Morgunblaðið - 18.12.1996, Side 32

Morgunblaðið - 18.12.1996, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Menniiigarlægðin BOKMENNTIR Bókmcnntafræði LEITIN AÐ LANDVÆTT- UNUM eftir Þorstein Antonsson. 130 bls. Útg. Iðnú. Prentun: Prentstofa Iðnú. Reykjavik, 1996. ÞORSTEINN Antonsson leitar að landvættunum. Hvort hann muni nokkru sinni finna þær. Orðaleikur Þorsteins er auðskilinn. Landvættirnar héldu vörð um landið. Við lifum á hnignunar- og niðurlægingartímum sem meðal annars lýsa sér í lélegum skáld- skap, óstöðvandi málæði og afleitu skóiakerfi. Hvers vegna? Hví er komið sem komið er? Spurningarn- ar eru orðaðar af undirrituðum, að sönnu, en það eru eigi að síður slík og þvílík áleitin spursmál sem Þorsteinn leitast við að svara. í samræmi við tíðarandann gerist hann stundum háfleygur, spek- ingslegur; jafnvel óþarflega lang- orður. Hann getur líka verið yfir- lýsingaglaður og hittir þá stundum naglann á höfuðið. »Módernismi er aðferð þess skilningslausa til að skapa,« segir hann t.d. í lo- kakafla. Þetta er ekki verra spak- mæli en hvað annað. Vafalaust er það rétt út frá einhveiju sjónar- miði séð. Að sönnu væri fjarstætt að ætla að öll skáld, sem ort hafa í anda módernismans, hafi verið heimsk, enda mun Þorsteinn ekki eiga við það. Miklu fremur leitast hann við að rekja orsakirnar að baki stefnunni, getur um Freud og alla hina, reynir svo að greina í sundur, tengja saman, skoða, átta sig, skýra og skilgreina; og að lokum finna orsök og afleiðing. Skýringar Þorsteins eru haldgóð- ar, sumar hveijar, aðrar ef til vill of langsóttar en allt um það áhugaverðar. Fyrir koma orð eins og hugmyndagrunnur sem Þorsteinn cr svo laginn að varpa fram og leggja út af á ýmsa vegu. Klárastur er hann hins vegar þegar hann kemur beint og vafningalaust að efn- inu. Til dæmis þetta: »Pólitíkin hefur þrengt mjög þroska- möguleika skáldskap- arins nema á einn veg, þann sem vinstri sinn- um hefur verið þókn- anlegur.« Vinstri og hægri, eftir á að hyggja, hvað er nú það? Forðum stór orð sem fram komu í stjórnar- byltingunni frönsku og hafa síðan skipt mannkyninu í tvær andstæð- ar og stundum fjandsamlegar fylk- ingar? Sumir vilja meina að svo sé ekki lengur. Nú séu þetta mark- laus einkennismerki stjórnmála- flokka sem allir séu komnir inn á miðjuna? Ef til vill? Það flækir málin óþægilega fyrir þeim sem vilja hafa allt á hreinu. I mennin- garpólitíkinni eru vinstri og hægri þó til enn, svo mikið er víst. Þor- steinn er ekki að fjasa um eitthvað sem ekki er til. Menningarpólitíkin tekur alltaf mið af stjórnmálum líðandi stundar en getur að öðru leyti farið sínar eigin leiðir. Krist- inn E. Andrésson mat mikils ljóð- list Eliots þó skáldið væri »aftur- haldsmaður«. Þorsteinn telur að það hafi verið nýrómantík Krist- manns Guðmundssonar sem fór fyrir brjóstið á vinstri mönnum. Eitthvað má vera til í því. En hvað um Jóhannes úr Kötlum? Ljóðlist hans mátti líka heita nýrómantísk. Samt var hann öðrum fremur dáð- ur af vinstri mönnum! Þetta um pólitíkina, en hvað um menning- arlægðina? Gullaldar- skeið í bókmenntum hafa jafnan staðið stutt. Hnignunar- skeiðin hafa þar á móti varað lengi! Dap- urleg sannindi fyrir okkur sem nú lifum eða hvað! Ætla má að eftirfarandi