Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 28

Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Frumleiki er þáttur í allri sköpun AÐHUGSA á íslenzku heitir ný bók eftir Þorstein Gylfason heimspeking. í henni eru fjórtán ritgerðir sem fjalla annars vegar um málið sem við tölum og merk- ingu þess og hins vegar um sköp- unargáfuna. Þorsteinn sagði í samtali við blaðamann að titill bókarinnar vísaði ekki til þess að öðruvísi væri hugsað á ís- lensku en öðrum tungum, heldur þess að íslendingar byggju við hreintungustefnu og hefðu gert allt frá miðöldum, ólíkt öðrum þjóðum í Evrópu. „Ég fylgi þessari stefnu sjálf- ur og geri því engar athuga- semdir við hana,“ sagði Þor- steinn, „en ég hef skoðanir á því hvernig eigi að fylgja henni fram; hún kann til dæmis að þurfa að taka til fleira en ný- yrða, svo sem eins og til stíls. Ég bendi líka á dæmi um orða- smíð á villigötum, eins og stofn- anamálið. Þar er að meira eða minna leyti um ástæðulausa, óþarfa og jafnvel stórskaðlega nýyrðasmíð að ræða sem veldur því að mikilsverð málefni verða öllum almenningi óskiljanleg." - Þú fjallar um sköpunargáf- una í bókinni og í því samhengi langar mig til að spyija þig um frumleikann og hvort krafan um hann sem lögð er á lista- menn sé réttlætan- leg-. „Ég fjalla um sköpunargáfuna í bókinni vegna þess að ég hef þá hug- mynd að öll mál- notkun sé meira eða minna skapandi. Þetta er augljóst þegar maður fylgist með þriggja ára barni sem er að læra að tala með því að spinna upp úr sér alls konar hluti. Þessi málsköpun getur svo varpað Ijósi á ýmsa aðra sköpun, eins og i listum og vís- indum. Frumleiki er þáttur í allri sköpun. Ekkert verk er sköpun- arverk manns nema það sé hans eigið verk - og það er allt og sumt. Samlíking er ekki sköpun- arverk barns ef það hefur heyrt hana frá vini sinum fimm mínút- um áður.“ — Væri ekki hægt að heim- færa þessa reglu upp á listamenn og gera til þeirra skýlausa kröfu um frumleika? „Jú, en við verðum líka að hafa í huga að list er flókin, eins og listasagan sýnir okkur. Listin getur sem best geng- ið út á það heil tíma- bil að hver listamað- ur leggi eitthvað til frá sjálfum sér. En á öðrum tímum getur listamaðurinn verið þjónn einhverrar hefðar og það talist framhleypni að troða sjálfum sér inn í lista- verkið. Og svoleiðis listamaður getur út af fyrir sig verið prýðilegur. Annars held ég að það sé tuttugustu aldar fyrirbæri að setja kröfuna um frumleika á oddinn í listum. Og ég hef stundum talið mér trú um að þessar hugmyndir lista- manna á tuttugustu öld um sjálfa sig og um að alltaf þurfi að vera að gera eitthvað nýtt séu komnar úr vísindum. Þau urðu svona á nítjándu öld; hver byltingarkennda uppgötvunin kom á fætur annarri, allt sem var eldra en fimm ára var talið gamalt og úrelt. Ég held að listamenn i lok síðustu aldar hafi ákveðið að tileinka sér þetta og þess vegna hafa þeir til dæmis farið að tala um til- raunir í sínum röðum.