Morgunblaðið - 18.12.1996, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.12.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 2 7 Með Severin og Odys seifi í ævintýrunum Tim Finnbogi Severin Guðmundsson BOKMENNTIR Fcrðalýslng Á ÆVINTÝRASIGLINGU MEÐ ODYSSEIFI eftir Tim Severin. Finnbogi Guð- mundsson íslenskaði. Fjölvaútgáfa 1996, 204 bls. TIM Severin er írskur siglinga- maður og sögumaður sem hefur sent frá sér ýmsar bækur um ferð- ir sínar, íslendingum er líklega kunnast er hann sigldi á fornum húðkeip Brendan yfir Atlantshafið og kom þá við hér á landi og skrif- aði síðan bók um ferð sína. Án efa má telja Severin til fremstu landkönnuða nú og bækur hans um ferðirnar sem jafnan eru rann- sóknarferðir í leiðinni til að kanna sannleiksgildi gamalla sagna og jafnvel ævintýri hafa verið gefnar út mjög víða. Severin býr sig af mikilli kost- gæfni undir hverja ferð og leggur sig einnig eftir að valinn maður sé í áhöfn hans sem vinni saman, ekki bara að siglingunni heldur geti og lagt sitt af mörkum við að draga ályktanir af því sem á dagana drífur. I þessari bók Á ævintýrasigl- ingu með Odysseifi fer hann um strandhöf Grikklands og leikur hugur á að kanna sannleiksgildi Odysseifskviðu Hómers. Odys- seifskviða fjallar eins og margir vita um margra ára hrakninga kappans Odysseifs frá Tróju til íþöku. Severin hyggst sem sé leita svara við því hvort Odysseifskviða fái staðist, hvar allir þeir áfanga- staðir sem koma við sögu hafi verið til og er ekki í lítt ráðist því eins og gefur að skilja - og án efa hefur vakað fyrir höfundi - er mikill ævintýrabragur yfír sum- um köflum kviðunnar, alls konar skrímsl og forynjur, mannætur og gyðjur verða á vegi hans og skips- félaga hans og furðulegir atburðir gerast á hveijum stað. Til að auðvelda þeim lesturinn sem ekki þekkja Odysseifskviðu svo grannt birtir Severin viðeig- andi tilvitnanir úr henni og er þar að sjálfsögðu notuð hin mergjaða þýðing Sveinbjarnar Egilssonar. Óhætt er að segja að Severin og félagar hans leysa ótrúlegustu Kjarvalsstaðir Bækur, lega frá mál í þessari bók og komast að snjöllum niðurstöðum sem hljóma sannfærandi, svo sem þegar þeir átta sig á að ævintýri Odysseifs- kviðu hafa að líkindum átt sér stað mjög nærri heimahögum hans, jafnvel við Grikkland. Og í lokakafla segir Severin: „Hvernig stóð á því að staðirnir þar sem ævintýri Ódysseifs gerð- ust, fyrst í venjulegri strandsigl- ingu á heimleið frá Tróju og síðan á eyjum á heimaslóð hans, voru færðir hundruð mílna vestur á Miðjarðarhaf, venjulega til Týrr- enska hafsins milli Sikileyjar og Ítalíustrandar? Svarið felst í þeim miklu flutningum Grikkja úr landi, í þann mund sem Hóm- er var að viða að sér efninu í hina samsettu gerð sögunnar. Grikk- ir fluttust vestur á bóginn til að stofna nýlendur í Grikklandi hinu mikla og þeir tóku þjóðsagnir sínar með sér.“ Finnbogi Guð- mundsson hefur þýtt bókina á vandað mál og stundum er ekki laust við að lesanda finnist að hann sé und- ir nokkrum áhrifum frá þýðingu Sveinbjamar Egilssonar og er það sagt sem ótvírætt lof. Það er óumdeilanlegur fengur að því að fá þessa bók í íslenskri útgáfu fyrir þá mörgu sem hafa gaman af lestri vandaðra ferða- bóka og hafa þeir þó ábyggilega forskot sem eru vel að sér um Odysseifskviðu og þekkja til sög- unnar. Útgáfan er fjarskalega vönduð, orðaskiptingar eru ekki alltaf í samræmi við íslenska hefð en það er eitt af fáu sem ég hjó eftir og er hægt að gera athugasemdir við. Góð og skilmerkileg kort hjálpa til en umfram allt eiga teikningar Will Stone og ljósmynd- ir Kevin Fleming dijúgan þátt í að það er ekki aðeins ánægjulegt að lesa þessa bók heldur er hún einnig afar falleg. Jóhanna Kristjónsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.