Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÉG verð að stðkkva af, ég gleymdi alveg að það þarf einhver að vera eftir til að kasta
rekunum.
Greiðsla til skiptastjóra
lækkuð úr 9,2 milljónum í 2,6
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt að
greiðsla til skiptastjóra vegna
þrotabús útgerðar skuli lækkuð úr
rúmlega 9,2 milljónum króna í tæp-
lega 2,7 milljónir. Þá var skipta-
stjóra gert að greiða kröfuhafa í
búið 300 þúsund krónur í máls-
kostnað.
Málavextir voru þeir, að bú Júpit-
ers hf. var tekið til gjaldþrotaskipta
í apríl 1993 og skipaður skipta-
stjóri. Eina eign þrotabúsins var
fiskiskipið Júpiter, sem var selt í
júlí sama ár fyrir 255 milljónir, þar
af voru 200 milljónir greiddar með
yfírtöku áhvílandi veðskulda.
í frumvarpi skiptastjóra, sem
lagt var fram í apríl 1996, til úthlút-
unar á söluverði skipsins, var ráð-
gert að um 12,5 milljónir rynnu til
greiðslu skiptakostnaðar, en þar af
voru rúmlega 9,2 milljónir færðar
í einu lagi í lið með fyrirsögninni
„Skiptastjórn, vegna vinnu við sölu
skips, dómsmáls, skiptafunda,
ferðakostn. ofl.“
Einn kröfuhafa í búið óskaði
skýringar á þessum lið og í sundur-
liðun skiptastjóra kom m.a. fram
að sölulaun, 1,25% af 255 milljón-
um, námu rúmlega 3,8 milljónum,
vinna skiptastjóra var talin 583
klukkustundir á 6.000 krónur, eða
samtals tæpar 3,5 milljónir, vinna
löglærðs fulltrúa var talin 257,5
stundir á 5.500 krónur hver, eða
1,4 milljónir og vinna ritara talin
161,5 klst. á 2.000 krónur hver,
eða samtals 323.000 krónur. Vinnu-
stundir voru því alls 1.002 og kostn-
aður vegna þeirra um 5,2 milljónir.
Héraðsdómur dæmdi í júní sl. að
greiða skyldi samkvæmt frumvarp-
inu, að öðru leyti en því að kostnað-
ur við vinnu ritara ætti ekki að
koma sérstaklega til greiðslu. Mót-
mælti skiptastjóri því ekki og kröfu-
hafinn samþykkti þær upphæðir er
lutu að aðkeyptri vinnu og ferða-
kostnaði, samtals tæpar 162.000
krónur. Fyrir Hæstarétti reyndi því
á hvort skiptastjórinn ætti að fá
rúmar 3,8 milljónir í sölulaun og
hvort þóknun hans að öðru leyti
ætti að nema tæpum 5 milljónum.
Tók sér greiðslu smám saman
Hæstiréttur sagði, að ekki yrði
séð að skiptastjórinn hefði gert
kröfuhöfum ljóst að störf hans við
skiptastjóm kynnu að verða um-
fangsmeiri en búast mátti við, eða
hvaða aðferðum hann hygðist beita
við ákvörðun þóknunar. Þá hafi hann
heldur ekki kynnt þá ákvörðun sína
að taka sér greiðslu smám saman
af fé þrotabúsins upp í áfallna þókn-
un, svo sem hann hafi þó gert gagn-
stætt fortakslausu ákvæði laga um
gjaldþrotaskipti. Því hafí kröfuhafar
mátt treysta því, að störf skiptastjór-
ans yrðu ekki tímafrekari en vænta
mátti og jafnframt, að eingöngu
yrði tekið mið af þeim tíma, sem
yrði varið til verksins og endurgjald-
ið yrði hæfilegt. Loks hefðu kröfu-
hafar mátt treysta því, að þegar
fjallað yrði um fmmvarp til úthlut-
unar ætti þrotabúið enn óskerta þá
ijárhæð, sem skiptastjórinn teldi sér
bera í þóknun.
Ekki sölulaun af verðinu
Hæstiréttur hafnaði því að
skiptastjórinn ætti rétt á sölulaun-
um, þar sem ekki hafi verið rætt
sérstaklega um þóknun til hans
fyrir að leita tilboða í skipið og
annast að öðm leyti sölu þess. Þá
hafí fjöldi vinnustunda vegna skipt-
anna verið margfalt meiri en kröfu-
hafar hafi mátt vænta. Hæstiréttur
ákvað þóknunina hæfilega 2,5 millj-
ónir króna, auk þeirra 162 þúsunda
sem ágreiningur var ekki um, eða
samtals 2.661.750 krónur.
—
fifm
m * i rr
■. i ■ iv Vjr ' mMI :r riir^ r* *>' 1 W! ■í.-*ÍT:t f " <v, ÍOÍ St ? Jwi 9 "Æ
LOÐNUSKIPIÐ Júpíter í Reykjavíkurhöfn.
Hugleiðingar lítillar stúlku um jólin
Jólin eru
skemmtileg hátíð
HANNA Lísa Ólafs-
dóttir heitir tíu ára
gömul stúlka sem
í frístundum sínum fæst
við að yrkja kvæði. Hafs-
vísur heitir eitt ljóðið
hennar og er á þessa leið:
Ég elska hafið, sem byltist á
steinunum
það úfið er.
Líkt og laufið, sem fellur af
greinunum
það heyrir og sér
allt, sem fyrir augu ber.
Margir hafa farist hafinu á.
Þeir koma aldrei aftur
hafið sér um þá,
og Guð og hans náðarkraftur.
