Morgunblaðið - 11.12.1996, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996 65
ufTILBOÐ KR. 300
STÆRSTA TJALDIÐ MEÐ
DIGITAL
DIGITAL ENGU LIKT
Allir salir með stafrænu hljóði. ALVÖRU BÍÓ!
í tilefni að nýja DOLBY DIGITAL hljóðkerfinu
í öllum sölum og stærri sýningartjöldum í
B og C sal, bjóðum við 300 kr. miðaverð í dag.
★★★ Á.Þ. Dags
kitkr Guðni. Tafei
M GEEQ
TILBOÐ KR. 300
Sýnd ki. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára. ATH sýnd í A-sal í 3 daga
Ein frægasta teiknimyndahetja
allra tíma er komin á hvíta tjaldið
!12I!^éHtilboð KR. 300
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
IJINGLE
MJLTMWWM frumsynd
Æ&mm mwMsm mmn.m 13_ DESEMBER
FRUMSÝNIIUG: EIIUSTIRIUI
Dlrector Cnuloc or hér MpfivlcinR
langbestu mynd... allir leikarar standa sig frábærlega" toreturnto SV,BMBL ★★★1/2 / ' ;
the scene ÓHT.Rás 2 ★★★ of Uie crime.
EMPIRE ★★★★★
ÍÍlIíL ' 11! S"
Skuggar fortiðar herja á lítið bæjarsamfélag við landamæri
Texas og Mexíkó þegar beinagrind finnst i eyðimörkinni. f
kjölfar rannsóknarinnar opnast gömul sár á ný hjá bæjarfólkinu
sem flest virðast tengjast þessari spennandi morðgátu á einn
eða annan hátt. Lone Star er ein umtalaðasta mynd ársins og
hefur hvarvetna fengið frábæra dóma.
Aðalhlutverk: Kris Kristoferson (Convoy). Matthew McConaughy
(A Time To Kill) og Frances McDormand (Fargo).
Leikstjóri: John Sayles.
Sýnd ki. 5 og 9. Bönnuð innan 14 ára.
Fyrstu 200 sem kaupa mexíkóskan
mat á B.K. kjúklingi, Grensásvegi,
fá frímiða á myndina.
ÍIK
HETJUDAÐ
Sýnd kl.4.45, 6.50, 9 og 11.10.
B.i. 14 ára.
SAKLAUS FEGURÐ
*7,'(fte*
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.15. £
QzvynetH
‘Vaítro’W
Sýnd kl.
Nýjar plötur
Að slysast til
að hlusta á ljóð
Hallgrímur Óskarsson hefur sent frá sér plötuna
Hugurinn heima en á henni eru frumsamin lög,
söngtextar og ljóð. Efnið er að mestu flutt af lands-
kunnum listamönnum og segir Hallgrímur það
hjálpa til við að draga athygli fólks að plötunni.
HALLGRÍMUR er verkfræðingur
að mennt og starfar sem deildar-
stjóri á markaðssviði Flugleiða.
Aðspurður hvort það væri rétt sem
blaðamaður hefði heyrt, að hann
væri hirðskáld fyrirtækisins, sagði
hann aðra bera þann titil. „Það
eru mörg góð skáld hjá Flugleiðum
°g þar á meðal Einar Sigurðsson,
aðstoðarmaður forstjóra. Ég hef
þó flutt ljóð á árshátíð fyrirtækis-
ins með aðstoð ballettdansara og
hljóðfæraleikara," sagði Hallgrím-
ur í samtali við Morgunblaðið en
hann hefur ekki komið fram opin-
berlega að öðru leyti.
Enginn byrjendabragur
Hann segist hafa fengist við tón-
list og ljóðagerð frá tvítugu en
hafi beðið með útgáfu þar til nú.
Hann segist feginn því enda sé
hann nú að eigin áliti búinn að
ná nægum þroska til að senda
efni frá sér á almennan markað.
..Ég held að ég geti sagt með
nokkurri vissu að það er enginn
þyijendabragur á þessum diski.
