Morgunblaðið - 11.12.1996, Side 8

Morgunblaðið - 11.12.1996, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STEINGRIMUR allaballi gerir nú mikla leit í öllum látrum landsins að formanni Framsóknar sem hvarf af þingi snemma á föstunni klæddur selskinnskápu mikilli. Kaupleiguíbúðir Húsnæðisnefndar Reykjavíkur Vanskil rúmlega tólf milljónir króna VANSKIL á leigugreiðslum fyrir kaupleiguíbúðir á vegum Húsnæðis- nefndar Reykjavíkur nema nú rúm- lega 12 milljónum króna, eða um 67 þúsund krónum á hverja íbúð. Að sögn Guðrúnar Arnadóttur, fram- kvæmdastjóra Húsnæðisnefndar, hafa örfáir leigjendur nýtt sér kaup- réttinn, en íbúum átti að gefast fimm ára umþóttunartími til að ákveða hvort þeir festu kaup á íbúðunum. Að sögn Guðrúnar voru vanskil vegna kaupleiguíbúða 16 milljónir í vor, en í byijun árs var gripið til hertra innheimtuaðgerða. Sumir leigjenda hafa ekki greitt leigu í meira en eitt ár, og eru upphæðimar í sumum tilfellum komnar upp í hundruð þúsunda króna. „Ef fólk lætur sér ekki segjast og heldur áfram að safna skuldum, er ekki um annað að ræða en að bera það út. Húsnæðisnefndin er ákaflega treg til að setja ijölskyldufólk út á götuna en eigi að síður verður að gera fólki ljóst að það getur ekki verið þama án þess að borga leigu. Ég vil samt taka fram að margir standa fullkomlega í skilum." Fáir vilja kaupa Fyrstu kaupleiguíbúðunum var úthlutað í desember 1991. Um þess- ar mundir er því komið að lokum umþóttunartíma fyrstu leigjendanna. Fáir hafa lýst yfír áhuga á kaupum. „Þegar við fórum af stað með þetta gerðum við ráð fyrir að mun stærri hópur mundi kaupa, en við renndum í raun blint í sjóinn með það. Ég held að að sumu leyti finnist fólki það þægilegt að leigja þessar íbúðir. Það borgar ekki skatta og skyldur af íbúðunum, það gerir Reykjavíkur- borg. Öilum er þó gert það ljóst að þeir eru að fara í fimm ára kerfí, enginn verður eilífur augnakarl í íbúð ef hiann ekki kaupir hana.“ í umsjón Húsnæðisnefndar eru bæði almennar og félagslegar kaup- leiguíbúðir. „Almennum kaupleigu- íbúðum hefur fækkað mjög, því sú leiga hefur ekki gefist vel,“ segir Guðrún. „Nú eru eftir innan við tíu. Þær passa ekki fyrir Reykjavíkur- svæðið," segir Guðrún. Leiga langt undir markaðsverði Leiga í félagslegu kaupleiguíbúð- unum er 4,4% af stofnverði á ári. Fyrir 2-3 herbergja íbúð sem kostar sex milljónir króna er hún um 22 þúsund krónur á mánuði. Leiga fyrir samsvarandi íbúð í almenna kaup- leigukerfinu, sem er nálægt mark- aðsverði, er 35.700 krónur. Guðrún segir að í upphafi hafí verið gert ráð fyrir að kaupleiguíbúð- irnar gætu staðið undir sér, en vegna þess að kostnaður við eftirlit, umsjón og viðhald hafi farið langt fram út áætlun, sé nú ljóst a_ð verulegur halli verði á rekstrinum. í nýlegri skýrslu frá Reykjavíkurborg segir að um- gengni um húsnæðið hafi „í mörgum tilfellum verið slæm, svo og ástand íbúða við íbúaskipti, og er svo komið að við nefndinni blasir þó nokkur viðhaldskostnaður sem mun fara vaxandi". Um áramót verður ell- efu kaupleiguíbúðum í viðbót úthlut- að og fleiri eru í byggingu. „Það gæti þó verið að áherslubreyting yrði hjá nefndinni. Það er ekki víst að við viljum auka svo hratt við okkur í kaupleiguíbúðunum, áður en þær sem þegar eru komnar fara að standa undir sér.