Morgunblaðið - 11.12.1996, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Aðventu-
kvöld í
Svalbarðs-
kirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Sval-
barðskirkju á Svalbarðsströnd
annað kvöld, fimmtudagskvöldið
12. desember næstkomandi, og
hefst það kl. 20.30.
Dagskráin er miðuð við að allir
aldurshópar geti notið stundarinn-
ar og taka börn og unglingar virk-
an þátt ásamt kór kirkjunnar.
Helgileikur
í Valsárskóla
Nemendur Valsárskóla ásamt
kirkjukórnum flytja helgileik.
Barnakór syngur nokkur jólalög
og yngstu börnin flytja helgileik.
Barnakór syngur nokkur jólalög
og yngstu börnin syngja hreyfi-
söngva. Tónlistarnemendur úr
Tónlistarskóla Eyjafjarðar leika á
hljóðfæri og lesin verður jólasaga.
Sérstakur gestur aðventu-
kvöldsins verður Þorsteinn Péturs-
son tollfulltrúi á Akureyri sem
þekktur er fyrir starf sitt með
börnum og unglingum og mun
hann spjalla við kirkjugesti um
aðventuna og jólin. Aðventukvöld-
inu lýkur með ljósahelgileik þar
sem öll börnin í kirkjunni fá ljós
til að halda á.
Morgunblaðið/Kristján
Matarbúr á
Akureyri
JÓLASÖFNUN Hjálparstofn-
unar kirkjunnar er hafin und-
ir yfirskriftinni Barátta gegn
örbirgð.
Hjálparstofnunin hefur
starfrækt matarbúr í Reykja-
vík síðustu árin í samvinnu
við Rauða kross Íslands.
Fyrir tveimur árum var
hliðstætt matarbúr opnað á
Akureyri og verður það einn-
ig gert nú fyrir jólin.
Umboðsmaður Hjálpar-
stofnunarinnar á Akureyri er
Jón Oddgeir Guðmundsson,
en prestarnir taka við um-
sóknum um aðstoð.
Gott
skíðafæri
MITT í jólaönnunum gáfu fjöl-
margir Akureyrar á ýmsum
aldri sér tíma til að bregða sér
á skíði og snjóbretti í Hlíðar-
fjalli um helgina. Tvær lyftur
voru opnar, við Hóla- og Hjalla-
braut, en enn er ekki kominn
nægur snjór við lyfturnar ofar
í fjallinu. Þokkalegasta skíða-
færi er nú í Hlíðarfjalli.
Unnið að viðgerð á Rifsnesi SH eftir strandið við Grímsey
Skemmdir mun meiri
en áætlað var í fyrstu
SKEMMDIR á Rifsnesi SH, 230
tonna stálskipi frá Rifi, sem strand-
aði við Grenivík í Grímsey í október
sl., eru mun meiri en talið var í
fyrstu. Unnið er að viðgerð hjá
Slippstöðinni hf. á Akureyri og var
stefnt að því að ljúka þeim um síð-
ustu mánaðamót. Nú er hins vegar
unnið að því ljúka viðgerð á skipinu
fyrir jól.
Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar, segir þetta
mun stærra verk en menn ráðgerðu
við skoðun eftir strandið og m.a.
hafí þurft að skipta um 30% meira
af stáli í skipinu en upphaflega var
áætlað. Einnig hafi vinna við frárif
inni í skipinu verið mun þyngri í
vöfum en talið var. Miklar skemmd-
ir urðu á botni Rifsnessins, bæði
bakborðs- og stjórnborðsmegin.
Gæti fleira
komið í ljós
Skipið lamdist til í fjörunni í 12
klukkutíma eftir strandið og urðu
einnig skemmdir á veltibretti, ut-
análiggjandi kælum, skrúfu og
stýri, auk þess sem öll botnstykki
eyðilögðust. Þá kom leki að skipinu
og flæddi sjór m.a. í vélarrúm og
hráolía lak úr tönkum á að minnsta
kosti tveimur stöðum.
Ingi segir að þó stefnt sé að því
að ljúka viðgerð á skipinu á þeim
tveimur vikum sem eftir eru til jóla,
sé óvíst að það gangi eftir. „Það
gæti Iíka ýmislegt átt eftir að koma
í ljós á lokasprettinum," sagði Ingi.
Fimm manns voru í áhöfn Rifs-
nessins er það strandaði og sakaði
þá ekki. Skipið náðist á flot eftir
12 klukkutíma, með samstilltu
átaki þriggja skipa, Margrétar EA,
Dagfara GK og Sæíjónsins SU, auk
þess sem heimabáturinn Þorleifur
EA aðstoðaði við að koma taugum
á milli skipa. Rifsnesið var véla-
vana eftir strandið og kom togar-
inn Margrét með skipið til Akur-
eyrar.