- Hvað skyldi svona
ung skáldkona hugsa um
jólin og jólahátíðina?
Mér finnst þau mjög
skemmtileg hátíð og veit
að Jesús fæddist á jólunum. Mér
fínnst þau skemmtileg af því að
þá líður manni svo vel, það er
gaman að fá pakka og það er
allt skreytt á heimilinu. Það er
svo góð stemmning og allt er
svo gaman. Ekki má gleyma
matnum, hann er svo góður.
- Gefur þú margar jólagjafir?
Ég gef bestu vinum mínum
og fjölskyldu minni. Sumar jóla-
gjafirnar bý ég til sjálf, t.d. fyr-
ir mömmu og pabba. Ég hef
búið til gjafir fyrir þau síðan ég
var sex ára og það er misjafnt
hvað ég bý til.
- Hefur þú ort kvæði um jólin?
Nei, ekki ennþá. Ég yrki um
svo margt, bæði um fólk og
landslag. Mér líður ágætlega
þegar ég yrki, ég er ekki í neinu
sérstöku skapi þá, frekar þó
glöð. Ég fór að yrkja um hafið
af því ég fann svo margt sem
gat rímað saman um hafið.
- Hefur einhver kennt þér að
yrkja?
Ékki beinlínis, ég hef bara
lært þetta svona, ég hef lesið
ljóð, t.d. þau sem ég læri í skól-
anum, það er þó ekkert ljóð sem
ég hef sérstakt uppáhald á. Mér
líst vel á svo mörg ljóð.
-Ertu trúuð?
Já, ég er það. Ég bið alltaf
til Guðs og fer í kirkju. Á jólun-
um finn ég mikinn frið og mér
líður vel. Það hjálpar mér líka
að biðja til Guðs ef mér líður
illa eða ef ég er hrædd.
- Hvernig eru jólasiðirnir í
þinni fjölskyldu?
Við borðum og spjöllum saman
og tökum upp pakkana. Við
hlustum yfirleitt á messu. Oft
spila ég við bræður mína bæði á
aðfangadagskvöld og á jóladag.
Við spilum bæði á venjuleg spil
og líka allskonar spil í kössum
sem bræður mínir eiga. Þeir eru
eldri en ég. Ég fæ oft-
ast jólaföt, ekki þó
nein sérföt heldur nota
sparifötin sem ég á ef
þau passa. Núna ætla
ég að vera í pilsi,
blússu og vesti sem mamma og
pabbi keyptu fyrir mig.
- Hvernig eru jólin þín í
skólanum?
Við fáum að koma með eitt-
hvað gott að borða, t.d. smákök-
ur, og svo er farið í leiki inni í
stofu, svo sem jólapakkahapp-
drætti. Allir koma með einn
pakka sem fær númer og svo
er dregið. Svo dönsum við kring-
um jólatréð og hver bekkur sér
um sín skemmtiatriði. Ég las upp
jólaljóð.
► Hanna Lísa Ólafsdóttir er
fædd í Reykjavík þann 16.
október 1986. Hún er næst-
yngst fimm barna hjónanna
Sigríðar Þórarinsdóttur og
Ólafs Jakobssonar. Hanna
Lísa stundar nám í Langholts-
skóla í Reykjavík, og er einnig
að læra píanóleik í Nýja tón-
listarskólanum. í frístundum
yrkir hún ljóð og leikur sér
þess á milli.
- Hefur þú lesið mikið um
jólin?
Já, bækur sem ég fæ í jóla-
gjöf. Ég fæ yfirleitt sögubækur
í jólagjöf. Mér finnst skemmti-
legt að lesa ýmiss konar bækur,
stundum les ég bækur þar sem
gerist margt spennandi en líka
finnst mér gaman að lesa um
lífið og tilveruna, bækur þar sem
lýst er áhugamálum krakka og
þess konar.
- Myndir þú vilja hafa jóla-
haldið öðruvísi en það er?
Nei, mér finnst jólin fín eins
og þau eru. Ég vil bara vera hjá
fjölskyldunni minni. Síðustu jól
gerðist skemmtilegur atburður
hjá okkur, það fæddist lítill bróð-
ir. Mér finnst mjög gaman að
hafa fengið lítinn bróður. Ég
passa hann stundum. Hann er
ekki farinn að ganga sjálfur
ennþá en hann ýtir sér áfram á
maganum.
- Trúir þú á jólasveininn?
Nei, ég hætti því fyrir nokkr-
um árum.
- En setur þú skóinn þinn út
í glugga fyrir jólin?
Nei, mér hefur aldrei verið
gefið í skóinn, ekki heldur þegar
ég var minni. Frænka mín gefur
mér yfirleitt jóladagatal sem
súkkulaði er í, og líka stundum
pabbi og mamma. Sumir vina
minna fá enn í skóinn.
- Borðar þú mikið
sælgæti um jólin?
Eg borða kannski
meira en venjulega á
aðfangadagskvöld en
annars ekki. Besti
maturinn sem ég fæ á jólunum
er hangikjötið.
- Fylgist þú með jóladagatali
Sjónvarpsins?
- Yfirleitt geri ég það. Mér
finnst orðabók Völundar mjög
góð, það er gott fyrir litla krakka
að læra svona góð og falleg orð
eins og eru í þeirri bók. Þar eru
góðar fyrirmyndir til að fara
eftir.
- Áttu einhvetja jólaósk?
Ekki aðra en þá að eiga góð
og skemmtileg jól.
Hanna Lísa Ólafsdóttir
Á jólunum
finn ég mikinn
frið