Morgunblaðið - 11.12.1996, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 21
Friðarverðlaun Nóbels veitt Carlos Belo og Jose Ramos Horta í Osló
Hvöttu til viðræðna um
framtíð Austur-Tímor
Statoil
leitar við
A-Timor
ANTONIO Guterres, forsætis-
ráðherra Portúgals, sagði í
gær, að stjórn sín myndi senda
formlega kvörtun til Samein-
uðu þjóðanna vegna þess, að
norska ríkisolíufélagið Statoil
hefur hafið olíuleit við eyna
Timor en Indónesar lögðu und-
ir sig austurhluta eyjarinnar
1975. Kai Nielsen, upplýsinga-
fulltrúi Statoil, vísaði gagnrýni
Guterres á bug og sagði, að
fyrirtækið starfaði aðeins á
viðskiptagrundvelli.
CARLOS Belo biskup og stjórnar-
andstæðingurinn Jose Ramos Horta,
sem báðir hafa barist fyrir mannrétt-
indum í Austur-Tímor, tóku í gær
við friðarverðlaunum Nóbels í Osló
að viðstöddum nokkur hundruð
manns, þar á meðal Haraldi Noregs-
konungi. Hvöttu verðlaunahafamir
til þess að gengið yrði til viðræðna
við stjórn Indónesíu um framtíð
Austur-Tímor.
Francis Sejersted, formaður Nób-
elsnefndarinnar, afhenti Belo og
Horta verðlaunin í ráðhúsi höfuð-
borgar Noregs og sagði að þau væru
veitt fyrir „tilraunir þeirra til að finna
réttláta og friðsamlega lausn á bar-
áttunni, sem staðið hefur í 20 ár á
Austur-Tímor“.
Skorinorður biskup
Belo, sem er biskup rómversk-
katólsku kirkjunnar, flutti ávarp við
afhendinguna og sagði að íbúar
Austur-Timor vildu frið og að virðing
væri borin fyrir mannréttindum.
„Það er löngu tímabært að þaggað
sé niður i byssum styijaldar á Aust-
ur-Tímor í eitt skipti fyrir öll,“ sagði
Belo. „Það er löngu tímabært að líf
íbúa fóstuijarðar minnar fyllist kyrrð
á ný.“
Kristín Ástgeirsdóttir, þingmaður
Kvennalista, sem var viðstödd at-
höfnina í Ósló ásamt Kristínu Einars-
dóttur og Önnu Ólafsdóttur Björns-
son, fyrrverandi þingmönnum flokks-
ins, í boði Ramos Horta, sagði að
Belo hefði verið afdráttarlausari í
orðum sínum, en búist hefði verið við.
„Menn höfðu óttast að hann þyrði
lítið að segja," sagði Kristín Ást-
geirsdóttir. „Hann er undir miklum
þrýstingi frá indónesískum stjórn-
völdum og átti yfir höfði sér að fá
ekki að fara heim aftur. En hann
sagði býsna margt, talaði um erfitt
ástand og kúgun síns fólks, pólitíska
fanga og önnur'viðkvæm mál.“
Rarnos Horta skorar
á þjóðir heims
Ramos Horta skoraði á samfélag
þjóða að hjálpa Austur-Tímor að
öðlast sjálfstæði og nefndi sérstak-
lega Bandaríkin, Evrópusambandið
og Samtök Suðaustur-Ásíuríkja
„Stjórn Bandaríkjanna er eina
stórveldið, sem hefur gripið til raun-
verulegra aðgerða til að ýta undir
breytingar í Indónesíu og Austur-
Tímor," sagði Horta. „Ég færi Clin-
ton Bandaríkjaforseta hér sérstakar
þakkir fyrir aðgerðir hans fyrir Aust-
ur-Tímor og skora á hann að beita
kröftum sínum og samhug til að
Flóttamenn
fela si g í
skógum
TALSMENN Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna
sögðu í gær að um 10.000
rúandískir flóttamenn hefðu
yfirgefið búðir sínar í Tansa-
níu á sunnudag og fælu sig
nú í skóglendi til að komast
hjá því að hverfa aftur heim.
Aður var fullyrt að um 23.000
mans væri að ræða en talan
var síðar leiðrétt. Um 540.000
Rúandamenn eru í Tansaníu
en þarlend stjórnvöld hafa
ákveðið að þeir verði allir
horfnir á braut fyrir áramót.
Orðrómur var á kreiki um að
tansanískir hermenn væru á
leið til búðanna til að tryggja
að fólkið færi en um 3.500
manns hafa verið fluttir heim
í mánuðinum.
Ný stjórn í
Litháen
NÝ ríkisstjórn hægrimanna í
Litháen tók við völdum í gær
en að henni standa Föður-
landssamband Vytautas
Landsbergis, sem vann mikinn
sigur í kosningunum fyrr í
mánuðinum, og kristilegir
demókratar. Eitt helsta verk
stjómarinnar verður að beijast
fyrir umbótum í efnahagslíf-
inu. Hefur hún heitið að
hækka lágmarkslaun og eftir-
laun en ætlar jafnframt að
lækka skatta á fyrirtækjum
og virðisaukaskatt.