“ Þorsteinn Gylfason Hvað um skólana? Jón Helgason trúði því um nýyrði að íslenzkir skólar hefðu átt umtalsverðan þátt í að koma mörgum þeirra á framfæri og festa þau í sessi. Þetta er áreiðanlega rétt til getið. íslenzkir skólar útrýmdu líka hljóðvillu í landinu. Hvað þyrfti til að íslenzkir skólar stuðluðu að betri, eða bara skárri, íslenzkum stíl en nú tíðkast? Svarið liggur í augum uppi: það þyrfti til þess mikið fé. Nemendur þyrftu að skrifa mikið, og kennarar þyrftu að lesa öll þau skrif og leiðrétta vandlega. Kennaramir þyrftu að vera góðir og strangir, vel menntaðir og vel launað- ir. Það er tæplega hægt að hugsa sér kostnaðarsam- ari breytingu á skólastarfi. Ég legg til að þessi leið verði farin. En það má ekki binda of miklar vonir við hana. Með þessu dýra móti má ugglaust stuðla að betri stíl og þar með betri siðum. En hitt er nokk- urn veginn víst að skólar gætu aldrei skapað góðan stíl. nema þá hann yrði til sem viðnám við kennslunni. Ur Að hugsa á íslenzku. Athafnaskáld og afreksmaður BÆKUR Ævisaga BYGGINGAMEISTARI í STEINOGSTÁL eftir Friðrik G. Olgeirsson, Halldór ReynLsson og Magnús Guðmundsson: Saga Sveinbjamar Jónssonar i Ofna- smiðjunni 1896-1982. Ofnasmiðjan og Fjölvaútgáfan 1996,304 bls. EIGI einhver skilið að um hann sé rituð rækileg og vönduð ævisaga þá er það Sveinbjörn Jónsson löng- um kenndur við Ofnasmiðjuna. Enginn getur efast um að hann markaði spor í iðn- og tækniþróun þessarar aldar. Mun þeirra lengi sjá stað. Sveinbjöm var Svarfdælingur að ættemi og ólst upp í Svarfaðardal og Ólafsfírði. Hann var af listfengu hagleiksfólki kominn í báðar ættir og strax bamungur hneigðist hugur hans að smíðum og ýmsum verkleg- um framkvæmdum. Ekki átti hann kost mikillar formlegrar skóla- göngu, tók t.a.m. hvorki gagn- fræðapróf né sveinspróf, en lærði samt, fyrst heima, síðar í Noregi. Er nú skemmst frá því að segja að ungur að aldri tók hann að teikna hús og byggja og fást við margs kyns ólíkar framkvæmdir. Síðar, er hann hafði flust til Reykjavíkur, gerðist hann með eindæmum fram- kvæmdasamur, stofnaði og stjóm- aði ótalmörgum fyrirtækjum eða var frumkvöðull annarra. Margt af því sem hann tók sér fýrir hendur var forboði þess sem síðar kom (s.s. þör- ungavinnsla). Auk þess var hann mikill félagsmálafrömuður, i fararbroddi iðnaðar- manna og iðnrekenda, ritaði mikið um þau mál; áhugamaður um að genginna hugvits- manna væri minnst (Þorsteinn á Skipalóni, Duggu-Eyvindur) og gekkst fyrir stofnun iðnminjasafna. Þá var hann hugvitsmaður mikill og er enginn endir á því sem hann lét sér detta í hug að smíða. Það sem þó mun halda nafni hans lengst á lofti er hið þekkta fyrirtæki Ofnasmiðjan sem hann stofnaði og stjómaði þar til skammt var til endadægurs. Einkennilegast var þó kannski að þessi mikilvirki iðjuhöldur var í rauninni enginn gróðamaður og hafði sjaldnast eigin hagsmuni að leiðarljósi. Fyrir honum var það hugsjón að efla ísienskan iðnað, stuðla að verklegum framförum og eiga þátt í að búa íslendingum betra líf. Samkvæmt ævisögunni var það ekkert smáræði sem þessi maður kom í verk. Samt var hann heilsu- veill lengi ævi. Hann fékk lungna- berkla kornungur og þjáðist af því fram á gamalsaldur, auk annarra meinsemda. En hinn sífijói eldhugi unni sér sjaldnast hvíldar þó að hann væri sárþjáður. Sveinbjörn Jónsson hlýtur að hafa verið eftirminnilegur maður þeim sem kynntust honum. Vakandi og ákafur, með skoðanir sem ekki féllu ávallt að geði fjöldans og hélt fast á þeim. Hann rakst ekki í stjóm- málaflokki og átti til að lenda í andstöðu. En tryggur