“ Andlát JON SIGBJORNSSON JÓN Sigbjörnsson, fyrr- verandi deildarstjóri tæknideildar Ríkisút- varpsins, lézt í Landspít- alanum 9. desember s!., 75 ára að aldri. Jón fæddist á Kjart- ansstöðum í Eiðaþinghá 15. maí 1921, sonur hjónanna Sigbjöms Sig- urðssonar bónda og Önnu Þorstínar Sig- urðardóttur. Atta ára að aldri flutti Jón með for- eldrum sínum til Fá- skrúðsfjarðar, en við fermingaraldur til Reykjavíkur. Hann gekk í Héraðsskólann á Laugarvatni í fjög- ur ár og nam síðar útvarpsvirkjun hjá Ríkisútvarpinu, þar sem hann hóf störf haustið 1942. Jón starfaði við tæknideild út- varpsins í 40 ár, þ.e. til ársins 1982, þar af lengi sem forstöðu- maður hennar. Eftir að hann fór frá útvarpinu var hann í hálfu starfi hjá Stofnun Arna Magnússonar í tíu ár, eða til 1992. Fram til sumarsins 1996 var Jón oft kallaður til afleysingastarfa við Ríkisútvarpið. Eftirlifandi eigin- kona Jóns er Vigdís Sverrisdóttir, en þau giftust árið 1946. Böm þeirra eru fjögur, Anna Vigdís, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, Sigurlaug, kennari í Reykjavík, Sverrir, heilsugæzlulækn- ir á Hvolsvelli, og Sigbjörn, bygg- ingaverkfræðingur á Hellu. Mezzoforte í Indónesíu Tekið með kostum og kynjum í Jakarta HLJÓMSVEITIN Mezzoforte er á tón- leikaferðalagi í In- dónesíu og Búlgaríu um þessar mundir. Hljómsveit- in lék á tveimur tónleikum á Jak Jazz tónlistarhátíð- inni í Jakarta um síðustu helgi, þar sem henni var tekið með kostum og kynj- um, og um næstu helgi leik- ur hún á tónleikum í Sofia, höfuðborg Búlgaríu. Þetta er í annað sinn á árinu sem Mezzoforte held- ur í tónleikaför því síðast- liðið vor lék hún í Eist- landi, Lettlandi og Litháen. Með hljómsveitinni í för núna er tökumaður frá Stöð 2 en verið er að vinna að heimildarþætti um hljóm- sveitina sem verður sýndur á næsta ári þegar hljóm- sveitin fagnar 20 ára af- mæli sínu. Slegið var á þráðinn til Jakarta og rætt við Eyþór Gunn- arsson, einn af stofnendum Mezzo- forte, og hann spurður um það sem er á döfinni hjá þessari vinsælu bræðingshljómsveit. Hvernig gengur lífíð fyrir sig í Jakarta? „Við spiluðum í gær og fyrradag flaugardag og sunnudag, innsk. blm.] og erum síðan í fríi hér í tvo daga áður en við höldum til Búlg- aríu. Við komum hingað að kvöldi fímmta desember." Þið eruð ekki í fyrsta sinn að spila í Jakarta? „Nei, þetta er í þriðja sinn sem við spilum hérna. Jak Jazz festival er nú haldið í sjötta sinn. Það kom okkur reyndar mjög á óvart þegar við komum hingað fyrst, árið 1993, hve þekktir við erum. Það kom reyndar algerlega flatt upp á okk- ur að fólk skyldi yfirleitt vita af okkur. Tónleikarnir voru vel sóttir um helgina. Þeir voru á stóru tón- leikasvæði með mörgum sviðum og við vorum eiginlega rúsínan í pylsuendanum því við spiluðum síðastir í hvort sídpti. Hátiðarhald- arar hafa boðið okkur að koma aftur næsta ár og mörg næstu ár ef því er að skipta," sagði Eyþór. Voru aðrir nafntogaðir flytjend- ur á hátíðinni? „Já, þarna var t.a.m. Mike Stern og Eric Marienthal sem spilaði með Chick Corea en annars er meira um bræðingsspilara á þess- ari hátíð. Megnið af efnisskránni okkar var af Monkey Fields diskn- um okkar sem kom út síðastliðið sumar. Monkey Fields er reyndar orðin gömul plata í okkar