Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 10

Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Samkeppni útgáfufyrirtækja og verslana í bóksölu fyrir jólin er í algleymingi B IÓKSALA er tengd jólum óijúfanlegum böndum. Hvergi í heiminum hefur bóksala bundist ákveðn- um árstíma með jafnáþreifanleg- um hætti og á íslandi. Lengst af voru bækur seldar eingöngu í við- Enn blásið til urkenndum bókabúðum og jafnan á sama eða mjög svipuðu verði. Jafnvel þótt samkeppni hafi aukist á síðustu árum hófst hún ekki af krafti í bóksölu fyrr en fyrir um þremur árum þegar stórmarkaðir tóku þá ákvörðun að selja bækur. Árið 1994 upphófst mikið verð- stríð þegar Hagkaup og Bónus og fleiri seldu bækur með allt að 30% afslætti. í fyrra var bókastríðið jafnvel enn harðara og sáu bóka- verslanir sitt óvænna og tóku þátt í verðstnðinu. í ár hófst jólabóka- verðstríðið heldur seinna en í fyrra en virðist nú vera í algleymingi þegar vika er til jóla. Olíkar kenningar hafa verið settar fram um afleiðingar þessa verðstríðs. Af samtölum við eig- endur og framkvæmdastjóra stór- markaða og forsvarsmenn bóksala og útgefenda að dæma er fullljóst að verðstríðið hefur komið miklu róti á bókamarkaðinn. Landsmenn þurfa að hafa sig alla við að fylgj- ast með auglýsingum og verðtil- boðum. En eins og verða vill hefur komist á nokkur regla á ringulreið- ina og almenningur getur nú að minnsta kosti reitt sig á að hvert sem þeir leita bóka eru boðin af- sláttarkjör með einum eða öðrum hætti. Verðstríðið hófst fyrir alvöru þegar stórmarkaðirnir Bónus og Hagkaup höfðu blandað sér í það fyrir helgi. Frá mánaðamótum hefur Bónus boðið 15-40% afslátt af um 60 titlum. Hagkaup býður afslátt af öllum jólabókum, um 400 titlum, en býður ennfremur 21 titil á krónutölutilboði, 1996 kr. Bónus brást þegar við tilboðinu í gær og bauð lægra verð en Hag- kaup. Stærri bókaverslanir hafa markað sér fasta afsláttarstefnu. Mál og menning býður 15-30% af öllum bókum, alla daga fram til jóla. Eymundsson-verslanimar bjóða alla daga 15-30% afslátt af mismunandi titlum. Griffíll aug- lýsti lægsta verð á 10 bókum á föstudaginn var en býður enn- fremur aðrar bækur með 15% af- slætti. Stórmarkaðim- ---------- ir bmgðust þegar við tilboði Griffils og lækkuðu verð hjá sér. Þá býður Bóksala stúdenta kennurum, stúdentum og hollvin- bókaorrustu hætti þess óeðlilega. Aðspurður vildi Jóhannes engu svara um það hvort verslunin færi undir kostn- aðarverð við verðlagningu á ein- stökum bókum. „Við förum ekki undir kostnaðarverð í heildarbók- sölu okkar. Við rekum bóksöluna Samkeppni í sölu jóla- bóka er í algleymingi og í þríðja sinn hefur hafist grímmt verðstríð. Þórmundur Jónatans- son ræddi við bóksala og útgefendur um verð- stríðið og margvíslegar sem eina deild og hún stendur undir sér.“ Óskar Magnússon, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segir aldrei farið undir kostnaðarverð við verðlagningu bóka og hafnar því að aðrar vörur séu notaðar til að greiða niður bókaverð. „Við viljum hafa eðlilega afkomu af hverri vöru. Afkoma af matvöru er ekki slík að hún standi undir niðurgreiðslu." Bóksölunni bjargað afleiðingar þess. Morgunblaðið/Golli MIKILL handagangur var í bókaöskjunni hjá Bónus í gærdag en þar var þegar brugðist við verðtilboðum Hagkaups á jóla- bókunum sem auglýst voru í Morgunblaðinu í gær. vegna ákveðið að taka þátt í verð- kapphlaupinu af fullum krafti með þeim árangri að salan hefur aukist til muna í ár. Að sögn Egils Jó- hannssonar, sölustjóra hjá Máli og menningu, batnaði afkoma versl- unarinnar í desember í fyrra miðað við sama mánuð árið áður. um Háskólans valdar bækur me’ 30-35% afslætti en öðrum við- skiptavinum allar jólabækur með 15% afslætti. Minni verslanir