Morgunblaðið - 11.12.1996, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þroskasaga drengs
ÓLAFUR HAUKUR
Sínionarson hefur
sent frá sér nýja
skáldsögu, Rigiiing
rnetl köflum, sem er
öörum þræði þroska-
saga drengs sem send-
ur er í sveit á meðan
skilnaður foreldra
hans er að ganga í
gegn. Atök tveggja
bænda í sveitinni eru
einnig í brennidepli og
ástir unglinga. Atök
fullorðna fólksins og
blóðhiti unga fólksins
leiða til ískyggilegra
atvika.
„Þetta er gamaldags átakasaga
að því leyti að sveitamenn eru að
takast á um nytjar og annað slíkt;
fjölluðu ekki Islendinga sögurnar
um áflog bænda út af beitarlandi?
Það veit engin hvar slíkar sögur
enda, eða byrja. En þetta er líka
ástarsaga; það er togast á um pilt-
inn unga á milli bæja, skapmiklar
og blóðheitar stúlkur, heimasætur
sem vilja hann eiga.“
- íslenskur dreifbýlisveruleiki
hefur verið þér hugstæður bæði í
leikritum og skáldsögum undanf-
arin ár?
„Ætli það sé ekki
bara tilviljun aö þetta
verk gerist í dreifbýli.
Annars erum við svo
miklir dreifbýlingar
Islendingar að það er
óþjákvæmilegt að það
komi fyrir í sögum
rithöfunda."
- Má lesa einhvern
sérstakan boðskap út
úr sögunni, til dæmis
pólitískan?
„Ekki endilega póli-
tískan. Þetta eru
tvenns konar mann-
gerðir sem þarna tak-
ast á sem hafa sinn
máta af framgöngu, tveir heimar
sem hafa ólík siðalögmál. Annars
vil ég lítið um þessa hluti segja
annað en að þetta er aðgengileg
saga; ég var að reyna að skrifa
prósa eins og mér þykir gaman
að lesa sjálfur. Hann á að vera
gegnsær og ekki þvælast fyrir
manni við lestur. En svo er það
líka smekksatriði."
- Hvort er skemmtilegra að
skrifa skáldsögu eða leikrit?
„Söguefni kalla á sitt form, og
þetta átti heima í skáldsögu en
ekki leikriti..“
Ólafur Haukur
Símonarson
SVO GERÐIST það einn daginn í sóibjörtu veðri með talsverðum
vindi, þegar ekki var róið, að ryksúia steig til lofts á þessum
fáfarna vegi og færðist nær og gerði ekki stans í Hvammi held-
ur hélt áfram heim í hlað á Gili. Belgmikil ljósblá drossía af
Dodge-gerð hossaðist upp heimdragann, skrapaði malarkambinn
á miðjum slóðanum með botninum og nam staðar við hliðið með urrandi
átta strokka mótor. Fyrst stigu út úr bifreiðinni tveir karlmenn, annar hávax-
inn og holdskarpur með rauðgult feitt hár sem hrúgaðist fram á ennið í
tröllaukinni briljantíngljáandi bylgju; hinn maðurinn var lágur til hnésins
en samanrekinn með stutta, hrokkna, dökka lokka. Sá hávaxni var klæddur
í svartar gallabuxur með rauðum saumum, kúrekastígvél með gylltum ból-
um, rauða skyrtu með hvítum, útsaumuðum blómaskreytingum á bri'óstinu
og hvítan jakka krumpaðan. Sá lágvaxni samanrekni var í brúnum, snjáðum
jakkafötum og bleikri skyrtu með eiturgrænt bindi lauslega hnýtt um háls-
inn; á fótunum hafði hann strigaskó, svarta með hvítum sóla og öklabeins-
skjóli.
- Skarpi og Kári eru komnir, sagði Nonni og brosti út í annað, nú verð-
ur handagangur í öskjunni. Úr Rigningu með köflum.
