Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 33 Ófyrirleitin og hógvær BOKMENNTIR Ljóö TILVISTARHEPPNI eftir Margréti Lóu Jónsdóttur, Marló, 1996 - 68 bls. SKÁLDSKAPUR er í eðli sínu spurning og skáldið spyrjandi auga. Það er einkenni góðra skáldverka að vekja fremur spurningar og leita svara en að vera svarið sjálft. Les- endur geta að sjálfsögðu fundið svör í skáldritum en þau er þá oftast nær afleidd enda er skáld- skapur ekki einungis veruleiki heldur einnig ímynd veruleika sem les- endanna er að endur- skapa. Flest skáld hljóta því með einhveijum hætti fyrr eða síðar að fjalia um samband sitt og sköpunarverks síns ein- mitt vegna þess að það er þeim ekki síður undr- unarefni en lesendum. Alveg eins og sjómenn spyija um eðli starfs síns, kvóta, veiðarfæri, vinnubrögð og fiskgengd hljóta skáld að velta fyrir sér skáidskapn- um, innblæstrinum, forminu og hinu ljóðræna í manninum. Það er hins vegar sjaldgæfara að þau leggi und- ir þá umfjöllun heila ljóðabók. En það gerir Margrét Lóa Jónsdóttir með bók sinni Tilvistarheppni. Vitaskuld er margt meira í þess- ari bók en spurningar um ljóð, ljóð- form og innblástur. í leit sinni að svörum við eðli Ijóðsins kemst skáld- ið nefnilega að því að ailt er „ljóð- rænt og myndrænt" ef út í það er farið. Ljóðabókinni skiptir Margrét markvisst upp í sex ljóðaflokka sem hver um sig hefur sín sérkenni en tengjast þó meginefni ljóðabókarinn- ar. Sumir fjalla um ástir, aðrir um eilífðina og efann en fyrirferðar- mestur og ef til vill einnig átaka- mestur er síðasti bálkurinn um Draumey sem er einhvers konar annað ljóðsjálf bókarinnar. Hún er „í senn ófyrirleitin / og hógvær" en upplifir skáldskapinn sem lífið í miklu návígi. Hún er „tvífari sjálfs þín“ eins og segir í kvæðinu: Hún er þú þegar þú öðlast lífshamingjuna. Þú þegar þú glatar öllu sem þú átt. Þú í góðra vina hópi. Þú á sólríkum degi. Þú þegar þú deyrð. Þú að hugsa um mennina og heim- inn. Mér finnst þessi Ijóðabók Margr- étar Lóu vel heppnuð í mörgu tilliti. Hún færir okkur ef til vill ekki nýjan skilning á eðli ljóðsins. Efnistök skáldkonunnar eru heldur ekki frum- legri en gengur og gerist og mynd- sköpun hennar hefur jafnvel stund- um verið glæsilegri. En hún tekst á við ljóðið og sjálfa sig í Ijóðinu og úr þeim átökum sprettur fijór skáld- skapur sem vekur margs konar spurningar. Margrét teflir gjarnan fram and- stæðum í ljóðum sínum. Annars veg- ar er heimur skipulags, sjálfstjórnar sem hún tengir ytra formi, vissu og handfestu veruleikans. Á sviði ljóð- listarinnar væri slík handfesta hin gráa kenning ljóðgreining- arinnar þar sem stagl- ast er á „íróníu / meta- fóru og allegóríu". Á hinn bóginn blasir við okkur veröld óvissunar þar sem sannleikurinn „ er hreint ekki til / aðeins misfögur blæ- brigði lyginnar", heim- ur tiifinninga og mennsku. í ljósi þess- ara andstæðna spyr skáldkonan: „Mark- vissar setningar? / Ómarkvissar mann- verur?“ Hinn ijóðræni veruleiki er því ekki fyrst og fremst orð sem vísa okkur veginn heldur tjáning á innstu veru sem í sjálfri sér er sundruð og vega- laus: Ljóð eru ekki orð Ljóð eru að minnsta kosti djúpgrænt vatn - Fjarðamynni Skýjaflóki eða tungl sem aldrei sést. Trylltasta röddin í höfðum okkar? Sjúk þrá í djúpu fylgsni... Tilhlökkun eða hin bliðasta einsemd? Nei - Ljóð eru ekki orð! Ljóð eru raunar festingin sjálf Stjarna og stjarna En samt er ekkert sem vísar okkur veginn. Ljóðatexti Margrétar er léttleik- andi, útleitinn og opinskár þótt efni ljóðanna leiði hugann inn á við. Skáldkonan tekur sig heldur ekki allt of hátíðlega og skopast jafnvel að viðleitni sinni til að skilja og skil- greina. Eigi að síður er megintónn- inn alvarlegur og skáldskapurinn persónulegur og einlægur. En mikil- vægast er þó að bókin er uppfull af orðfimi og myndum sem kveikja spurningar og svör. Skafti Þ. Halldórsson Margrét Lóa Jónsdóttir Afmælisútgáfa í takmörkuðu upplagi, aðeins 100 stk í boði 5.000, króna afmælisafsláttur Nilfisk Silver ^onix HÁTÚNI6A REVKJAVlK SÍMI 552 4420 LUXUS- ÚTFÆRSLU, FRAMLEIDD í TILEFNI 90ÁRA AFMÆLIS SIILFISK Nilfisk Silver (£þccfaz íslemki ostminn er kominn á ostabakkann, þegar hann kórónar matavqcrðina - bræWur eða ðjupsteiktnr - eða er einþaððleqa settur beint í munninn Q/slemkur rsóketa í ktqð'ðotiu Frábær með fersfeu salati og sem snarl. ostababbann og með ifeexi og ávöxtum. <g/Aon&a (Sóétie Með feexinu, brauðinu og ávöxtunum. Mjög góður djúp- eða smjðrsteifetur. ©ðiascaqione Góður einn og sér og tilvalinn í matargerðina. (£ívitut kastali Með fersfeum ávöxtum eða einn og sér. ^foamembert Einn og sér, á ostababbann og í matargerð. £Jljómaostm Á bexið, brauðið, í sósur og ídýfur. <Q)tort -Q£)imon Ómissandi þegar vanda á til veislunnar. £líuxusifr{a Mest notuð eins og hún bemur fyrir en er einbar góð sem fylling í bjöt- og fisbrétti. Bragðast mjög vei djúpsteibt. <£Port £jalut Bestur með ávöxtum, brauði og bexi. Tilvalinn til matargerðar- í súpur, sósur eða til fyllingar í bjöt- og fisbrétti. Góöur einn og sér. 0"Pepperoneostur Góður í ferðalagið. (cplvítlauks Qpðtie Kærbominn á ostababbann, með bexi, brauði og ávöxtum. ISLENSKIR ^g.tlNAS?4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.