Morgunblaðið - 11.12.1996, Síða 17

Morgunblaðið - 11.12.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 17 LANDIÐ Stykkishólmur Nýr og öflugur slökkvibíll Stykkishólmi - í haust var stofnað félagið Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis. Stofnendur eru Stykkishólmsbær og Helgafells- sveit. Hlutverk félagsins er að sjá um brunavarnir í þessum sveitarfé- lögum. Stykkishólsbær er 94% eignaraðili og Helgafellssveit 6% Félagið tók yfir allar eignir Slökkviliðs Stykkishólms og voru þær metnar á 10 milljónir króna. Eitt fyrsta verkefni eftir stofnun félagsins var að huga að endurnýjun á slökkvibíi. Fyrir var slökkvibíll af Bedford-gerð sem kom hingað 1971, en á þeim tíma voru fluttir inn margir slíkir sem enn eru í notk- un víða um land. Þá lá ljóst fyrir að sá bíll gat ekki þjónað svona stóru svæði. Siökkviliðsstjóri, Þorbergur Bær- ingsson, kynnti sér brunavarnir hjá öðrum sveitarfélögum sem búa við svipaðar aðstæður og hér eru. I framhaldi af þeirir könnun fór hann til Þýskalands og festi kaup á slökkvibifreið. Nýi slökkvibíllinn kom svo til Stykkishólms 5. desem- ber sl. Bíllinn er af gerðinni LF 15/12 Mercedes 1222, 4X4 smíðaður 1984. Bíllinn er með tvöföldu stýris- húsi sem rúmar 7 manns í sæti auk ökumanns. Bíllinn er búin 1200 1 vatnstanki og dælu sem dælir allt að 3200 1/mín. með þriggja metra soghæð. Skápar rúma allan venju- legan útkallsbúnað samkvæmt DIN staðli, sem er þýskur gæðastaðall. Auk þess var keyptur ýmiss konar aukabúnaður. Bifreiðin er skoðuð og tekin út af þýska öryggiseftirlitinu. Hún kostaði hingað komin með öllum búnaði 8,5 millj. kr. Með tilkomu bílsins er stigið mikið framfaraspor í brunavörnum og hann gjörbreytir aðstæðum hjá slökkviliðinu. Gamli bíllinn er löngu búinn að skila sínu hlutverki og nýr slökkvibíll búinn að vera á óskalistanum í nokkur ár. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason BRUNAVARNIR Stykkishólms og nágrennis hafa keypt nýja slökkvi- bifreið af Bens-gerð. Myndin sýnir nýja slökkvibílinn og félaga í slökkviliðinu sem eru mjög ánægðir með nýja bílinn. Slökkviðliðsstjór- inn, Þorbergur Bæringsson, er lengst til vinstri á myndinni. Morgunblaðið/Silli FRÁ afhendingu viður- kenningarinnar. Fremri röð f.v.: Lilja Sæmundsdóttir, Þorgerður Þórðardóttir og Hólmfríður Jónsdóttir. Aft- ari röð f.v.: Gunnar Rafn Jónsson, yfirlæknir, Aldís Friðriksdóttir, yfirhjúkr- unarforsljóri og Friðfinnur Hermannson, forstjóri. Húsavík Sjúkrahúsið fær viður- kenningu Húsavík - Á ALÞJÓÐADEGI fatlaðra var Sambýlinu Sól- brekku 28 á Húsavík, sem starfað hefur í átta ár, veitt viðurkenning fyrir sérstakan og velþeginn stuðning við starf þess. í ár afhenti forstöðumaður heimilisins, Lilja Sæmundsdótt- ir, forstjóra Sjúkrahúss Þingey- inga, Friðfinni Hermannssyni, þessa viðurkenningu fyrir að hafa veitt fötluðu heimilisfólki vinnu, en það hefur sjúkrahúsið gert undanfarin ár; vinnan væri þessu fólki mjög mikils virði, ekki síður en öðrum, sagði Lilja. Við móttöku viðurkenningar- innar sagði Friðfinnur að þetta fatlaða fólk hefði ávallt sýnt samviskusemi í starfi og verið góður starfskraftur. Morgunblaðið/Davíð Pétursson ÞAÐ er æ vinsælla, og hluti af jólahaldinu, að fjölskyldan fari saman út í skóg, velji sér jólatré og höggvi sjálf. Velja sér jólatré í Skorradal Grund - Skógrækt ríkisins í Hvammi í Skorradal selur fyrir þessi jól á fjórða þúsund jól- atrjáa af ýmsum stærðum, einn- ig eru nokkur hundruð trjáa seld í Dagverðarnesi sem er næsti bær við Hvamm. Daglega berast fréttir af því að kveikt sé á stórum jólatrjám víðsvegar um land. Stærst þeirra er sennilega jólatréð á Austurvelli, sem Oslóarborg færir Reykjavíkurborg. Til skamms tíma var ekki mögulegt að fella stór íslensk jólatré þar sem enginn tímdi að fella þau fáu sem til voru. En nú eru í auknum mæli höggvin stór íslensk jólatré. Fyrir þessi jól er búið að fella um 100 