huga því það er meira en eitt ár síðan við lukum við hana. Smekkur manna á tónlist hér er nokkuð sér- stakur. Þeir vilja hafa allt glaðlegt og hressilegt og bræðingstónlist með þeim formerkjum á upp á pallborðið. Bræðingur þýðir í hug- um margra tónlist frá 1970-1980 en ég vil ekki binda hana við það. í mínum huga er bræðingur það þegar djasstónlistar- menn reyna að skipta um rytma og ef menn____________ eru nógu opnir er hægt að teygja þetta hugtak ansi langt, t.d. með því að taka inn ný áhrif og strauma og stefnur úr danstónl- ist,“ sagði Eyþór. Og svo eruð þið með nýjan gít- arleikara. „Já, Hilmar Jensson spilar með okkur núna vegna þess að Friðrik Karlsson hefur fastráðið sig í sýn- ' ingar á Jesus Christ Superstar í London. Hann er bundinn þar næstu tvo mánuði og má ekki fá fyrir sig varamann fyrr en í janúar á næsta ári. Hilmar „svínvirkar" enda er hann góður gítarleikari. Við vildum ekki fyrir nokkurn mun sleppa þessari ferð en Friðrik er Eyþór Gunnarsson ► Eyþór Gunnarsson, hljóm- borðsleikari Mezzoforte, er fæddur 9. september 1961. Hann hefur starfað sem tónlist- armaður frá því á unglingsár- um en er að mestu sjálfmennt- aður. Hann hefur leikið í mörg- um alþjóðlegum djasshljóm- sveitum, þ.á m. hljómsveit bandarísku söngkonunnar Randy Crawford. Hann hefur kennt í djassdeild tónlistarskóla Félags íslenskra hljómlistar- manna og stjórnað upptökum á hljómplötum innlendra sem er- lendra tónlistarmanna. Eyþór varð stúdent frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1981. Hann er í sambúð með Ellenu Krisljáns- dóttur söngkonu og eiga þau þrjú börn. 20 ára afmæl- isþáttur um Mezzoforte eftir sem áður meðlimur í Mezzo- forte.“ Hverju skiptir það ykkur að spiia þarna austur í Asíu? „Það heldur nafni okkar á lofti hér og gefur okkur dálitla kynn- ingu. Við erum í sjónvarpsviðtölum og á blaðamannafundum. En fyrst og fremst er afkaplega gaman að koma hingað. Reyndar átti platan okkar að koma á markað hér í nóvember en það hefur eitthvað dregist. Okkur skilst að hún sé alveg að berast í verslanir. Það hefur verið sæmileg sala í okkar plötum hér í landi en þess ber að geta að hér er mikil sjóræningja- starfsemi og það er vandamál sem er mikið viðloðandi Asíulöndin. Sagt er að upp undir helmingurinn af plötusölunni í Indónesíu sé ólög- legar kópíur. Plötur eru reyndar mjög ódýrar hérna þannig að við erum ekkert að maka krókinn á plötusölunni hérna,“ sagði Eyþór. Mezzoforte stendur á tímamót- um á næsta ári. Hvernig verður þess minnst að hljómsveitin hefur þá starfað í 20 ár? „Hugmyndin er sú að gera 20 ára afmælisþátt Mezzoforte og nota efni úr þessari tónleikaferð ásamt upptökum frá Borgarleikhúsinu síðastliðið haust þar sem við kynntum Monkey Fields. Stöð 2 ætlar að gera heimildar- myndina," sagði Eyþór. Eruð þið með nýtt efni á prjón- unum? „Nei, við erum ekkert farnir að vinna að nýju efni. Ég á þó ekki von á því að Monkey Fields verði svanasöngur sveitarinnar og á frekar von á því að við höldum áfram að koma saman af og til. Það verður reyndar æ erfiðara en það er svo margt sem við getum gert með þessari hljómsveit sem við getum ekki gert með öðrum. Það togar því alltaf í okkur að halda áfram,“ sagði Eyþór.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.