Morgunblaðið - 11.12.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 23
LISTIR
Myndir Helga Þorgils
falla afar vel að rýminu
MÁLVERK eftir Helga Þorgils í Hallgrímskirkju.
MYNPUST
Listvinafclag
Ilallgrímskirkju
FRUMDRÖG - MÁLVERK
Helgi Þorgils. Opið alla daga á tíma
kirkjunnar. Ut jólamánuðinn.
Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ er drjúg athafnasemi að baki
Listvinafélags Hallgrímskirkju og
þannig eru aðskiljanlegar fram-
kvæmdir í anddyri kirkjunnar allt
árið. Sumum hættir til að fara fram
hjá manni í sýningaflóðinu og þannig
missti ég hárfínt af sýningu Magnús-
ar Kjartanssonar sem sögð var hafa
verið afar kröftug innsetning í hið
markaða rými. En ég skoðaði endur-
tekið og af óskiptri athygli sýningu
á frumdrögum Guðjóns Samúelsson-
ar að kirkjubyggingunni í nóvember.
Byggingin á sér langan aðdraganda
og þannig var efnt til samkeppni um
kirkjubyggingu á Skólavörðuholti,
er tengjast skyldi minningu Passíu-
sálmaskáldsins árið 1929, og voru
gefin fyrirmæli um að hún skyldi
rúma 1200 manns. Nokkrar tillögur
bárust en engin þótti fullnægjandi.
Árið 1937 fól kirkjumálaráðherra
Guðjóni Samúelssyni að gera upp-
drætti að kirkjunni. Eitt frumdrag-
anna var merkt, Dómkirkjan, sem
gefur auga leið að hér hafi átt að
rísa guðshús er leysti Dómkirkjuna
gömlu af hólmi.
Ljóst er einnig að menn hafi haft
bundnar hendur og að óskað hafi
verið eftir að leitað væri fyrirmynda
til útlanda og þannig byggði Guðjón
uppdrætti sína á Grundtvigskirkjunni
í Kaupmannahöfn, en með ýmsum
frávikum þó. Mun hann hafa viljað
styðjast við íslenzkt umhverfí sem
telst hárrétt afstaða.
Af uppdráttunum að marka má
ráða að Guðjón hafði ýmsar hug-
myndir og sumar mun áhugaverðari
en sú er valin var, og einnig má
álykta að einhveijir hafi talað yfír
öxl hans, eins og það er orðað. Þann-
ig gerir hann hverja tillöguna á fæt-
ur annarri og loks var ein hin rism-
innsta valin. Stærðir og umfang hafa
lítið með ris guðshúsa að gera, mun
fremur stílfegurð þeirra og frumleiki.
Það var þannig rangur hugsunar-
háttur og röng vinnubrögð að baki
framkvæmdanna, því eins og mögu-
Iegt var átti að styðjast við íslenzkt
umhverfi, íslenzkt byggingarefni og
íslenzkt svið. Með því að einblína
alfarið til útlanda og útlenzkra fyrir-
mynda gerumst við sveitamenn en
ekki öfugt því við getum ekki flutt
umhverfið og andrúmið hingað á
norðurhjarann.
Hér skynjar maður frumstæðar
hugmyndir utanaðkomandi að baki
vinnubragðanna og trúa mín er sú
að kirkjan hefði orðið manneskju-
legri og rismeiri ef hinn ágæti arki-
tekt hefði fengið að vera meira í friði
með hugmyndir sínar.
Listvinafélaginu mun vera mjög í
mun að gera hið kuldalega rými vist-
legra með listaverkum svo sem og
stofnun Listasafns Hallgrímskirkju
er til vitnis um og hér er viturlega
að verki staðið. Hinar ýmsu sýningar
hafa brugðið upp sérstöku andrúmi
er tekur á móti gestinum og er ólíkt
viðkunnanlegra en köld steinsteypan.
Þannig er það einnig að þessu sinni
með myndir Helga Þorgils Friðjóns-
sonar sem falla afar vel að rýminu
og auka til muna á helgiblæinn er
inn er komið.
Myndirnar eru sjö að tölu, sumar
mjög stórar en aðrar mjög litlar og
skapar þessi stærðarmunur einmitt
tilfinningu fyrir þeim djúphugsuðu
sannindum; „Hið smáa er jafn lítið
smátt og hið stóra er stórt. Það geng-
ur eilíf fegurð um veröld alla og
henni er réttlátlega dreift yfir stóra
og smáa hluti“ (Rilke).
Bragi Ásgeirsson
Meira en 30%
bóka prentað-
ar erlendis
BÓKASAMBAND íslands hefur
gert könnun á prentstað íslenskra
bóka sem birtust í Bókatíðindum
Félags íslenskra bókaútgefenda
1996. Könnunin sýnir að hlutfall
innlendrar og erlendrar prentunar
á íslenskum titlum er nánast óbreytt
frá því í fyrra en þá jókst prentun
erlendis úr 22,2% í 30,8%. Prentuð-
um titlum hefur ljölgað lítillega á
þessu ári en yfir 30% titla eru enn
sem fyrr prentuð erlendis.
