Morgunblaðið - 11.12.1996, Síða 56

Morgunblaðið - 11.12.1996, Síða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Ljóska Enn einn D-mínus ... ég þoli Kannski ertu á leiðinni, herra ... Til D-mínus frægðar! þetta ekki! Á leiðinni hvert? Þú ert skrýtin, Magga. BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Gæfuspor! Sigurður Magnússon Frá Sigurði Magnússyni: VINUR minn einn bauð mér á stúkufund í IOGT-húsinu við Ei- ríksgötu 5 eitt kvöldið í vikunni. Ég spurði hvað stæði til? Hann svaraði komdu og sjáðu með augum þínum og hlustaðu. Ég mætti á tilsett- um tíma og var eftirvæntingar- fullur. Margt fólk var komið, það sat og spjallaði saman í setustofunni. Aðrir höfðu þegar fengið sér sæti inni í fundarsalnum og þangað fór ég til að ná góðu sæti til að sjá yfir allan salinn. Nú fór fólkið að streyma inn og settist. Embættis- menn stúkunnar fóru til sæta sinna. Eftir hefðbundna fundar- setningu gerðist það atvik sem mér fannst ánægjulegast og fal- legast þetta kvöld. Það gengu nýir félagar í regluna. Þar voru á ferðinni hjón með son sinn 16 ára. Á meðan þessi athöfn fór fram sá ég nýjan lífsstíl, nýtt afl sem er komið til mótvægis við vímu- efnaneysluna. Það er það mikla afl fordæmisins. Fordæmis þegar foreldrar ganga í stúku og lofa ævarandi bindindi í augsýn barna sinna og gefa þeim með því bjart- ar vonir um frelsi frá vímuefn-. um,sem nú flæða yfir landið. Vímuefnin þyrma engum sem ánetjast þeim. Þess vegna er það skynsamleg leið og gott val fyrir foreldra að sýna börnum sínum það fordæmi að ganga í stúku og bjóða þeim með. Þegar innsetn- ingin hafði farið fram hófst dag- skrá fundarins. Þar voru lesnar upp sögur, sungið og farið með ljóð. Eftir að fundi hafði verið slitið var öllum boðið til veislu í veitinga- salnum. Þar voru sliguð borð af tertum, kökum og ýmsum öðrum kræsingum. Til að fá okkur til að líta upp frá kræsingunum og okkur til enn meiri skemmtunar kom hinn landskunni L„Ámi Norðfjörð" og spilaði á nikkuna sína og sagði skrítlur þess á milli. Þetta var frá- bær skemmtun og þakka ég inni- lega fyrir að hafa fengið að vera með. Ég hef kynnt mér stefnuskrá samtakanna, stofnuð 1851, sem mér finnst hvað merkilegust fyrir það að frá upphafi samtakanna höfðu konur sama rétt og karlar innan stúkunnar. Það segir að samtökin hafa verið 145 árum á undan okkar samtíð hvað varðar rétt kvenna til stjórnunarstarfa á við karlmenn. Hvað eru Alþjóðasamtök Góð- templara? Ég birti hér hluta úr 1. grein stefnuskrár samtakanna, en þar segir meðal annars: Alþjóðasamtök Góðtemplara (hér eftir nefnd IOGT) eru alþjóð- legt samfélag samtaka, er kallar saman karla og konur á öllum aldri, án tillits til litarháttar, þjóð- emis, trúar, stöðu í þjóðfélaginu eða stjórnmálaskoðana. Tilgangur IOGT, er stofnað var á árinu 1851, er frelsun þjóða heimsins, er leiði þær til auðgunar, frjálsra og meira gefandi lífs. Sem leið að þessu marki vill IOGT vinna að lífsstíl, sem er laus við áfengi og önnur fíknilyf." Það er þessi lífsstíll sem bindindismenn meta mest. Það er þessi lífsstíll sem gerir fjölskyldur hamingjusamar. Það er þessi lífs- stíll sem gefur okkur frelsi frá vímuefnunum og þar með eðlilegt og sjálfbært líf. Líf sem alltof fáir þekkja í dag. Foreldrar, verið fyrirmynd barna ykkar og leiðið þau á réttan veg. Veg til lífsins og frelsisins frá vímuefnunum. SIGURÐUR MAGNÚSSON, Skólavörðustíg 16a, Rvík. Fyrirspurn til forsetans Frá Þórði E. Halldórssyni: ÞEIR sem komnir voru til fullorð- insára við heimsstyrjaldarlokin 1945 muna glögglega hvernig hin- ir svokölluðu andspyrnumenn í Danmörku flæddu eins og engi- sprettur yfir Kaupmannahöfn með árásum og morðum á saklausu fólki, sem þeir töldu að hefðu ver- ið handbendi og aðstoðarmenn þýska hersins í Danmörku. And- spyrnumenn skutu fólk án dóms og laga, þar á meðal íslendinginn Guðmund Kamban skáld á opin- berum veitingastað. 21. nóvember 1996 birtist á 6. síðu Morgunblaðsins mynd af for- seta íslands, Ólafi Ragnari Gríms- syni, þar sem hann er á leið í lög- reglufylgd til að leggja blómsveig að minnisvarða um danska and- spyrnumenn, eins og segir í texta undir myndinni. Nú langar mig að beina fyrir- spurn til forsetans og óska svars. Var heiðursathöfn þín við minnis- varðann, sem mér skilst að hafi verið eitt síðasta verk þitt í heim- sókninni, að leggja blessun þína yfir morðið á Guðmundi Kamban? Atburðurinn hefur verið skráður í íslenskar kennslubækur,_ svo líkur eða vissa er fyrir því að íslending- ar þekkja vel til málsins. ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON, Sólheimum 23, Reykjavík. Alit efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta. ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.