Morgunblaðið - 11.12.1996, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
ERLENT
MORGU NBLAÐIÐ
Áætlun Bandar í kj astj órnar um að losa si g við plútonbirgðir gagnrýnd
Notað sem eldsneyti
eða steypt mn í gler
Washington. Reuter.
BANDARIKJASTJORN tilkynnti í
fyrradag, að hún ætiaði að losa sig
við 50 tonn af banvænu plútoni.
Verður það ýmist steypt inn í gler
eða notað sem eldsneyti í kjarnorku-
verum. Er hér um að ræða birgðir,
sem safnað var á kaldastríðsárunum,
en talið er, að það taki 20 ár að
koma öllu þessu magni fyrir. Ýmsir
hafa gagnrýnt harðlega áætlunina
um að nota plúton sem eldsneyti og
telja, að það geti aukið hættuna á,
að það komist í annarra hendur.
„í fimm áratugi hafa Bandaríkin
safnað miklu af plútoni, efniviðnum
í kjamorkusprengjur, en nú verður
því eytt,“ sagði Hazel O’Leaiy orku-
málaráðherra á blaðamannafundi í
fyrradag. „Við viljum, að öll heims-
byggðin viti, að þessu verður eytt og
þannig búið um hnútana, að um-
frampiúton verði aldrei notað í kjarn-
orkusprengjur.” Aðeins nokkur pund
af plútoni þarf í öfluga sprengju.
Fyrirhugað er steypa gler eða
keramík utan um hluta af plútoninu
og koma því síðan á öruggan stað.
Hinn hlutinn verður notaður ásamt
venjulegu eldsneyti í kjarnorkuverum
þótt gjallið, sem eftir verður, verði
raunar hættulegra en ella. Því yrði
síðan komið fyrir á góðum stað þótt
hann sé raunar ófundinn enn í
Bandaríkjunum.
í sumum löndum er plúton endur-
unnið úr notuðu eldsneyti en það
verður ekki leyft í Bandaríkjunum
til að koma í veg fyrir, að það geti
komist í hendur einhverra annarra
og síðan verið notað við smíði kjarn-
orkusprengju.
Skorað á Clinton
Þessi áætlun um að nota hluta af
plútoninu sem eldsneyti auk úrans
hefur verið gagnrýnd og baráttu-
menn fyrir auknu eftirliti með
kjarnavopnum og sumir þingmenn
segja, að hún geti leitt til þess, að
farið verði að líta á plúton sem ákjós-
anlegt eldsneyti í kjarnorkuverum.
Það gangi aftur þvert á stefnu Clin-
ton-stjórnarinnar um að koma í veg
fyrir útbreiðslu þessa hættulega efn-
is. Hafa átta þingmenn demókrata á
Bandaríkjaþingi skorað á Bill Clinton
að hætta við áætlunina.
Aijun Makhijani, forstöðumaður
orku- og umhverfisrannsóknastofn-
unarinnar, telur, að áætlunin muni
ýta undir Rússa að nota plúton í sín-
um verum en kjarnorkustofnunin,
samtök bandarískra kjarnorkuvera,
er aftur á móti hlynnt henni.
Ráðstefna Heimsviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Singapore
Fijáls viðskipti í
upplýsingaiðnaði?
Singapore. Reuter.
SAMNINGUR um frelsi í viðskipt-
um með upplýsingatækni og -bún-
að frá og með aldamótum virtist
vera innan seilingar í gær á ráð-
stefnu Heimsviðskiptastofnunar-
innar, WTO, í Singapore. Ymis
vestræn ríki hafa lagt hart að
þróunarríkjunum að uppræta
barnaþrælkun og bæta aðbúnað
verkafólks en talsmenn þeirra
segja, að þau hafi ekki efni á skjót-
um breytingum auk þess sem þessi
mál eigi að heyra undir Alþjóða-
vinnumálastofnunina, -------------
ÍLO, en ekki Heim- Ddlt Um bama
sviðskiptastofnunma.
að þessi mál ætti raunar að ræða
í Genf en ekki í Singapore en
Bandaríkjamenn leggja mikla
áherslu á samning um upplýsinga-
iðnaðinn og segja, að hann muni
flýta fyrir auknu fijálsræði á öðr-
um sviðum, til dæmis í síma- og
fjarskiptamálum.
