Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ ER Georgíumaðurinn var á sínum tíma kærður fyrir nauðgun, stóð RLR fyrir einstæðri lögregluað- gerð; sakbendingu á norðurbakka Hafnarfjarðorhafnar, þar sem 67 sjómenn röðuðu sér upp. Neitað um bætur vegna vafa um sakleysi HERAÐSDOMUR Reykjavíkur sýknaði í gær ríkissjóð af 3,2 millj- óna króna kröfu Georgíumanns um miskabætur, vegna gæsluvarð- halds og lausagæslu sem hann sætti á meðan meint nauðgun hans á íslenskri konu var rannsökuð. í niðurstöðu Héraðsdóms er m.a. vís- að til þess, að ekki yrði talið lík- legra að maðurinn væri saklaus en sekur af nauðguninni. í nóvember í fyrra var maðurinn sýknaður af nauðgunarákærunni í Héraðsdómi Reykjaness, en félagi hans sak- felldur. Maðurinn var handtekinn eftir að tvær íslenskar konur kærðu nauðgun um borð í skipinu Atl- antic Princess í Hafnarfjarðarhöfn í júní í fyrra. RLR lét fara fram sakbendingu á norðurbakka Hafn- arfjarðarhafnar með þeim hætti að 67 menn úr áhöfn skipsins röðuðu sér upp og bentu konurnar á þá sem þær töldu hafa nauðgað sér. Maðurinn var ekki í þeim hópi, en tekin voru blóðsýni úr honum og fleiri skipverjum. Samkvæmt DNA- rannsókn reyndust sæðissýni úr leggöngum annarrar konunnar hafa sama mynstur erfðamarka og greindust í blóði mannsins. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi í Síðumúlafangelsi í 21 dag og sætti síðan lausagæslu í 86 daga. Hann krafðist bóta vegna þessa, þar sem hann hefði verið alfarið sýknaður og hefði þjáðst andlega og líkam- lega vegna þessarar löngu gæslu- varðhaldsvistar í framandi landi. Áreiðanleg rannsókn Dómarinn, Hjörtur 0. Aðal- steinsson, segir í niðurstöðum sín- um að upplýst hafi verið við með- ferð sakamálsins á hendur mannin- um að hann hafi haft samfarir við konuna og fellt til hennar sæði. Hafi rannsóknin, sem sú niðurstaða byggði á, verið talin mjög áreiðan- leg. Maðurinn hafi verið í haldi vegna gruns um brot, sem varði fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Hann hafi, þrátt fyrir niðurstöðu DNA-rannsóknar, neitað því að hafa haft nokkur sam- skipti við konuna, en þar sem telja yrði að rannsóknin væri óyggjandi sönnunargagn um að hann hafi haft samfarir við hana væri ljóst að hann hefði orðið ber að ósann- indum við meðferð sakamálsins á hendur honum. „Samkvæmt framansögðu veltur bótaréttur stefnanda í máli þessu á því hvort fremur megi telja hann líklegan til að vera saklaus af þeirri háttsemi er hann var borinn en sekan,“ segir dómarinn í niðurstöð- um sínum og telur að svo sé ekki. Því beri að sýkna ríkissjóð af ölium kröfum hans. Sementsverksmiðja ríkisins Heimildar leitað að selja 25% hlut ÓSKAÐ verður eftir heimild Alþingis til að selja 25% af hlutabréfum ríkis- ins í Sementsverksmiðjunni, sam- kvæmt tillögu sem iðnaðarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær. Sementsverksmiðjunni var breytt í hlutafélag í eigu ríkisins árið 1993 en iðnaðarráðherra þarf að leita heimildar Alþingis vilji hann selja hiut í verksmiðjunni. Er tillaga iðn- aðaráðherra að þessi heimild verði veitt í fjárlögum fyrir næsta ár. Verksmiðjan er metin á um 750 milljónir króna. Einkavæðingar- nefnd ríkisstjórnarinnar hefur lagt til að