útlistun Þorsteins fari nærri kjarna málsins: »Hnignunarbók- menntir koma fram sem andsvar við strangleika og þröng- sýni á bókmenntasviðinu, og fylla tómarúm sem reglufesta ríkjandi bókmenntahefðar kannast ekki við að sé til«. Orðalag þetta er að vísu dálítið Þorsteinslegt en auðskilið eigi að síður. Eftir lestur þessarar bókar þarf vart að fara í grafgötur hvar Þor- steinn stendur. Hann er i hópi þeirra sem vilja halda sambandi við fortíðina. Landvættirnar! »Sögulaus tíð er Víti,« segir hann. Jafnframt gerist hann eins konar menningarlegur veðurspámaður, skyggir hönd fyrir auga, tekur vindáttina, spáir i útlitið og metur horfumar. Hvort meginniðurstöð- ur hans eru réttar eða rangar? Ætli sé ekki best að hver og einn meti það fyrir sig? Hugvekjur hans eru alltént á rökum reistar. Leit- in að landvættunum er gefin út af skólaforlagi svo ætiunin mun að nota hana sem námsefni í fram- haldsskólunum. Um það er ekkert nema gott að segja. Blessaðir unglingarnir ættu ekki að vera báglega staddir ef þeim er ekki boðið upp á neitt lakara! Erlendur Jónsson. Þorsteinn Antonsson Langavitleysa BOKMENNTIR Skáldsaga ANDSÆLIS Á AUÐNUHJÓLINU eftir Helga Ingólfsson. Bjartur 181 síða. Prentvinnsla: Norhaven a/s, Danmörku FARSAKENNDAR skáldsögur hafa ekki verið algengar hér á landi. Þessari þjóð hefur fremur þótt það fyndið sem vansagt er en ofsagt. Ýkjustíll er að vísu ekki fjarri mörgum íslenskum skáldsagnahöfundum sem nú eru á besta aldri en úrdrátturinn þyk- ir klassískur enda hlæjum við að yfirlætislitlum lýsingum forn- sagnanna sem fela þó oftar en ekki í sér meinhæðni og trölla- húmor. Andspænis á auðnuhjólinu er eftir höfund sem hefur ekki farið troðnar slóðir í íslenskri skáld- sagnagerð undanfarinna ára. Sög- ur hans um hið forna Rómaveldi hafa borið með sér ferskan blæ, bæði hvað varðar efni og stíl. Þessi saga er af allt öðrum toga; lauf- léttur farsi með atburðarás sem hlítir engum rökræn- um lögmálum. Sagan hefst á því þegar Jóhannes, kennari og frístunda- málari, er á leiðinni í bæinn eftir að hafa ekið aldraðri móður og frænkum eiginkon- unnar til Keflavíkur- flugvallar. Hann ekur fram á unga, huggu- lega konu sem á í vandræðum með bíl- inn sinn. Sem þakk- lætisvott fyrir að reyna að gera við bíl- inn býður konan Jó- hannesi heim. Þar lendir hann í sínum fyrsta háska í þessari sögu en ekki þeim seinasta. Jóhannes neyðist til þess að hoppa úr freyði- baði beint út á svalir þegar kær- asti ungu konunnar, vöðvabúnt hið mesta, kemur óvænt heim. Kona í næsta húsi rekur augun í Jóhannes kviknakinn, hringir á lögregluna og tilkynnir um dóna- mann í næsta húsi. Þar með hefst flótti Jóhannesar undan lögregl- unni og hefnigjörnum kærasta og rekur hver ótrúlegur atburðurinn annan. Þessi saga er lipur- lega skrifuð og þekk- ing höfundar á lista- og menningarsögu og bókmenntum smitar út á réttum stöðum. Stíllinn er í heild lauf- léttur nema hvað alltof tíðar eignarfallsein- kunnir íþyngja honum. (Er hér er um marg- fræg ensk áhrif að ræða?) Á bls. 61 taldi ég a.m.k. 8 þunglama- lega eignarfallsliði og hefðu þar forsetning- arliðir sums staðar komið að jafngóðum notum og gert stílinn léttari. Andsælis á auðnuhjólinu geymir fyndna spretti en oftast er húmor- inn