Fulltrúar vestrænna ríkja hafa
skorað á þróunarríkin að vinna
gegn barnaþrælkun og bæta að-
búnað verkafólks en talið er, að
um 250 milljónir barna stundi
---------- erfiðisvinnu fyrir lítil
laun. Talsmenn þró-
, .. su , unarríkjanna vísa
Fulltrúar Banda- prEGlkUll Og HObÚn- þessum áskorunum á
ríkjanna, Evrópusam- að VerkafÓlks í þrÓ- buS °g segja, að það,
bandsins, ESB, og nnarnkinnnm sem vaki fyrir vest-
Japans áttu í viðræð- uuaumjuuum rænum ríkjum, sé að
um sín í milli í allan ““““““vernda sinn eigin iðn-
að. Þróunarríkin og þegnar
þeirra hafi ekki efni á skjótum
umskiptum.
Aðild Kínverja bíður
Þijátíu ríki bíða þess nú að fá
aðild að Heimsviðskiptastofnun-
inni, þar á meðal Rússland og
Kína. Búast Rússar við að fá aðild
fyrir lok næsta árs en verr gengur
með Kínveija. Þeir vilja komast
inn með sömu hagstæðu skilmál-
unum og þróunarríkin en Banda-
ríkjamenn segja, að kínverskt
efnahagslíf sé allt of stórt til að
það eigi við.
gærdag um fyrirhugaðan samning
um frelsi í viðskiptum með upplýs-
ingatækni og ætluðu síðan að
ieggja hann fyrir önnur Asíuríki.
Aætlað er, að upplýsingaiðnaður-
inn velti rúmlega 40.000 milljörð-
um ísl. kr. árlega.
Asíuríkin treg
Vonast er til, að samningurinn
verði í höfn á föstudag en fulltrú-
ar Malasíu og ýmissa annarra
Asíuríkja eru þó dálítið tregir í
taumi og telja, að fullsnemmt sé
að gefa viðskiptin fijáls um alda-
mótin. Sagði malasíski fulltrúinn,
Reuter
ÞESSI fimm ára gamla stúlka, Pooja, vinnur við að safna sam-
an pappír og fataleppum á götum Kalkútta á Indlandi. Er það
síðan endurunnið en daglaunin hennar Pooju geta í besta falli
orðið 20 kr. Talið er, að um 250 milljónir barna stundi erfiðis-
vinnu fyrir sáralítil laun.
NATO reynir að telja
Milosevic hughvarf
Belgrad, Brussel. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
sögðust í gær harma þá ákvörðun
stjórnar Slobodans Milosevic Serb-
íuforseta að ógilda úrslit bæjar-
stjórnarkosninga í síðasta mánuði
og hvöttu hann til þess að taka
hana til baka. Elisabeth Rehn,
mannréttindafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna í ríkjum fyrrverandi Júgó-
slavíu, lýsti í gær þungum áhyggj-
um af þróun mála í Belgrad og
hvatti forsetann til þess að leyfa
fjölmiðlum að starfa óheftum og
tryggja mótmælendum, sem hand-
teknir hefðu verið að undanförnu,
þau lágmarksréttindi að fá að tala
við lögmenn.
„Það vekur forundran, að Serbíu-
stjórn hefur skellt skollaeyrum við
kröfum þjóða heims um að hún sýni
lýðræðislegum vinnubrögðum viðhlít-
andi virðingu," sagði í yfirlýsingu
NATO.
