Morgunblaðið - 18.12.1996, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
e. íólamáltíi 5
_______í þessum síðasta þætti mínum fyrirjól,________
segir Kristín Gestsdóttir gef ég bónda mínum orðið.
Á HINNI miklu hátíð ljóssins kem-
ur sitthvað upp í hugann. Ég fór
með dóttur mína bamunga til þess
að fá gleraugu. „Af hveiju viltu fá
gleraugu?" spurði læknirinn hana.
„Ég sé ekki Jesú á myndinni í Frí-
kirkjunni," var svarið. Myndin
skipti hana svona miklu. Ég fór
með tvo tælenska drengi í Hall-
grímskirkju um daginn. Þegar við
gengum inn kirkjuskipið, leit sá
yngri upp á mig og sagði: „Það
vantar myndina." Mikið rétt, það
er engin altaristafla í Hallgríms-
kirkju, ójafnvægi hefur myndast
innan kirkju eftir að orgelið kom.
Börn eiga miklu auðveldara með
að persónugera orð Krists, hafi þau
hann jafnframt í myndrænu formi
fyrir augum sér. A jólunum - á
hátíð barnanna ættum við fullorðna
fólkið að staldra við og eins og
bamið sem vildi fá gleraugu, setja
upp gleraugu á okkar innri sjónir
og horfa á mynd Jesú í fríkirkjum
okkar eigin sálar. Gleðileg jól.
Hér er boðið upp á svína-skorpu-
steik og nýstárlegan hrísgijóna-
ábætisrétt.
Þykkur vöðvi eins og hér er not-
aður verður oft þurr og bragðlítill.
Ég bregð á það ráð að sprauta
kryddlegi inn í vöðvann með
sprautu sem ég kaupi í apóteki.
Einnig má sprauta bráðnu smjöri
inn í vöðvann. Það gildir með þetta
eins og annað svínakjöt að vöðvinn
sé gegnumsoðinn. Hér er ekki gefið
upp magn af kjöti, heldur almennar
leiðbeiningar við matreiðslu steikar-
innar.
Kryddlögur
1 dl vatn
2 msk svinakjötskryddblanda með salti
eða 2 tsk salt,
10 piparkom,
1 lárviðalauf
og 'A tsk salvía.
Þetta er soðið við hægan hita í 10
mínútur, þá er það síað í gegnum
kaffipappírspoka og leginum sprautað
á nokkrum stöðum inn í steikina.
Til að fá harða skorpu
1. Skorið er í pumna niður að kjöt-
vöðva en alls ekki lengra, skomir eru
femingar, tígiar eða rendur.
2. Bakaraofninn er hitaður í 225°C.
3. Sjóðandi vatn er sett í botninn á
steikingarpottinum eða skúffuna úr
bakaraofninum, steikin sett í vatnið.
Hún á að þekja puruna, hún höfð
þannig í ofninum í 25 mínútur.
4. Síðan er puran þerrað og blöndu
af salti og negul stráð í rifumar á
henni og salti og pipar stráð á kjötvöð-
vann.
5. Hitinn á ofninum lækkaður í
150°C, steikin sett á ofnskúffuna neð-
arlega í ofninn, puran snúi upp og
steikt í 3-4 klst. eftir stærð. Hvorki
er ausið yfir steikina né haft vatn í
pottinum eða skúffunni.
6. Að steikingu lokinni er hitinn
hækkaður í 225°C. Grindin eða skúff-
an skoluð með örlitlu vatni og það
notað í sósu og steikin höfð á grind
við þennan háa hita í 15 mínútur.
Meðlæti með steikinni er sósa,
rauðkál, hrásalat blandað með ávöxt-
um, soðnar kartöflur og soðið græn-
meti.
Hrísgrj óna-ávaxtabúð-
ingur með sósu
3 dl lítil hrísgijón
6 dl nýmjólk
‘Atsk salt
30 g smjör
1 vanillustöng
4 eggjarauður
2 dósir sykurlausir ananashringir, 432
g hvor
1. Setjið hrísgijón, mjólk, salt, smjör
og sundurskorna vanillustöng í pott.
Sjóðið við hægan hita í vel lokuðum
potti í 15 mínútur, slökkvið þá á hell-
unni og látið pottinn standa lokaðan
á henni í 10 mínútur.
2. Hrærið síðan eina eggjarauðu í
senn út í. Raðið ananashringjum á
botninn og upp með börmunum á djúp-
ri eldfastri skál og setjið hrísgijónin
ofan á og þrýstið upp með börmunum
þannig að stór hola myndist í miðj-
unni. Takið frá hrísgijón til að setja
ofan á.
Fylling:
2 epli
2 bananar
4 ananashringir
1 bréf Oetker vanillubúðingsduft
1. Skerið ávextina í bita. Búið til búð-
inginn skv. leiðbeiningum á umbúðum,
blandið saman við ávextina.
Setjið í holuna á skálinni, þekið síð-
an með hrísgijónunum, sem þið tókuð
frá. Leggið álpappír ofan á. Bakið í
190°C heitum ofni í 30 mínútur.