hafa reynt að taka þátt í verðkapp- hlaupinu með ýmsum hætti. í þessari upptalningu er ekki tekið tillit til ýmissa hliðartilboða. Bóksala hefur víða aukist Erfitt hjá minni verslunum Eftir að verðstríðið hófst urðu margar smærri bókaverslanir ugg- andi um sinn hag og var því hald- ið fram í fyrra að rekstur verslan- anna hefði dregist verulega saman og hætta væri jafnvel á að margar þeirra yrðu að leggja upp laupana. Egill Jóhannsson kveðst geta staðfest að nokkur samdráttur hafi orðið í bóksölu Máls og menn- _______________ ingar til minni versl- Samdráttur ana- Á hinn hafi þeir ekki orðið varir við að bókaversl- anir hafi orðið að hætta rekstri af þeim Þannig hjá minni verslunum en fáar hafa hætt við stórmarkaði. Hann segir að minni verslanir hafi átt í érfiðleik- um hin síðustu ár en ekki væri ljóst hvaða afleiðingar verðstríð hefði til langs tíma á rekstur þeirra. Ýmsir hafa bent á að þróun bóksölu sé í takt við afdrif annarr- ar sérverslunar á síðustu áratug- um. Sérverslanir hafi átt undir högg að sækja og því þurfi ekki að koma á óvart að þau örlög bíði bóksölu einnig að færast á hendur færri og stærri fyrirtækja. Ólafur segir að útgefendur óttist þessa þróun og kjósi að bækur væru seldar allt árið um kring í sterkum sérverslunum. Aðspurður kveðst Ólafur efast um hvort hægt er að setja reglur um hvetjir megi versla með bækur og bendir á að Sam- keppnisstofnun hafi þegar úr- skurðað um að bókaútgefendur verði að afgreiða bækur til þeirra sem þess óska. Raunar væri svo komið að stærri bókaverslanir hefðu komið sér upp ákveðinni vígstöðu og fremur eflt þjónustu sína þegar ekki er lengur hægt að keppa um verð á einstök- um titlum við stórmarkaðina. Menn eru nokkuð sammála um að ekki verði gengið lengra í verð- stríðinu. Jóhannes í Bónus telur ólíklegt að verðlag á bókum lækki enn frekar. Aðrir heimildarmenn taka undir þetta og benda á að eftirspurn eftir bókum sé orðin næg þegar aðeins vika sé til jóla. Óeðlileg samkeppni sökum. Þannig viti hann aðeins um eina verslun sem hafi hætt rekstri í ár. Ólafur Ragnarsson, formaður Félags bókaútgefenda, segir erfítt að átta sig á áhrifum verðstríðsins á bókaútgáfu og bóksölu. Reynsl- an hafí þó sýnt að bóksalar og bókaútgefendur fengju minna fyr- ir sinn snúð í erfíðri samkeppni Ekki von á lægra verði Mikil ringulreið ríkti á bóka- markaðinum í fyrra og vissu menn þá ekki hvað næsti dagur bar í skauti sér. Menn greinir á um hvort verðstríðið í ár sé eins hart og í fyrra en einn heimildarmaður blaðsins mat stöðuna svo að stór- markaðirnir berðust hart innbyrðis en bókaverslanir aftur sín á milli. Ólafur Sveinsson hjá Eymunds- son segir að bókaverslanir geti ekki lagað sig að afbrigðilegum viðskiptaháttum stórmarkaðanna. Hann segir alþekkt í ___________ viðskiptum að aðilar komi inn í þjónustu á álagstímum, sem aðrir veita allt árið um kring. „En það hefur ekki verið gert eins og í þessu tilviki til að nota þessa vöru til að auglýsa upp aðra vöru. Það er þetta sem bóksölum þykir ósanngjarnt," sagði hann. Jóhannes í Bónus segir verslun- ina eingöngu bjóða eftirsótta vöru og svo lengi sem fyrirtækið gerði skil á sínum sköttum og skyldum væri vart hægt að telja viðskipta- Jóhannes í Bónus segir að Bón- us hafi tekist að bjarga „bókinni" eftir að útgefendur, rithöfundar og bóksalar hafi næstum gengið af henni dauðri með mikilli um- fjöllun um hátt bókaverð eftir að virðisaukaskattur var lagður á bækur. „Samkeppnin sem við hrundum af stað hefur vakið at- hygli á bókinni og lagt að velli þá úrkynjuðu verslunarhætti útgef- enda á árum áður að setja bóksöl- um ákveðið verð en selja bækur sínar síðan ódýrar í forlagsversl- unum,“ sagði hann. Óskar kveðst vilja gera skýran greinarmun á bóksölu stórmarkað- anna. Munurinn væri fólginn í því að Hagkaup seldi allar jólabækur á meðan Bónus seldi aðeins nokkra tugi titla. „Ég vek athygli á því að margar hinar svokölluðu bóka- verslanir eru í raun ekkert annað en ritfangaverslanir fram að jólum þegar þær byrja að selja bækur. Við seljum bækur í smáum stíl allt árið og tímarit í stórum stíl allt árið og erum því ekkert frá- brugðin ritfangaverslunum að þessu leyti.