Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hin eina og sanna jólastemmning
©PHÍKVðLBTÍL
KL. 12.00
Frítt í stöðumælana eftir kl. 18
AÐSENDAR GREINAR
Tekið á málefnum
grunnskólans
Jfólaleilhuir
'eamití/
Svörvið spurningunum má finna á nýrri heimasiðu versiunarinnar:
www.leonard.is
1. Hvert af þessum nöfnum er undirheiti úrategundarinnar Breitling?
□Navistar □Navitimer □Navigator
2. Frá hvaða iandi eru MCM gjafavörurnar?
□ítaliu □Frakklandi □hýskafandi
3. Hvaða árvarversiunin Leonard stofnuð?
□1991 a1993 01995
Dregið verður úr réttum lausnum að morgni 31. des 1996.
í verðlaun er glæsifegt TAG Heuer úr. Skilið jiessu blaði í
verslunina Leonard í Kringlunni eigi síðar en 30. des 1096.
KBINGLUNNI *SÍMI 588 7230
JÓNAS Ketilsson,
grunnskólanemi, skrif-
ar grein í Morgunblaðið
hinn 13. desember um
niðurstöður úr hinni
fjölþjóðlegu TIMSS
rannsókn á árangri
grunnskólanemenda í
stærðfræði og í nátt-
úrufræðigreinum. Bein-
ir hann máli sínu sér-
staklega til mín sem
menntamálaráðherra.
Um leið og ég þakka
Jónasi fyrir greinina, vil
ég fara nokkrum orðum
um þau málefni grunn-
| skólans, sem hann ræð-
ir. Án þátttöku nem-
enda og foreldra í umræðum um
menntamál stuðlum við ekki að
umbótum á skólakerfinu.
Jónas dregur áreiðanleika rann-
sóknarinnar í efa. Aðstandendur
hennar hjá Rannsóknarstofnun upp-
eldis- og menntamála (RUM) eru
betur í stakk búnir en ég til að ræða
aðferðarfræði hennar og geta eflaust
orðið að liði i þeim efnum. Með til-
liti til raunverulegra úrbóta er
happadrýgra, að menn einbeiti sér
fremur að því að leita skýringa á
niðurstöðum en eyði orku í að gera
þær tortryggilegar.
Ég tek undir með Jónasi að ekki
er rétt að draga almennar ályktanir
um stöðu nemenda í öllum náms-
greinum af árangri í nokkrum grein-
um, enda hafa talsmenn RUM varað
sérstaklega við því. Rannsókn sem
tekur aðeins til tiltekins hluta af
námi nemenda er ekki mælikvarði á
getu þeirra almennt. Því er rétt að
könnunin endurspeglar ekki endi-
lega menntun í íslenskum grunn-
skólum. Á hinn bógin er slík rann-
sókn marktæk mæling á getunni í
þeim hluta náms sem hún nær til,
því má ekki gleyma.
Ný aðalnámskrá
Jónas gagnrýnir stefnu mína í
aðalnámskrá grunnskóla. í þessu
sambandi er nauðsynlegt að hafa í
huga, að sú aðalnámskrá sem er í
'Mk
gáíföfels
RADIX EHF
Grandaveg
107 Reyk ji
. Sími 56) -H
HEILSUNNAR VEGNA
Tempar heilsukoddinn
Einstakir þrýstíjöfnunareíginleikarTempur-efnisins
gera það að verkum að Tempur-koddinn tryggir
bryggsúlunni rétta stöðu i svefni, lagar sig að
höfðinu og veitir hálsvöðvum stuðning þannig að
böfuðoghálseruí sinni náttúrulegu stöðu.
Blóðflæðið helst óáreitt vegna þrýstijöfhunar-
eigínleika efnisins. Tempur-efnið er þróað af
NASA (Geimvísíndastofnun Bandaríkjanna) til
þessað ná hámarksþrýstijöfnun og þægindum
fyrir geimfara.
■ Spurðu sjúkraþjálfarann þinn eða sjúkranuddarann um Tempur-koddann og -dýnuna.
• Tempur dýnur eru notaðar á áiagsrúmum sjúkrahúsa um afian heim.
Komið og skoðið Tempur kodda og dýnur. Efníð er
einstakt og eitthvað sem þið hafið ekkí komið víð áður.
Afgreiðslutími: Mánudaga - föstudaga kl. 13.00 - 17.30
iaugardaga kl. 11.00 - 15.00
gildi nú kom til skjal-
anna árið 1989, all-
nokkru áður en ég kom
til stárfa í mennta-
málaráðuneytinu. Hins
vegar er nú þegar haf-
in vinna á vegum
menntamálaráðuneyt-
isins við endurskoðun
þeirrar aðalnámskrár
og raunar einnig við
endurskoðun á aðal-
námskrá framhalds-
skóla.
Undirbúningur að
þessari vinnu hófst í
vor en var formlega
Bjorn hleypt af stokkunum í
Bjarnason júlílok eftir að sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar um verk-
skipulag lá fyrir. Endurskoðunin
gengur samkvæmt áætlun og er
ætlunin að ljúka verki um mitt sum-
ar 1998.
Ný námskrá, breyttir
kennsluhættir, fjölgun
skóladaga og kennslu-
stunda, segir Björn
Bjarnason, eru mark-
mið endurbóta í grunn-
skólanum.