Sementsverksmiðjan verði gerði að almenningshlutafélagi og hlutabréfm seld í áföngum svipað og hlutabréf í Lyfjaversluninni og Jarðborunum. Að sögn Finns Ing- ólfssonar iðnaðarráðherra liggur ekki fyrir ákvörðun þar að lútandi en heimildarinnar er óskað ef til þess komi að stjórnvöld vilji selja þennan íjórðungshlut í verksmiðj- unni á næsta ári. ■s Í,::s **»*» » f > i SMrW# WSSmC í. Morgunblaðið/Golli Mjög margir hafa leitað aðstoðar hjá líknarfélögum fyrir jólin Biðraðir voru út á götu hjá Mæðrastyrksnefndinni MARGIR einstaklingar og fjölskyld- ur hafa leitað aðstoðar líknarfélaga og Félagsmálastofnunar Reykjavík- ur nú í desember líkt og undanfarin ár. Þörfin fyrir aðstoð virðist vera brýnust hjá öryrkjum, atvinnulaus- um og einstæðum mæðrum. Hjá Félagsmálastofnun er veitt fjárhags- aðstoð en flest líknarfélögin gefa matvæli og gjafakort í verslunum. Að sögn Láru Bjömsdóttur, fé- lagsmálastjóra Reykjavíkur, hafa færri leitað eftir aðstoð Félagsmála- stofnunar í ár heldur en í fyrra. „Þá komu um 3.800 mál til okkar en í ár eru þau um 3.500 talsins. í maí á síðasta ári var gerð breyting á úthlutunarreglum um fjárhagsað- stoð Félagsmálastofnunar þannig að við veitum einstaklingum sem hafa undir 53.596 krónum í ráðstöfunar- tekjur á mánuði fjárhagsaðstoð upp að þeirri upphæð og hjá hjónum og sambýlisfólki er miðað við tekjur undir 96 þúsundum króna á mán- uði. Barnabótum, barnabótaaukum og meðlögum er haldið þar fyrir utan enda eru þær ætlaðar til fram- færslu barna. Auk þess greiðum við húsaleigubætur til þeirra sem eiga rétt á þeim. Þrátt fyrir að umsóknum um að- stoð hafi fækkað á milli ára þá er desember viðkvæmasti mánuður ársins og þá reynum við að aðstoða fólk strax og umsóknir berast. Til þess að það sé framkvæmanlegt hefur sérstakt átak verið í gangi hjá stofnuninni og aukafólk ráðið til starfa." Vantar tilfinnanlega barnaföt Fleiri hafa leitað til Mæðrastyrks- nefndar fyrir þessi jól en nokkru sinni áður. Mæðrastyrksnefnd gefur matarmiða í Bónus og Hagkaup og fer upphæð þeirra eftir fjölda heimil- ismanna. Fjölskyldur fá einnig kjöt- gjafir frá nefndinni, segir Unnur Jónasdóttir, formaður Mæðrastyrks- nefndar. „í fyrra var leitað til okkar frá rúmlega þúsund heimilum en þau eru miklu fleiri í ár og hefur verið biðröð fyrir utan skrifstofu okkar á Njáls- götunni alla virka daga frá 9. desem- ber. Auk þess að gefa matarúttektir í verslunum þá erum við með fataút- hlutanir á Sólvallagötu alla miðviku- daga og gott væri ef fólk getur séð af barnafötum að það komi þeim til okkar á Sólvallagötu 48 því það vant- ar tilfinnanlega meira af þeim.“ Hjálparstofnun kirkjunnar og Reykjavíkurdeild Rauða krossins sameina hjálparstarf sitt fyrir þessi jól líkt og tvö undanfarin ár og út- hluta matvöru sem fyrirtæki og stofnanir hafa gefíð til hjálparstarfs- ins. í síðustu viku fór fram skráning þeirra sem óskuðu eftir aðstoð og stendur úthlutun yfir fram að jólum. Að sögn Áslaugar Arndal hafa 7-800 manns leitað til Hjálparstofn- unar fyrir þessi jól og er það svipað- ur fjöldi og árið á undan. Biðlisti eftir aðstoð Um 200 manns hafa fengið úthlut- að gjafakortum í Hagkaup hjá Hjálp- ræðishernum nú í desember og auk þess