“ Jóhannes segir ekkert athuga- vert við að Bónus selji bækur ein- göngu fyrir jól. Þær væru jóla- vara. „Eg sel hvorki jólamerki- spjöld né jólakort eftir áramót. Á að skylda mig til að selja jólakort fyrir páska ef ég sel þau fyrir jól?“ spyr hann. Stórmarkaðir hafa verið gagn- rýndir fyrir að stýra bókakaupum með verslunarstefnu sinni og óhóf- legum afsláttarkjörum. Um þetta ----------------- segir Óskar: „Við höf- Áareininaur um ekki stýrt sölu a um hvort bókum öðruvísi en svo uerdstríðeyk- -“í—g ur DOKSOIU meiri afslátt af bókum þeim tilvikum þegar við fáum mikinn afslátt hjá útgef- anda.“ Ólíkar áherslur í þjónustu Óhætt er að fullyrða að bóka- verð hefur lækkað nokkuð frá því að virðisaukaskattur var lagður á bækur um árið en menn greinir á Hvemig skipta má bók um hvort verðstríðið hefur orðið til þess að auka bóksölu. Jóhannes Jónsson í Bónus fullyrðir að inn- reið Bónus-verslana á bókamark- aðinn hafi aukið sölu bóka en Ólaf- ur Sveinsson hjá Eymundsson tel- ur það bábilju að hún hafí aukist svo nokkru nemi, réttara væri að hún hafí staðið í stað. Hjá Máli og menningu og Griffli fengust á hinn bóginn þær upplýsingar að verðstríðið hafi haft mjög góð áhrif á reksturinn. Jóhanna Jóhannesdóttir, versl- unarstjóri hjá Griffli, segir að í fyrra hafí verslunin setið eftir í bókastríðinu og þá hafí sala bóka dregist saman. Verslunin hafi þess F YLGIFISKUR j ólabókaflóðs- ins er skiptibókaflóðið eftir jól. Ekki er hægt að ætlast til að allir rati á rétta bók handa vinum eða vandamönnum og síðan er ekki óalgengt að sama bókin sé gefin sama manni oftar en einu sinni. Þjónusta bóksala er ólík að þessu leyti og er misrúm. Samkvæmt upplýsingum frá bókaverslunum Eymunds- sonar og Máls og menningar gildir sú meginregla í flestum sérverslunum með bækur og ritföng að hægt er að skipta bókum eftir jól fyrir hvaða vöru sem er og eru tímamörk mjög rúm. Þannig er hægt að skipta bókum svo lengi sem þær eru í sölu hjá verslunun- um. Hjá Bónusi er hægt að skipta þeim titlum fram til áramóta sem hafa verið í sölu hjá versluninni fyrir hvaða vöru sem er. í Hagkaupi gild- ir sú regla að bók má skipta fyrir aðra bók fyrir 10. janúar næstkomandi. Fram að jólum þarf að framvísa kassakvittun en að gefnu tilefni skal tekið fram að þess er ekki þörf eft- ir jól og fram til 10. janúar. i Hægt er að leiða að því líkur að verðstríðið hafi átt sinn þátt í að bæta þjónustu sérhæfðra versl- ana. Eftir því sem samkeppnin hefur harðnað hafa þær, einkum stærri bókaverslanir, reynt að lækka bókaverð eftir getu en einn- ig lagt áherslu á góða þjónustu við neytendur, m.a. með ráðgjöf og rúmri skiptibókaþjónustu. Órækt vitni um ólíkar áherslur I I I I E L I L í i i í stórmarkaða annars vegar og sér- verslana með bækur hins vegar er að í sérverslunum eru starfs- menn menntaðir eða þjálfaðir til að veita ráðgjöf um bækur en í Bónus eru, að sögn eiganda þess, þrír menn í fullri vinnu við að fara milli samkeppnisaðila og fylgjast með verðlagi. Hlutverk eftirlits- mannanna er að ganga úr skugga um að Bónus sé örugglega með lægsta verðið. Olafur Sveinsson hjá Eymunds- son segir að starfsmenn verslunar- innar hafi m.a. myndað leshringi þar sem menn bera saman bækur sínar og meta hvaða bækur henta ólíkum neytendahópum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.