í yfirlýsingunni var serbnesku
stjórnarandstöðunni hrósað fyrir að
grípa ekki til ofbeldis í mótmælum
sínum gegn Milosevic, sem fram
fóru 23 daginn í röð í gær. Um
miðjan dag gengu rúmlega 30.000
stúdentar um götur Belgrad og á
annað hundrað þúsund manns
gengu síðar um daginn í göngu
stjórnarandstöðusamtakanna
Zajedno. Stúdentarnir staðnæmd-
ust við þinghúsið þar sem júgóslav-
neska sambandsþingið kom saman
í fyrsta sinn eftir bæjarstjórnar-
kosningarnar.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær, að Milosevic ætti það á hættu
að einangrast á alþjóðavettvangi
virti hann lýðræðislegar leikreglur
að vettugi. „Serbar eiga rétt á því
sama og nágrannar þeirra í Mið-
Evrópu: fijálsum kosningum, frjáls-
um fjölmiðlum og frjálsu efnahags-
lífi. Virði Milosevic vilja þjóðar
sinnar mun Serbía njóta viðurkenn-
ingar og aðstoðar sem hún þarf á
að halda. Kjósi hann hins vegar að
stjórna landinu sem einræðisríki
verður það einvörðungu til þess að
auka á einangrun hans og þjáningar
borgaranna," sagði Christopher.
Stjórnarandstæðingar töpuðu í
gær síðustu orrustunni í stríði þeirra
við að fá dómstóla til að hnekkja
ógildingu kosningaúrslitanna. Vísaði
hæstiréttur sambandsríkisins Júgó-
slavíu frá ósk þeirra þar að lútandi
en áður hafði hæstiréttur Serbíu
staðfest ákvörðun Milosevic.
Þrýst á
Simitis
FJÖLMIÐL-
AR í Grikk-
landi deildu
hart á Costas
Simitis for-
sætisráðherra
í gær fyrir að
stöðva ekki
aðgerðir
bænda sem
hafa lamað
umferð á vegum og járnbraut-
um í nær tvær vikur. Bændur
krefjast hærri niðurgreiðslna
og lægra bensínverðs. Læknar,
kennarar og opinberir starfs-
menn mótmæla einnig ákaft
fyrirhuguðum niðurskurði á
opinberum útgjöldum.
Mannrétt-
indabrot látin
viðgangast
ALEXANDER Petrov, talsmað-
ur bandarísku mannréttinda-
samtakanna Human Rights
Watch/Helsinki, sagði í gær að
vestræn ríki legðu ekki nægi-
iega áherslu á að efla mannrétt-
indi í fyrrverandi Sovétríkjum.
Hann benti á að Rússland hefði
m.a. fengið aðild að Evrópuráð-
inu þótt rússneska hernum væri
þá enn beitt af fullum krafti
gegn Tsjetsjenum.
Herskáir
múslimar
handteknir
FRANSKA lögreglan handtók
snemma í gærmorgun 15 liðs-
menn í samtökum herskárra
múslima í París sem taldir eru
hafa átt aðild að sprengjutil-
ræði í járnbrautarlest fyrir
viku. Fjórir létust í tilræðinu.
Mótorhjóia-
gengienn á
vígaslóð
TALIN var hætta á því að blóð-
ug átök væru að hefjast á ný
milli norrænna mótorhjóla-
gengja er skotið var á liðsmann
eins þeirra í gær. Maðurinn,
sem er 26 ára og í samtökunum
Bandidos, var ekki lengur í lífs-
hættu, að sögn lögreglu. Þrír
félagar úr Vítisenglum, sem
talið er að hafi verið að verki,
voru handteknir í Álaborg.
Ný stjórn á
Nýja-Sjálandi
ÞJÓÐARFLOKKURINN á
Nýja-Sjálandi, sem er hægri-
sinnaður, verður áfram við völd
þrátt fyrir kosningaósigur fyrir
tveim mánuðum. Maóríinn
Winston Peters, sem er í odda-
aðstöðu, ákvað í gær að taka
boði um að verða fjármálaráð-
herra og aðstoðarforsætisráð-
herra og hafna samstarfi við
vinstriflokkana.
Andófsmaður
höfðar mál
KÍNVERSKi andófsmaðurinn
Liu Xiaobo hefur ákveðið að
höfða mál á hendur yfirvöldum
í Peking en þau dæmdu hann
í september í þriggja ára vist
í þrælkunarbúðum án þess að
láta rétta í máli hans. Að sögn
eiginkonu Lius hefur dómstóll
samþykkt að taka málið fyrir.
Simitis