Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 35
sleyfa náttúru-
mefnd ríkisins
orða-
ngar
Morgunblaðið/Golli
idir náttúrulyf, þar sem þær eru
allt skal skrá sem náttúrulyf.
heilsu manna eða mjög vandmeðfarin,
þ.e. lyfseðilsskyld náttúrulyf, og nefn-
ir sem dæmi ópíumdropa.
Einar bendir á að vissulega kosti
það sitt að uppfylla gæðakröfur og
skrá náttúrulyf samkvæmt reglugerð-
inni. „En það kostar líka að slátra í
sláturhúsum. Það er ódýrara að slátra
heima, en það er bara bannað! Við
megum ekki slaka á kröfunum, það
eru ákveðnar grunnreglur sem verður
að virða. íslendingar eru búnir að
undirrita ákveðna samninga og þá
verður að fara eftir þeim.“
Úlfur Ragnarsson, læknir og félagi
í Heilsuhringnum, er á öndverðum
meiði. Hann er á þeirri skoðun að
reglugerð um náttúrulyf sé með öllu
óþörf og telur að Evrópusambandið
sé fremur að vernda hagsmuni lyfja-
verksmiðja en heilsufar fólksins.
„Náttúrulyf eiga að vera skaðlaus og
ódýr lyf sem almenningi er treystandi
til að fara með samkvæmt eigin dóm-
greind. Um leið og farið er að setja
um þau reglur þannig að verðlagið
rýkur upp er verið að ýta undir notk-
un á hinum lyfjunum, sem fólk fær
jafnvel alveg frítt hjá læknum," segir
hann.
A Einari Þorsteini og fleirum er
að heyra að æskilegra hefði verið að
náttúrulækningafólk hefði fengið að
koma nálægt undirbúningi reglugerð-
arinnar á fyrri stigum þeirrar vinnu.
Það sjónarmið tekur Einar Magnússon
að vissu leyti undir - eftir á að hyggja.
Hann segir ekki standa til að setja
stífari reglur um þessi mál hér á landi
en þörf sé á. Hann leggur áherslu á
að heilbrigðisráðuneytið vilji góða
samvinnu við alla sem málið varðar
og segir engan sérstakan hraða á
afgreiðslu þess.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra tekur undir að ekki liggi líf-
ið á að samþykkja reglugerðina. Hún
leggur áherslu á að enn sem komið
er sé aðeins um að ræða drög og að
því eigi ýmislegt enn eftir að breyt-
ast. „Við höfum fengið margar góðar
ábendingar sem við munum nýta okk-
ur. Ég tel mikilvægt að fólk geti haft
greiðan aðgang að náttúrulyfjum og
það hefur aldrei verið ætlunin að hefta
frelsi varðandi náttúrulyf. Það er mik-
ill misskilningur," segir heilbrigðis-
ráðherra.
1-
Hafriar- j
SkarðshTiði
Leirár- og
lelahreppur
HvaWjarprstrand,
—^pLambhai
I Hagamelur
áyvQjkLr,
,HI
Akrafjal!
Kjölur
Kiðafell
eppur
Saurbæi
shreppur
osfellsbær
F
UNDUR íbúa Kjósarhrepps
samþykkti í fyrrakvöld
ályktun þar sem skorað er
á umhverfisráðherra og
iðnaðarráðherra að beita sér fyrir
því að nú þegar verði stöðvaðar allar
áætlanir um að gera Grundartanga
í Hvalfirði að mesta stóriðnaðar-
svæði landsins. Fundurinn telur
hættu á að uppbyggingin hafi í för
með sér umhverfisslys í Hvalfírði.
Á milli 40-50 manns voru á fund-
inum sem er u.þ.b. helmingur íbúa
í Kjósarhreppi. Sigurbjörn Hjaltason,
bóndi á Kiðafelli í Kjós, sagði að
íbúar Kjósarhrepps óttuðust að frek-
ari iðnaðaruppbygging á Grundart-
anga myndi hafa slæmar afleiðingar
í för með sér fyrir búsetu og atvinnu-
uppbyggingu við sunnanverðan
Hvalfjörð.
