Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félagsdómur í máli Fiskiðjunnar Skagfirðings hf.
Vinnustöðvun brot á
aðalkjarasamningi
VINNUSTÖÐVUN Fiskiðjunnar
Skagfirðings hf. í haust var brot á
aðalkjarasamningi Verkamannasam-
bandsins og Vinnumálasambandsins
frá 1. september eða eftir að nýtt
fiskveiðiár gekk í garð samkvæmt
dómi meirihluta Félagsdóms sem féll
í gær. Vinnustöðvunin var tilkynnt
með fjögurra vikna fyrirvara og hófst
hún 12. ágúst. Stóð vinnustöðvunin
til 1. október og hafði þá alis 90
starfsmönnum verið sagt upp en
ástæðan var sögð hráefnisskortur
hjá fyrirtækinu.
Alþýðusamband íslands höfðaði
málið fyrir Félagsdómi fyrir hönd
VMSÍ vegna verkalýðsfélagsins
Fram gegn Vinnumálasambandinu
vegna Fiskiðjunnar Skagfirðings hf.
í niðurstöðum Félagsdóms er m.a.
bent á að ákvæði það í aðal-
kjarasamningnum, sem hefur að
geyma heimild til niðurfellingar á
launagreiðslum á meðan vinnslu-
stöðvun stendur sé undantekning frá
þeirri meginreglu að vinnuveitandi
skuldbindi sig til þess að greiða
starfsmanni laun, þótt hráefnisskort-
ur valdi vinnslustöðvun og beri að
túlka hana þröngt. Því beri Skagfirð-
ingur sönnunarbyrði fyrir því að þau
skilyrði hafi verið til staðar að beita
mætti undanþágurgreininni og segja
starfsfólki upp vegna hráefnisskorts.
Óumdeilt var í málinu að skip
Skagfirðings voru orðin kvótalítil í
lok fiskveiðiársins þegar stöðvunin
kom til framkvæmda og Félagsdóm-
ur telur ekki hægt að gera þær kröf-
ur til fyrirtækisins að það héldi allri
fiskvinnslu sinni starfandi við þær
aðstæður. Með nýju fiskveiðiári 1.
september hafi skipin hins vegar
haft nægar aflaheimildir og dómur-
inn segir að stefndi hafi ekki sýnt
fram á, að hráefnisskort fyrirtækis-
ins eftir þann tíma megi rekjá til
almenns aflabrests, bilana í skipum
eða annarra atvika sem ekki var á
hans valdi að ráða við.
Einn dómari af fimm skilaði sér-
atkvæði og vildi sýkna stefnda af
kröfum stefnanda.
Stjórn Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs skoði málið
Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ, er ánægður með niðurstöðu
Félagsdóms, sem er mjög skýr að
hans mati, um að aðalkjarasamning-
ur sambandsins hafi verið brotinn.
„Þetta sýnir einfaldlega að okkar
mati að atvinnurekendur í þessari
atvinnugrein, sem er lifibrauð okkar
íslendinga, verða að fara betur með
þau fjöregg sem þeir eru með í hönd-
unum,“ segir hann. Björn Grétar
segir að ýmsar spurningar vakni í
kjölfar þessa dóms og hann telur að
stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs
ætti að skoða hvort þær greiðslur
sem starfsmennirnir fengu úr sjóðn-
um á meðan á vinnslustöðvuninni
stóð hefðu ekki átt að koma frá fyrir-
tækinu sjálfu.
Mömmu-
morgunn í
safnaðar-
heimilinu
Á „MÖMMUMORGNUM" er
safnaðarheimili Dómkirkj-
unnar við Lækjargötu um-
kringt barnavögnum, þannig
að ekki fer framhjá neinum
hvað er á seyði innan dyra.
Að sögn Jakobs Ágústs
Hjálmarssonar dómkirkju-
prests halda margir söfnuðir
mömmumorgna einu sinni í
viku. Mæður mæta gjarnan
með börn sín, fá sér kaffi-
bolla og spjalla saman. Þær
fá einnig fræðslu og upplýs-
ingar um uppeldismál, ekki
sízt trúaruppeldi barna. Að-
spurður hvort pabbar hafi
sézt á „mömmumorgnum",
segir dómkirkjuprestur að
það hafi komið fyrir, en feð-
urnir séu enn sem komið er
afar fáir.
Stöð 2 og Sýn
Bannaðar
myndir sér-
merktar á
skjánum
STÖÐ 2 og sjónvarpsstöðin
Sýn munu framvegis sér-
merkja á sjónvarpsskjánum
allt sjónvarpsefni sem ekki
er ætlað börnum.
Gult merki efst í hægra
horni skjásins táknar að það
sem verið er að sýna sé ekki
við hæfi barna yngri en 12
ára. Rautt merki er hins veg-
ar notað fyrir myndir sem
bannaðareru 16 áraogyngri.
Merkingar hafa þegar
verið teknar upp
„Þetta er gert til þess að
það fari aldrei á milli mála
hvort verið sé að sýna bann-
aðar myndir eða ekki. Þessar
merkingar hafa nú þegar ver-
ið teknar upp bæði á Stöð 2
og Sýn,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá íslenska útvarpsfé-
laginu.
Stóru sjúkrahúsin fá
300 milljóna hækkun
TILLÖGUR um breytingar á fyrir-
huguðum fjárveitingaramma
sjúkrahúsanna voru kynntar í fjár-
laganefnd Alþingis í gærkvöldi. Að
sögn Jóns Kristjánssonar, for-
manns fjárlaganefndar, lagði sér-
nefnd sú, sem unnið hefur að tillög-
unum, til að stóru sjúkrahúsin í
Reykjavík fái 305 milljóna króna
hærri fjárveitingu en gert var ráð
fyrir í fjárlagafrumvarpinu eins og
það var lagt fram í haust. Einnig
er lagt til að sá 160 milljóna kr.
sparnaður sem boðað var að ná
ætti í rekstri sjúkrahúsa á lands-
byggðinni á næsta ári skiptist á
þrjú ár.