eru um 50 manns á biðlista en ekki er útséð um hvort hægt verði að veita þeim aðstoð. Auk gjafakort- anna fá fjölskyldur úthlutað matar- pökkum. Elsabet Daníelsdóttir, flokksfor- ingi hjá Hjálpræðishernum, segir að á annað hundrað manns hafi fengið úthlutað fatnaði fyrir þessi jól hjá Hjálpræðishernum og Ijóst væri að víða ríkti neyð á heimilum. Á að- fangadagskvöld er búist við því að um hundrað manns verði í sameigin- legum kvöldverði hjá Hjálpræðishem- um og Vemd líkt og undanfarin ár. „Langaði að búa til fram- leiðsluvöru“ UNGSKÁLDIÐ Andri Snær Magnason rak upp stór augu þeg- ar hann sá bóksölulista Morgun- blaðsins í gærinorgun. Ástæðan var sú að ljóðabók hans, Bónus Ijóð, var komin upp í fyrsta sæti listans yfir seld skáldverk. Utgef- andi bókarinnar er Bónus og er hún aðeins seld í Bónus-verslun- unum. „Þetta byrjaði nú eiginlega sem hálfgert grín, mig langaði til að búa til framleiðsluvöru í sömu rit- röð og Bónus-kóla, Bónus-djús, Bónus-skinka og allt þetta - ein- hvern svona ódýran kveðskap til daglegrar neyslu. Þannig gæti maður til dæmis farið út í búð á miðvikudegi og keypt sér Ijóð og skinku og lesið svo ljóðin í bílnum á heimleiðinni," sagði Andri Snær. Ljóðin eru ort á síðastliðnu vori og sumri. „Ég var að gefa vinum og ættingjum ljóðin sem ódýrar afmælisgjafir í heimatilbúinni út- gáfu. Síðan fór ég í Bónus til Jó- hannesar til þess að fá leyfi fyrir grísnum. Þá vildi hann bara endi- lega gefa þetta út sjálfur, fram- leiða ljóð rétt eins og djús. Opið í dag 10-22 KRINGWN jrá morgni til kvölcls Tillaga sex þingmanna til þingsályktunar Hávaðamengun könnuð FULLTRÚAR úr fjórum þingflokk- um hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar, sem gengur út á að ríkisstjómin láti fara fram víðtæka úttekt á hávaða- og hljóðmengun hérlendis og leggja fyrir næsta þing niðurstöður hennar og tillögur til úrbóta. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Hjörleifur Guttormsson, Alþýðu- bandalagi. Auk hans standa fímm aðrir þingmenn að flutningi tillög- unnar, en þeir koma úr öllum þing- flokkum utan Framsóknarflokks. I greinargerð með tillögunni segir, að hávaði og hljóðmengun af marg- víslegu tagi fari vaxandi ár frá ári. Þar sé ekki aðeins um að ræða há- vaða frá umferð og atvinnurekstri „heldur einnig tónlist og talað orð úr hátölurum á almannafæri, í al- menningsfarartækjum, verzlunum, veitinga- og samkomuhúsum, líkams- ræktarstöðvum og á útivistarsvæð- um...“ Greint er frá því, að hljóðmengun yfír ákveðnum mörkum geti verið heilsuspillandi, og því sé brýnt að „af opinberri hálfu sé unnið skipulega gegn óþörfum og truflandi hávaða til verndar heilsu manna og til að tryggja rétt einstaklingsins til ómengaðs umhverfis." í greinargerðinni kemur fram, að samkvæmt upplýsingum frá Holl- ustuvemd ríkisins hefur aldrei verið gerð heildarúttekt á hávaða á Is- landi, en talið sé víst að hérlendis búi margir við hávaða sem sé langt yfir settum viðmiðunarmörkum. „Telja verður mjög brýnt,“ segja flutningsmenn í greinargerðinni, „að gerð verði úttekt á hávaða þannig að unnt sé að leggja grunn að úrbót- um.“ i I I * I l t ( ( l \í í í \i í í i 'i % i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.