Morgunblaðið - 11.12.1996, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 29
Englaveisla
LIST OG HÖNNUN
Smíöar og skart
ÍÐIR/MíYNDVERK
Auðbjörg Bergsveinsdóttir, Elísabet
Magnúsdóttir, Guðbjörg Káradóttir,
Guðný Hafsteinsdóttir, Hekla Björk
Guðmundsdóttir, Sara Vilbergsdótt-
ir, Sigríður Anna Nikulásdóttir,
Svanhildur Vilbergsdóttir,
Þórdis Jóelsdóttir. Opið virka daga
og laugardaga frá kl. 11-18 og
sunnudagakl. 13-18. Til23
desember. Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ er rétt sem sagt hefur verið
um Skólavörðustíginn, að hann sé
að verða að listagötu, stöðugt bæt-
ast við nýjar verzlanir sem hafa á
boðstólunum hvers konar handverk,
íðir og myndverk. Þetta gefur hinum
forna og söguríka stíg hlýlegan svip
og er í samræmi við þróunina víða
ytra innan eldri borgarhverfa. Mun
vera vænlegra að opna slík listhús
rétt utan við miðborgarkjarnann eða
í hliðargötum hans en að vera í sam-
keppni við veitingahúsin á aðalgötun-
um. Þannig er starfsemi listhússins
Umbru í Torfunni á síðasta snúningi
og verður að því mikil eftirsjá.
Fyrir nokkru opnaði listhúsið
„Smíðar og skart“ að Skólavörðustíg
16a dyr sínar og hafa þar verið
haldnar nokkrar minni sýningar.
Húsnæðið er ekki stórt og andblærin
hið innra er svipaður og í Listakoti
á Laugaveginum, enda standa í báð-
um tilvikum ungar konur að baki
framkvæmdunum, flestar trúlega
nýútskrifaðar úr einhverjum deildum
MHÍ. Miklu úrvali hvers konar listíða
og myndverka er raðað um alla veggi
og gólf hins aflanga húsnæðis á
stundum, svo manni er um og ó, því
erfitt getur verið að henda reiður á
framtaki hvers og eins, eitt grípur í
annað. Er um svipaða byrjunar-
hnökra að ræða og í Listakoti, með-
an hið unga fólk er að kynnast hús-
næðinu og þreifa sig áfram en það
getur tekið drjúgan tíma.
Að þessu sinni er áherslan lögð á
sitthvað smálegt til jólanna svo sem
engia, bjöllur stjaka, karöfflur, kúlur
o.fl. auk myndverka með viðfangs-
efnum sem skara sólstöðuhátíðina.
Allt eru þetta ekta hlutir og á
mjög viðráðanlegu verði miðað við
vinnuna að baki. Það er afar virðing-
arvert að leitast á þennan hátt að
koma íðum sínum á framfæri og að
sjálfsögðu verður fylgst með fram-
vindunni. Ber að óska unga fólkinu
velfarnaðar um leið og vakin er at-
hygli á framtakinu.
BragiÁsgeirsson
Nýjar plötur
• KOMINN er út hljómdiskur þar
sem Kristinn Örn Kristinsson
píanóleikari leikur píanólög eftir
innlenda og erlenda höfunda frá
flestum tímabilum tónlistarsög-
unnar, allt frá Bach til þessa dags.
Hljómdiskurinn er tileinkaður
píanónemendum á öllum aldri.
Kristinn Örn Kristinsson
píanóleikari fékk sína fyrstu til-
sögn í Tónlistarskólanum á Ak-
ureyri, en stundaði síðan fram-
haldsnám við Tónlistarskólann í
Reykjavík, Háskólann í Suður-
Illinois og við St. Louis Conser-
vatory ofMusic. Er Kristinn kom
heim frá námi kenndi hann við
Tónlistarskólann á Akureyri en
er nú skólastjóri Tónlistarskóla
íslenska Suzukisambandsins og
starfar auk þess við Tónlistar-
skólann í Reykjavík.
Upptökur fóru fram íFella- og
Hólakirkju ísumar. Halldór Vík-
ingsson annaðist upptökur og staf-
ræna hljóðvinnsiu. Mynd á forsíðu
er eftir Kristin Smára Kristinsson.
Útgefandi er Skref, en Japis dreif-
ir. Verðið er 1.499 kr.
RMSTUNGU
VÖNDUÐ BÓK FRÁ
ver banaði
riddaranum?
Margslungin metsölubók frá Spáni, bók sem
erfitt er að leggja frá sér.
.....mjög skemmtileg skáldsaga, það er
gaman að lesa hana, hún er spennandi og
vel skrifuð, og margt í henni fyrir hugann að
kljást við.“
Jón Hallur Stefánsson, Ríkisútvarpinu /&&&,
Kristinn R. Ólafsson íslenskaði ORMSTUNGA
„Ein besta bók sem ég hef lesið í ár. Frumlega
hugsuð og óaðfinnanlega útfærð.“
Edward French, Books
H0nse
bouillon
Fiske
bouillon
Svine
kodkraft
0kse
kodkraft
Bouillon
til Pasta
Gronsags
bouillon
Nokia 1610-100 klukkustunda rafhlaða!
Kaupbætir í desember!
Aukahlutapakki með tösku,
kveikjarasnúru og bílhöldu fylgir.
Verömæti 5.900 kr.
Nohia 1610 GSM síminn er aðeins
250 grömm með xenjulegri rafhlöðu,
og því einkar léttur í vasa eða við belti
og vel settur í bílnum í þar til gerðri
festingu. 199 númera minni. Endurval.
Öryggislœsing og ótal aðrir mðguleikar.
o Afar léttur en sterkur og
vandaður GSM sími.
O Venjuleg rafhlaða: 3 og 1/2 klst. taltími
eða 100 klst. biötími.
55 mín. endurhleðslutími.
O Stærri rafhlaða: 7 klst. taltími
eða 200 klst. biötími.
1 klst. og 40 mín.
Verð 34.900 kr.
Hátæknj
Ármúla 2G • sími 588 5000
Hafðu samband!
Hátœkni hefur haft umboö fyrir Nokia farsíma frá því áriö 1985
Klar bouillon
Sveppa-
kraftur
Alltaf uppi á
teningnum!
-kemur
með góða ’
bragðið! í