Morgunblaðið - 11.12.1996, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 55
Ný verslun
fyrir hesta-
menn
OPNUÐ hefur verið ný hestavöru-
verslun í Skeifunni 7. Eigendur
verslunarinnar eru Rúnar Þór Guð-
brandsson og Jón Ingi Baldursson.
I versluninni er úrval af vörum
fyrir alla þætti hestamennskunnar.
Einnig er boðið upp á úrval af fóðri
fyrir hesta og hunda. Fólki er boðið
að skrá niður á lista þær vörur,
þ.e. til dæmis lit eða stærð sem
óskað er eftir í jólagjöf, og geta
ættingjar og vinir síðan fengið list-
ann til að aðstoða við að velja jóla-
gjöfina.
Verslunin verður opin alla daga
vikunnar til jóla.
Jólakort
Styrktarfélag’s
krabbameins-
sjúkra barna
STYRKTARFÉLAG krabbameins-
sjúkra barna gefur út jólakort í
annað sinn nú fyrir þessi jól. Mynd-
in sem prýðir kortin er eftir Kol-
brúnu Kjarval og gaf hún félaginu
listaverkið.
Prentsmiðjan Grágás í Keflavík
prentaði kortin sem eru í stærðinni
C6 (Hæð: 147 mm. Breidd: 105
mm.j.
Jólakort SKB kosta 80 kr. og
fást á skrifstofu félagsins að Suður-
landsbraut 6. Opið alla virka daga
kl. 10 til 15. -Umslag fylgir hverju
korti.
-----♦ ♦ ♦----
Djass o g bóka-
lestur á
Kringlukránni
DJASS og bóklestrarkvöld verður
haldið í kvöld, miðvikudagskvöld, á
Kringlukránni. Lesið verður m.a úr
Bókinni Lífsklukkan tifar sem hlaut
Laxness-verðlaunin, Einar Þor-
steinsson les úr bók sinni Innsýn í
mannlega tilveru og Einar Björg-
vinsson les úr sinni bók, íslendingur
á vígaslóð. Á eftir lestri og kynning-
um leikur djasssveit Önnu Pálínu
Árnadóttur. Undirleikarar eru
Gunnar Gunnarsson á píanó, Gunn-
ar Hrafnsson á bassa og Sigurður
Flosason á saxafón. Á efnisskrá er
m.a. þjóðlegur jass með íslenskum
textum. Bókakynning hefst kl. 8.30
og jassinn kl. 22.00. Aðgangur er
ókeypis.
FRÁ hestavöruversluninni í Skeifunni.
Starfsfólk kirkjugarða
aðstoðar fyrir jólin
EINS og undanfarin ár munu
starfsmenn kirkjugarðanna að-
stoða fólk sem kemur til að huga
að leiðum ástvina sinna. Á Þorláks-
messu og aðfangadag verða starfs-
menn staðsettir í Fossvogskirkju-
garði, Gufuneskirkjugarði og Suð-
urgötukirkjugarði og munu þeir í
samráði við aðalskrifstofu í Foss-
vogi og skrifstofu í Gufunesi leið-
beina fólki eftir bestu getu.
Aðalskrifstofan í Fossvogi og
skrifstofan í Gufunesi eru opnar
báða dagana á Þorláksmessu og
aðfangadag kl. 9-15. Þeim sem
ætla að koma í kirkjugarðana um
jólin og eru ekki öruggir að rata
er bent á að leita upplýsinga í síma
aðalskrifstofu kirkjugarðanna í
Fossvogi eða skrifstofu kirkjugarð-
anna í Gufunesi með góðum fyrir-
vara.
Einnig getur fólk komið á skrif-
stofuna alla virka daga frá kl.
8.30-16 og fengið upplýsingar um
ratkort. Þá eru það eindregin til-
mæli til fólks að nota bílastæðin
og fara gangandi um garðana.
Hjálparstofnuh kirkjunnar verð-
ur með kertasölu í kirkjugörðunum
á Þorláksmessu og aðfangadag.
Olympus AF-1 Mini________________
(^AIsjálfvirk vasamyndavél - veðurheld.
Verð: 9.900 stgr.
Olympus AF-3Q
C Alsjálfvirk vasamyndavél.
Verð: 6.900 stgr.
ÍTáMI
j j
ÍJ.P
rr
r.
f
\ '
CFerðaleikjatölva. Fæst nú í 4 litum.
Verö 7.450 stgr.
Game Boy Pocket____________________
(m minni og skýrari Game Boy, tekur sömu leiki.
Verö 8.750 stgr.
Nokía
Fjöldi stærða og gerða af sjónvörpum.
Verð frá: 89.900 stgr.
Sex hausa stereo myndbandstæki með
ameriska kerfinu.
Verö: 59.900 stgr.