Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 18
AUK/SlA»T».
18 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
VERIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
*~~~ ..... ... "" ' “ .——*>»
K O s s 1 c; N C~> I
s ^ O W 8 O A H ^ '
Toppur'inn!
lifeíE’
Skóna og bindingc
fœrðu líka hjó okkur
FKAMtíR
SNORRABRAUT • SlMI 561 2045
LITOVAARA
' 146-153 cm
33.500 kr.
Handbók
fyrir skip
FISKMARKAÐUR Suðurnesja hef-
ur gefið út handbók fyrir fiskiskip.
Hún er sérstaklega ætluð þeim skip-
um, sem selja afla sinn á fiskmörk-
uðum. Þar eru leiðbeiningar um að-
gerð, þvott, flokkun, umbúðir, frá-
gang og ísun á fiski. Ennfremur eru
í handbókinni kaflar um merkingar
og skráningu, tilkynningar um sölu,
löndun og vigtun, mat á hráefni,
uppboð, uppgjör og reikningsskil og
vanefndir vegna afla, sem seldur er
á Qarskiptamarkaði. Handbókinni
er ætlað að bæta meðferð á fiski
um borð og skýra út fyrir fiskselj-
endum hvernig málin ganga fyrir
sig, þegar fiskur er seldur á mörkuð-
um.
-----» --------
Ályktanir ICFA:
Framleiðsla
fæðu úr sjó
verði aukin
ÝMSAR stefnumarkandi ályktanir
voru samþykktar á ársfundi Alþjóða
sjávarútvegssamtakanna, ICFA,
sem haldinn var í Seoul í Suður-
Kóreu dagana 29. til 31. október sl.
Meðal annars var skorað á ríkis-
stjórnir, sem þátt tóku í Matvælar-
áðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Róm
um miðjan nóvember, að nýta auð-
lindir sjávarins með hámarksaf-
rakstur í huga og til að tryggja vax-
andi mannfjölda næga fæðu. íslend-
ingar eru aðilar að samtökum þess-
um og var Kristján Loftsson fulltrúi
okkar á ársfundinum.
Lee Weddig, fyrsti varaforseti
Alþjóðasjávarútvegssamtakanna,
sem stofnanir og hagsmunasamtök
í sjávarútvegi í 12 ríkjum eiga aðild
að, sagði á fundinum, að fólki ætti
enn eftir að fjölga um nokkra millj-
arða og því yrði að setja markið
hærra en að miða við það eitt að
halda í horfinu. „Nauðsynlegt er að
vinna að auknum framförum í sjáv-
areldi hvers konar, bæta aðferðir við
uppbyggingu fiskstofna, hafa betri
stjórn á ijolgun rándýra og treysta
mengunarvarnir. Þáttur sjávarút-
vegsins í baráttunni við fátækt verð-
ur að njóta skilnings,“ sagði Weddig.
CITES-listinn
Á fundinum í Seoul var samþykkt
að mótmæla því, að Ráðstefnan um
alþjóðleg viðskipti með dýr í útrým-
ingarhættu, CITES, settu á þann
lista físktegundir, sem væru undir
alþjóðlegri stjórn. Með samþykktinni
var verið að bregðast við tilraunum
sumra ríkisstjórna til að fá bláuggat-
únfiski, hákarli og háfi bætt á CIT-
ES-listann.
Alvarlegar athugasemdir voru
gerðar við tillögu umhverfisvernd-
arsamtakanna World Wildlife Fund
um að komið verði á fót sérstöku
eftirlitsráði, sem fylgdist með fisk-
veiðstjórnun, vottun og „grænum“
stimplum. Var á það bent á fundin-
um, að stjórn fiskveiðanna væri á
ábyrgð ríkisstjórna og milliríkja-
stofnana. ICFÁ mun einnig hvetja
ríkisstjórnir aðildarfélaganna til að
mótmæla banni Bandaríkjastjórnar
við innflutningi á rækju frá sumum
löndum á væntanlegum fundi Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO.
Ný aðildarsamtök
Vidar Ulriksen frá Samtökum
norskra sjómanna og V.M. Ka-
mentsev, fulltrúi landssamtaka rúss-
neskra sjávarútvegssamtaka, voru
kjörnir forseti og varaforseti en
Weddig verður áfram fyrsti varafor-
seti og framkvæmdastjóri ICFA.
Á fundinum í Seoul var samþykkt
aðild nokkurra nýrra samtaka,
tvennra í Litháen, einna í Ástralíu
og einna í Asíu. Ársfundur ICFA
1997 verður haldinn í St. John’s á
Nýfundnalandi þann 11. til 13. sept-
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
MIKIÐ hefur verið fryst af loðnu í Neskaupstað að undanförnu.
MIKIL vinna hefur verið við síld-
arsöltun og frystingu á síld og
loðnu í Neskaupstað frá því í
haust. Búið er að salta í 45.000
tunnur, sem að öllum líkindum
er mesta söltun sögunnar hjá
einstöku fyrirtæki á íslandi. Síld-
arvinnslan hf. hefur ennfremur
fryst um 2.000 tonn af síld, mest
flök og 1.500 til 1.600 tonn af
loðnu hafa verið fryst.
Þetta er í öllum tilfellum meiri
framleiðsla í fyrra. Til dæmis var
engin loðna fryst á haustmánuð-
Mikil vinna í
síld og loðnu
um þá. Frysta síldin fer mest til
Þýzkalands og Frakklands, en í
Frakklandi er hún reykt hjá dótt-
urfyrirtæki SIF, Nord Morue, og
seld í neytendapakkningum um
sunnan verða álfuna. Líklega
verður lítið saltað til viðbótar,
að minnsta kosti af heilli síld og
hauskorinni og slógdreginni, þar
sem langt er komið að salta upp
í gerða samninga.
Það er nótaskip Síldarvinnsl-
unnar, Börkur NK, sem hefur
verið drýgstur við að landa síld
í Neskaupstað í haust, en hann
var í landi í gær vegna brælu.
Beitir NK hefur verið á loðnu-
veiðum í troll og í gær kom hann
inn með 1.100 tonn ogfór hluti
þess í frystingu. Auk hans hafa
Þorsteinn EA og Jón Sigurðsson
GK landað loðnu í Neskaupstað
í haust.
Getur þú aeRð bÆmammSÉWáu
Þittframlag
skiptir
öllu máli
<5lT HJÁLPftRSTOFNUN
'QTj KIRKJUNNAR
- meö þinni hjálp
*