fremur afturkreistingslegur. Persónusköpun er ekki frumleg heldur er hún eins og afsteypa af afsteypu. Farsakennd atriði sög- unnar hefur maður séð í góðum og lélegum bíómyndum. (Hve mörg tilbrigði ætli séu t.d. til við atriðið af nöktum elskhuga úti á svölum?) Söguframvindan er ólík- indaleg, fáránleg og alls ekki nógu spennandi til þess að geta haldið áhuga lesandans vakandi. (Hvers vegna rauk Jóhannes endilega úr bænum?) Ekki er hægt að líta á Andsæl- is á auðnuhjólinu sem framfarir í ritferli höfundarins. Það verður að dæmast á eigin forsendum. Ef fyrri verk hafa verið bragðmiklir aðalréttir þá er þessi saga eins og sterkt kaffi með stórum mola- sykri. Fyrir mitt leyti nægir einn sopi, molann þigg ég aldrei. Ingi Bogi Bogason 5\6V1^>/V\\t\ý. _ Brúðhjón Allur boiðbiindðitr Glæsileg gjdfavara Bníöarhjdna listar , VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Helgi Ingólfsson Forsetabókin á al- mennan markað NÚ ER komin á almennan bók- sölumarkað Forsetabókin - for- setakjörið 1996 í máli og myndum - eftir Karl Th. Birgisson og Ein- ar Karl Haraldsson, þar sem saga forsetakjörsins er rakin í texta og með fjölmörgum ljósmyndum. For- setabókin hefur verið seld í áskrift og fylgir henni heillaóskaskrá með nöfnum um tvö þúsund Islendinga. í bókinni er rakinn aðdragandi forsetakosninganna, lýst átökum um menn og málefni og viðbrögð- um við kjöri Ólafs Ragnars Gríms- sonar. Þá er sagt frá fyrstu verkum Ólafs Ragnars og Guðrúnar Katrín- ar Þorbergsdóttur eftir embættis- tökuna og stiklað á helstu atriðum í sögu embættisins. „í bókinni er einnig sýnd fylgisþróun frambjóð- enda samkvæmt niðurstöðum skoð- anakannana, en með nokkuð öðrum hætti en tíðkast hefur, og kemur þar fram talsvert önnur túlkun en kjósendum birtist í ijölmiðlum á sínum tíma. Þá er greint frá mál- flutningi frambjóðenda, deilum þeirra um eðli embættisins og með- ferð þess, svo og pólitískum undir- tónum kosningabaráttunnar," segir í kynningu. Bókina prýða á annað hundrað ljósmyndir sem fæstar hafa komið fyrir almenningssjónir áður. Útgefandi er Félag um forseta- framboð Ólafs Ragnars Grímsson- ar, en dreifingu annast Islensk bókadreifing. Kántrýlag ábók BÖKMENNTIR Skáldsaga TÓNLIST TVEGGJA HEIMA eftir Robert James Walker. Vaka- Helgafell 1996.310 bls. ALLIR sem gaman hafa af bandarískri sveitatónlist ættu að verða sér úti um þessa bók. Hér svífur yfir rykugum sléttum og endalausum ökrum andi harm- sögulegra örlaga alþýðufólks sem aldrei öðlast hamingjuna nema rétt eitt svikult augnablik þegar frelsi, framtíð og draumur renna saman í nálaroddsstórum punkti sem rist- ir svo djúpt að skortur og nauð ijúka út í veður og vind og sælu- tilfinning engri lík springur út í höfðinu, eins og flugeldasýning á lokaathöfn Ólympíuleikanna. Þetta augnablik er hins vegar glæpsam- lega skammvinnt. Aður en varir er allt komið í sama farið aftur; peningavesen, rifrildi, drykkju- skapur og glataðir sénsar ríða húsum, steypa stæðilegum karl- mönnum í hyldjúpa örvæntingu og reka dýrlétt kvenfólk sem allajafna „stendur við hlið mannsins síns“ burt frá börnum og maka. Eftir sitja harðir naglar með gljúpa sál og harma óréttlátt straff fyrir glæpi sem þeir frömdu aðeins af því að þeir „gátu ekki breytt