Kjarngóðir
sjávarréttir
TONLIST
llljómdiskar
VIÐ EIGUM SAMLEIÐ
Lög eftir Sigfús Halldórsson. Flytj-
endur; Sigfús Halldórsson, félagar
úr Sinfóníuhljómsveit Islands og
Karlakór Reykjavíkur. Stjóniandi:
Páll P. Pálsson. Hljóðritun með kór
og hjjómsveit fór fram í Langholts-
kirkju 1996. Stjómandi hyóðritunar:
Bjami Rúnar Bjamason. Tækni-
menn: Hreinn Valdimarsson og Þórir
Steingrimsson. Lögin sem Sigfús
Halldórsson syngur og leikur sjálfur
á píanó vom hljóðrituð í Ríkisútvarp-
inu 1960. Stjómandi hljóðritunai':
Knútur Skeggjason. Lög nr. 6-11 á
geisladiskinum em fjölfölduð eftir
hljóðritun í eigu Ríkisútvai-psins,
samkvæmt samningi um rétt til eftir-
gerðar. Útgefandi: Sjómannadagur-
inn í Reykjavík og Hafnarfirði 1996
DAS 002. Dreifing: Japis.
„EKKERT íslenskt tónskáld er
jafn hagvant og nýtur sín betur við
gaddavírsgirðinguna sem reist hefur
verið milli svokallaðrar dægurtónlist-
ar og sígildrar tónlistar. Ráðsmenn
hvorum megin garðs telja hann sinn
mann. Þetta er í raun og veru mjög
óvenjulegt. Flestir sem nærri
gaddavírnum koma skaddast og bera
vart sitt barr eftir það. Sum (en þó
kannski furðufá) tónskáld ná svo
langt í fræðum sínum og svo góðum
tökum á verkfærunum að þau geta
nánast hvað sem er, (jafnvel samið
tónlist við matseðla einsog dæmi
munu um). Slík tónskáld geta auðvit-
að samið dægurlög, hvorki skal dreg-
ið úr því né talið annað en gott (og
mætti kannski vera meira). En óneit-
anlega hefur maður stundum á til-
finningunni að þau setji sig þá gjarn-
an í eins konar dægurlagagír. Ætli
gírskiptingar af því tagi séu ekki
fjarri Sigfúsi. En þó er það þannig
með hann eins og alla góða lista-
menn að hann hefur ekki aðeins á
tilfinningunni hvað hrífur, heldur
veit hann það líka.“ (Trausti Jóns-
son.)
Þetta er nú mergurinn málsins -
og næstum allt sem þarf að segja
um tónskáldið Sigfús Halldórsson,
a.m.k. tónskáldið sem þjóðin tók sér
að hjaita. Á þessum diski eru kjarn-
góðir sjávarréttir í fínum og krass-
andi útsetningum Róberts A. Ottós-
sonar, Jóns Þórarinssonar, Jóns Sig-
urðssonar og Páls P. Pálssonar sem
jafnframt stjórnar ágætum söng
Karlakórs Reykjavíkur og líflegum
félögum úr Sinfóníuhljómsveitinni;
einnig kræsilegir léttari réttir (20
kallar, blásarar, selló og trommur) í
skemmtilegri útsetn. Páls P., og loks
vel útilátinn eftirréttur með sætum
og ljúfsárum keim, en þar þjónar
höfundurinn sjálfur til borðs - með
tilþrifum, eins og á frönskum fjöl-
skylduveitingastað. En auðvitað er
byijað á borðbæn, Þakkargjörð fyrir
hljómsveit, í fallegri útsetningu Jóns
Sigurðssonar.
Yfirleitt eru þetta mjög góð lög
og útsetningar fyrir kór og hljóm-
sveit ekki síðri, eins og fyrr segir
(Stjáni blái er magnaður í hljómsveit-
arbúningi Jóns Þórarinssonar). Eng-
inn dansar þó ballettinn jafn fimlega
á gaddavírnum og Sigfús Halldórs-
son sjálfur, sem söng eigin lög af
óviðjafnanlegri hjartans list inn á
hljómplötu við eigin undirleik (hér
höfum við ágætt sýnishorn, 6 fín lög
við gæðatexta - eins og oftast).
„Enginn vissi og enginn veit enn
hvort þetta voru dægurlög eða ekki.“
- Hitt veit ég að Dagný er og verð-
ur ailtaf indælasta lagið hans og sem
mest nautn er að syngja með sveiflu
- eftir (ca) tvö glös.
Oddur Björnsson
Kvöld-
lokkur á
jólaföstu
Kleppjárnsreykjum. Morgunblaðið.
BLASARAKVINTETT Reykja-
víkur og félagar fluttu verk
eftir Mozart í Reykholtskirkju
í Borgarfirði sl. laugardag og
voru það fyrri tónleikar Kvöld-
lokka kvintettsins og þeir síðari
voru í Listasafni Islands á
sunnudag.