Fjarvistir í skólum
Margir liggja
heima með flensu
FJÖLMARGIR Akureyringar
liggja nú í flensu og hafa margir
leitað til Heilsugæslustöðvarinnar
á Akureyri af þeim sökum síðustu
daga.
Friðrik Vagn Guðjónsson, yfir-
læknir Heilsugæslustöðvarinnar á
Akureyri, segir að ekki sé um
svæsna flensu að ræða og enn
hafa ekki fundist stofnar af þeirri
inflúensu sem bólusett var fyrir
fyrr í haust. „Við höfum kallað
þetta flensubróður, einkennin eru
á allan hátt lík flensu, höfuðverk-
ur, beinverkir, hár hiti og almenn
kvefeinkenni en það eru líka dæmi
um magaverki," segir Friðrik
Vagn.
Leggst einkum á yngra fólk
Veikin leggst einkum á yngra
fólk, börn og unglinga og eru
dæmi um miklar fjarvistir í bæði
leik- og grunnskólum vegna henn-
ar. „Það hefur verið mikið um
þessa flensu hér í bænum að undn-
aförnu og hún virðist fara vax-
andi, það hefur verið mun meira
að gera hér á heilsugæslustöðinni
í þessari viku en þeirri síðustu,
margir hringja og leita ráða,“ seg-
ir Friðrik Vagn, en gömlu góðu
húsráðin segir hann enn í fullu
gildi, að fara vel með sig, drekka
heita drykki og hafa trefil um
hálsinn. Flensan gengur oftast
yfir á 3-5 dögum.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Nýblómabúð
í Ólafsfirði
BLÓMASKÚRINN er ný blóma-
búð sem opnuð hefur verið í Ólafs-
firði, en hana eiga hjónin Jónína
Símonardóttir og Vignir Aðal-
geirsson. Jónína sagði að rík þörf
væri á að auka þjónustuna og að
samkeppni væri alltaf af hinu
góða. Viðtökurnar hafa verið góð-
ar og var Jónína bjartsýn á fram-
tíðina, en á myndinni er hún í
nýju búðinni.
Morgunblaðið/Kristján
ÞORSTEINN Pétursson, félagsforingi Skátafélagsins Klakks,
t.v og Gunnar Larsen, tæknistjóri ÚA, handsala verksamninginn
við hjallana á Krossanesklöppum.
*
Utgerðarfélag Akureyringa hf. hættir
skreiðarverkun á Akureyri
Skátar rífa hjall-
ana og fá efnið
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. og Skátafélagið Klakkur hafa
gert með sér verksamning, sem
undirritaður var í vikunni. Skátafé-
lagið hefur tekið að sér að hreinsa
hjallastæði ÚA á Krossanesklöpp-
um, rífa uppistandandi fiskihjalla,
fjarlægja allt hjallaefni og rusl á
svæðinu. Sem greiðslu fær Skátafé-
lagið allt það hjallaefni sem fjar-
lægt verður.
Þorsteinn Pétursson, félagsfor-
ingi Skátafélagsins Klakks, segir
að þótt skátar þurfi að leggja fram
töluverða vinnu, sé hér um stórgjöf
að ræða frá ÚA. Hann benti á sem
dæmi að á síðasta iandsmóti skáta
hafi verið notaðar 1.200 trönur á
svæðinu og kostaði hver þeirra 300
krónur. í hjöllunum á Krossanes-
klöppum eru einhverjar þúsundir
af trönum að sögn Þorsteins.
Hann segir að hafist verði handa
við að hreinsa svæðið næsta vor.
Stærstur hluti hjallaefnisins verður
seldur og ágóðinn notaður í nýbygg-
ingu Valhallar, nýs útileguskála
félagsins í landi Veigastaða gegnt
Akureyri. Á næsta ári eru 80 ár
frá því skátastarf hófst á Akureyri
og vonast Þorsteinn til að hægt
verði að taka nýju Valhöll í notkun
á afmælisárinu. Samningurinn við
ÚA nú sé því mikilvægur og auki
enn frekar líkurnar á að það gangi
eftir.
ÚA hefur eignast meirihluta í
Laugafiski hf. í Reykjadal og því
lagt niður hefðbundna skreiðar-
verkun í hjöllum á Akureyri. Allt
hráefni sem til fellur hjá ÚA fer
nú til Laugafisks.