Morgunblaðið - 18.12.1996, Side 21

Morgunblaðið - 18.12.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 21 Noregur Leiðtogafundur Evrópusambandsins og Bandaríkjanna í Washington Sóttað dómsmála- ráðherra NORSKA stjórnarandstaðan lýsti í gær yfir óánægju með svör núver- andi dómsmálaráðherra iandsins, Anne Holt, í tengslum við njósna- hneykslið, sem komst upp um í síð- ustu viku. Holt sagðist í byrjun desember ekki vita til þess að leyni- þjónustan fylgdist með ferðum nokkurs manns en komið hefur í ljós að þá vissi hún að njósnað hefði verið um þingmann sem sat í rann- sóknarnefnd þingsins. Þær njósnir urðu til þess að forveri Holt í emb- ætti, Grete Faremo, sagði af sér embætti olíu- og orkumálaráðherra á mánudag. Að því er segir í Aftenposten er enn óljóst hvaða áhrif njósna- hneykslið mun hafa á framtíð Anne Holt í embætti, en hún hefur aðeins setið í tæpa þrjá mánuði. Þá er lík- legt að einhverjir embættismenn í dómsmálaráðuneytinu verði látnir fara, t.d. ráðuneytisstjóri og deild- arstjóri, en Holt hefur látið að því liggja að henni hafi ekki verið veitt- ar réttar upplýsingar af einhverjum starfsmönnum ráðuneytisins. Njósnahneykslið komst í hámæli í síðustu viku en þá var upplýst að norska leyniþjónustan hefði farið í gegnum leyniskjöl Stasi, austur- þýsku leyniþjónustunnar, í von um að finna þar eitthvað um Berge Furre, fyrrverandi frammámann í röðum vinstrimanna. Furre situr í Lund-nefndinni sem kannar njósnir leyniþjónustunnar um kommúnista á dögum kalda stríðsins. „Teflon-maðurinn“ Stjórnarandstaðan krafðist í gær svara við því hvort Holt hefði sagt satt og rétt frá 2. desember, er hún sagðist ekki vita til þess að njósnað væri ólöglega um nokkum mann. Þá vissi Holt að leyniþjónustan hafði spurst fyrir um Furre hjá Stasi en hún segist ekki hafa vitað að enn væri fylgst með honum, taldi að málinu væri löngu lokið. Segist hún ekki hafa gert neitt rangt. Thorbjorn Jagland forsætisráð- herra sagði málið ekki vandræða- legt fyrir stjóm sína þar sem það hefði átt sér stað í tíð síðustu ríkis- stjórnar. Stjórnarandstaðan hefur sagst sátt við það hvemig Jagland hefur tekið á málinu en í Aftenpost- en var haft eftir ónefndum þing- manni að svo virtist sem Jagland væri „teflon-húðaður“, ekkert virt- ist loða við hann. Fyrir þremur vik- um sagði annar ráðherra í stjóm hans, Terje Rod Larsen, af sér vegna ásakana um fjármálabrask. EVRÓPA^ Deilur um Kúbu óleystar Reuter ÞRÍR forsetar á blaðamannafundi. Frá vinstri: John Bruton, forsætisráðherra írlands og forseti ráðherraráðs ESB, Bill Clint- on, forseti Bandaríkjanna, og Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB. Washington. Reuter. LEIÐTOGUM Evrópusambandsins og Bandaríkjanna tókst ekki að setja niður deilur sínar um Kúbu á reglulegum leiðtogafundi, sem haldinn var í Washington síðdegis á mánudag. ESB leggst áfram gegn hinum svokölluðu Helms- Burton-lögum, sem heimila lög- sókn fyrir bandarískum dómstólum gegn erlendum fyrirtækjum, sem stunda viðskipti á Kúbu. Bill Clin- ton Bandaríkjaforseti hefur enn ekki ákveðið hvort lögin taka gildi eða ekki. Kúbudeilan skyggði á önnur mál á fundi þeirra Clintons, Johns Brutons, forsætisráðherra írlands og forseta ráðherraráðs ESB, og Jacques Santer, forseta fram- kvæmdastjórnar sambandsins. Leiðtogafundir af þessu tagi eru haldnir tvisvar á ári. Á blaðamannafundi lögðu leið- togamir áherzlu á að markmið þeirra væri það sama; frelsi og lýðræði á Kúbu. Clinton hrósaði Evrópusambandinu fyrir að krefj- ast lýðræðisumbóta á eynni og Bruton sagði: „Það er ... munur á aðferðunum, en enginn munur á markmiðum ESB og Bandaríkj- anna varðandi Kúbu.