Kælið.
Sósa með hrísgrjóna-
búðingnum
Safí úr annarri ananasdósinni
safi úr 2 appelsínum
1 dl sykur
1 peli ijómi
Þetta allt soðið við meðalhita þar
til það hefur minnkað veralega og
þykknað. Blandað saman við þeyttan
ijóma.
RAÐA UGL YSINGAR
Óli prik
Leikskólakennara eða starfsmann, vanan leik-
skóla, vantar á leikskólann Óla prik, Hornafirði
frá og með 2. jan. ’97. Vinnutími kl. 12.45-17.
Vinsamlega sækið um hjá leikskólastjóra
í síma 478 2075 fyrir 24. desember nk.
Sölustarf
Fyrirtæki, með nýjungar í efnavörum, vill ráða
reglusaman og snyrtilegan starfsmann með
eigin bíl til sölu- og kynningarstarfa.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „H - 16137.“
Starfsmaður óskast
Traust og gott fyrirtæki á Akureyri óskar eft-
ir starfsmanni til að annast skönnun, tölvuút-
prentun og lagfæringar á Ijósmyndum.
Viðkomandi verður að geta unnið með
Photoshop, Freeehand, CorelDraw, Micro-
soft Office og hafa góða þekkingu á PC og
Macintosh.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 179,
603 Akureyri, fyrir 23. desember nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
ST. JÓSEFSSPÍTAU SSIfS
HAFNARFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
athugið!
Laus staða á speglanadeild St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði, 80% starf. Starfið er tímabund-
ið og veitist frá 15. janúar 1997 til 15. janú-
ar 1998 eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 30. desember 1996.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Sæmunds-
dóttir, deildarstjóri speglanadeildar, í síma
555 3888 eða Gunnhildur Sigurðardóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 555 0000.
Umsóknir sendist til skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra.
Staða deildarstjóra
á fjármálaskrifstofu ráðuneytisins er laus til
umsóknar. Umsækjandi skal hafa háskóla-
próf í viðskiptafræði eða rekstrarhagfræði.
Starfið felst m.a. í fjárlagagerð, eftirliti með
framkvæmd fjárlaga, áætlanagerð vegna
reksturs stofnana og verkefna sem undir
ráðuneytið heyra, svo og umsjón og af-
greiðsla ýmissa erinda á fjármálaskrifstofu.
Kjör eru samkvæmt samningi Félags há-
skólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs-
ins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150
Reykjavík, eigi síðar en 13. janúar nk. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
í síma 560 9700.
Reykjavík, 16. desember 1996.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
ÍSLANDSBANKI
Sérfræðingur
i lánaeftirlit
Óskað er eftir sérfræðingi í Lánaeftirlit.
Lánaeftirlit hefur m.a. eftirlit með lánveiting-
um útibúa, metur áhættu og tryggingar og
vinnur að úrlausn stórra og erfiðra lánamála.
Það tekur þátt í mótun reglna og hefur eftir-
lit með framkvæmd þeirra. Lánaeftirlit heim-
ilar útlán að vissu marki ásamt ýmsum öðrum
verkefnum á sviði lánamála.
Einkum er leitað að manni með reynslu á
sviði lánamála, til að halda utan um og vinna
að úrlausn á stórum og erfiðum vanskilamál-
um ásamt aðstoð við útibú vegna slíkra mála.
Nánari upplýsingar veitir Þórður Jónsson,
forstöðumaður Lánaeftirlits, Kirkjusandi, 155
Reykjavík.
Umsóknir sendist til Guðmundar Eiríksson-
ar, Starfsmannaþjónustu, Kirkjusandi, 155
Reykjavík, fyrir 23. desember 1996.
ONSKOLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR
REYKJAVÍK
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar óskar
eftir að ráða ritara í fullt starf á skrifstofu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Auk góðrar kunnáttu í íslensku er æskilegt
að umsækjandi hafi nokkuð vald á ensku,
einu Norðurlandamáli og reynslu af ritara-
störfum.
Skriflegar upplýsingar um menntun og fyrri
störf þurfa að berast skólanum fyrir
1. janúar nk.
Nánari upplýsingar um ofangreint starf eru
veittar daglega milli kl. 13.00 og 17.00
í síma 552 5828.
Aðalfundur
Aðalfundur Félagsráðs Hauka verður hald-
inn í kvöld, miðvikudagskvöldið 18. desem-
ber, kl. 20.00 í félagsheimilsinu við Flata-
hraun.
Félagar fjölmennum.
Stjórnin.
StnOouglýsingor
I.O.O.F. 9 = 17812188A = Jv.
I.O.O.F. 7 = 17812188'/! = J.V
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30
í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður: Friðrik Hilmarsson.
Allir velkomnir.
□ Glitnir 5996121819 I Jf.
REGLA MIISTERISRIDDARA
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og biblíulestur i
kvöld kl. 20.
Ræðumaður Hafliöi Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.