitanna fyrrverandi upp sakir,“
sagði talsmaður nefndarinnar,
sem er undir stjórn Desmonds
Tutus erkibiskups og á að stuðla
að sáttum milli kynþáttanna í
Suður-Afríku.
Páfi
sleppir
jólamessu
Róm. Reuter.
JÓHANNES Páll II páfi mun
ekki syngja messu á jóladag í
ár, að því er sagði í yfirlýsingu
frá Páfagarði í gær.
Páfi gekkst undir botn-
langauppskurð í október sl. og
hafa læknar hans fyrirskipað
honum að hafa hægt um sig.
Páfi mun stjórna messu að
kvöldi aðfangadags og flytja
blessun á jóladag. Hins vegar
mun hann ekki syngja messu
þann dag.