Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 31
Nýjar bækur
• SAGA Grindavíkur
1800-1974 er komin út. Höf-
undar eru Jón Þ. Þór og
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir.
I fyrra bindi Sögu Grinda-
víkur, sem út kom árið 1994,
var saga
byggðarlags-
ins rakin frá
landnámi og
fram til alda-
mótanna
1800. Hér er
þráðurinn tek-
inn upp að
nýju og saga
Grindavíkur-
kauptúns sögð
frá 1800 og fram til þess er
Grindavík hlaut kaupstaðar-
réttindi árið 1974. í bókinni
er sagt frá byggð, bændum
og búaliði á 19. öld, greint frá
myndum þéttbýlis í Grindavík,
atvinnuháttum og atvinnuveg-
um, sagt frá gerð Grindavíkur-
hafnar, verslun í Grindavík,
slysavörnum og stofnun björg-
unarsveitar og ítarlegir kaflar
eru um skóla-, félags- og
menningarmál. Þar segir m.a.
frá störfum Sigvalda Kalda-
lóns í Grindavík og blómlegu
leiklistarlífí á fyrri hluta aldar-
innar. Margir koma við sögu
í bókinni og má þar m.a. nefna
Einar G. Einarsson, kaupmann
í Garðhúsum, Jón Jónsson á
Járngerðisstöðum, ættföður
Járngerðisstaðaættar og sr.
Odd V. Gíslason á Stað.
• STELPURNAR á stöð-
irini fjallar um talsímakonur
á íslandi 1906 til 1991 eða í
85 ár. Tilefni bókarinnar er
90 ára afmæli símans á þessu
ári. Ásthildur Steinsen tók
bókina saman
og skráði.
í kynningu
segir: „Þetta
er bók sem
nær til allra
fjölskyldna í
landinu, mjög
margir áttu
móður, syst-
ur, frænku
eða mágkonu
sem unnu við símann, því
þetta þótti eftirsóknarvert
starf á sínum tíma. Þessi bók
á erindi inn á hvert heimili á
landinu, enda spannar verkið
stóran þátt í atvinnusögu ís-
lenskra kvenna á þessari öld.“
Þetta er tveggja binda verk,
700 síður með aragrúa af
myndum, gömlum ognýjum.
ísafoldarprentsmiðja sá um
umbrot ogprentun, bókbands-
stofan Fiatey annast bókband.
Útgefandi erAlfa Gamma og
er bókin eingöngu seld í
áskrift hjá útgefanda. Sími
555-1525.
Ásthildur
Steinsen
_________LISTIR______
Raggi og kanínan
BOKMENNTIR
Barnabók
RAGGI LITLI OG
PÁLA KANÍNA
eftir Harald S. Magnússon. Myndir
eftir Brian Pilkington.
Iðunn 1996.26 bls.
SAGAN um Ragga litla er undar-
legt sambland af raunveruleika og
draumi. Höfundur brýtur þá megin-
reglu að sögur séu annað hvort
ævintýri eða raunverulegar sögur
eða hvort tveggja blandist eðlilega.
í þessari sögu um Ragga er hann
eins raunverulegur og öll önnur
venjuleg börn en reynsla hans og
sagan eru mjög óraunsæjar.
Raggi finnur lítinn hálfdauðan
kanínuunga og með aðstoð Pálínu
frænku tekst honum að lífga hann
við og kanínan fær nafn í höfuðið á
lífgjafa sínum. En skömmu síðar
festir Pála kanína fótinn í búrinu
sínu og þar sem sárið grær ekki er
hún svæfð. Þessi hluti sögunnar er
mjög yfirborðskenndur. Slysið og
meðfylgjandi dauði kanínunnar eru
afgreidd í 6 línum en þetta hlýtur
þó að vera kjarninn í sögunni. Það
skrýtna er að ekki kemur heldur
fram í sögunni að Raggi sakni kanín-
unnar og hann tekur það sem góða
og gilda skýringu að Pála sé komin
til himna.
En sagan tekur nú mjög sérkenni-
lega stefnu. Pálu kanínu leiðist í
himnaríki og er mjög einmana. Loks
hittir hún krumma sem kennir henni
leið til að komast aftur til jarðarinn-
ar. Pálu þykir hins vegar mjög vænt
um Ragga litla og leggur á sig
ómælt erfiði til að verða sýnileg og
komast aftur til hans. Og þar sem
Pála er dugleg kanína tekst henni
þetta áætlunarverk og skyndilega
er hún komin á ný í fang Ragga síns.
Hvernig sem á þessa sögu er litið
er hún ákaflega efnisrýr. Hún er
hvorki fyndin né vekjandi og í henni
eru engar hugganir að finna fyrir
börn sem missa gæludýrin sín. Sú
lausn að láta dýr lifna við á ný er
fráleit og í raun skaðleg fyrir börn
sem eru mjög jarðbundin og taka
alla hluti alvarlega.
Textinn er of þéttur á blaðsíðun-
um til að hann sé aðgengilegur fyr-
ir lítil börn sem eru að byija lestur-
inn. Þurft hefði að hafa betri greina-
skil og meira bil á milli málsgreina
til að gera hana læsilega og auðveld-
ari litlum börnum.
Myndir Brians Pilkingtons eru
svarthvítar, lifandi og skemmtilegar.
Brian tekst mjög vel að teikna dýr
og gefa þeim svipbrigði og karakter.
Síðasta myndin af kettinum Gosa og
Pálu kanínu geislar af þeirri glettni
sem vantar svo sárlega í textann.
Sigrún Klara Hannesdóttir.
I JiVVV
eintök eru senn seld nf
premur ÚTKALLS bókum
Óttnrs Sveinssonnr,
sem allar hnfn
fnrið í metsölu
„Óttar kann að byggja
upp spennu, ón þess
að beita fyrir sig
ódýrum stílbrögöum"
Geir Svansson bókmenntafræðingur.
Morgunblaðið, 27. nóvember 1996.
0TTAR ARITAR
í KRINGLUNNI
ÍDAG
SÖGUR
í tilefni þeirra tímamóta að 15 þúsund eintök eru
senn seld af bókum Óttars, óritar hann nýjustu
bók sína í Hagkaupum, Kringlunni, í dag kl. 17-19
og í Eymundsson, Kringlunni, kl. 19-20.30
Fyrstu 15 þeirra sem óska
óritunar í nýju bókina (ó
tvær fyrri bækur Óttars
i kaupbæti
ISL?NS?A
BOKAUTGAFAN