slík jólatré í Skorradal og munu þau, ljósum prýdd, skreyta torg bæjarfélaga frá Selfossi til Isafjarðar. Á fjórða þúsund trjáa Einnig sendir Skógræktar- stöðin í Hvammi frá sér, á hinn almenna jólatrjáamarkað, á fjórða þúsund trjáa af ýmsum tegundum, s.s. rauðgreni, blá- greni, stafafuru og fjallaþin, en þessi stöð er langstærsti fram- leiðandi jólatrjáa á landinu. Það er æ vinsælla, og hluti af jólahaldinu að fjölskyldan fari saman út í skóg, velji sér jólatré og höggvi sjálf. Á dögun- um komu í Skorradal starfs- menn Marels með sínar fjöl- skyldur, alls 120-130 manns, völdu sér jólatré og felldu í Sel- skógi. Jólasveinn birtist milli trjánna, til skemmtunar fyrir unga fólkið, söng og spjallaði. Að afloknu skógarhögginu hressti fólkið sig í skógarjaðrin- um á kaffisopa og piparkökum, krakkarnir fengu sætindi við sitt hæfi. Næst var haldið í Skóg- ræktarstöðina í Hvammi og þar hressti fólkið sig á heitu súkkul- aði, kaffi og meðlæti. En ekki voru allir búnir að fá nóg því þeir gönguglöðu fóru inn að Stálpastöðum undir leið- sögn skógarvarðarins, Ágústs Ármannssonar, og nutu vetr- arfegurðar barrskógarins með ekta jólasnjó á greinunum. Á meðan hópurinn frá Marel var hjá Skógræktinni í Hvammi var um 40 manna fjölskyldu- hópur frá Sól hf. í Dagverðar- nesi í sömu erindagjörðum. Hóparnir sneru síðan til síns heima á höfuðborgarsvæðinu, sennilega allir sannfærðir um að þeir hafi fundið fallegasta tré skógarins til að skreyta og njóta á hinni helgu hátíð sem í hönd fer. Trúlega láta þeir sjá sig aftur að ári. Starfshópur um ráðstöfun á eign- um gömlu húsmæðraskólanna MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur stofnað þriggja manna starfshóp sem á að taka til umfjöll- unar álitamál sem upp kunna að koma vegna ráðstöfunar og með- ferðar á eignum gömlu húsmæðra- skólanna. í starfshópnum eiga sæti Drífa Hjartardóttir bóndi, til- nefnd af Kvenfélagasambandi Is- lands, Sigrún Magnúsdóttir borg- arfulltrúi, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og Sigurð- ur Helgason, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu sem er formaður hópsins. Starfshópurinn er stofnaður að tillögu nefndar sem hefur það hlutverk að meta hvernig best mætti varðveita arf og eignir gömlu húsmæðraskólanna í land- inu. Sú nefnd var skipuð í kjölfar þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi 24. febrúar 1995 og lauk hún störfum í október síð- astliðnum. í niðurstöðum nefnd- arinnar kemur meðal annars frarn að hún telji að starfsemi húsmæð- raskólanna hafi haft mikið menn- ingarlegt og félagslegt gildi fyrir samfélagið, segir í fréttatilkynn- ingu. Starfshópurinn á einnig að fylgja etir ýmsum öðrum tillögum nefndarinnar. Til dæmis á hann að hlutast til urn að listaverk og aðrir munir sem tilheyrðu skólun- um verði merktir vel og skráðir. Hann á að stuðla að því að áfram verði safnað gögnum er varða sögu og eigur skólanna og að haf- ist verði handa við að tölvusetja nemendaskrár þannig að auðveld- ara verði að gefa upplýsignar um námslok og útvega önnur gögn sem fyrrverandi nemendur þurfa á að halda. Starfshópurinn mun einnig fylgja málefnum einstakra hús- nræðraskóla sérstaklega eftir. Þegar hefur verið ráðstafað eig- um sjö húsmæðraskóla af þeim níu sem starfandi voru og því er talið að ekki sé þörf á sérstökum aðgerðum vegna þeirra skóla. Hins vegar á starfshópurinn að fjalla sérstaklega um þá þætti sem eftir er að ganga frá varð- andi tvo skóla, þ.e. Varmaland í Borgarfirði og Hússtjórnarskól- ann á Blönduósi. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Ljós tendruð á jólatré Vogum - Ljós voru tendruð á jólatré á Kirkjuholti í Vogum á sunnudag. Fjöldi fólks var saman konún og sungu viðstaddir jóla- lög undir forystu félaga úr kirkjukórnum. Tveir jólasveinar komu síðan og skennntu krökk- unuin með leik og söng.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.