Blásarakvintett Reykjavíkur
heldur nú upp á 15 ára
starsfsafmæli sitt og er fyrsta
geislaplatan með leik Blásara-
kvintetts Reykjavíkur og félaga
nýkomin út. Kvintettinn flutti í
fyrsta sinn Kvöldlokkur sínar
utan Stór-Reykjavíkursvæðisins
nú og voru það tónleikarnir í
Reykholti.
I Reykholtskirkju flutti kvint-
ettinn atriði úr Töfraflautunni
eftir Mozart umrituð fyrir blás-
araoktett af Joseph Hayden-
reich og Kvöldlokku, K.V. 361
í B-dúr, „Gran Partita11, eftir
Mozart undir stjórn Bernharðs
Wilkinson.
Nokkrir tónleikar hafa verið
haldnir i kirkjunni síðan hún
var vígð 28 júlí á sl. sumri, en
þetta eru fyrstu hljóðfæratón-
leikar í kirkjunni. Er það mál
manna, jafnt flytjenda sem
áheyrenda, að kirkjan sé afar
vel fallin til hljómleika. Fjöl-
menni var á tónleikunum og var
flytjendum vel fagnað.
Tónlistarfélag Borgarfjarðar
stóð fyrir þessum tónleikum
með styrk frá tónlistarnefnd
Borgarfjarðarprófastsdæmis.
KVIKMYNDIR
Bíóhöllin,
lláskólabló
JACK (“Jack“) ★ ★ Vi
Leikstjóri Francic Ford Coppola.
Handritshöfundar James DeMonaco,
Gary Nadeau. Kvikmyndatökustjóri
John Toll. Tónlist Michael Kamen.
Aðalleikendur Robin Williams, Diane
Lane, Jennifer Lopez, Brian Kerwin,
Bill Cosby, Fran Drescher. 111 mín.
Bandarísk. Hollywood Pictures 1996.
KAREN Powell (Diane Lane)
sveiflar sér listilega á grímudansleik
og á sér einskis ills von er hún fær
óvænta hríðarverki og er flutt í
snarkasti á spítala. Þar fæðist henni
sonur, heilbrigður og rétt skapaður.
Eitt gengur þó ekki upp; hún var
aðeins komin tvo mánuði á leið og
fljótlega kemur í ljós að frumburður-
inn dafnar líkamlega í fjórföldum
hraða. Áratugur líður, barmið, sem
skírt hefur verið Jack (Robin Will-
iams) orðin rumur sem rakar sig,
fertugur í útliti en andlegi þroskinn
í samræmi við aldurinn. Einkakenn-
ari hans (Bill Cosby) telur að Jack
sé fyrir bestu að setjast á skólabekk
með jafnöldrum sínum, segja skilið
við ofverndun foreldranna. Miðaldra
Tíu ára
um
fertugt
barn verður að takast á við lífið.
Nýjasta mynd hins fornfræga leik-
stjóra, Francis Ford Coppola, er fyrst
og fremst gamanmynd en með alvar-
legu ívafi. Þessi blanda samlagast
jafnan illa og er jafnvel óþægileg þó
hún lummist. Jack gengur upp og
ofan, hún á góða kafla, fyrst og
fremst á léttu nótunum, alvaran
verður hinsvegar oftar en ekki dálít-
ið hjáróma, enda bjóða kringumstæð-
urnar uppá það. Best er myndin þeg-
ar Jack er að festa sig í sessi meðal
skólafélaganna, sem i fyrstu líta á
hann sem viðundur, en hann er fljót-
ur að vinna hylli, enda ekki ónýtt
að hafa fullvaxinn mann með sér í
körfuboltaliðinu eða í dónablaða-
kaupum! Handritshöfundunum, Ja-
mes DeMonaco og Gary Nadeau,
tekst oft vel að nýta sér þessar sér-
stæðu aðstæður í mannlegum sam-
skiptum, einkum í kynnum Jacks af
tilkippilegri móður eins bekkjarfélag-
ans og Fran Drescher leikur af snilld.
Þegar kemur að alvarlegri hliðum
öldrunarvandamálsins verður Jack
einatt ótrúverðug, en höfundum er
vorkunn, þetta er vandasamt umfjöll-
unarefni og þeir mega eiga það,
DeMonaco og Gary Nadeau, að þeim
tekst bærilega að sneiða hjá illþol-
andi væmnisköflum — sem gjarnan
eru tíðir gestir í myndum af þessum
toga hjá Disney-veldinu.