Aðalnámskrár eru meginviðmið
skólastarfs og þýðingarmikill far-
vegur úrbóta í menntamálum. Eitt
viðfangsefni þeirra sem að endur-
skoðuninni starfa er að hyggja að
hlutfalli þess tíma sem varið er til
kennslu í einstökum námsgreinum,
þar á meðal í raungreinum. Mun
stefnumótunarnefnd, skipuð fulltrú-
um allra stjórnmálaflokka á Alþingi,
m.a. gera tillögur þar að lútandi.
Þá hefur ráðuneytið þegar lagt
fram nokkur stefnumið sem miða
að eflingu náms og kennslu í íslensk-
um skólum og verða viðmið við úr-
vinnslu og tillögugerð í vinnuhópum
á síðari stigum. Meðal þeirra stefnu-
miða sem hér um ræðir má nefna
áherslu á íslensku, sögu og þjóð-
menningu, áherslu á vísindalæsi,
tæknimenntun og raungreinar, al-
þjóðlegar kröfur, skýra markmiðs-
setningu, endurskoðun kennslu-
hátta, áherslu á einstaklingsmiðað
nám og samfellu í námi á milli skóla-
stiga. Fleira mætti nefna í þessu
sambandi en hér nægir að nefna að
til samans eru þessi stefnumið, sem
og aðrar aðgerðir á vegum ráðuneyt-
isins liður í viðbrögðum við aðsteðj-
andi vanda og munu leiða til bóta í
menntamálum.
Nýir kennsluhættir
Staðreyndaþekking er ekki kjarni
menntunar en er þó mikilvægur þátt-
ur í menntun. Athuganir benda til
þess að kennsluhættir hérlendis séu
of einhæflr. Kennsluaðferðir henta
nemendum misvel og því er ekki
hægt að koma til móts við ólíka
nemendur nema með fjölbreyttum
kennsluaðferðum. Þá skiptir ekki
minna máli hvernig nemendum er
kennt, hvað fyrir þeim er haft og
hvað þeir fá tækifæri til að gera.
Meginmarkmiðum skólalöggjafar
um eflingu sjálfstæðrar hugsunar,
hæfni til þekkingaröflunar og þjálf-
un ályktunargáfunnar og samvinnu
verður ekki náð ef kennsluhættir
miðast eingöngu við staðreyndanám.
Ráðuneytið leggur áherslu á að í
námskrá verði sett fram sú krafa
að samræmi sé á milli markmiða og
kennsluhátta í skólum, t.d. með auk-
inni verkefnavinnu og hagnýtum
úrlausnarefnum.
Fjölgun
kennslustunda
Þegar rýnt er í tölur kemur í ijós
að á Islandi er hlutdeild stærðfræði
og náttúrufræðigreina í heildar-
kennslustundafjölda sambærileg við
önnur OECD ríki. Þetta merkir að í
raun eru lagðar sambærilegar áhersl-
ur í kennslu hér og í OECD ríkjun-
um, þótt hvert menntakerfi um sig
hafí tiltekin sérkenni. Hins vegar er
skólaárið styttra hér en víðast hvar
annars staðar.
í nýjum lögum um grunnskólann,
sem tóku gildi á síðasta ári, var kveð-
ið á um umtalsverða fjölgun kennslu-
daga frá því sem áður var. Þar var
meðal annars ákveðið að starfstími
nemenda á hverju skólaári væri níu
mánuðir og kennsludagar ekki færri
en 172. Áður stóðu nemendum ein-
ungis til boða um 160 kennsludagar
á ári. Hins vegar var grunnskólalög-
unum breytt fyrr á þessu ári og
kennsludögum fækkað í 170 eftir
viðræður við samtök kennara. Þrátt
fyrir þetta eiga grunnskólanemendur
nú rétt á umtalsvert fleiri kennsiu-
dögum en áður og mun það án efa
styrkja grunnskólamenntun á kom-
andi árum.
Markvisst er unnið að fjölgun
kennslustunda. Stefnt er að einsetn-
ingu grunnskóla á næstu átta árum.
Samhliða því verður vikulegur
kennslustundafjöldi aukinn, að með-
altali um fimm og hálfa stund á ári
fram yfir aldamót eða úr 309 stund-
um árið 1996 í 336 stundir árið 2001.
Að auki gengur menntamálaráðu-
neytið nú harðar eftir því en áður
að skólahald vari í minnst níu mán-
uði á ári en samkvæmt lögunum
getur menntamálaráðherra veitt
tímabunda undanþágu frá fuilum
starfstíma skóla með hliðsjón af at-
vinnuháttum og aðstæðum í einstök-
um skólahverfum.
Enginn áfellisdómur
Að síðustu vil ég minna á að eng-
inn áfellisdómur hefur verið felldur
yfir grunnskólanemendum vegna
þeirra niðurstaðna sem hér um ræð-
ir. Varast ber að leita einfaldra skýr-
inga á frammistöðu okkar í TIMSS
rannsókninni. Eina ályktunin sem
enn virðist unnt að draga af niður-
stöðunum er að margir og fjölbreyti-
legir áhrifaþættir koma þar við sögu.
Næsta skref er að greina fjölda
þeirra, vægi og innbyrðis tengsl.
Æskan er framtíðaraflvaki þjóðar-
innar. Til þess að hún megi vaxa
og dafna er nauðsynlegt að búa
ungmenni þessa lands undir líf og
störf í nútímasamfélagi. í þeim efn-
um hefur menntun úrslitaþýðingu
og taka umbætur sem nú eru í far-
vatninu á vegum menntamálaráðu-
neytis mið af þeirri staðreynd.
Höfundur er
menntamálaráðherra.