Morgunblaðið - 11.12.1996, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ
32 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
* ^Matvinnsluvél 400 Wfc*
¥ meö ávaxta- oa J**
VKENWOODl*
^Matvinnsluvél 400W^H*-
\71 . »<
fíl<ENWOOD>
l^Matvinnsluvél 500W.lHr
Kennslumyndband**
á íslensku fylgir.
* fKENWOOD’o'
Handþeytari
M- *
jk
JKENWOOD**
^HandþeytarLá standi* T
H
AÐSENDAR GREINAR
Hvað eru 110.000.000.000
krónur á milli vina?
Samkomulagið
Alþingi fjallar nú um
frumvarp til laga um
Lífeyrissjóð starfs-
manna. ríkisins og Líf-
eyrissjóð hjúkrunar-
kvenna sem byggir á
samningi fjármálaráðu-
neytisins við fulltrúa
opinberra starfsmanna.
Með samkomulagi
þessu eru negld niður
réttindi opinberra
starfsmanna og þeir
munu halda áfram að
safna skuldbindingum
hjá ríkinu, sem ekki
verða greiddar. Núna
Pétur H.
Blöndal
eru einungis dagvinnulaun opinberra
starfsmanna tryggð en með sam-
komulaginu verður stofnuð ný deild
hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkis-
ins, sem veitir jafnverðmæt réttindi
en tryggir öll laun. Aðild að henni
eiga allir nýir starfsmenn og þeir
eldri starfsmenn, sem óska eftir að
skipta yfir í nýju deildina.
Með samkomulaginu verða allir
opinberir starfsmenn að halda áfram
að taka þátt í mjög góðu en jafn-
framt mjög dýru lífeyriskerfi. Hinn
almenni opinberi starfsmaður hefur
aldrei verið spurður að því hvort
hann vilji fá 1-2 mánaðarlaun auka-
lega á ári alla starfsævina í stað
þess að geta farið á lífeyri 65 ára í
stað 70 ára.
Markmið ijármálaráðherra með
þessu samkomulagi eru tvö. Að
tryggja samtímagreiðslur atvinnu-
rekenda í sjóðinn, þ.e. að skuldbind-
ingin verði greidd jafnóðum og hún
myndast. Og að gera lífeyrisréttindi
alls vinnumarkaðarins sambærileg.
Hvorugt markmiðið næst. Fyrra
markmiðið næst á 40 árum, sem
verður að teljast óviðunandi og
seinna markmiðið næst alls ekki.
Samkomulagið mun virka eins og
sprengja inn í viðkvæmar kjaravið-
ræður. í seinni greinum mun ég
færa rök fyrir þessari fullyrðingu
minni og auk þess ijalla um mismun
á lífeyrisréttindum opinberra starfs-
manna og fólks í almennum lífeyris-
sjóðum. I þessari grein æiia ég að
fjalla um stöðu þessara
tveggja opinberu lífeyr-
issjóða sem og stöðu
Lífeyrissjóðs alþingis-
manna og Lífeyrissjóðs
ráðherra.
Áfallin
skuldbinding
Áfallin skuldbinding
þessara fjögurra opin-
beru lífeyrissjóða sam-
kvæmt trygginga-
fræðilegu mati kemur
fram í meðfylgjandi
töflu. Samkvæmt henni
nam áfallin skuldbind-
ing sjóðanna umfram
eignir sjóðanna alls 110
milljörðum króna um síðustu ára-
mót. Opinberir aðilar, iíklega ríkið,
skuldar alla þessa fjárhæð. (Álita-
mái er hvort þau sveitarfélög og
fyrirtæki, sem tryggja starfsfólk sitt
hjá sjóðnum, t.d. sparisjóðir, skulda
hluta af þessari fjárhæð.) Þessi
skuldbinding óx um 9.500 m.kr. á
árinu 1995.
Hvernig má það vera,
spyr Pétur Blöndal, að
slík ofurskuldbinding
gat myndast án þess
að nokkur virtist taka
eftir henni?
að þessi ógreidda skuldbinding rík-
isins er að meðaltali 850 þ.kr. á
hvern vinnandi einstakling. Þetta
eru skattar, sem „gleymst“ hefur
að rúkka allt vinnandi fólk um. Rík-
ið er búið að eyða þessum peningum,
því þetta er skuld vegna iífeyrisrétt-
inda opinberra starfsmanna, sem
þeir eru búnir að vinna fyrir. Á sarna
hátt á hver opinber starfsmaður að
meðaltali ca. 3,5 m.kr. kröfu á ríkið,
sem ekki hefur verið gerð upp. Er
þá búið að draga frá það sem hann
skuldar sjálfur sem skattgreiðandi.
Þessi skuldbinding opinberu lífeyris-
Staða 31.12. 1995 Lífsj. Lífsj. Lífsj. Lífsj. Samtals
m. við 2% (*) áv. starfsm. rík.hjúkrkv. alþm. ráðh.
umfr. launah.
Upph. í millj. kr.
Uppr. eign 24.700 4.000 0 0 28.700
Áfallin skuldb. 123.100 13.400 2.500 300 139.200
“ ógreitt 98.400 9.400 2.500 300 110.600
Framr. skuldb. 162.500 21.500 - - 184.000
“ ógreitt 137.800 17.500 - - 155.400
(*) Þessi ávöxtun náðist ekki hjá sjóðunum 1995
Eru 110.000 m.kr.
miklir peningar?