Jack hefði sjálfsagt hvorki orðið
fugl né fískur ef Robins Willimas
nyti ekki við. Hlutverkið býður uppá
bægslagang og ærslaleik, en stór-
leikarinn er yfirvegaður, gerir bam-
karlinn mannlegan og skiljanlegan,
áhorfendum hlýtur að þykja vænt
um Jack. Diane Lane og Bill Cosby
eiga einnig hrós skilið fyrir frammi-
stöðuna. Coppola hefur fengið orð í
eyra fyrir að velja sér þetta undar-
lega verkefni, hann gerir því engu
að síður dálagleg skil, ekki síst þeg-
ar haft er í huga að maðurinn hefur
engan veginn staðið undir vænting-
um í ótalin ár. Hann, og kvikmynda-
tökumaðurinn snjallj, John Toll, gera
býsna margt gott. í atriðum einsog
því er Jack fylgist með fíðrildinu,
minna þeir okkur á að tíminn er það
dýrmætasta sem við eigum og þar
er æskan mestur fjársjóðurinn.
Sæbjörn Valdimarsson
Þórarinn
Eldjárn
talar um
Bólu-
Hjálmar
FÉLAG íslenskra fræða boðar
til fundar með Þórarni Eldjárn
í Skólabæ við Suðurgötu í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20,30.
í ár eru tvær aldir liðnar
frá fæðingu skáldsins og hag-
leiksmannsins Hjálmars Jóns-
sonar (1796-1875) sem jafn-
an er kenndur við bæinn Bólu
í Skagafirði. Þórarinn Eldjárn
rithöfundur mun ræða um
Bólu-Hjálmar og verk hans á
fundinum í kvöld.
„Eins og kunnug er hefur
Þórarinn m.a. skrifað skáld-
sögur um forvitnilega ein-
staklinga fyrri tíðar. Nú síð-
ast Brotahöfuð um Guðmund
Andrésson. Mörgum leikur
eflaust forvitni á að vita
hvaða augum hann lítur
skáldbróður sinn, Bólu-
Hjálmar. Erindið nefnist
„Imynd Bólu-Hjálmars
Bólu-Hjálmar í mynd“, segir
í kynningu.
Eftir framsögu Þórarins
gefst mönnum kostur á létt-
um veitingum áður en al-
mennar umræður hefjast.
Fundurinn er öllum opinn.
Bókatíðindi
á netinu
BÓKATÍÐINDI 1996 eru nú
aðgengileg á alnetinu. Opnuð
hefur verið vefsíða þar sem
allt efni bæklingsins hefur
verið sett upp. Alls eru í Bó-
katíðindum á fimmta hundrað
titlar, flokkaðir eftir efni og
auk þess skrá yfir höfunda
og útgefendur bókanna. Rétt
eins og í ritinu er á netinu
viðmiðunarverð og ISBN
númer allra bókanna.
í kynningu segir: „Vefsíðan
er samvinnuverkefni Félags
íslenskra bókaútgefenda og
vefhönnuðarins Péturs Rún-
ars Guðnasonar sem getið
hefur sér gott orð fyrir fjöl-
breytta nethönnun á undan-
förnum misserum. Bókatíð-
indum hefur verið dreift á öll
heimili landsins en á netinu
eiga þau eflaust eftir að nýt-
ast fjölmörgum íslendingum
búsettum erlendis, erlendum
bókasöfnum og áhugamönn-
um um íslenskar bækur hvar-
vetna í heiminum."
Slóð síðunnar er
http://this.is/baekur.
Upplestrar-
kvöld á Súf-
istanum
UPPLESTRAR- og kynning-
arkvöld verður á Súfistanum,
bókakaffínu í Bókabúð Máls
og menningar á Laugavegi 18,
fimmtudagskvöldið 12.
desember kl. 20.30. Þar les
Gyrðir Elíasson úr ljóðabókin-
in Indíanasumar, ísak Harðar-
son les úr minningabókinni
Þú sem ert á himnum, þú ert
hér!, lesið verður úr ljóðabók-
inni Að heilsa og kveðja eftir
séra Rögnvald Finnbogason,
Þorsteinn Gylfason heimspek-
ingur kynnir ritgerðarsafnið
Að hugsa á íslenzku og Árni
Björnsson fjallar um bók sína
Merkisdagar á mannsævinni.
Aðgangur er ókeypis.