Scanfoto Reuter
KRISTÍN Einarsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson og JOSE Ramos Horta og Carlos Belo
Kristín Ástgeirsdóttir standa fyrir utan ráðhúsið i Ósló biskup taka við friðarverðlaunum Nó-
þar sem friðarverðlaun Nóbels
fínna varanlega lausn á deilu, sem
hann eitt sinn sagði að væri „svívirði-
leg“.“
„Ramos Horta var pólitískari, en
biskupinn," sagði Kristín. „Hann
byrjaði á að riQa upp og minnast
þeirra, sem hafa verið myrtir í barátt-
unni fyrir sjálfstæði Austur-Tímor.
Því næst rakti hann hvað þyrfti að
gera til að ná því marki.“
Belo og Ramos Horta eru báðir
48 ára gamlir. Belo hefur varið sókn-
arbörn sín fyrir mannréttindabrotum
indónesíska hersins og heimili hans
í Dili, höfuðborg Austur-Tímor, hefur
oft og tíðum verið griðastaður hinna
ofsóttu.
Þrýst á Belo
Ali Aiatas, utanríkisráðherra Indó-
nesíu, varaði Belo í nóvember við því
að skipta sér af stjórnmálum. Tilefnið
var að þýska vikuritið Der Spiegel
hafði eftir Belo að indónesíski herinn
kæmi fram við austur-tímora eins og
„hunda“ og „þræla". Belo sagði að
rangt væri eftir sér haft. Skömmu
síðar fór hann til Djakarta, höfuð-
borgar Indónesíu, og mótmæltu mörg
þúsund ungmenni, sem tengjast
stjórnarflokknum í Indónesíu, fyrir
utan þing landsins. Kröfðust þau að
Belo bæðist opinberlega afsökunar.
Þessi gagnrýni á biskupinn vakti
mikla reiði á Austur-Tímor og þegar
hann sneri aftur til Dili tóku 60 þús-
und manns fagnandi á móti honum.
Stjóm Indónesíu hefur lítið haft
við það að athuga að Belo fengi frið-
voru afhent í gær.
arverðlaunin, en gagnrýnir að þau
hafi verið veitt Ramos Horta, helsta
talsmanni og driffjöður hreyfingar-
innar Fretilin, sem hefur barist gegn
Indónesum allt frá því þeir réðust inn
á Austur-Tímor árið 1975 og innlim-
uðu það árið 1976. Sameinuðu þjóð-
irnar hafa neitað að viðurkenna yfir-
ráð Indónesa yfir Austur-Tímor og
líta enn svo á Portúgalar fari þar
með völd.
Frelsisbarátta í útlegð
Horta flúði frá Austur-Tímor
þremur dögum fyrir innrásina og er
nú prófessor í alþjóðarétti í Sydney
í Ástralíu. Hann reynir að beita áhrif-
um sínum í þágu Austur-Tímor um
allan heim.
Ramos Horta hóf baráttuna fyrir
frelsi Austur-Tímor á meðan Port-
úgalar voru þar nýlenduherrar. Port-
úgalar sendu hann í tveggja ára út-
legð til Mósambík árið 1970 fyrir
andóf.
Þrír af bræðrum hans og ein syst-
ir létu lífið í mnrásinni á Austur-
Tímor. Kristín Ástgeirsdóttir borðaði
kvöldverð með Ramos Horta á
sunnudag og sagði að hann væri síð-
ur en svo bitur.
Kemur Ramos Horta
til íslands?
„Hann er afskaplega lífsglaður
og hógvær maður," sagði Kristín.
„Við bárum honum þau skilaboð að
hann væri boðinn til íslands. Hann
langar mjög að koma og eru miklar
bels í Osló í gær.
líkur á að af því verði í lok apríl."
Að hennar sögn var athöfnin mjög
hátíðleg og hafði hún orð á því hvað
stuðningur portúgölskumælandi
ríkja við Austur-Tímor hefði verið
áberandi. „Það má segja að þetta sé
pólitískasta veiting á friðarverðlaun-
unum um margra ára ára skeið,"
sagði Kristin.
Þáttur Kvennalistans
Því hefur verið haldið fram að
Kvennalistinn eigi þátt í því að at-
hygli Nóbelsnefndarinnar beindist að
Austur-Tímor. Kristín sagði að upp-
hafsmaðurinn að því að komið var
að máli við Kvennalistann hefði verið
hinn heimsfrægi norski söngvari
Morten Harkett, sem hefði verið beð-
inn um að tala máli Austur-Tímor
og fengið mikinn áhuga á málinu.
„Harkett sagði Siguijóni Einars-
syni kvikmyndagerðarmanni frá
þessu, hann leitaði til mín og spurði
hvort við vildum skrifa Nóbelsnefnd-
inni bréf,“ sagði Kristín. „Hann sagði
að það skipti máli að þingmenn stæðu
að baki tilnefningar."
Að sögn Kristínar skrifaði þing-
flokkur Kvennalistans nefndinni
fyrst árið 1994 og tilnefndi Ramos
Horta sem fulltrúa þjóðarinnar á
Austur-Tímor. Næsta ár tilnefndi
hann Belo og á þessu ári þá báða.
„Sagt hefur verið að það hafi haft
sitt að segja," sagði Kristín. „Okkur
hefur verið sagt að talið sé að við
höfum verið fyrstar til að tilnefna
Austur-Tímor 1994.“
NEW GmMLalum
18k Gull og/eda stál.
Hert safirgler.
Cindy Crawford veit, hvemig hún sameinar
glxsileika og ímynd med stil frá heimsins
stxrstu hönnudum. Hversdags og vid hátkfleg
tækifxri velur hún Omcga. “Trust your
judgement, trust Omcga” - Cindy Crawford
me5áiil
KRINGLUNNI
S 553-1199