Ég sé ekki fyrir mér svona stóra
fjárhæð og hef því reynt að setja
hana í samhengi við ýmsar stærðir.
Fasteignamat allra íbúða á Vestur-
landi, Vestfjörðum, Norðurlandi öllu
og Austfjörðum að bílskúrum með-
töldum ert.d. samtals 108.000 m.kr.
Ogreidd skuldbinding ríkisins (og
annarra) við opinbera starfsmenn
svarar því til verðmætis allra íbúða
og bílskúra frá Akranesi vestur og
norður hringinn í kringum landið að
Vík í Mýrdal.
Ef við deilum þessari tölu á allt
vinnandi fólk í landinu kemur í ljós
sjóðanna er í reynd spurning um það
hversu mikið 80% þjóðarinnar (ekki
opinberir starfsmenn) skulda hinum
20% (opinberum starfsmönnum). En
hvað eru 110.000 m.kr. á milli vina!
Þeir, sem greiða tekjuskatt, hafa
eflaust gaman af að vita að þessi
fjárhæð svarar til alls tekjuskatts
einstaklinga í heil 7 ár! Svo má líta
til þess að Qárhæðin er nærri helm-
ingur af eignum allra annarra lífeyr-
issjóða!
Ofurskuldbindingin
En hvernig má það vera að slík
ofurskuldbinding gat myndast án
þess að nokkur virtist taka eftir
henni? Af hverju er ekki löngu búið
að leggja til hliðar nægilegt fé með
hærri sköttum í fortíðinni? Eru lögin
um þessa opinberu lífeyrissjóði göll-
uð? Hver ber ábyrgð á því að
„gleymst" hefur að senda skatt-
greiðendum reikninginn?
í lögum um Lífeyrissjóð starfs-
manna ríkisins stendur í 9. grein:
„Stjórn sjóðsins skal hið fimmta
hvert ár láta tryggingafræðing rann-
saka fjárhag sjóðsins. Þyki honum
rannsókn sín leiða í ljós, að fjárhags-
grundvöllur sjóðsins sé ótryggur,
skal hann gera tillögur til stjórnar
sjóðsins um aðgerðir til að efla sjóð-
inn.“ Þetta ákvæði hefur gilt frá
1963 eða í 33 ár. Þessi mikla skuld-
binding ætti því ekki að hafa komið
sjóðstjórninni á óvart. En hvers
vegna hefur hún allan þennan tíma
ekki gert tillögur til ráðherra um
að hann beitti sér fyrir lagasetningu
til úrbótar, t.d. með hækkun iðgjalds
launagreiðenda? Hver er ábyrgð
stjórna sjóðsins allan þennan tíma?
Samkomulag það, sem gert hefur
verið, tekur ekki á þeirri áunnu
skuldbindingu (110 milljarðar kr.),
sem mér hefur orðið tíðrætt um hér
að ofan. Það tekur ekki einu sinni
á væntanlegri skuldbindingu næstu
ára. Enn verða gefnar út óútfylltar
ávísanir fyrir hönd skattgreiðenda.
í stað iðgjalds, sem þyrfti að vera
samtals 21%-26% af launum opin-
berra starfsmanna, til þess að standa
undir framtíðarréttindum þeirra
verður áfram greitt 10% iðgjald til
B-deildarinnar. Það að opinberir
starfsmenn mega halda áfram að
ávinna sér þennan góða lífeyrisrétt
mun líklega kosta ríkissjóð 45.000
m.kr. til viðbótar. Nema opinberir
starfsmenn sætti sig við lægri Iaun
vegna góðra lífeyrisréttinda!
Það verður athyglisvert að heyra
skoðanir verkalýðsforustunnar á
þessum miklu ógreiddu sköttum,
sem enginn mun greiða nema það
fólk, sem ekki er opinberir starfs-
menn, þ.e. umbjóðendur þeirra. í því
sambandi er rétt að benda á að öll
greiðum við skatta. í það minnsta
virðisaukaskatt.
Höfundur er tryggingafræðingur
og nlþingismaður.
r TEFAL^
ARMATAL
Sérstök stálptata
á botni. sem tryggir
að pannan
v verpist ekki A
- ektd bara pottar ogpönmtr!
Umbodsmenn um allt land
Pottar og pönnur
Ný framleiösla úr óli og stóli. Beshj kostir tveggja efna sameinaöir
í einu áhaldi. Frábærir steikingareiginleikar þ.e. hitaleiðni álsins og
glæsilegt stálútlit. A5 innan eru pönnurnar húðaðar meö slitsterku
viðloöunarfríu efni, sem gerir alla matargerð auðveldari, svo og þrif.
TEFAL er langstærsti pottaframleiðandi heims. TEFALvörur
eru seldar í nær öllum löndum heims.
VERÐ FRA:
VERÐ:
0 20 og 24 cm
VERÐ FRÁ:
0 24cm
VERÐ FRÁ:
0 26. 28. og 30 cm
0 14.1
Reykjavík: Hagkaup. Byggt og Búið Kringlunni, Magasín, Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni E.Hallgrímsson, Grundarfirði.
Vestflrðlr:.Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauöárkróki. KEA,
byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Pingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Lóniö, Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupsstaö.
Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði.KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Fjarðarkaup, Hafnarfirði.