„Okkur finnst ekki fara saman
að byggja upp orkufrekan iðnað við
hlið ferðaþjónustu, sem hefur verið
að vaxa við rjörðinn. Svæðið býður
upp á að það verði notað undir úti-
vist í framtíðinni. Hér er mikið af
sumarbústöðum og margs konar
verðmæti frá náttúrunnar hendi. Hér
eru t.d. fjörunytjar sem vafalaust
munu spillast verði álverið reist. í
Hvalfirði eru helstu kræklingafjörur
Reykvíkinga. Hér eru líka helstu
uppeldisstöðvar æðarfugls við Faxa-
flóa. Okkur þótti því undarlegt að
sjá þá fullyrðingu í umhverfismati
vegna byggingar álvers að engar
merkilegar fuglategundir séu í Hval-
firði. Það alversta er þó ímynd svæð-
isins. Það er ekki sannfærandi að
markaðssetja hreinleika og útivist
þegar svæðið hefur þá ímynd að það
sé ofurselt mengandi verksmiðjum.“
Áfall fyrir landbúnað
Sigurbjöm sagði ljóst að bygging
álvers á Grundartanga yrði mikið
áfall fyrir landbúnað á svæðinu.
Rannsóknir við álverið í Straumsvík
hefðu sýnt að mikið af flúor greind-
ist í beinum sauðfjár. í sumum tilfell-
um hefði það leitt til vanþrifa og
gadds. Það mætti því gera ráð fyrir
að mjög erfitt yrði fyrir sauðfjár-
bændur í nágrenni Grundartanga að
halda áfram búskap eftir að álverið
hefði tekið til starfa. Sigurbjöm sagði
furðulegt að í tillögu að starfsleyfí
væri ekki gert ráð fyrir að fylgst yrði
með flúormagni í nágrenni álversins.
Sigurbjörn sagði að það hefði
komið íbúum Kjósarhrepps á óvart
þegar þeir fréttu að búið væri að
skipuleggja sjö lóðir á 200 ha svæði
við Grundartanga undir stóriðnað.
Svo virtist sem litið væri á þetta
svæði sem helsta stóriðjusvæði
landsins. Hvalfjörður hentaði illa
undir slík not. Hann væri tiltölulega
þröngur, hætta væri á efnamengun
á nálægu landi og í sjó og vatnsöfl-
un á svæðinu væri erfið.
Sigurbjöm sagði að íbúar Kjósar-
hrepps hefðu áður gert athugasemd-
ir við áform um frekari uppbyggingu
stóriðju á Grundartanga, en stjórn-
völd hefðu lítið mark tekið á þeim.
Svo virtist sem keyra ætti þetta mál
áfram án þess að huga að afleiðing-
unum.
Sigurbjörn sagði dæmi um áhersl-
ur stjórnvalda í þessu máli að í
umhverfismatinu væri í ítarlegu
máli greint frá markmiðum
stjórnvalda í atvinnumál-
um og uppbyggingu stór-
iðju, en ekki væri minnst
einu orði á markmið stjórn-
valda í umhverfismálum.
íbúar á Hvalfjarðarströnd
hafa aðra afstöðu
íbúar Hvalfjarðarstrandarhrepps
virðast ekki andsnúnir frekari upp-
byggingu á orkufrekum iðnaði á
Grundartanga eins og íbúar Kjósar-
hrepps. Jón Valgarðsson, oddviti
Hvalfjarðarstrandarhrepps, sagði að
bygging álvers á Grundartanga hefði
verið kynnt íbúum hreppsins á fundi
Akranes
íafförður
'“’-V v'- - •
:
10 km
Skiptar skoðanir
um iðnaðar-
uppbyggingu á
Grundartanga
Ibúar í Kjósarhreppi eru mjög ósáttir við áform
um frekari uppbyggingu stóriðju á Grundar-
tanga. Þeirtelja að afleiðingamar verði alvar-
legar fyrir umhverfíð. íbúar við norðanverðan
Hvalfjörð styðja hins vegar almennt byggingu
álvers á Grundartanga.
Staðsetja á
verksmiðjur á
sama svæði
þegar umhverfismat lá fyrir. Fólk
hefði spurt ítarlega um mengunar-
hættu af álveri. Hann sagðist ekki
vita betur en að íbúar hefðu almennt
sætt sig ágætlega við þau svör sem
fengust frá sérfræðingum. Yrði farið
eftir þeim reglum og lögum sem
gilda um mengunarvarnir væri vel
séð fyrir þeim þætti.
Jón sagði að á sínum tíma hefði
því verið spáð að Járnblendiverk-
smiðjan myndi hafa slæm áhrif á
búsetu og landbúnað við norðanverð-
--------- an Hvalfjörð en annað
hefði komið á daginn. Að
vísu hefði landbúnaður á
svæðinu dregist saman
eins og víðar á landinu, en
verksmiðjan hefði veitt
sveitunum atvinnutækifæri
hefði ekki fengið annars
fólki í
sem það
staðar.