Ég er sem betur fer búinn að
henda flestum æskuverkum mín-
um.“ Hann segist upphaflega hafa
ætlað að gefa ljóð sín út á bók
en hafi síðan farið að velta fyrir
sér hvort bók eftir óþekktan verk-
fræðing myndi ekki bara týnast í
jólabókaflóðinu. „Ég taldi mig
geta vakið meiri hughrif hjá fólki
með því að flytja ljóð við tónlistar-
undirleik og því datt mér í hug
að gefa út geisladisk, þó ég hafi
reyndar síðar fengið bakþanka
þegar ég fór að hugsa um allan
þann fjölda álitlegra geisladiska
sem koma út fyrir jólin.
Ég var svo heppinn að fá Pál
Óskar, Stefán Hilmarsson, Gunn-
laug Briem og fleira gott fólk til
hjálpa mér að setja lögin í áheyri-
legan búning auk þess sem Jon
Kjell Seljeseth sá um allar útsetn-
ingar og einstaka lagasmíðar. Það
hjálpar til við að vekja athygli á
diskinum enda eru Páll og Stefán
þarna að syngja þá tegund af lög-
um sem hentar rödd þeirra ákaf-
lega vel. Kannski munu aðdáendur
þeirra sækja í diskinn og slysast
þá i leiðinni til að hlusta á ljóðin,“
HALLGRÍMUR Óskarsson ljóðskáld.
sagði Hallgrímur. Hann segir að
sjálfsagt sé þessi „markaðsfræði-
lega“ hugsun að miklu leyti sprott-
in úr vinnuumhverfi hans. „Það
er ekkert metnaðarmál hjá mér
að vera einn á diski að flytja eigin
ljóð.“
Aldýriháttur og
miðbæjarstemning
Ljóð Hallgríms eru flest nýróm-
antísk og segist hann yrkja bæði
í föstu formi og óbundnu formi.
„Ég nota gömul form, stundum í
breyttri mynd, í minni ljóðgerð
en mér finnst formið ekki skipta
meginmáli heldur að ljóðið veki
hughrif. Ljóð mín fjalla að megn-
inu til um mannlega eiginleika
auk þess sem ég hef leikið mér
að því að yrkja um hluti sem
standa okkur nærri, eins og villta
miðbæjastemningu hjá ungling-
um í Reykjavík, til dæmis í ljóðinu
Miðbæjarpostilla. Þar bregð ég
fyrir mig einum elsta bragarhætti
sem til er á íslensku, aldýriháttur
frá 12. öld sem er úr Snorra
Eddu.“ Hallgrímur les eitt ljóða
sinna á diskinuni sjálfur en að
öðru leyti sjá leikararnir Jóhann
Sigurðarson og Hinrik Ólafsson
um Ijóðafiutninginn auk þess sem
Gary Wake flytur eitt ljóð á
ensku. „Þeir lesa svo miklu betur
en ég og ég hugsa mest um að
hlustandanum þyki gaman að
hlusta á ljóðin." Hallgrímur sem-
ur lög sín með aðstoð gítars og
leikur á hann í nokkrum laganna.
Einnig koma systkini hans við
sögu. Ásta leikur á fiðlu, Fanney
syngur og Gunnar leikur á slag-
verk og trommur. „Gunnar er 14
ára og fannst honum gaman að
taka þátt í svona stóru verkefni,“
segir Hallgrímur og brosir.
Það er við hæfi að spyija verk-
fræðinginn á markaðssviðinu um
hver markhópur hans er í sölu
plötunnar.
„Ég tel að allir sem eru 15 ára
og eldri eigi að hafa gaman af
plötunni. Þeim sem eru á aldrinum
á milli 15 og 25 ára ætti að líka
við lögin sem Páll og Stefán syngja
og þeim eldri finnst kannski
áhugavert að hlýða á ljóð í flutn-
ingi nokkurra af færustu lesmönn-
um þjóðarinnar.“
Frábær sjónvörp
á fínu verði
ÁRMÚIA 38 Sflfll 5531133
Jólagjöf golfarans
SamTorrance regngallar,
vatns-og vindheldar peysur
og blússur í úrvali.
Ath.: 10% staðgreiðslu-
afsláttur af öllum golfvörum
í desember, elnnlg af póstkröfum.
Versliö í sérverslun golfarans.
Opið alla daga og sunnudaga
kl. 13-18.
Golfvörur sf.
Lyngási, Garðabæ, sími 5651044.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!