Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Gjafakort Kri
fást í Byggt
Tilvalin í j«
ERLENT
Chile miðstöð peningaþvættis
Eiturlyfjavandinn
sífellt alvarlegri
Santiago de Chile. Morgunblaðið.
SÍFELLT fleiri vísbendingar hafa
komið fram um að Chile sé miðstöð
peningaþvættis í Suður-Ameríku.
Stjórnvöld liggja undir þungum
ásökunum enda hafa þau löngum
fullyrt að þau hafi gert allt sem í
þeirra valdi stendur til að stöðva
flæði fjármuna og eiturlyfja yfir
landamærin frá Argentínu í suðri
og frá Perú og Bólivíu í norðri.
Nýverið kom í ljós að fyrrum er-
indreki Kólumbíu í Chile, Alberto
Bofero, hafði í gegnum sambönd sín
byggt upp stórvirkt kerfi til að „þvo“
peninga, tekjur sem til voru komnar
sökum eiturlyfjasölu og smygls.
Hafði hann sambönd í hinum ýmsu
iðnaðarfyrirtækjum í landinu sem
flest hver voru í samstarfi við aðila
í Kólumbíu.
Tölur sýna að eiturlyfjasmygl
hefur aukist stórlega í Chile og það
gerir neyslan einnig. Þannig kveikti
Iögregla í landinu alls í 121 kílói
eiturlyfja árið 1994. Árið eftir hafði
magnið hins vegar fjórfaldast og
rúmlega það því alls voru upprætt
511 kíló af eiturlyfjum með þessum
hætti.
Eiturneysla á þingi
Þessi þróun er víða sýnileg og
sérstakan ugg hefur vakið hversu
mjög ráðamenn virðast tengdir eit-
urlyfjasölum og smygli. í Chile hef-
ur hvert hneykslið á fætur öðru
komið upp á þingi landsins. Hafa
bæði þingmenn og aðrir starfsmenn
þingsins verið sakaðir um þátttöku
í sölu og neyslu eiturlyfja. Á dögun-
um fór áfrýjunardómstóllinn í Valp-
araiso fram á leyfi til að svipta
Valentín Solís, þingmann hægri-
flokksins „Þjóðarendurreisn"
(Renovación Nacional), þinghelgi
þar sem nægar sannanir lægju fyr-
ir um þátttöku hans í eiturlyfja-
smygli.
Var hann m.a. bendlaður við pen-
ingaþvætti Alberto Botero. Líklegt
er talið að fleiri þingmenn verði á
næstunni sviptir þinghelgi af sömu
eða svipuðum ástæðum.
Þingkonan Evelyn Matthei, sem
áður fylgdi „Þjóðarendurreisn" en
var gert að víkja kveðst næstum
daglega fá líflátshótanir. Hún neitar
þó að gefa eftir í baráttu sinni fyr-
ir því að allsheijar „hreinsun“ fari
fram á þingi Chile. Matthei vann
sér það m.a. til óhelgi að skýra frá
vitneskju sinni um eiturlyfjaneyslu
vinnufélaga sinna. Barátta hennar
hefur nú þegar skilað nokkrum ár-
angri; um þriðjungur þingmanna
hefur sjálfviljugur gengist undir
próf til að sýna fram á að þeir neyti
ekki eiturlyfja.
Njósnir
blómstra í
Rússlandi
NÍKOLAJ Kovaljov, yfirmaður
rússnesku öryggisþjónustunn-
ar, arftaka leyniþjónustunnar
KGB, sagði í gær, að njósna-
starfsemi væri ört vaxandi iðn-
aður í Rússlandi. Sagði hann
þjóðarhagsmunum Rússa enn
stafa ógn af njósnum útlend-
inga í landinu, fimm árum eft-
ir lok Kalda stríðsins. Þá sagði
Kovaljov skipulega glæpa-
starfsemi og hryðjuverk ógna
þjóðaröryggi.
Styttu
stolið í
Feneyjum
LÍTILLI bronsstyttu af ljóni,
tákni Feneyjaborgar, hefur
verið stolið í hliðarkapellu
Markúsarkirkjunnar. Talið er
að verknaðurinn hafi verið
framinn meðan á messu stóð
á sunnudag. Hefur a.m.k.
þurft kúbein til að ná stytt-
unni af marmarastallinum,
sem hún var áföst. Hún var
verk Gabriels Orlandinis og
talin vera frá árinu 1615.
Kanna
ásakanir
í Serbíu
FELIPE Gonzalez, fyrrverandi
forsætisráðherra Spánar,
verður formaður evrópskrar
nefndar eftirlitsmanna, sem
senn fer til Serbíu á vegum
Öryggis- og samvinnustofnun-
ar Evrópu (ÖSE) til þess að
kanna hvað hæft sé í ásökun-
um serbnesku stjórnarand-
stöðunnar, að úrslitum bæjar-
stjómakosninga í síðasta mán-
uði hafi verið breytt ráðandi
öflum í hag.
BARDAGAR um yfirráð í
Mogadishu, höfuðstað Sómal-
íu, hörðnuðu í gær er hersveit-
ir Ali Mahdis Mohameds, sem
ráða norðurhluta borgarinnar,
hófu skothríð á skotmörk á
yfirráðasvæði Husseins Aid-
eeds í suðurhlutanum. Áður
en sveitir Mahdis blönduðu sér
í átökin í borginni höfðu sveit-
ir Osmans Hassans Ali Attos
og Musa Sudi Yalahows háð
götubardaga við sveitir Aid-
eeds í fimm daga. Talið var
að 120 manns a.m.k. hefðu
fallið í bardögunum.
Smokkar í
innbrotum
ÍSRAELSKA lögreglan hefur
fundið út hvers vegna hurðar-
húnar í lúxusvillum fyrir utan
Tel Aviv voru fitugir. Þjófar
sem nýlega náðust í fyrirsát
játuðu að hafa notað smokka
við innbrotin í stað vettlinga.
Sögðu þeir verjurnar fyrirferð-
arminni og þægilegri að
smeygja á sig og veita auk
þess örugga vernd gegn
fingraförum.
Bardagar
harðnaí
Mogadishu
"L r.
KRINGMN
i§ Wm
Opið fram d kuöld
alla daga til jóla í Kringlunni
Opið verður lengur:
Miðvikudaginn 18. des. kl.10 - 22 Sunnudaginn 22. des. kl.10 - 22
Fimmtudaginn 19. des. kl.10 - 22 Þorláksmessu 23. des. kl.10-23
Föstudaginn 20. des. kl.10-22 Aðfangadag 24. des. kl.09 - 12
Laugardaginn 21. des. kl.10 - 22
ng\unnar
og Búið
Næg bílastæði - öll ókeypis
Bílastæði Kringlunnar eru yfir 2.000 á tveimur
hæðum við bæði norður - og suðurhús.
Þá eru viðbótarbílastæði í nágrenninu sem
gott er að vita af:
Bak við Sjóvá-Almennar.
Við Verslunarskólann.
Á grassvæðinu fyrir norðan Hús verslunarinnar.
Á bílastæði starfsmanna fyrir austan Kringluna
og á bílastæði norðan við Útvarpshúsið í Efstaleiti.
KRINGMN
frú morgni til hvölds
aKr"'tðunni
jólasveinar Koma í
heimsókn ogskemmta
Kringlugestum