vinur var hann vina sinna, allra manna hjálpsamastur, umhyggjusamur starfsfólki sínu, vand- aður og vammlaus maður í hvívetna. Þetta er í sem stystu máli mynd- in sem ævisagan dregur upp. Enga ástæðu sé ég til að efa að hún sé í öllum meginatriðum rétt og trú- verðug, þó að ég eigi þess vita- skuld ekki kost að sannreyna það. Eitt er þó víst: verkin tala. Sem ritverk er þessi bók vel gerð, ágætlega samin og prýdd mörgum myndum. Vera má þó að hún hefði orðið eittthvað samfelld- ari ef hún hefði verið rituð af ein- um manni. Ástæða er til að hvetja iðnaðar- menn, iðnrekendur og aðra fram- kvæmdamenn til að lesa ævisögu Sveinbjarnar Jónssonar vandlega. Margt má af henni læra. Og hollt og íhugunarvert lestrarefni er hún raunar öllum. Sigurjón Björnsson Sveinbjörn Jónsson Áhvers manns TONBÖKMENNriR Nótnabækur SÍGILD DÆGURLÖG Söngdansar 1-17 eftir Jón Múla Ama- son. Söngtextar eftir Jónas Amason. Píanóútsetningar eftir Magnús Ingi- marsson og Carl Billich. NótuUtgáf- an 1995/96.33/36 síður. Verð (leiðb.): 995 kr. HEFÐU samgöngur verið greiðari milli íslands og hinna Norðurlandanna, og tunguörðug- leikar minni, hefðu beztu sönglög „íslenzku Gershwin-bræðranna," Jóns Múla og Jónasar Árnasona, fyrir löngu hlotið varanlegan sess í Skandinavíu meðal þess fremsta sem samið hefur verið af sígrænni tónmennt eftir 1950. Þetta er að vísu aðeins per- sónulegt mat, en þó byggt á ákveðinni staðþekkingu. Um hitt, hvort „söng- dansarnir" hefðu get- að slegið í gegn á Broadway á sama tíma og þeir slógu í gegn hér, er erfiðara að spá afturábak. En ef heppnin hefði verið með, og lögin hefðu hlotið beztu fáanlegu útsetningar, flutning og, ekki að gleyma, jafngóða enska texta og íslenzku textaperlur Jónasar, þætti manni það ekki ósennilegt, enda skyld- leiki laga eins og beguininn Augun þín blá og vamparinn Án þín við Kern, Porter og Berlin augljós. Önnur lög standa nær brezkum Music Hall (Ljúflingshóll, Undir Stórasteini) eða þýzk-norrænni revíuhefð, eins og t.d. Brestir og brak og Við heimtum aukavinnu. En hvað sem líður ytra byrði, leyn- ir persónuleiki Múlans sér ekki, og þó að lögin kvæðu ávallt hafa orðið til á undan textunum, er athyglisvert, að vinsælustu lögin geyma yfirleitt beztu textana. Deili svo aðrir um orsök og afleið- ingu. Hvers vegna þessi litlu djásn hafa enn ekki verið kynnt á skand- inavískum vettvangi, t.a.m. í eins- konar sjónvarps-kabarettformi, er góð spurning. Og þó - því ef eitthvað er erfiðara en að gera góða söngtexta, er það að gera jafngóðar laghæfar þýðingar. Engu að síður stappar nærri þjóð- arskömm, að Sjónvarpið skuli ekki enn hafa séð sóma sinn í að gera í það minnsta klukkustundar kynningarþátt um lög þeirra bræðra fyrir frændþjóðirnar í landsuðri. Píanóútsetningaheftin tvö hefðu átt að koma út þegar fyrir 30 árum. Sumt af því sem gefíð var út á sínum tíma í viðhafnarfrá- gangi undir safnheitinu Musica Islandica hefði vel mátt víkja fyrir þessum lögum, því svo mikið er víst, að þau hafa bæði elzt betur en margt annað og höfðað til fleiri. En seint er betra en aldrei, og framtak NótuÚtgáfunnar bætir úr brýnni þörf. Góð lög hanga hvorki nú frekar en endranær á tijánum, og af þessu 31 lagi halda a.m.k. helmingurinn enn svo undraverð- um vinsældum, að jafna