sér“. Þeir standa á veröndinni og mæna út í óravíðáttur Texas, Nebraska eða Vestur-Kentucky og syngja eins og Kenny Rogers um Lucy sem fór á versta tíma þegar upp- skeran beið á ökrum og börnin fjögur lágu vælandi í beðnum og heimtuðu mat. Eða þá að þeir taka undir með ónefndum snillingi sem harmaði ekki aðeins að konan hefði stolist á brott heldur einnig að hún hefði stolið uppáhalds gallabuxun- um hans í leiðinni. Sveitatónlistin er óperumúsík alþýðumannsins, melódrama dreifbýlisins, láglauna- fólksins og hörðu jaxlanna sem þó eru svo meyrir í rótina. Það er stað- fest regindjúp á milli samfélagsins sem hún rís af og borgarinnar þar sem Menningin blómstrar og firr- ingin slítur öll bönd. Á þessu djúpi rær Robert James Walker. Hann fiskar upp eitthvað sem margir kannast sömuleiðis við úr sveitasöngvunum: Huggulegheit. Skáldsöguheimur hans er ósköp kósulegt pláss þar sem frústrerað- ur grænmetissali springur loksins út eftir að hafa afplánað langa vist í hvunndagshelvítinu, þar sem ístaðslaus fegurðardís nær loksins að skorða sig af í hnakknum, þar sem gæðalegur sveitasöngvari skilur loksins, að við erum oftast „alltof feimin við að elska“. Jafn- vel hin harmsögulega aðalpersóna bókarinnar, Jack Carmine, sem þó er á hraðri niðurleið í bókarlok, plagaður af ásóknum úr Víetnam- stríðinu og hruni þess heims sem honum þótti vænst um, er einhvern veginn notalegur á sinn hijúfa hátt. Hann er jú frelsandi engill stjórnleysis og uppreisnar. Hann er náttúrukraftur sem sendur er til að bijóta hlekki annarra þótt hann geti aldrei molað sína eigin. Hann er táknmynd þess sem Amer- íka stendur fyrir; óheft frelsi í bland við ást á eigin reit, staðfesta ofin stöðugu flökti. Samúðin er hans. Þetta er afskaplega haganlega skrifuð bók. Hún er að vísu inn- blásin af ótta við hvarf gildanna sem límt hafa saman bandaríska fjölþjóðasamfélagið og því er höf- undi umhugað um að innrétta frá- sögnina með þægilegri lýsingu og fallegum húsgögnum. í henni er sköpuð „mannleg" og „hlý“ veröld til að vega upp á móti yfirvofandi hruni amerískrar menningar, sbr. kúltúrpessimistískar hugleiðingar grænmetissalans Vaughn Rho- mers: „En núna var spillingin komin út í öfgar, eins og næstum allt annað í Bandaríkjunum, og orðin ráðandi. Glæsileikinn var horfinn." (Bls. 64.) En bandaríska raunsæið reddar henni frá því að verða væmninni alveg að bráð. Fáum er jafn vel lagið að búa til sögur um venjulegt fólk og Amer- íkönum. Hér standa ómenntaðir farandverkamenn og fatafellur uppi eins og sannar hetjur, sem flóknar manngerðir, en ekki sem plebbar eins og oft vill verða í evrópskum bókmenntum. Líkt og í sveitasöngvunum birtist manni hér fólk af holdi og blóði, ekkert svo sem óskaplega djúpt þenkj- andi eða á þeim buxunum að leysa helstu vandkvæði samtímans, en er kannski þess vegna svo vina- legt og hlýtt. Þetta eru manngerð- ir sem eru „of heimskar fyrir New York og of ljótar fyrir LA“, eins og segir í lagi Garths Brooks; al- þýðuhetjur. Þeim, sem finnst kántrý væmið og hallærislegt, ættu að varast þessa bók eins og heitan eld. Hinum ætti hér flest að falla vel í geð. Ég held að þar sé fundinn besti mælikvarðinn á hana. Kristján B. Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.