Tekið skal fram að hér er ein-
göngu um að ræða tölur um prent-
stað. Þær gefa hins vegar ekki
upplýsingar um þann virðisauka
sem hver titill skilur eftir hér á landi
eða erlendis.
Heildaríjöldi bókartitla sam-
kvæmt bókatíðindum eru 439.
Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka
prentaðra í hveiju landi:
Fjöldi % af heildar-
titla prentun
ísland 297 67,7
Portúgal 31 7,1
Singapore 29 6,6
Danmörk 21 4,7
Svíþjóð 19 4,3
Þýskaland 9 2,0
Ítalía 8 1,8
Belgía 7 1,6
Hong Kong 6 1,4
Bretland 4 0,9
Kína 2 0,4þ
Noregur 2 0,45
Spánn 1 0,22
Frakkland 1 0,22
Slóvenía 1 0,22
Slóvakía 1 0,22
439 100
jafnframt var skoðað í þessari
könnun hvert hlutfall er milli prent-
aðra bóka hérlendis og erlendis eft-
ir flokkun. Eftirfarandi niðurstöður
eru úr þeim samanburði:
Barnabækur, íslenskar og þýdd-
ar, eru alls 116; 48 (41,4%) prentað-
ar á íslandi og 68 (58,6%) prentað-
ar erlendis.
Skáldverk, íslensk og þýdd, eru
alls 84. Af þeim eru 60 (71,5%) titl-
ar prentaðar á íslandi og 24 (28,5%)
titlar prentaðir erlendis.
Ævisögur og endurminningar
eru 35 talsins; 30 (85,7%) titlar
prentaðir á íslandi og 5 (14,3%)
erlendis.
Handbækur eru alls 51; 35
(68,6%) titlar eru prentaðir hér á
landi og 16 (31,4%) erlendis.
Málverkasýning í
menntamálaráðuneyti
OPNUÐ h'éfur verið sýning á verk-
um eftir Daða Guðbjörnsson í
menntamálaráðuneytinu við Sölv-
hólsgötu. Daði er fæddur í Reykja-
vík 1954. Hann stundaði nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík,
Myndlista- og handíðaskóla íslands
og Ríkisakademíuna í Amsterdam.
Daði hefur kennt við Myndlista-
skólann í Reykjavík og Myndlista-
og handíðaskóla íslands. Hann var
formaður í Félagi íslenskra mynd-
listarmanna um skeið og sat í safn-
ráði Listasafns íslands. Hann hefur
haldið á þriðja tug einkasýninga
hér á landi og erlendis og tekið þátt
í meira en 50 samsýningum víða
um heima. Þá hefur hann mynd-
skreytt bækur og unnið bækur sem
myndverk. Einn-
ig er hann þekkt-
ur fyrir grafík-
verk. Verk hans
eru í eigu fjöl-
margra safna,
stofnana og ein-
staklinga innan-
lands og utan.
Á sýningunni
eru olíumálverk
frá síðustu 10
árum, flest þeirra
smámyndir og hafa margar þeirra
ekki verið sýndar áður.
bak við sófa eða gluggatjöld. Bassaboxið
skilar alltaf hreinum og þéttum bassa án
nokkuixa greinanlegrar bjögunar sama á hvað
styrk spilað er.
Fjarstýringin er einnig sérstök þar sem hún
virkar hvar sem er líka í gegnum veggi eða
úti á lóð!
Bose Lifestyle 5
Hljómtæki með 2 hátölurum og bassaboxi
Bose Lifestyle 12 með heimabíóhljóm
Hljómtæki með 5 hátölurum og bassaboxi
EUPOCARO
raógreióslur
gmksi*8B& I T7L 24 MAíM/tO/t
VQj L—“
Heimilistæki hf
SÆTÚNI B SlMI 569 1500
Bose Lifestyle hljómflutningstækin
eru hreint ótrúlega fyrirferðarlítil. Þau koma
þó algjörlega í stað heilu stæðanna af
venjulegum hljómflutningstækjum og reyndar
miklu meira en það. Einstök tækni Bose gerir
það mögulegt að hljómburðurinn er risastór
þó tækin séu lítil. Þessi tækni felst í því að
endurvarpa hljómnum af veggjum og fylla
þannig rýmið af tónlist. Þannig fæst hið
fullkomna stereo eins og við lifandi
tónlistarflutning. Það er sama hvar í herberginu
þú ert tónlistin er alls staðar í stereo.
Hátalarana sjálfa er hægt að hafa nánast
ósýnilega og bassaboxið má fela hvar sem.
Lifandi tónleikar Venjulegir hátalarar Bose Acoustimass
„Direct/Reflecting“®