mætti við nútímaþjóðlög. í fyrra heftinu, sem kom út í fyrra, eru 5 lög úr leikritinu Rjúk- andi ráð (1959) og 10 úr Jámhaus- inn (1965). Líklega eru þeirra kunnust Frk. Reykjavík og í hjarta þér (RR) og Án þín, Sjómenn ís- lenzkir erum við og Stúlkan mín vörum [er mætust] (JH). Allar píanóút- setningar eru eftir Magnús Ingi- marsson, er sá um útsetningar og tónlistarstjórn í frumuppfærslun- um á þessum tveimur leikverkum á sínum tíma. Seirina heftið, er kom út sl. nóv- ember, inniheldur lög úr Allra meina bót (1961) og Deleríum Búbónis (1954), þar á meðal perl- urnar Augun þín blá, Gettu hver hún er og Það sem ekki má (AMB) og Ástardúett, Einu sinni á ágúst- kvöldi, Ljúflingshóll, Snjór og vít- amín (=Úti er alltaf að snjóa) og Vikivaki (DB). Magnús útsetti hér 9 lög en Carl heitinn Billich 7 (öll úr DB). Endalaust má deila um útsetn- ingar og hversu aðgengilegar þær eiga að vera. Aðstand- endur hafa fetað nokkuð skynsaman meðalveg, sem virðist sjaldnast útheimta meira en 2.-3. stig á píanó (s.s. við hæfi flestra með fáeinna ára píanónám að baki frá táningsaldri og uppúr) og nær jafn- framt að skila hinni stundum töluvert slungnu hljómafærslu Múlans (sjá t.d. milli- kaflann í Gettu hver hún er!) í megindrátt- um. Að mínum smekk mætti að vísu hafa fleiri kontralínur á kostnað átt- undadobblinga vinstri handar, bassagangur er ekki alltaf nógu sannfærandi (Eins og skot, Lög- reglumars), „fili- ins“ á hendinga- mótum mættu vera fleiri og ein- staka lag er obbolítið of þunnildis- lega útsett (Frk. Reykjavík, Án þín og Vikivaki) til að ná fullum áhrifum. En að öðru Ieyti eru út- setningar Magnúsar hrein snilld, þó að Billich hafi sennilega vinn- inginn hvað varðar hámarksvirkni miðað við einfaldleika. Frágangur og uppsetning Gylfa Garðarssonar eru vönduð og kunnáttusamlega unnin í að mér sýnist nýlegu Finale-tölvuforriti, og prentvillur eru sárafáar. Þó kann ég ekki við einstaka skringi- lega formerkjasetningu, t.a.m. As (fyrir Gís) um þríund í E-dúr, en slíkt stuðar ábyggilega síður spunakarlana í FÍH en nótnaþræl- ana úr Skipholtinu. Handaskipt- ingar milli nótnastrengja hefðu sums staðar mátt vera auðkennd- ar til hægðarauka, og þó að að- greining laglínu frá undirleiksnót- um sé kostur fyrir miður læsa söngvara, er það ókostur fyrir vel læsa píanista (meðalhófið er vandratað!) Eins er spurning, hyort ekki hefði átt að fingrasetja snúnustu staðina, og þó að mikil prýoi sé að ljósmyndunum úr gömlu leiksýningunum, hefði mátt gera enn betur og veija 1-2 síðum í að rifja örstutt upp söguþráð leikritanna til að varpa ljósi á umhverfi laganna, sérstaklega úr því að meirihluti núlifandi íslend- inga þekkir ekki sviðsverkin nema af afspurn, þó að lögin séu enn á hvers manns vörum. Eitt af því sem festi gullaldarlög Broadways varanlega í sessi var hvað jassistar voru duglegir við að gera þau að standörðum. Væntanlega verða lögin úr „söngvaleikjum" þeirra Múla- bræðra enn líklegri en áður til að hljóta sömu örlög eftir útkomu þessara hefta, þar sem bæði sveifl- arar og konsertpíanistar geta nálg- azt þau í útfærðri og áreiðanlegri mynd. Ríkarður O. Pálsson. Jón Múli Árnason I i I I > I > \ I t I I ! s i ; !. i i L L fi I 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.