Sparnaði úti á landi
deilt á þrjú ár
Sjúkrahúsi Reykjavíkur eru sam-
kvæmt tillögunum ætlaðar 120
m.kr., Ríkisspítulunum 85 m.kr. og
100 m.kr. er ætlað að fara í hag-
ræðingarlið, sem heilbrigðisráðu-
neytið getur ráðstafað.
Jón segir þá nefnd, sem hafi
haft skoðun á vanda landsbyggðar-
sjúkrahúsanna með höndum, hafa
komizt að þeirri niðurstöðu að ekki
sé gerlegt að ná 160 milljóna kr.
spamaði á næsta ári. Gerð er til-
laga um að deila þessum sparnaði
á þijú ár; 60 milljónir sparist á
næsta ári, 60 milljónir á árinu 1998
og 40 milljónir 1999. Með samráði
við heimamenn og viðræðum milli
heilbrigðisstofnana um samstarf
eða hugsanlega sameiningu er
hægt að fara í þetta verkefni eftir
áramót, segir Jón. Hvernig sparn-
aður deilist á stofnanirnar verður
fyrst ákveðið þá.
Einkum er horft til nokkurra
svæða með tilliti til hvar vænzt er
að sparnaður náist með skipulags-
breytingum, og nefnir Jón í því
sambandi Norðurland vestra,
Austurland, Þingeyjarsýslur, norð-
anverða Vestfirði og Snæfellsnes
og Dali.
Morgunblaðið/RAX
Tvö stéttarfélög hafa vísað kjaradeilu til sáttasemjara
Norræna blaðamanna-
miðstöðin
Hjón formenn samninganefndanna
SAMNINGANEFNDIR tveggja
stéttarfélaga, Félags íslenskra
náttúrufræðinga og Stéttarfé-
MEÐ blaðinu í dag fylgir
fjögurra síðna auglýsinga-
blað frá BYKO.
lags sálfræðinga, hafa slitið við-
ræðum við samninganefndir
ríkisins og Reykjavíkurborgar
og vísað kjaraviðræðum sínum
til ríkissáttasemjara. Formenn
samninganefnda þessara
tveggja félajga, Páll Halldórsson
og Sólveig Asgrímsdóttir, eru
hjón.
Aðspurður kvaðst Páll ekki
telja þau hjónin eiga torvelt með
að semja, en hann viðurkenni
þó að hann sé ekki eftirgefan-
legur og hafi aldrei verið.
„Við náum hins vegar mjög
góðu samkomulagi innbyrðis
enda búin að vera gift í 25 ár
og ekkert lát á,“ segir hann.
Samningar
ekki ræddir
„Og við getum sömuleiðis
samið að heiman eins og heima,
ég hef hvað eftir annað gengið
frá kjarasamningum og lokið
öllum deilum með samkomu-
lagi.“
Páll Sólveig
Páll segir það vera helbera
tilviljun að samninganefndir
þessara félaga séu þær fyrstu
sem ákveði að vísa viðræðum
til rikissáttasemjara. Hann neit-
ar því að þau Sólveig hafi rætt
gang viðræðna hjá hvoru fyrir
sig, þannig að engin bein tengsl
sé að finna.
„Við erum bæði önnum kafin
og þegar við erum heima verður
að viðurkennast að við viljum
ræða flest annað en kjarasamn-
inga. Það er erfiðara að segja
til um óbein áhrif, en fólk verð-
ur hins vegar að hafa í huga
að þótt við gegnum formennsku
í samninganefndunum, silja
fjöldamargir aðrir í þeim og
taka þátt í að stýra ferðinni.
Eg átti í raun ekki von á að
sálfræðingar hættu nákvæm-
lega þennan dag sem þeir
hættu, eða daginn áður en við
í Félagi íslenskra náttúrufræð-
inga vorum á okkar seinasta
fundi,“ segir Páll.
Náttúrufræðingar áttu fund
með sáttasemjara í gærmorgun
og segir Páll gert ráð fyrir að
boðað verði til fundar í þessari
viku.
„Við munum leggja mikið upp
úr því að fundað verði stíft á
næstunni, ekki síst þar sem búið
er að Ieggja mikla vinnu í kröfu-
gerð og erum tilbúin í harða
glímu. Ástæðan fyrir því að við
sendum málið til sáttasemjara
var sú að ekkert var að gerast
í hinum viðræðunum, þetta var
bara sýndarmennska, sem er
svo sem ekkert nýtt.“
Mælt með
Sigrúnu í
stöðu rektors
STJÓRN Norrænu blaðamannamið-
stöðvarinnar í Árósum hefur mælt
með að dr. Sigrún Stefánsdóttir
fjölmiðlafræð-
ingur verði ráðin
rektor við blaða-
mannamiðstöð-
ina frá 1. sept-
ember á næsta
Sigrún Stef-
ánsdóttir stund-
aði nám við
Blaðamannaskólann í Ósló og nám
í fjölmiðlafræði við University of
Minnesota í Bandaríkjunum. Lauk
hún doktorsprófi árið 1987. Sigrún
hefur kennt fjölmiðlafræði við Há-
skóla íslands frá árinu 1987 og ver-
ið kennslustjóri við HÍ frá 1990.
Sigrún var blaðamaður á Morgun-
blaðinu, ritstjóri Ísiendings á Akur-
eyri 1973-1975 og fréttamaður og
dagskrárgerðarmaður hjá ríkissjón-
varpinu frá 1975.