„Járnblendiverksmiðjan er eina
trausta atvinnan sem hefur komið í
staðinn fyrir þau atvinnutækifæri
sem hafa glatast í landbúnaði á
þessu svæði. Okkur þykir margt
mæla með því að staðsetja verk-
smiðjur af þessum toga á sama svæði
og þess vegna mælum við með því
að álverið verði reist hér. Við höfum
ekki þá reynslu af Járnblendiverk-
smiðjunni að hún hafi haft slæm
áhrif á gróður eða aðra slíka þætti.
Ef það stenst sem segir í umhverfis-
mati álvers óttumst við ekki að álver-
ið skaði neitt hér. Við óttumst ekki
að það hafi áhrif á ferðaþjónustu
umfram það sem er í dag,“ sagði Jón.
Járnblendiverksmiðjan
gagnrýnd
Fundur íbúa Kjósarhrepps gagn-
rýndi einnig mengun frá ---------
Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga. í ályktun
fundarins segir að íbúamir
sætti sig ekki við afsökun-
arbeiðni framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Ekki hafí verið
staðið við vilyrði um lagfæringar á
hreinsunarbúnaði verksmiðjunnar.
Fundurinn krefst þess að yfirvöld
láti rannsaka starfsemi verksmiðj-
unnar m.a. með tilliti til þess hvort
umhverfislög hafi verið brotin og
hvort verksmiðjan hafi farið út fyrir
starfsleyfi sitt.
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Járnblendiverksmiðjunnar,
Hvalfjörður
hentar illa
undir stóriðju
sagðist ekki óttast rannsókn á verk-
smiðjunni. Hún hefði engin lög brot-
ið og að öllu leyti haldið sig vel inn-
an við þau mörk sem sett væru í
starfsleyfi.
Jón sagði að stöðugt væri fylgst
með mengun frá Járnblendiverk-
smiðjunni og árlega skiluðu starfs-
menn verksmiðjunnar skýrslu til yf-
irvalda um starfsemi hreinsibún-
aðarins. „Rekstur á reykhreinsivirkj-
um hefur alla tíð verið mjög góður
og mengun frá verksmiðjunni langt
innan við þau mörk sem okkur eru
sett í starfsleyfi. Reykhreinsivirkin
hafa starfað eins og þau eiga að
gera í 99,6-99,8% af rekstrartíman-
um lengst af. Það er ekki mikið af
svona stórum og flóknum tæknibún-
aði sem stendur álag svona vel af
sér,“ sagði Jón.
' Jón sagði að alrangt sem segir í
ályktun fundar íbúa Kjósarhrepps
að verksmiðjan blési frá sér eiturefn-
um. Í reyknum væri fíngert kísilryk
sem væri ekki hættulegt varnarbún-
aði heilbrigðra öndunarfæra. Góð
rök væru fyrir því að þessi reykur
væri meinlausari en venjulegt
vegryk, sandfok eða sinureykur.
Jón sagði að það væri síst af öllu
Kjósveija að kvarta undan reyk fá
Járnblendifélaginu vegna þess að
mjög óvenjulegt væri að vindur stæði
frá verksmiðjunni yfir í Kjós eða
aðeins 1% samkvæmt veðurmæling-
um síðustu missera. Ríkjandi vind-
áttir blésu reyknum annað.
Jón Valgarðsson sagðist telja að
bæta þyrfti mengunarvarnir og
mengunareftirlit við Járnblendiverk-
smiðjuna. Hann sagðist því að hluta
til geta tekið undir áhyggjur íbúa
Kjósarhrepps að þessu leyti.
--------- „Síðustu tvö ár hefur
að okkar mati hefur ekki
verið nægilega gott lag á
mengunarvörnum hjá
_________ Jámblendiverksmiðjunni
á Grundartanga. Það hef-
ur verið allt of mikið um að reykur
hefur sloppið óhreinsaður út. Þeir
hafa sagt okkur að reykhreinsibún-
aður sé farinn að ganga úr sér og
þeir hafi ekki haft ráð á að halda
honum við. Við höfum gagnrýnt
þetta. Við höfum einmitt lagt mikla
áherslu á í sambandi við viðræður
um byggingu álvers að mengunar-
varnar verði að ganga fyrir," sagði
Jón.