“ Bandaríkin vilja áfram beita Kúbu refsiað- gerðum en ESB íhugar hins vegar að gera fríverzl- unarsamning við stjórn Fidels Castros, með skilyrð- um um umbætur í stjórnarfars- og mannréttindamálum. Leiðtoga- fundur ESB, sem lauk í Dubl- in um síðustu helgi, gagnrýndi Bandaríkin fyrir afstöðu þeirra og sögðu leið- togarnir í lokayfirlýsingu sinni að stjórn Clintons ætti að beita öðrum aðferðum en „einhliða aðgerðum á kostnað náinna bandamanna, sem hafa sömu markmið“. Losað um hömlur á viðskiptum fyrir 2.680 milljarða Um þessar mundir er ár liðið frá því ESB og Bandaríkin undirrituðu svokallaða Atlantshafsstefnuskrá, en samkvæmt henni á að auka samstarfið yfir Atlantshafið á mörgum sviðum, til dæmis í efna- hags- og viðskiptamálum, ekki síð_- ur en öryggis- og varnarmálum. Á grundvelli stefnuskrárinnar fara nú fram viðræður um gerð samn- inga, sem eiga að aflétta hömlum á viðskiptum, sem nema um 40 milljörðum dollara, eða 2.680 millj- örðum króna. Um er að ræða verzl- un með lækningavörur, rafmagns- vörur, tómstundavörur og fleira. Samið er um gagnkvæma viður- kenningu prófana, eftirlits og staðla á þessum vörum. „Það verður eitt próf, einn stað- ail, eitt skipti," sagði Clinton og bætti við að samningarnir myndu losa fyrirtæki við skriffinnsku og lækka verð til neytenda. Stefnt er að því að ljúka gerð samninganna í lok janúar. Samið við Kanada um aukið samstarf Bruton fór í gær ásamt Sir Leon Brittan, sem fer með utanríkisvið- skiptamál í framkvæmdastjórn ESB, til Ottawa, höfuðborgar Kanada. Þeir undirrituðu þar ásamt Jean Chrétien, forsætisráð- herra landsins, samkomulag um aukið samstarf, sem er svipaðs eðlis og Atlantshafsstefnuskrá ESB og Bandaríkjanna. Kanadamenn hafa lengi hvatt til þess að ESB og Norður-Amer- íkuríkin gerðu með sér fríverzl- unarsamkomulag, TAFTA. Að sögn embættismanna er slíkt sam- komulag langtímamarkmiðið, en yfirlýsingin, sem undirrituð var í gær, stefnir að því að losa um hömlur á viðskiptum í smærri skömmtum. EFTA og sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna Stefnt að fríverzlun á næsta ári FRÍVERZLUNARSAMTÖK Evr- ópu (EFTA) og sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna stefna að gerð frí- verzlunarsamnings á næsta ári. Yfirlýsing þar að lútandi var sam- þykkt á ráðherrafundi EFTA í Genf í fyrradag. í henni er einnig kveðið á um ýmislegt annað sam- starf. Gunnar Snorri Gunnarsson, fastafulltrúi íslands hjá EFTA, segir að fríverzlun hafi í raun ríkt milli EFTA og sjálfstjórnarsvæðis- ins í gegnum fríverzlunarsamning EFTA og ísraels. Hins vegar hafí þótt ástæða til að gera sérstakt samkomulag við Palestínumenn og tryggja samskiptin betur. Evrópusambandið og PLO árit- uðu drög að fríverzlunarsamningi 10. desember síðastliðinn. EFTA á nú í viðrseðum við Tún- is og Marokkó um gerð fríverzlun- arsamninga. Þá er í athugun að koma á fríverzlun við Egyptaland, Kýpur og Möltu. I lokayfirlýsingu ráðherrafund- arins segir jafnframt að EFTA-rík- in hafi áhuga á að efla samstarf sitt við ríki ASEAN, efnahagssam- tök Suðaustur-Asíuríkja. Fyrsti sameiginlegi ráðherrafundur EFTA og ASEAN var haldinn um leið og fundur Heimsviðskipta- stofnunarinnar í Singapore fyrr í mánuðinum. Kjartan endurráðinn framkvæmdastjóri Kjartan Jóhannsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra EFTA um nokkurra ára skeið, var endurráðinn til þriggja ára frá og með 1. september 1997. Reuter ÞÁTTTAKENDUR í ráðherrafundi EFTA í Genf. Frá vinstri: Nabil Sha’ath, ráðherra alþjóðlegs samstarfs í palestínsku heimastjóm- inni, Kjartan Jóhannsson, framkvæmdastjóri EFTA, Jean-Pascal Delamuraz, varaforseti Sviss, Gunnar Gunnarsson, fastafulltrúi ís- lands hjá EFTA, Andrea Willi, uLanríkisráðherra Liechtenstein, og Siri Bjerke, aðstoðarráðherra í norska utanríkisviðskiptaráðimeytinu. Cíndy Crawford veit, hvemig hún sameinar glæsileika og ímynd med stil frá heimsins stærstu hönnudum. Hversdags og vid hátkfleg tækifæri velur hún Omega. “Trust your jndgement, trust Omega” - Cindy Ciawford KRINGLUNNI S 553-1199 NEW CorrtUliaJiari 18k Gull og/eda stál. Hert safirgler.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.